Tíminn - 10.05.1968, Page 12
12
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 10. maí 1968.
FRÉTTIR
★ A- C. Milan sigraði Bayern
Miinchen í fyrrakvöld í síðari
leik liðanna í borgakeppni Evr-
ópu með 2:0 og er þar með kom
ið í úrslit keppninnar. Leikur
Milan til úrslita gegn Hamburg
SW og fer úrslitaleikurinn
fram í Rotterdam síðar í mánuð
inum.
★ Marielle Goitsehel, hin
fraega franska skíðakona, marg-
faldur sigurvegari á undanforn
um Olympíuleikum og heims
meisitarakeppni, lýsti því vfir
í fyrrakvöld, að hún myndi
senn hætta allri keppni. Segja
má, að hún standi á hátisidi
frægðar sinnar um þessar
mundir.
tindi frægðarinnar.
Námskeið í
sjálfsvörn
og Judo
Judodeild Ármanns hefur ákveð
ið að hafa í sumar námskeið í
judo og sjálfsvörn bæði . fyrir
kvenfólk og karlmenn á öllum
aldri.
Þessi námskeið standa yfir í
mánaðartíma hvert fyrir sig, en
æfingar í judónámskeiðunum
verða 2svar í viku en í sjálfsvarar
námskeiðunum einu sinni í viku.
Það má segja, að þessi námskeið
séu tilvalin fyrir fólk sem hyggur
á ferðaiög hér heima eða erlendis
að vera búið að mýkja upp vöðva
og auka á þol siitt og auka þek:k
ingu sína, sem yrði til gagns ef
á þyrfti að halda.
Þessi námskeið verða haldin að
Ármúla 14 í hinum nýju húsa-
kynnum judodeildarinnar.
Inritun hefst kl. 2 _e. h. laugar
daginn 11. þ. m. að Ármúla 14,
sími 83395.
Skíðamóf í
Bláfjöllum
Á sunnudaginn kemur ætlar
Skíðadeild Ármanns að halda sitt
árlega stórsvigsmót. Verður mótið
háð í Bláfjöllum vestanverðum,
sem er einn af 3 stöðum, er skíða
félögin í Reykjavík hafa áhuga á
sem framtíðar skíðalandi Reykja
víkur. Þar sem skíðasnjór er víð
ast hvar horfinn af hinurn venju
legu skíðastöðum, gefur það auga
leið, hve hentugt svæði þetta get
ur orðið, þar sem hægt er að
halda 9tórsvigskeppni á þessum
árstíma.
Mótið á að hefjast kl. 15, en
skráning fer fram á mótsstað kl.
13.
Islandsmeisturum Vals tókst
ekki aö sigra 2. deildar liðið
Alf. — Reykjavík. — Það var
enginn munur á liði íslandsmeist
aranna og 2. deildar liði Víkings,
þegar þau mættust í Reykjavíkur
mótinu í gærkvöldi. Enn eitt
dæmi um það, hve íslenzk knatt
spyrna er óútreiknanleg. Hvorugu
liðinu tókst að skora mark og
voru marktækifæri afar fá í þess
um leik, sem einkenndist af miðju
þófi af beggja hálfu.
Segja má, að Víkingsvörninni
hafj algerlega tekizt að haida hin
um annars hættulegu sóknarmönn
um Vals, Hermanni Gunnarssyni
og Reyni Jónssyni, niðri. Var
það ekki sízt að þakka góðum
leik miðvarða Víkings. Arnar
Guðmundssonar og Jóns Ólafsson
ar, en einnig voru báðir bakverð
irnir, Magnús og Óskar, sterkir.
Annars átti Hermann eitt sinn
hættulegan skallabolta, sem Daði
markvörður Víkings, sló i horn.
Víkings-liðið. sem sannarlega
hefur komið á óvart í þessu
Reykjavíkurimóti, lék ágætlega
fram að. miðju, en vegna „takt-
iskra“ galla, tekst liðinu ekki að
nýta oft yfirburði, sem það nær
á miðjunni. Stafar það af
tregðu tengiliðanna að fylgja
sókninni eftir. Þannig verða mið-
herjarnir, Hafliði Pétursson og
Jón Karlsson, oft að glíma tveir
við fjóra til fimm varnarmenn.
Þennan galla má laga auðveld-
lega, en það krefst góðrar út-
haldsþjálfunar.
Vals-liðið var ekki eins virkt í
Valsmonnum tókst ekki að sýna eins góðan leik gegn Víkingi í gærkvöldi og gegn KR á dögunum. Myndin að
ofan er frá þeim leik og sést Sigurður Dagsson verja meistaralega. (Tímamynd Gurmar)
þessum leik og hinum tveimur
fyrri leikjum liðsins í mótinu.
Einkum voru tengiliðirnir, Sigurð
ur Jónsson og Bergsvenn Alfons
son, daufir, en það er segin saga.
að tengiliðirnir ráða oftast jnest
um ganginn. Séu þeir góðir,
verka þeir örfandi bæði á sókn
og vörn. En séu þeir lélegir, slitn
ar santhándið á milli varnar og
sóknar.
Valur hefur nú tekið forystu í
Reykjavíkurimótinu, hefur hlotið
5 stig og á einn leik eftir, gegn
Fram. Fer sá leikur fram á sunnu
daginn og takist Val að sigra í
þeim leik, verður liðið Reykjá
víkurmeistari.
