Tíminn - 30.05.1968, Síða 14

Tíminn - 30.05.1968, Síða 14
14 XIMINN FIMMTUDAGUR 30. maí 1968 at *** SAGAN — NÚTÍÐIN — FRAMTÍÐIN í dag kynnir Rannsóknastofnun fiskiSnaðarins starf- semi sína, og býður sýningargestum fiskpylsur og kex úr fiskimjöli. Tízkusýning kl. 8,30 í veitingastofunni. — Sjáið aefintýraheim sjávarútvegsins. SÍÐUSTU SÝNINGAR Leikritið íslandsklukkan, hefur nú verið sýnd 32 sinnum, við mjög góða aðsókn. Það vinnst að- eins tími til að hafa þrjár sýnin-g ar á íslandsklukkunni í viðbót að þessu sinni og verður næsta sýn- ingin annað kvöld, fimmtudaginn 30. m,aí. Þann 3. júní n. k. fara leikarar Þjóðleikhússins í ieikför til Norðurlanda, með leikritið Galdra-Loft, og stendur sú lei'kför yfir í 8 daga- Þegar leikararnir koma til baka aftur verða svo hafð ar tvær síðustu sýningarnar á ís- landisklukkunni í Þjóðleikhúsinu. Myndin er af Sigríði Þorvaldisdótt ur og Erlingi Gíslasyni í hlutverk um sínum. LEIÐRÉTTING Slæm Villa varð í grein um Kexverksmiðjuna Frón, se,m birt- ist í blaðinu í gær. Verksmiðji/- stjórinn Ágúst Jólhannesson er þar ranglega nefndur Guðmunds son. Vill Tíminn hér með leið- rétta þetta og biðja lesendur sína velvirðingar á þessum mistökum. S. H. Framhald af bls. 16 oration, dlótturfyrirtækis S.H. í Bandaríkjunum, skýrði frá starf semd fyrirtiækisins, hinni nýju fiskiðnaðarverksmiðju, sem nú er að taka til starfa og^markaðs- og söluhorfum í Bandaríkjunum. Árni Finnbjörnsson flutíi úkýrslu um viðskipti S.H. við Aust ur-Evrópulönd, ennfremur um sölur á hraðfrystri síld, fryst- um hrognum o. 01. bæði í Aust- ur- og Vestur-Evrópu. Ólafur Guðmunidsson, fram- kvæmdastjóri söluskrifstofu S. H. og dótturfyrirtækisins Snax (Ross) Ltd. í London, skýrði frá starfseminni í Englandi og sölu málum á vegum skrifstofunnar í VesturÆvrópu. Nú starfrækir S. H. 25 svonefnda fiskbari í London, og hefur starfsemi þeirra gefið góða raun. Einar G. Kvaran, framkvæmda- stjórd framleiðslumála, flutti skýrslu um framleiðslu hraðfrysti húsanna á liðnu starfsári og önn ur atriði þar að lútandi. í skýrslu stjórnar S. H. • og ræðum framkvæmdastjóranna kom m. a-. fram eftirfarandi: Heildarframleiðsla hraðfrystra sjávarafurða hjá hraðfrystihúsum innan S.1 H.. á árinu 1967 var 53.010 smál. samanborið við 60.848 smál. árið áður. Var það 7.838 smái, minna en árið 1906, og um 20 þús. smál. minna en framleiðslan árið 1965. Fram leiðsla frystra fiskflaka, blokka og heilfrysts físks, annars en flat- fisks, varð 36.250 smál. eða 4. 865 smál. meiri en árið 1966. Síldarfrysting var aðeins 8.042 smál. samanborið við 18.161 smál. árið 1966. Hefur orðið mikil breyt ing á framleiðslu heilfrystrar sild ar á aðeins 3 árum, en árið 1965 var framleiðsla S.II. á frystri síld um 24 þús. smál, en á s. 1. ári var framleiðslan aðeins % þessa magns, og hefur því orðið mikil breyting til hins verra. Auk þpss var samdráttur í frystingu flatfisks, hrogna, dýrafóðurs, hum ars o. fl. Innan Sölumiðstöðvar hrað- fi'ystiihúsanna voru árið 1'967 57 hraðfrystiihús. Framleiðslu- hæstu hraðfrystihúsin árið 1967 voru: Vinnslustöðin h. f., Vestmannacyj- um, 3.213 smál. Fiskiðjan h. f., 2.809 smál. Hraðfrystihúsið á Kirkjusandi h. f. Júpiter og h. f. Marz, Reykja- ví.k, 2.775 smál. ístojörninn h'.f. Reykjavík, 2.557 sml. ísfólag Vestmannaeyja h.f. 2.385 sm-ál. Framleiðsla