Tíminn - 08.02.1968, Síða 6
FIMMTUDAGUR 8. febrúar 1968.
6
Fokker-verksmiðjurnar í Hollandi eru stœrstu flugvélaverksmiðjur í Evrópu. Þær hafa nú framleitt allt að 500 vélar af gerð-
tnni Fokker Friendship, sem okkur íslendingum eru að góðu kunnar, og á þessu ári eru væntanlegar á markaðinn þotur frá
þessum merku verksmiðjum.
Hér segir dálítið frá starfsemi þeirra og frumkvöðlinum, Anthony Fokker, merkum hugvits-og athafnamanni, sem með réttu
má kalla „Hollendinginn fljúgandi/'
Fokker- flugvélategundin er
ofckur íslendingum að góðu
kunn, en hún hefur dugað okk
ur vel í innanlandsfluginu síð
ustu árin. Hins vegar vitum
við víst fæst, að á bak við
nafnið Fokker, er fólgið raun-
verulegt ævintýri um „fljúg-
andi Hollending“. Hann er alls
óskyldur hollenzika skipstjóran
um, Ahasverusi, sem dæmdur
var til að þvælast eilíflega um
á hafinu vegna þess að hann
hafði framið guðlast. Ekki á
þetta ævintýri heldur neitt
skylt við óperu Wagners, Hol
lendingurinn fljúgandi. Að
vísu var ævi flugvélakóngsins
y örlagarík, og sorgleg, en störf
hans urðu heilladrjúg, og mill
jónir manna um víða veröld
njóta af þeiim góðs. Nú eru lið
in tæp 30 ár fná því hann
lézt, en iðnaður sá, er hann
lagði hornsteininn að, hefur
aldrei verið blómlegri en nú,
og ber dugnaði og áræði þessa
framfarasininaða atorkumanns
óræk vitni og mun halda nafni
hanis lengi á lofti.
Flugvélafraimíleiðsla Fokfcer
verksmiðjanna er mifclu meiri
en áður eru dæmi í sögu flug
samgangna í Evrópu. Hin vin-
sæla tveggja hreyifla skrúfu-
þota Fokker Friendship hefur
nú eignazt stóran bróður, sem
'kallást Fokker Fellowsihip. Það
er þota, sem tekin verður í
notkun á þessu ári, og mun
einkum ætluð til skemmri flug
ferða.
Fokikerverksmiðjurnar eru
með alistærstu fyrirtækjum í
Fyrir aöeins kr. 68.500.oo getið þér fengið staðlaöa
eldhúsinnréttingu i 2 — 4 herbergja ibúðir, meö öllu tll-
heyrandi — passa I flestar blokkaríbúðir,
Innifalið i veröinu er:
@ eldhúsinnrétting, klædd vönduðu plasti, efri
og neðri skápar, ásamt kústaskáp (vinnupláss tæpir 4 m).
^fjl ÍSSkáplir, hæfilega stór fyrir 5 manna fjölskyldu I
kaupstaö.
^UppþVOttavél, (Sink-a-matic) ásamt eldhúsvaski.
Uppþvottavélin þvær upp fyrir 5 manns og aö auki má nota
hana til minniháttar tauþvotta. (Nýtt einkaleyfi).
H eldarvéiasamstæða með 3 hellum, tveim
ofnum, grillofni og steikar- og bökunarofni. Timer og önnur
nýtízku hjálpartæki.
© lofthreinsari, sem með nýrri aðferð heldur eld-
húsinu lausu við reyk og lykt. Enginn kanall — Vinnuljós.
Allt þetta fyrir kr. 68.500.oo. (söluskattur
innifalinn) Ef stööluð innrétting hentar yður ékki gerum viö
yður fast verðtilboð á hlutfallslegu verði. Gerum ókeypis
verðtilboð í eldhúsinnréttingar f ný og gömul hús.
Höfum einníg fataskápa, staðlaða.
- HAGKVÆMIR GREIDSLUSKILMÁLAR -
KIRKJUHVOLI
REYKJAVÍK
S ( M I 2 17 16
Hollaindi, og þjóðinni í heild
mikil tekjulind. Þær veita
fjölda manna vinnu, enda eru
þær stórar um sig og fram-
leiðsla þeirra marErsiunvin
Hornsteinninn, sem snillingur
inn Fokiker lagði, er hollenzk
ur, en að öðru leyti er efnivið
urinn alþjóðlegur ef svo má
segja. verksmiðjurnar þjón-a og
bandarískum, brezkum og vest-
ur-þýzkum hagsmunum, en þess
ar þjóðir eiga til samans meira
en helming þess fjármagns,
sem á bak við þetta risafyrir
tæki er.
