Tíminn - 08.02.1968, Síða 2
2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 8. febrúar 1968.
Islenzki fáninn blakti
í miðri fánaborginm
í janúarlok var haldin veg
leg tónli'starlhátíð í hinni glað
væru borg, Cannes við Mið-
jarðarhafið. Komu þar fram
um 400 listamienn fré 40 þjóð
um, margir heimiskunnir og
þótti bátíðin merkur atíburður
og fara skínandi vel fram.
Við fslendingar áttum okkar
fulltrúa á þesisari hátíð, Karla-
kórinn Vísi frá Siglufirði, sem
undir stjórn hins mikilhæfa
tónilistarmanns Geirharðs Val-
týssonar hefur brotið upp á
ýmsum nýjungum í íslenzkum
kórsöng, og áunnið sér miklar
vinsældir fyrir bragðið, enda
er söngur kórsibs og verkefna-
val prýðilegt. Um jólin 1966
komu út á vegum Fállkans h. f.
í Reykjiavfk tvær hljómplötur
sungnar af Karlakórnum Vísi
og það var ekki að sökum að
spyrja, söngur hans hljómaði í
svo tiil hverjum óskalagajþætti,
og plöturnar náðu mjög mikilli
útbreiðslu en þær seldust í um
> 3500 eintökum og var það
hæsta sala á íslenzkri hljóm-
jjplötu þetta árið.
Alþjóðasamband hljómplötu-
framleiðenda MIDEM veitir ár-
lega verðiaun þeim aðila í
hverju landi innan sambands-
ins, sem mesta hljómplötusölu
hefur, og var það því Vísir,
sem þessi verðlaun hlaut þetta
árið. Jafmframt var kórnum boð
ið á tónliistarhátíðina í Cannes
til að kynna þar söng sinn og
veita verðlaununum viðtöku.
Íslenzki fáninn fyrir
miðju
Þrátt fyrir ýmsa erfiðieilka
við að fara í svo langt og dýrt
ferðalag ákváðu Vísismenn
Karlakórinn Vísir er
nýkominn heim frá
Cannes í Frakklandi,
þar sem hann tók þátt
í tónlistarhátíð og
veitti viðtöku verðlaun
um frá Alþjóðahljóm-
plötusambandinu.
samt að. taka boðinu. Þeir
lögðu af stað 21. janúar frá
Siglufirði til Sauðárkróks, þar
sem flugvél frá Loftleiðum
beið þeirra og flutti til Kefla-
víkurflugvaliar. Þaðan var rak
leiðis haldið til Frakklands og
len* í borginni Nice eftir 7
klukkustúnda flug. :
Að sjálfisögðu var mikið um
dýrðir í Cannes þá daga, sem
hátíðin stóð yfir, en það var
vikan 21. — 28. janúar. Lista-
menn og tónlistarunnendur
hvaðanæva úr heimi streymdu
á véttvang og á hverju kvöldi
voru haldnir tónleikar í tveim
ur samkomuhúsum í borginni,
í öðru klassískir, en í hinu var
flutt tónlist af léttara tagi.
Glæsileg fánaborg var framan
við aðalsöngleikahöllina í Cann
es. Blöktu þar. fánar áílra
þeirra þjóða, er fulltrúa áttu'
á hátíðinni, og svo skemmtilega
vildi til, að íslerizki fáninn var
þar fyrir miðju.
Tónlistarhátið þeessi er þrí
þætt. í fyrsta lagí er hún nokk
urs konar markaður, þar sem
forystumenn úr tónlistarheimin
um koma samam, hlusta á tón-
verk, semja um flutningsrett
og ráða listamenn, Þá eru
haldnir fjölmargir tónleikar á
vegum stærstu hljómpLötufyr-
Geirharður Valtýsson stjórnandi Vísis og Sigurjón Sæmundsson, formaður
stjórnar kórsins með verðlaunagripinn og hljómplötu þá, sem tryggð'i
þeim verðlaunin.
á miklum hátíðahljómleikum í
irtækjanna, m. a. E.M.I., Rec-'
ords og D'ecca. f þriðja lagi
eru haldin sérstök hátíðar-
kvöld, en þar koma fram lista
menn, er sungið hafa og leikið
inn á þær hljómplötur, er mest
hafa selzt.
Afhending verðiauna
Verðlaunaaflhendingin fór
fram laugardaginn 27. janúar
samkomuisal, sem tekur um
1700 manns í sæti og var hann
fullskipaður prúðtoúnum áhorf
endum. Vísir var fyrstur á dag
skrá og söng m. a., hin ramm-
íslenzku lög Jóns Leifs við
Dýravísur og Siglingavísur og
fékik hann mjög góðar viðtökur
og vakti hin sérkennilega tón-
list mikla athygli meðal gesta.
Þá veitti kórinn viðtöku verð
laununum, sem eru marmara-
plata með áletruðu nafni kórs
ins. Var það Geirharður Val-
týsson söngstjióri, sem tók við
henni fyrir hönd kórsins. Sams
konar verðlauinagrip hlaut Fálk
inn h. f. Aðilar fró 29 löndum
fengu og verðlaun frá MIDEM.
Öllu því, sem fram fór á
þessum hátiðarhljómleikum
var samstundis útvarpað um
þrjár útvarpsstöðvar í Vestur-
Evrópu, þ. e. Monte Carlo, Lux
emburg og Evrópa 1. Auk þess
var því sjónvarpað um franska
sjónvarpið, bæði í litum og
svartihvítu.
Að sjáifsögðu hefur þátttaka
í þessari tónlistarhátíð haft
mikið gildi fyrir þá, sem þar
komu fram, en meðal lista-
manna voru margir heimskunn
ir menn og konur. Hvort sem
okkar norðlenzki karlakór hef-
ur gagn að slíkri auglýsingu
eður ei, er víst um það, að
bann hefur aukið hróður lands
síns með þátttöku í hátíðinni,
og sjálfsagt hefur mörgum þótt
forvitnilegt að kynnast ís-
lenzkri tónlist.
Fjölbreytt verkefnaval
Karlakórinn Vísir var stofn
aður árið 1924 á Siglufirði og
hefur starfað óslitið síðan. Er
hann löngu orðinn landskunn-
ur fyrir söng sinn á tónleikum
í hljóðvarpi og sjónvarpi og
einnig fyrir hljómplötusöng.
Hefur kórinn leitazt við að
hafa söngskrá sem fjölbreytt
asta, m. a. sungið kóra úr
óperum og einnig tónverk eft-
ir innlend og erlend tónstoáld,
svo og þjóðlög. Hefur söngskrá
kórsins einkum hin síðari ár
verið fjölbreytt og flutningur
nýstárlegur miðað við íslenzk
an kórsöng almennt, svo sem
kunnugt er. Hafa létt lög, inn-
lend og erlend verið mjög ofar
lega á blaði hjá kórnum að
undanförnu, en einnig hefur
hann lagt rækt við hina fornu
norrænu söngmenningu.svo sem
tvísöng, víkivaka og rímnalög.
í kórnum starfa nú um 50
söngmenn. Söngistjórinn Geir-
harður Valtýsson eða Gerhard
Framlhald á bis. 13
; \\NW> %•. ' s
Karlakórinn VÍSIR.
1 : ' y i
jt yÆUSjk *y **? KM : ÆélXm & V-- :Æ'
wg : r Jgigí " JliL
, W- 'yr
Wm' : '•, IMÉ í í ,
i,. jffBL • ■.. i jgfw Jy '7 $||§£§Ræ