Alþýðublaðið - 28.12.1989, Qupperneq 7
Fimmtudagur 28. des. 1989
7
UTLflND
Sérstakur
heimur
Flestum er okkur kunnugt um að kengúrur og önnur poka
dýr eru upprunnin í Ástralíu og hafa verið þar um þúsundir
ára. Þetta var áður en evrópubúar tóku að f lykkjast til lands-
ins og höfðu kanínur í farteskinu, en þær báru með sér pestir
og plágu.
Náttúra Ástralíu er einstök
vegna þess að hún var einangruð
eyja fyrir mörgum milljónum ára.
Upphaflega lá landið um 3000
kilómetra lengra í suður og var
fast við m.a. Suður-Ameríku.
Pokadýr, nefdýr, mauraætur og
margar fuglategundir voru sér-
kenni landsins, sem á þeim tíma
var vaxið regnskógi. Talið er að
fyrstu mennirnir hafi sest að í
Ástralíu fyrir um 5000 árum og þá
líklega frá Asíu. Þessir frumbyggj-
ar (aborginiar) unnu ekki eins
mörg spellvirki á náttúrunni á
5000 árum og evrópumönnum
tókst á síðustu öld einni saman. Til
þess að halda villidýrum í fjarlægð
Ástralía er stórt land
og náttúrufar og
dýralíf er sérstakt —
en nú á tuttugustu
öldinni er mann-
skepnan farin aö
vera ógnvaldur.
notuðu menn eldinn og hann olli
skemmdum á gróðri.
Evrópumenn komu til landsins
til þess að nýta það. Þeir höfðu
ekki næga þekkingu til að sjá, að
það hentaði ekki dýralífi landsins
að flytja inn hin ýmsu dýr svo sem
Zebrahesta, dromedara, kanínur
og jafnvel mýs og rottur, en þessar
tvær síðastnefndu tegundir urðu
ofan á i lifsafkomu möguleikum
dýranna og eru hreinasta plága
ásamt kanínunum. Eyðing regn-
skóganna er nú svo mikil að þrír
fjórðu hlutar Ástralíu eru ófrjó-
samar auðnir.
Á síðari árum eru ástralir farnir
að gefa náttúrunni meiri gaum
eins og reyndar víðast hvar í ver-
öldinni og þá er bara að komast að
því hvort mönnum tekst að bæta
það sem þeir hafa eyðilagt.
(Þýtt og endursagt.)
Kengúran er það dýr
sem flestir setja i sam-
band við Ástralíu, en þau
eru fleiri dýrin sem gera
Astraliu svo sérstaka.
SJÓNVARP
Sjónvarpið kl. 18.55
HVER Á AÐ RÁÐA
(Who's the Boss)
Bandarískur gamanmy ndaflokkur
sem fjallar um samband tveggja full-
orðinna manneskja sem ekki geta
ákveðið hvort þær eigi að vera ást-
fangnar hvor af annarri eða ekki.
Pessi óákveðni hefur reyndar staðið
afar lengi og nú er kominn tími til að
láta til skarar skríða svo um muni.
En vafalítið verður lopinn enn
teygður eitthvað.
Stöð 2 kl. 20.30
í SLAGT0GI
Jón Óttar Ragnarsson ræðir við Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra um lífs-
ins gagn og nauðsynjar.
Stöð 2 kl. 21.40
AKURELDAR
(Fields of Fire)
Bresk/Aströlsk sjórwarpsmynd í
tueimur hlutum, leikstjóri Rob Mar-
chand, adalhlutuerk Todd Boyce,
Melissa Docker, Anna Hruby, Kris
McQuade.
Hér segir af ungum Breta sem fer til
Norður-Ástralíu til að tína sykur-
reyr. Myndin gerist fyrir tíma reyr-
tínsluvélanna en ökrunum stafar oft
mikil hætta af sníkjudýrum og elds-
voðum. Þarna kynnist Bretinn
harðri lífsbaráttu en jafnframt hin-
um órannsakanlegum vegum ástar-
innar, eins og segir í kynningu.
Reyndar hefur hingað til aðeins ver-
ið talað um að vegir Guðs séu órann-
sakanlegir en nú eru það sem sagt
vegir ástarinnar sem þannig verða.
Sjónvarp kl. 21.40
KONTRAPUNKTUR
Spurningakeppni ríkisútvarpsins
þar sem tónglöggir menn keppa í
því að þekkja tóndæmi úr hinum
klassíska heimi tónlistarinnar,
reyndar frá ýmsum skeiðum. Þessir
þættir hafa verið á dagskrá Ríkisút-
varpsins — Hljóðvarps um nokkurn
tíma og nú hefur dregið til tiðinda,
aðeins tveir keppendur standa eftir,
þeir Valdemar Pálsson og Rikharður
Örn Pálsson. Þeir hafa reyndar reynt
með sér tvisvar sinnum áður, Valde-
mar hefur hlotið 4,5 stig en Ríkharð-
ur 3,5 þegar hér er komið sögu.
Fjögur stig standa til boða i úrslita-
þættinum þannig að enn getur
brugðið til beggja vona með úrslitin
sem sýnd verða í beinni útsendingu,
þó ekki úr sjónvarpssal, heldur frá
Norræna húsinu. Kynnir er Bergljót
Haraldsdóttir, spyrill Guðmundur
Emilsson en dómari, og þá sennileg-
ast höfundur spurninga, er Þorkell
Sigurbjörnsson tónskáld. Þeir Valdi-
mar og Ríkharður Örn verða svo
fulltrúar íslands, ásamt Gylfa Bald-
urssyni, í hinni samnorrænu spurn-
ingakeppni um tónlist sem hefst í
Osló með nýju ári. Þeir munu fara
utan í stranga tíu daga lotu fljótlega
í janúar en úrslitin verða svo aftur i
apríl á næsta ári og þá munu þeir
þremenningar enn leggja land und-
ir fót til Osló og etja kappi við tón-
glögga og — vissa norræna menn
aðra.
0 ^jjjjísTöoa
17.50 Jólatundin okk- ar 15.35 Meó Afa 17.05 Santa Barbara 17.50 Höfrungavik
1800 18.50 Táknmálsfrettir 18.55 Hver á að ráða? 18.45 Steini og Olli
1900 19.25 Benny Hill 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veður 20.35 Fuglar landsins 9. þáttur — Sandloan 20.45 Anna 4. þáttur 21.40 Kontrapunktur Spurningakeppni Rik- isútvarpsins. Urslit i bemni útsendingu. 22.40 Samherjar 1919 1919 20.30 I slagtogi 21.10 Kynin kljast 21.40 Akureldar
2300 23.30 Útvarpsfréttir i dagskrarlok 23.15 Mannaveiðar Bönnuð börnum 00.50 Dagskrárlok