S. H. frá 1. janúar til 30. apríl í ár var svipuð og á sama tím-a í fyrra, eða 18,151 (1967:18.420). Útflutningur frystra sjávafaf- ui;ða var árið 1967 að verðmæti 1305 millj. krónur,, en þar af var útflutnirfgur S. H. 55.529 smál. að verðmæti 1008 mil'lj. krónur f.o.b. IV-arð 'það um 9% samdráttu-r mið að við verðm-æti frá árinu áður. Allt frá árinu 1961 til ársloka 1966 hafði verið um að ræða jafna ogstígandi aukningu í útflutning.s ! (verðmæti sjávarafurða á veg-um S. 1 ! H. Árið 1961 nam útflutningsverð ; i mætið 633 millj. króna,' og komst , i upp í 1117 millj. kr. árið 1966 sem ; i var há-mark til þess tíma, en árið : : 1967 lækikaði bæði útf-lutt magn I ^og verð-mæti. Verðmæti útfluttra I I sjávarafurða á vegum S. H. s. 1. : : ár var 78% af heild-arútflutnings- ’ verðmæti frystra sj-ávara-fu-rða. Helztu markaðslönd voru sem fyrr, Bandarí'kin og Sovétríkin. Helztu m-arkaðir fyrir fryst fisk flök, fiskblokkir og heilfrystan fisk eru í Bandaríkjunum, Sovét ríkjunum, Sovétríkjunum og Bret landi, en fyrir hraðfrysta síld f Austur-Evrópu. Helztu markaðir fyrir frystan humar eru Bandaríkin og fta-lía, se-m keyptu um 80% útflutnings- ins. Þá er nokkur markaður fyrir humar í Bretlandi og Sviss. Verðlag á hraðfrystum sj-ávaraf urðum hélst víða óbreytt í því lágmarki, sem það hefur verið í undanfarin ár. Á sumum mörkuð um va-r um örlitla hækkun að ræða, en á öðrum verðlækkanir á mörgum helztu afurðategundum. Sölu- og markaðsútlit fyrir hrað fry-star sj-á-varafurðir er ekki gott. Fram kom á fundin-um, að dótt urfyrirtæki S. H. í Bandaríkjunum og fiskiðnaðarverks-miðja þess hef ur átt mjög ríkan þátt í að tryggja mavkaðsslöðu samtakanna á þess um mikilvæga markaði fyrir hrað frystar sjávarafurðir frá íslandi. A-uk venjul-egra aðalfundarstarfa mun hann fjalla um almen-n hags munamál hraðfrystilhúsann-a stöðu þeirra í dag og framtíðarfþróun. Aðalfundimlm lýkur væn-tanlega á morg-un (fimmtudag). Frá Sölumiðstöð hraðfrystihús anna. ÞAKKARÁVÖRP Innilegar þakkir færi ég ölluði þeim, er heim- sóttu mig og sendu mér gjafir, blóm og skeyti, á áttræöisafmæli mínu 5. maí s.l. og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Auðbjörg Jónsdóttir, Vestri-Skógtjörn, Álftanesi. Utför móður okkar Arndísar Jónsdóttur, Njálsgötu 9, fer fram frá Dómklrkjunni föstudaginn 31, mal kl. 2 e. h. Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum. Árni Tryggvason, Ólafur Ttyggvason. ALFTANES Framhald af bls. 16 Jónsson, hrl., skýrði sjónarmið minnihlutans, er mælir mef, að tekið verði frá á Álftanesi nægi- lega mikið landrými, til að hægt yrði að bygg-ja stærri flugvöli s-amkvæ-mt „L-tilhögun“ fl-ug- brauia. Sá flugvöllur hefur óu-m- deilanl-ega marga flugtækniiega yfirburðr yfir flugvöll með „X- tilhögun“ flugbrauta. Ræðumaður gat þess, að ísiendingar hefðu fengið hina tvo aðalflugvelli lands ins svo til fyrirhafnarlaust upp í hendurnar, og væri því ekki vorkunn að byggja einn myndar- legan flugvöll fyrir höfuðborgar svæðið, Að loknu-m framsöguræðum tóku eftirfarandi til máls: Örn O. Johnson, forstj. F.