En að baki þessu öllu er
dálítið ævintýri um lítinn erfið
an dreng, sem síðar var viður
kénndur snillingúr.
>
Anthony Herman Gerard
Fokker fæddiist 6. apríl árið
1890 í Blitar á Jövu, þar sem
faðlr hans rak kaffiekru. Þeg
ar „Tony“ Fofcker var fjögurra
ára fluttist fjölskyldan heim til
H'ollands og settist að í Haar-
lem. Anthony var afar skap
mikið barn, og átti faðir hans
í stöðugum erfiðleik.um með
hann. Einnig þótti hann vand-
ræðabarn í skóla. Hann lauk
aldrei námi, en snemma kom
í ljós hjá houm sérlega mikii
athygiisgáfa og hugvit. Þegar
hann var 13 ára að aldri teikn
aði hann og smíðaði seglbát,
18 ára gamall hafði hann gert
hjólbarða, sem ekki gat sprung
ið og stóran vandaðan seglbát.
Þegar hann hafði gegnt her-
skyldu sinni í Naarden fór
hann til Þýzbalands og innrit
aðist í flugskólann í Zahlbach
í námunda við Mainz. Árið
1911 tók hann flugpróf á flug
vélinni Stormfuglihum, sem
hinn þýzki brautryðjandi
Goedecker hafði smíðað. Upp
frá því fór Fokker sjálfur að
smíða flugvélar, en sjiálfsagt
hefur hann ekki órað fyrir því,
þótt bjartsýnn væri, ag hann
myndi leggja hornsteininn að
stærstu flugvélaverbsmiðjum í
Evrópu.
Antony Fokker hafði náð
mikilli leikni í flugi fyrir heims
styrjöldina fyrri. Þjóðverjar
urðu varir við, að hann var
gæddur óvenjumiklum hæfileik
um bæði sem flugmaður og
flugvélasmiður, og gerðu hon
um það tilboð að koma á fót
verksmiðjum í Schwerin.
Hann reyndi að koma vélum
sínum á brezkan. franskan og
rússneskan markað en án árang
urs. Þessi ungi sjálfumglaði
Hollendingur flaug sjálfur eig
iu vólum og þekkti eiginleika
þeirra út í yztu æsar. Hann
bætti þær stöðugt, og gerði
þær hæfari til að þjóna sínum
tilgangi, enda var hægt að
leika með þeim ýmsar áður
óþekkitar listir. Hann lét blök
ur á vængina, þannig að hægt
var að kollsteypa vélunum í
Ipftinu, láta þær halda kyrru
fyrir, o. £1. Þannig voru hinar
svokölluðu M-flugvélar, er
hann gerði fyrir hermálaráðu
neytið þýzka, en það voru
fyrstu þýzku herflugvélarnar,
og voru notaðar af herdeild
Manfred von Richthofen.
í stríðsbyrjun voru flugliðar
aðeins vopnaðir sikammbyssum.
En árið 1915 tókst Þjóðverj-
um að komast á snoðir um loft
hernaðartækni Frakka, sem
tryggt hafði þeim margan sig
urinn. Frönsk Morane Sauliner
herflugvél féll í hendur þeim,
og áður en flugmanninum tókst
að kveikja í henni gátu þeir
grandskoðað tækjaibúnaðinn og
kornust að raun um, að Frakk
ar skutu í gegnum skrúifu vélar
innar
Fokker war sóttur frá Sehwer
in og viku seinna hafði hann
útbúið sjálfstiillta vélhyssu,
sem skotið gat kiúlum út á
milli skrúfublaðanna. E-ll flug
vélarnar komu loftherjum
Bandamanna mjög á óvart,
,,Fokker-hættan“ var á hvers
manns vörum, en þessi aukni
krafutr þýzku flugsveitanna
fjaraði út í orrustunni við
Somme árið 1916, þvi að kom
izt hafði upp um leyndarmálið,
og Bretar og Frakkar hötfðu til
einkað sér tæknina og bætt
hana.
Nú var enn komið tíl kasta
Fofcker að gera betri flugvélar.
Þær voru fullgerðar árið 1918.
Það voru hávængjaðar orrustu
vélar, sem voru sterkari og
hraðfleygari en áður voru
dæmi En þær toomu of seint.
Bandiaríkjamenn, ásamt Bret-
um og Fröfckum höfðu þá náð
yfirhöndinni í lofthernaðinum,
„Fokker Fellowship'1, nýjasta framleiðsla Fokker-verksmiSjanna, þota,
geerð fyrir 60 farþega, og getur flogið með 700 km. hraða á klukkustund.