Staðan í mótinu eftir leifciím í
gærkvöldi er þessi:
Valur 3 2 1 0 ftfl. 5
Fram 2 2 0 0 6.-3 4
KR 2 1 0 1 3r3 2
Víkingur 3 0 1 2 4:6 1
Þróttur 2 0 0 2 <k6 0
Afmæli Vals
6 ÉSLANDSMET!
Hvorki meira né minna en sex
Islandsmet voru sett á sundmóti
ÍR, sem lauk í Sundhöllinni í gær
kvöldi. Glæsilegast var met Leikn
is Jónssonar, Ármanni, sem setti
nýtt met í 200 metra bringusundi.
Hann synti á 2:35,5 mínútum og
bætti met Harðar B. Finnssonar,
sem þá var jafnframt Norðurlanda
met, um eina sekúndu. Hefur
Leiknir sýnt miklar framfarir og
má búast við enn betri árangri af
hans hálfu.
Þá setti Hrafnhildur Guðmunds
dóttir, ÍR. tvö íslandsmet. Hún
bætti metið í 100 metra skrið-
sundi um sekúndubrot, synti á
1:03,9 mínútum, en sjálf átti hún
eldra metið. Þá setti hún met í
200 metra fjórsundi, synti á 2:38,3
mínútum, en eldra metið var
2:40,4 mínútur.
Ármannssveit, skipuð þeim Sig
rúnu Siggeirsdóttur, Ellen Ingva
dóttur og Hrafnhildi Kristjánsdótt
ur, sett nýtt met í 3x50 metra þrí
sundi kvenna. Synti sveitin á 1:
45,1 mínútum. Þá setti karlasveit
Ármanns gott met í 3x100 metra
þrísundi, synti á 3:18,7 mínútum
og bætti eldra metið um hvorki
meira né minna en 10 sekúndur,
en það átti ÍR og var 3:28,6 minút
ur. f sveit Ármanns voru. Guð-
mundur Gíslason, Leiknir Jóns-
son og Gunnar Kristjánsson.
í undanrásum í mótinu, sem
fram fóru í fyrrakvöld, setti Sig
I rún Siggeirsdóttir nýtt íslandsmet
j í 100 metra baksundi, synti á 1:
116.0 mínútum, en sjálf átti hún
i eldra metið, sem var sekúnduibroti
! lakara.
! Árangur á þessu ÍR-móti var
sem sé frábær. Auk þess, sem
6 íslandsmet vóru sett, var eitt
drengjamet sett og annað jafnað.
í báðum tiTvikum var um pilta frá
: Akranesi að ræða. Guðjón Guð
| mundsson setti drengjamet í 100
; m. bringusundi, synti á 1:16,3 m.
j Og Finnur Garðarsson jafnaði met
| ið í 100 metra skriðsundi, synti
i á 58,7 sek.
Eyjamenn æfa vel og eru stað-
ráðnir í að halda sæti í 1. deild
Knattspyrnumennirnir í Vest
mannaeyjum æfa vel um þess
ar mundir, að sögn fréttaritara
okkar í Eyjum, og þeir eru
staðráðnir í að halda sæti sínu
í 1. deild. Lítið hefur verið
um eftirvinnu í Vestmannaeyj
um og því meiri timi gefizt til
æfinga.
Malarvöllurinn í Eyjum er
í góðu ásigkomulagi og horf
ur eru á því, að hægt verði að
taka grasvöllinn í notkun, þeg
ar íslandsmótið hefst, en Vest-
mannaeyingar eiga leik fyrsta
dag mótsins. Þá mæta þeir Vals
mönnum og fer sá leikur fram
í Evjum. #
Það hefur löngum verið
kvartað undan þvi, að erfið-
lega gangi að heimta inn að-
gangseyri að knattspyrhuleikj
um í Vestmannaeyjum. Skki
munu Vestmannaeyingar gera
neinar breytingar á áhorfenda
stæðinu í sumar, en munu
ganga þannig frá hnútunum, að
strangari gæzla verði við völl
inn. —alf.
a morgun
Á morgun, laugardag, er af-
mælisdagur Knattspyrnufélagsins
Vals. Þá verður félagið 57 ára,
en Valur var stofnaður 11. maí
1911.
f tilefni afmælisins er, svo
sem verið hefur undanfarin ár,
opið hús að Hlíðarenda frá kl.
3—5 e. h. og er þess vænzt, að
Valsfélagar, velunnarar og vinir
félagsins líti inn.
Sumarbúðir KR
Sumarbúðir fyrir pilta og telp
ur verða í KR-skálianum í Skála-
! felli eins og undanfarin ár.
j Drengjabúðir verða frá 19. júní
til 5. júlí, eða 16 daga. Telpnabúð
|ir verða frá 8. júlí til 24. júlí,
einnig 16 daga. Dvalizt verður
við íþróttir, gönguférðir, leiki og
létta vinnu.
Innri-tun fer ekki fram í sirna,
en nánari upplýsngar verða gefn
ar í sima 24523.
Sumarfagnað-
ur FH-inga
FH-ingar! Sumarfagnaður verð-
ur í Sjálfstæðishúsinu í Hafnar
firði annað kvöld, laugardaginn 11.
maí, og hefst kl. 9.
Skemmtiatriði og dans. FH-ing
ar fjölmennið!