Alþýðublaðið - 05.12.1989, Qupperneq 12
Þriðjudagur 5. des. 1989
Sænskt tímarit um framleiösluiönaö í 14 löndum:
Vinnustundir á íslandi
37% fleiri en í Svíþjóð
I Svíþjód eru þó fjarvistir nœr tvöfalt meiri en á Islandi.
Yfirvinna þrefalt meiri hér á landi en í því sem nœst kemur.
Tímaritið Affars Varl-
den í Svíþjóð fjailar í ný-
útkomnu hefti um vinnu-
tíma og fjarvistir í 14
löndum V-Evrópu, þeirra
á meðal á íslandi. í Ijós
kemur að í engu landi er
unnin jafn mikil yfir-
vinna og á Islandi. Aö-
eins í Svíþjóð eru fjar-
vistir vegna veikinda
meiri en á Islandi og þeg-
ar yfirvinna bætist við
dagvinnu og veikindi
eru dregin frá kemur í
ljós að Islendingar vinna
37% meir en Svíar.
í tímaritinu er nánar til-
tekið fjallaö um vinnutíma
og fjarvistir í framleiðslu-
iðnaði á síðasta ári. Meðal-
talsársverk í dagvinnu hér
á landi reyndist vera 1.808
stundir, en fjarvistir að
meðaltali 216 stundir. Að
þeim frádregnum bætast
síðan við 464 yfirvinnu-
stundir. Á Islandi er í þess-
um greinum því unnar
2.056 vinnustundir á ári af
hverjum manni og er um
langsamlega lengsta vinnu-
daginn að ræða innan þess-
ara landa. Næstir á eftir
komu Bretar með 1.839
stundirog 1.816 áSpáni.en
fæstar stundir voru að
finna hjá Svíum, 1.496
stundir. Vinnudagurinn var
því 37,4% lengri hér á landi
en í Svíþjóð.
464 yfirvinnustundir hér
á landi er nær þrefalt meira
en gerðist i næsta landi á
eftir, í Bretlandi, þar sem
þær voru 166 að meðaltali.
Islendingar unnu um leið
ígildi 3ja mánaða vinnu í yf-
irvinnu á ári.
I Svíþjóð var einmitt að
finna flestar fjarvistar-
stundir eða 382 á ári að
meðaltali. ísland var í öðru
sæti með 216 stundir. Mun-
urinn er vafalaust mikið til
fólginn i því að í Svíþjóð er
nánast litið á það sem sjálf-
sagðan hlut að taka út veik-
indafrí þótt um raunveru-
leg veikindi sé ekki að
ræða og svo meiri fjarvistir
vegna veikinda barna. Á
eftir Svíum og íslendingum
komu Norðmenn með 195
fjarvistarstundir að meðal-
tali.
Ofbeldi fœrist í aukana:
Líkamsárásir í miðborginni æ algengari
Ofbeldi virðist færast
mjög í aukana og er svo
koinið að úr miðborg
Reykjavíkur berast fréttir
eftir hverja heigi um fjölda
fólskulegra líkamsárása.
Einkum virðist hættulegt
að vera þar á ferli seint
um nætur og á kvöldin um
helgar. Lögreglan í
Reykjavík ber við að hún
hafi ekki mannskap til að
halda uppi viðunandi
gæslu og telur að það þurfi
að fjölga verulega í lög-
reglunni.
Sturla Þórðarson, deildar-
lögfræðingur hjá lögregl-
unni, sagði að eins og fram
hefði komið í fréttum væri
lögreglan í Reykjavík of fá-
menn. Þá hefði verið dregiö
úr yfirvinnu hjá lögreglu-
mönnum en á sama tíma færi
verkefnum fjölgandi og um-
dæmið stækkandi.
Varðandi miðborgina.
sagöi Sturla, að ekki væru
jafnmargir þar á vakt og þeg-
ar mest var um að vera á Hall-
ærisplaninu. Þá væri einnig
erfiðara að fylgjast með fólk-
inu þar sem það dreifðist
meira um miðborgina en áð-
ur. Hann taldi einnig að þeinv
sém væru á ferli færi fjölg-
andi.
í erindi sem Jón Pétursson,
formaður lögreglufélags
Reykjavíkur flutti á fundi
Landssambands gegn áfeng-
isbölinu kom fram að áfengi
tengdist um 90% ofbeldis-
verka.
Fer fólk sjaldnar út?:
Færri í bíó og á danshúsin
Aðsókn að vínveitlnga- og eru þá t.d. krárnar ekki manns vínveitingarhúsin os
Aðsókn að vínveitinga-
húsum Reykjvíkur fer
þverrandi. Eins fer þeim
fækkandi sem sækja kvik-
myndahús. Aðsókn að veit-
ingahúsunum er metin út
frá innheimtu rúllugjaldi
og eru þá t.d. krárnar ekki
með í dæminu.
í Árbók Reykjavíkurborgar
1989 kemur fram að aðsókn
að vínveitingstöðum borgar-
innar hefur farið dvínandi.
