Alþýðublaðið - 07.10.1989, Side 8

Alþýðublaðið - 07.10.1989, Side 8
8 Laugardagur 7. okt. 1989 Davíð stefnir og notaði til dæmis ekki málefna- nefndir hans sér til aðstoðar, hann aðhyiltist í of ríkum mæli mála- miðlunarvinnubrögð, hann kynni ekki að nota fjölmiðla sér til fram- dráttar og svo framvegis. Kunnuglegir gagnrýnispunktar? Jú, þeir komu síðar, með öðru orðalagi, eftir síðari helminga- skiptastjórn þessa tímabils, frá ,,endurmatsnefndinni“ undir for- ystu Friðriks Sophussonar. Eftir helmingaskiptastjórnina 1974—1978 tók við vinstri stjórnin 1978—1979 og síðan minnihluta- stjórn Alþýðuflokksins. En þá tók við ríkisstjórn með þátttöku sjálf- stæðismanna á ný. Stjórnin sem stokkaði upp stólana Gallinn fyrir flokkinn var sá að í henni tók aðeins þátt takmarkað- ur hluti flokksins: Gunnar Thor- oddsen, varaformaður flokksins, Friðjón Þórðarson og Pálmi Jóns- son, með stuðningi Eggerts Hauk- dals og hlutleysi Alberts Guð- mundssonar. Afgangurinn af flokknum leitaðist í hvívetna við að afneita þessari stjórn og kallaði hana vinstri stjórn. Þær afsakanir eru afskaplega yfirborðskenndar og ósannfærandi: Þessir menn voru og eru sjálfstæðismenn. Þrír þessara manna eru enn fullgildir og væntanlega virtir þingmenn flokksins. Ef þeir eru gjaldgengir nú voru þeir það þá. Síðan tók við helmingaskipta- stjórn á ný. Sú stjórn, eins og hin fyrri, hafði það af að sitja út kjör- tímabilið, en er hvað frægust fyrir að vera stjórnin sem stokkaði upp stólana og klauf Sjálfstæðisflokk- inn á ný, fyrir utan að vera stjórnin sem í upphafi stjórnartímabils síns skerti kjör alþýðu manna meir en nokkurn tímann hafði gerst í sögu lýðveldisins. Hún afnam t.d. vísi- tölutryggingu launa en ekki aðrar vísitölur, með hrikalegum afleið- ingum. Hún innleiddi tímabil hárra vaxta og afnam okurvaxta- lögin. Stjórnin lagði fram stórtæka áætlun um sölu á ríkisfyrirtækjum og hlut ríkisins í hlutafélögum og tókst með harmkvælum að selja hlutina í Flugleiðum, Eimskipafé- laginu og Rafha fyrir slikk. Aðrar sölur mistókust hrapalega, t.d. fyr- irhuguð sala Sverris Hermanns- sonar á Sementsverksmiðjunni, sem sjálfstæðismaðurinn Valdi- mar Indriðason og aðrir stjórnar- sinnar komu í veg fyrir. Dauðs manns gröf í Valhöll En fyrst og fremst var þetta ríkis- stjórn stólaskipta Sjálfstæðis- flokksins. í upphafi stjórnartíma- bilsins komst Þorsteinn Pálsson til valda og árin á eftir einkenndust mjög af þörfinni fyrir „Stól undir Steina". Meðal annarra ofbauð Davíð Oddssyni og sagði hann að stólastríðið hefði stórlega skaðað formanninn og flokkinn. í kjölfar sögulegs „Stykkis- hólmsfundar" var Ijóst að til af- drifaríkra tíðinda myndi draga. Og það gerðist. Albert Guðmundsson var þvingaður úr stól fjármálaráð- herra, í hann settist Þorsteinn og vísaði hann Albert í iðnaðarráðu- neytið. Síðar var Albert þvingaður til að segja af sér og Sjálfstæðis- flokkurinn klofnaði með afdrifa- ríkum afleiðingum. í kosningum 1987 galt flokkurinn afhroð, ekki síst fyrir atbeina Alberts Guð- mundssonar. Þá, eins og 1978, tók við „nafla- skoðun" hjá flokknum, í umsjá „endurmatsnefndar" og stýrði henni Friðrik Sophusson. Niður- stöður nefndarinnar leiða hugann óhjákvæmilega til skilaboða ‘Loft- leiðahópsins" til þáverandi for- manns og forystu. Til stóð að fela og/eða útþynna niðurstöðurnar, en þær síuðust samt sem áður út. Nefndin komst að þeirri niður- stöðu að forystan væri óvirk, að formaður flokksins, Þorsteinn, væri fjarlægur almennum flokks- mönnum og stuðningsmönnum og hefði ekki tíðkað nægilegt sam- ráð, að embætti varaformanns væri of rýrt, að viðhald og endur- nýjun forystunnar hefði verið van- rækt og ekki síst vakti athygli hörö gagnrýni á skipan mála í Valhöll, sem þótti líkjast dauðsmannsgröf. Skammlíf stjórn Þorsteins Pálssonar Einn nefndarmanna, Jón Magn- ússon úr Loftleiðahópnum, lýsti yfir á þessum tíma aö ástæðu kosningaósigursins væri meðal annars að leita í pólitískri skamm- sýni, klaufaskap og mistökum síð- ustu mánuðina fyrir kosningar, í fræðslustjóramáli Sverris