Í., G-unnar Sig- urðsson, flug-vallarstjóri Reykja- víkurflugvallar, Skúli Steiniþórs- son, formaður Félags ísl. atvinnu flugmanna, Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Loftferðaeftir- litsins, Gústav Pálsson, l>orgar- verkfræðingur, Bergur G. Gísla- son, forstjóri, Jón Sigurðsson, ráðuneyti-sstjóri, Sigurður Helga- son, forstjóri Loftleiða Inc. í New York, Björn Pálsson, flugstjóri, Arnór Hjálmarsson, yfirflugum- ferðarstjóri í Reykjavík, Sigurður Jóhannssion, vegamálastjóri, Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, Hann- es Davíðsson, arkitekt, Ómar Ragnarsson, lögfræðinemi og Jónas Haralz, forstöðumaður Efna hagssiofnunarinnar. í tok fundarins var borin upp eftlrfarandi tiliaga- frá Erni O. Johnson og liún samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða fundarmanna: „Almennur fund-ur haldinn að tilihl-utnn Flugnválafélags ísland-s liinn 28. mui 1968, um flugvall- armál, beinir’ þejrri askorun til hæstvirtrar ríkisstjórnar íslands, að nú þegar v-erði gerðar ráðstaf ayir til að tryggja. landrými á Álftanesi fyrir framtíðarflugvöll höfuðborgarsvæðisin-s, er nægi fyrir svokallaða „L-tilhögun“ fltig bra-uta, sbr. álit flugt’allarnefndar 1965—1967, og ráðstafanir gerðar til að athugun fari fram á til- kostnaði við byggingu slíks fl-ug vallar, og þá sérstaklega gerður endanlegur samantourður á kostn aði við gerð flúgvalla eftir „X“ -og „L“-leiðum. HRAÐI Framhald af bls. 16 síðan hægri umferð var tek in upp, sem barn verður fyrir bíl. í öllum tilfellum má þakka, hve hægt öku- mennirnir óku, að alvarleg slys hafa ekki hlotizt af. Sama er að segja um þá bif reiðaáreks-tra sem orðið hafa. Bílarnir sem í þeim lentu voru á svo hægum hraða að verulegt tjón hef ur ekki hlotizt af. Lögreglan, hvar sem er á landinu, tekur enguin 1 vettlingatökum á ökuníðing um. Þeir eru umsvifalaust kærðir og sektaðir fyrir brot sín. Sum ir þeirra ökiumanna sem færðir eru til yfirheyrzlu virðast halda að þeir séu orðnir svo öruggir j í hægri umferð að engin ástæÖa sé fyrir þá að halda sér við 35 km hámarkshraða í þéttbýli-. En þær staðhæfingar eiga ekki við rök að styðjast, því að raunin er sú að umferðarbrot, önn-ur en of hráður ákstur, eru svo algeng þessa daganá að sýnt er að öku menn eru hvergi nærri búnir að átta sig á breyttum umferðarregl um. Og það er á-lit sé'ríræðinga að fyrstu fjóra niánuði hægri um-ferð ar sé ávallt hætta á að ökumenn, hversu góðir sem þeir kunna aíj vera, gleymi sér og fari að aka eftir þeim reglum sem þeir eru vanastir. Ekki þarf ne-ma augnabliksgleymsku og aðgæzlu- íbysi til jð vald-a slysi í umferð- inni. Þá er mjög á-berandi í hægri umferð hve margir bílstjórar aka á vinstri akrein, þar sem tvær eða fleiri akreinar liggja samsíða. Þetta er mjög hættulegt því að bílar sem far-a fram úr vanaföstu ök-u-mönnunum v-erða að fara hægra megin við þá, en í hægri akstri á að sjálfsögðu að taka fram úr bílum vinstra megin. ALFELAGIÐ Framihald aif bls. 1. marga mánuði hefði Illíf og Framsókn staðið í. sainningavið ræðum við Álfélagið um vinnu vaktmanna sem starfa hjá ÍS-AL og verkakvenna, er starfa þar í m-ötuneyti. N-ú fyr-ir nokkrum dög um hefðu félögin ákveðið að boða til vinnustöðvunar, en dagurinn ekki verið ákveðinn þegar þefla gerðist. Aftur á móti var ákveðið í gær að boða verkfall þessara starfsm-anna frá 6. júní n. k. í viðtali við blað-ið í dag rakti Hermann þróun málsins síðustu d-agana, og sagði þá eftir farand-i: Það va-r á mánudagin-n, að framkvæmdastjórinn — Ragnar Halldórsson — boðaði starfsfólk ið hjá ÍSAL til fundar. Fólkið var nokkuð