Alþýðublaðið - 07.10.1989, Síða 4
4
Laugardagur 7. okt. 1989
IÞROTTAVIÐBURÐIR FYRRITIMA
í BERGEN 1927: Frá vinstri: Garð-
ar, Helgi, vallarvörðurinn, Ásgeir
og Geir. Kaldal vantar á myndina,
þe.a.s. hann tók hana.
Frækin keppnisför frjólsíþrótta-
og sundmanna til Hafnar 1927
Breytingarnar á fyrirkomu-
lagi utanlandsferða íþrótta-
manna frá því að 8 keppendur
tóku þátt í alþjóðlegu íþrótta-
móti KFUM í Kaupmannahöfn
sumarið 1927, eru með ólík-
indum, bæði hvað varðar
ferðalög og ekki síður aðstöðu
til keppni. En sleppum því. Eft-
irtaldir íþróttamenn voru með
í þessari ferð: Jón Kaldal (far-
arstjóri), Asgeir Einarsson,
Garðar S. Gíslason, Geir Gígja
og Helgi Eiríksson, sem kepptu
í frjálsum íþróttum. Þrír sund-
menn voru einnig með í för-
inni, þeir Björgvin Magnússon,
Ingólfur B. Guðmundsson og
Jón Pálsson. Umrætt mót var
stórmót, á þess tíma mæli-
kvarða með mörgum fræknum
íþróttaköppum frá allmörgum
þjóðlöndum.
Lagt var af stað frá Reykjavík 30.
júní með „Lyru“ en komið til Berg-
en þann 4. júlí og voru menn þá
vel hressir. Er þangað kom fóru
allir íþróttamennirnir á æfingu.
Þeir Garðar S. og Helgi Eiríks létu
taka á sér tíma í 100 m hlaupi og
ekki var að sjá að sjóferðin hefði
haft slæm áhrif, því að þeir hlupu
á mettíma. Að kvöldi næsta dags
var haldið af stað til Osló og einnig
æft þar. Loks var komið til Kaup-
mannahafnar að morgni 7. júlí.
Ráin féll vegna þess að
nagli gaf sig
Mótið stóð yfir dagana 10,—-17.
júlí. Þann 11. var keppt í sundi, en
um kvöldið hófst keppni í frjálsum
íþróttum og við skulum fyrst líta á
keppni í þeim.
Garðar og Helgi tóku þátt í 100
metra hlaupinu, en hvorugur
komst í milliriðla. Helgi hafði
slæma aðstöðu að því leyti, að
hann keppti í hástökki á sama
tíma. Hann kom því flestum á
óvart, er hann stökk 1,80 m og
tryggði þar með íslandi 2. verð-
Jón Pálsson
laun. Helgi stökk tvívegis yfir
þessa hæð, því að í fyrstu tilraun-
inni bilaði naglinn, sem hélt uppi
listanum, sem ráin hvíldi á, og féll
því ráin og stökkið var ekki tekið
gilt. Svíinn Garney sigraði, en í 3ja
sæti var hinn frægi Erik Svensson
frá Svíþjóð, sem stökk jafnhátt
Helga, 1,80 m. Afrek Helga var
nýtt glæsilegt íslenskt met, sem
stóð samfleytt í 10 ár. Aldrei var
sótt um staðfestingu á þessu meti,
hvernig sem á því stóð og hið stað-
festa met mun lægra eða 1,75 m.
Geir Gígja keppti sama kvöld í
800 metra hlaupi. Hlaupið var í
þremur riðlum og varð Geir fyrst-
ur í 2. riðli á 2:02,7 mín. í úrslita-
hlaupinu sama kvöld varð hann 3.
á 2:02,4 mín og var það íslenskt
met, sem stóð í 12 ár. Sigurvegari
varð Norðmaðurinn Lorentzen á
2:00,5 mín.
Æsispennandi keppni
í 1500 m hlaupi
Þann 13. júlí var frjálsíþrótta-
Björgvin Magnusson
keppninni haldið áfram. Fyrst var
1500 m hlaup og var keppt í tveim-
ur riðlum. Geir Gígja varð 3ji í sín-
um riðli á 4:16,2 mín eða langt
undir ísl. metinu. Sex fyrstu úr
hvorum riðli komust í úrslit, en úr-
slitahlaupið skyldi háð 15. júlí.
Garðar tók þátt í langstökkinu,
en komst ekki i úrslit. Hann var
einnig með í 200 m hlaupinu og
sigraði í sínum riðli á 23,7 sek.
Helgi tók einnig þátt í 200 m
hlaupi og báðir komust þeir félag-
ar í milliriðla, en þar við sat. Þeir
Ásgeir og Helgi köstuðu spjóti, Ás-
geir vann sér rétt til að keppa í úr-
slitum, kastaði ca. 42 m, en togn-
aði og gat ekki kastað frekar.
En nú var komið að 1500 metra
hlaupinu og þar var æsispennandi
keppni, en frammistaða Geirs
Gígja í þessu hlaupi var eftirminni-
leg og vakti töluverða athygli.
Hann háði harða keppni við
þekkta hlaupara og hafnaði í 2.
sæti á 4:11,0 mín, sem að sjálf-
sögðu var nýtt ísi. met og stóð alls
Ingólfur B. Guðmundsson
í tæpa tvo áratugi. Sigurvegari í
hlaupinu var Norðmaðurinn Tein-
aas á 4:10,7 mín en þriðji Finninn
Hietalahti, sem Geir hafði tapað
fyrir í 800 metra hlaupinu.
Svíar sigruðu f______________
stigakeppninni_______________
Vegna fjölmargra áskorana
lagði Jón Kaldal af stað í 5000 m
hlaupið, þvert á móti vilja sínum.
Gerði hann það aðallega sakir
þess, að dönsku blöðin höfðu sagt,
að hann keppti og hvöttu Dani,
sem ekki höfðu gleymt Kaldal, til
að koma á mótið. Hann var fram-
arlega fyrstu 4—5 hringina, en
hætti svo, enda var hann ekki í
neinni æfingu og ekki verið til
þess ætlast af Islendingum, að
hann keppti.
Sundkeppni mótsins hófst 11.
júlí eins og áður sagði. Fyrst var
keppt í 100 m skriðsundi, eða
frjálsri aðferð eins og þá var sagt.
Keppt var í tveimur riðlum og það
óvenjulega gerðist, að Jón Pálsson
og Björgvin V. Magnússon voru
settir í sama riðil. Jón varð 3ji og
komst í úrslit. Ingólfur B. Guð-
mundsson tók þátt í 400 m frjálsri
aðferð, varð fjórði í sínum riðli og
komst í úrslit.
Úrslitasundin fóru fram 14. júlí.
Björgvin keppti í 200 m bringu-
sundi og varð 4. á 3:40,0 mín að-
eins 3 sek á eftir 3ja manni. Undir
venjulegum kringumstæðum
hefði Jón náð verðlaunasæti í 100
m skriðsundi, en hann var hálflas-
inn, þegar sundið var háð. Hann
hreppti fjórða sæti á 1:25,0 mín.
Ingólfur varð sjötti í 400 m.
Á þessu mikla íþróttamóti sigr-
uðu Svíar í stigakeppninni, fengu
alls 129 stig. íslendingarnir urðu í
11. sæti með 14 stig og m.a. á und-
an Englendingum, Þjóðverjum og
Rúmenum. Þótti frammistaða
þeirra með ágætum og vakti at-
hygli á mótinu og ekki síður hér-
heima.
Heim kom flokkurinn aftur 24.
júlí með Dronning Alexandrine.
Örn Eiðsson
skrifar