Her- mannssonar, í námslánamálinu, í hallarekstri ríkissjóðs, í umræð- unni um kádilják Davíðs borgar- stjóra og ekki síst í klofningnum vegna Alberts. Nefnd undir for- sæti Halldórs Blöndals var fengin til að prúðbúa niðurstöðurnar, en hún fékk sig samt til að lýsa því yf- ir „að miklar breytingar til hins verra hafi orðið á stjórnskipulagi flokksins eftir 1983“. Með öðrum orðum eftir að Þorsteinn tók við sem formaður! Ekki er þörf að fara mörgum orðum um stjórnarþátttöku Sjálf- stæðisflokksins í ríkisstjórninni undir forsæti Þorsteins Pálssonar 1987—1988. Á pappírnum var þetta sterk stjórn, en undirstaðan reyndist afar veik. Háværar deilur urðu um mörg mál og má nefna til dæmis matarskattinn, Lands- bankamál Sverris Hermannsson- ar, Utvegsbankamálið, Svarta mið- vikudaginn, lögbindingu launa og afnám samningsréttarins, Flug- stöð Leifs Eiríkssonar og síðast en ekki síst ber að nefna slaginn um niðurfærsluleið „Forstjóranefnd- arinnar". Stigsmunur ekki eðlismunur á óvinsældum Þessi ríkisstjórn sprakk í sept- ember í fyrra eftir að Þorsteinn Pálsson hafði gefist upp á niður- færsluleiðinni, boðað millifærslu- leið og lækkun matarskattsins með meiru. Það er athyglisvert að stjórnin flosnaði upp í beinni út- sendingu Stöðvar 2 og stóðu þá óvænt saman Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn og töl- uðu um rýtingsstungu Þorsteins. Endalaust má deila um hver hafi átt sökina, en óneitanlega hlýtur það að vera umhugsunarefni að „fjandvinirnir" Jón Baldvin Hannibaisson og Steingrímur Her- mannsson skuli hafa sameinast frammi fyrir vinnubrögðum Þor- steins Pálssonar. Sjálfstæðismenn segja núver- andi ríkisstjórn vera hina óvinsæl- ustu frá því að mælingar hófust. Rétt er að í skoðanakönnunum hefur stjórnin hlotið um eða undir 30% fylgi meðal þeirra sem af- stöðu taka. Hinu má ekki gleyma að í júlí 1988 mældist fylgi ríkis- stjórnar Þorsteins Pálssonar vera 35% og hlýtur að vera stigsmunur þar á, en ekki eðlismunur. Að minnsta kosti má þá segja að Þor- steinn hafi skilað af sér óvinsæl- ustu ríkisstjórn síns tíma, frá því að mælingar hófust. Nú nærist Sjálfstæðisflokkurinn á óvinsældum ríkjandi stjórnar. En sú stjórn hefur styrkt sig þinglega og fátt bendir nú til annars en að hún hafi burði til að sitja út kjör- tímabilið, til vors 1991. Margt get- ur gerst á einu og hálfu ári. Framtíð_______________________ Sjálfstæðisflokksins Það er mál manna að vandi Sjálfstæðisflokksins sé tvenns konar. Þeir hafi átt við forystu- vandamál, skort hæfan leiðtoga til að stýra flokknum. Eins sé Sjálf- stæðisflokkurinn bandalag ólíkra hagsmunahópa og erfitt að halda svo á málunum að allir hópar geti unað glaðir við sitt. Þá hafa verið að skerpast í okkar þjóðfélagi and- stæður neytenda annars vegar og framleiðenda hins vegar. Það get- ur reynst Sjálfstæðisflokknum erf- itt að taka afstöðu til þeirra mála sem hagsmunaárekstrarnir eru hvað augljósastir þó svo að hann hafi í gegnum tíðina verið flokkur atvinnurekenda. Forystukreppa Sjálfstæðis- flokksins er engan veginn leist þó svo að Davíð verði varaformaður. Hann mun áfram verða borgar- stjóri númer eitt þó eflaust láti hann meira til sín taka í landsmál- unum. Fari svo að Davíð verði kos- inn liggur beinast við að hann leiði Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík í næstu alþingiskosningum. Þá hlýtur sú spurning að leita á hugi manna hver komi til með að taka við leiðtogahlutverki flokksins í Reykjavík. Eitt er víst að enginn er sjálfkjörinn í það embætti en allir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins hafa horfið í skugga Davíðs. Gömul mynd af Friðriki Sophus- syni og Þorsteini Pálssyni frá sjö- unda áratugnum? Nei, þetta eru erfingjarnir í dag. Ætli það sé til mót til að steypa menn upp úr i Valhöll? Davíö Oddsson borgarstjóri á landsfundinum í gær. Forystusveit flokksins hefur löngum veriö gagn- rýnd fyrir aö vera einangruð, meðal annars af borgarstjóranum sjálfum. Breytist þetta í tíð Davíðs?

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.