spennt, serstakleg-a okkar menn, að sj'á hvað þar yrði til uniræðu. Á þessum fundi sagði i'ramkvæ-mdasljórinn, að hug-myndin væri að láta stofna starf-smannafélag hjá ÍSAL. Ekk ert væri auðvitað við það að a-thuga, ef um væri að ræða starfs-mannafélag eins og við skilj um þau. En svo kom það í 1-jós, að ekkert venjulegt st’arfsmannafé lag var þarna á ferðinni, heldur hreint stéttarfélag. Lagði han-n síðan fra-m á fund inum uppkast að lögum fyrir þetta félag, og í 1. grein þess u-ppkasts kemur í Ij-ós hvert verk svið félags-ins á að vera. Þar segir, að tjlgang-ur félagsins sé að koma fram sem einus-tu viðsemj endur við ÍS'AL, að gæta hags- muna starfsmánna gagnvart vinnu veitenda, sérstaklega er snert-ir lau-nakjdr, ráðningarkjör, vinnu sjdlyrði o. s. frv. Og síðar í u-pp kastinu segir: „Hins vegar er það tiiskilið að stjórn ÍSAL viður -kennii stariSsmannafél-agið sem einustu viðsemjendur sína.“ Og síðar kemur, að félagið eigi að stuðla að friðsamlegum samskipt um milli vinnu-veitenda og starfs manna innan félagsins, og að leitast við að útkljá d-eilur án þess að til vald-beitingar komi. Fólkið hlustaði á boðskap manns ins og sagði ekkert. Svo leystist fund-urinn upp án þess nokkuð væri ákveðið, og vi'ð fréttum um þetta. Það ligg-u-r í augum up-pi, að v-ið litum á þetta mjög alvarlegum au-gum. Þetta er alveg einstæður atburður í sögu verkalýðshreyfing ari-nnar. Ekki það, að atpipnurek endu-r beiti sér fyrir stofnun klofn -ingsfélags, það hafa þeir oft gert áður fyrr, en það sem gerir atburð-inn einstæðan er það, að þeir beita sér fyrir stofnun síns eigim stéttarfólags í kringum sin-n atvinnurekstur eingöngu. Við samþykkt-u-m á fundi stjórn _ar og trúnaðarmannaráðs Hlífar í gær að skrifa Alþýðusambandinu út af þessu og se-gjum þaÞ, eftir að við höfum lýst aðdraganda máls- ins og laga-uppkasti félagsins: „Við teljum þetta svo alvaríegan atburð, a'ð verkalýðshreyfingin verði að kæf-a þá tilraun, sem hér er gerð af hálfu atvin-nurek- en-da ti-1 að stofna sitt e-igið verka lýðsfélag, og þar me'ð kljúfa þau verkalýðsfél'ög sem- fyrir eru á svæðinu. Við munum gera allt sem við getum til að hind-ra myrid un stét-tarféla-gs atvinnurekenda, og óskum eftir því að þið veitið okkur allan tiltækan stuðn ing.“ Framsókn samþykkti ei-nn ig a'ð senda samhljóða bréf til ASÍ, sem hefur ákveðið að halda miðstjómarfiuind á morgun, fimmtudag. Á fundum stjórna og trún-aðar imanna-ráða beg-gj-a félaganna í g-ær var einnig samiþykkt að boða vin-nustöðvun frá og með 6. júní hjá ÍSAL, en eins og ég sa-gði áðan þá var þessi vinnustöðvun eiginlega ákveðin áður en þetta mál k-om upp. En hins vegar verð ur eðli þessarar vinnustöðvunar allt an-nað, eftir að þetta hefur gerzt. Þá Verður þetta barátta fyrir v-iðurkenningu. Við hljótum að líta á þetta sem mjög alvarlegan atburð, því að hérna er verjð að gera ó- tvíræð’a 'tilraun til þess að kljúfa þau verkalýðsfélög, sem eru fyrir á þessu svæði, og — það sem er ef til vill alvarl-egast af þessu öllu sanian — atvinnurek endur er-u að reyna að stofna þarna sitt eigið stéttarféla-g, sem er alveg ernstæður atburður í allri sögu \rerkalýðshreyfingarinn ar á íslandi, og verður engan veginn þolaður. Þetta verður stöðvað hvað sem það kostar, — sagði Hermann að lokum. I i

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.