Árið 1984 sóttu 943 þúsund
Prófkjör Sjálfstœdisflokksins í Hafnarfirdi:
Jóhann í fyrsta — Þorgils þriðji
Jóhann Gunnar Berg-
þórsson, bæjarfulltrúi og
forstjóri Hagvirkis, lenti í
fyrsta sæti í prófkjöri sjálf-
stæðismanna fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í
Hafnarfirði um helgina
með 899 atkvæði í það
sæti. í öðru sæti lent Ellert
Borgar Þorvaldsson,
skólastjóri Ártúnsskóla,
með 855 atkvæði í 1. og 2.
sætið. Þorgils Óttar Mat-
hiesen, handknattleiks-
maður, varð þriðji með
573 atkvæði í 1. til 3. sæti.
I fjórða sæti, baráttusæt-
inu, lenti Hjördís Guðbjörns-
dóttir, skólastjóri Engidals-
skóla, með 651 atkvæði en
hún og Jóhann eru nú bæjar-
fulltrúar. Ellert Borgar hefur
áður setið í bæjarstjórn fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Hafnar-
firöi. í prófkjörinu tóku þátt
2136 manns og náði enginn
frambjóðenda bindandi
kosningu eða 50% af heildar-
atkvæðamagni í sæti.
í næstu fimm sætum lentu
sem hér segir: I fimmta
Magnús Gunnarsson með
675 atkv., í sjötta Ása María
Valdemarsdóttir með 746
atkv., í sjöundu sætið Stefanía
Víglundsdóttir meö 804
atkv., í áttunda Hermann
Þórðarson með 813 atkv. og í
það níunda Valgerður Sigurð-
ardóttir með 812 atkvæði.
manns vínveitingarhúsin og
hefur þeim fariö fækkindi á
hverju ári síðan o'gxvoru
724.996 áriö 1988.
Á svipuðum tíma hefur,
kvikmyndahúsagestum á
landinu fækkað um 324 þús-
und. Árið 1985 sóttu kvik-
myndahúsin 1.418.000 gestir
og fækkaði niður í 1.274.000
árið eftir. Árið 1988 voru bíó-
feröir íslendinga komnar nið-
ur í 1.094.000 talsins.
Kvikmyndahúsin og vín-
veitingarhúsin hafa orðið fyr-
ir harðnandi samkeppni sið-
ustu árin. Sjálfsagt hafa krár
og matsölustaðir sem veita
vín átt einhvern þátt í minni
aðsókn að vínveitingastöð-
unum. Aukið framboð á sjón-
varpsefni og myndbandaleig-
ur síðustu árin eiga eflaust
nokkra sök á minni aðsókn í
bíó.
VEÐRID
í DAG
Sunnan og suövestan gola
eða katdi um mestallt
land. Þokuloft eöa dálitil
súld víða um sunnan og
vestan vert landið, en
þurrt og bjartara veður á
Norður- og Austurlandi.
Hlýtt verður áfram.
Fólk
Húsnæðisstofnun hefur
hingað til verið einskorð-
uð við stressaða fullorðna
fólkið sem er að reyna að
koma sér „þaki yfir höf-
uðið”. Smáfólkið virðist
þó hafa öðlast sinn sess
þar innan dyra, því á mið-
vikudag kl. 10 verða af-
hjúpaðar í stofnuninni
myndir sem börrt t leik-
skólum á Eyrarbakka og í
Hafnarfirði hafa gert fyrir
stofnunina. í hinu nýja
húsnæði stofnunarinnar
er og búið að innrétta sér-
staka aðstöðu fyrir börn í
fylgd fullorðinna, með til-
heyrandi húsgögnum og
leikföngum. Þema
mynda barnanna var hús
og umhverfi sem þau búa
í.
★
í nýjasta hefti Geðhjálp-
ar er að finna grein eftir
Eirtar Guömundsson sem
fjallar um nauðungarvist-
un á geðdeild, ólög eða
mannréttindi. Hann hef-
ur kannað viðhorf sjúk-
linganna sjálfra, en í Ijós
kom að á eins árs tímabili
voru alls 60 sjúklingar
nauðungarvistaðir, þar af
50 á geðdeild Landsspít-
alans, sem var 4,1% allra
innlagna. Til samanburð-
ar var slíkt hlutfall um
26% í Noregi. Hér sættust
53% þeirra sig við inn-
lögn á fyrstu 15 dögun-
um, en mjög ósáttir voru
31% á sama tíma, en stór
hluti þeirra hafði sætt sig
við innlögnina eftir 4 og
hálfan mánuð.
★
Byggðastofnunarútibú-
ið á Isafirði hefur eignast
forstöðumann pg er það
Aöalsteinn Oskarsson,
sem var einn af 16 um-
sækjendum- lokkandi
starf þar á ferð. Aðal-
steinn fer í kjölfarið í
starfþjálfun suður, en ís-
firska útibúið er enn hús-
næðislaust. Aðalsteinn er
sonur Oskars Fridbjarn-
arsonar hákarls og harð-
fiskverkanda í Hnífsdal
og stundar nám við sjáv-
arútvegsdeild háskólans í
Tromsö í Noregi.