Tíminn - 11.06.1968, Qupperneq 13
i
VKmmDAGtm 11. júnf 1968.
fÍMINN ÍÞRÓTTIR
13
tislWfiP
Hetja Akureyrar-Uösins á sunnudaginrt, Kári Árnason. Þarna sést hann skora fyrsta mark leiksins,
Peíffher:
Verðskuldað-
ur sigur
Akureyringa
„Sigur Alaireyringa var fylli-
lega verðsknldaður'1, sagði Walt-
her Peiffher, þjálfari KR, þegar
blaðamaður Tímans hitti hann
eftir leikinn við Akureyri á
sunnudaginn. Heldur var hljóðið
dauft í Peiffher, eins og skiljan-
legt var, eftir hinn stóra ósigur
KR.
Hins vegar var Einar Helgason,
þjélfari Akureyringa, í sjöunda
himni: „Við höfum aldrei byTjað
eins vel og núna“, sagði hann.
Aðspurður um æfingaaðstöðuna,
sagði Einar, að enn sem komið
væri, hefðu Akureyringar engan
völl til að æfa á, en hefðu hins
vegar fengið aðstöðu á túnbletti
skammt frá flugvellinum á Akur-
eyri,
Enn er ekki vitað, hvenær hægt
verður að leika á vellinum á
Akureyri. Eins og stendur er ekkl
„stingandi strá“ á vellinum, eins
og Einar komst að orði við blaða
menn.
Jafnvel Ellert gat ekki
sameinað KR-skrapið
/ 1 1' '•'■"■
Stórsigur Akureyringa gegn KR 3:0. Kári Árnason skora'ði öll mörkin. —
Kári Ámason var hetja dagsins
hjá Akureyrar-liðinu á sunnudag-
iim, þegar Akureyringar bókstaf-
lega kafsigldu „lið hinna miklu
fyrirheita“ KR, 3:0. Kári skoraði
nefnilega öll þrjú mörkin og
sýndi stórkostlegan leik. Ákur-
eyringar, sem aldrei hafa fengið
slíka óskabyrjun í fslandsmóti,
sýndn ágætan leik, en mikið til á
kostnað lélegra mótherja, sem
KR-ingar óneitanlega eru. Hvað
er eiginlega að ske hjá KR? Sá,
sem þessar línur skrifar minnist
þess varla að hafa séð lélegra
KR-lið. Og þó að það sé afsökun
fyrir KR, að Þórólf hafi vantað,
er það eitt ekki nægilegt.
Oft hefur Ellert Sohram getað
bjargað KR á neyðarstundu, en
jafnvel hann gat ekki bundið KR-
skrapið saman eftir að hann kom
inn á sem varamaður seint í fyrri
bálfleik. Segir það sina sögu.
En snúum okkur að gangi leiks
tns. Akureyringar sýndu fljótlega,
að þeir voru betri aðilinn. Hvað
eftir annað skapaðist mikil hætta
við KR-markið, og á 10. mínútu
átti hinn rauðhærði útherji Akur
eyrar, Valsteinn, skot, sem hafn-
aði í stöng,
Maðurinn, sem átti eftir að
hrella KR-inga meas? var Kári
Ámason,, Hann lét fyrst að sér
kveða á 40. mínútu, þegar hann
afgreiddi sendingu fram miðjuna
frá Guðna Jónssyni, í mark. Vel
gert hjá Kára, seni lék á einn
vamarmanna KR og síðan á Guð-
mund Pétursson niarkvörð. Og þá
var ekkert eftir að gera annað
en renna knettinum í mannlaust
mark, 1:0 staðreyud. Kári lét
ekki staðar numið, því að í síðari
hálfleik bætti hann tveimur gull-
fallegum mörkum við. Á 9. niín.
hafði Steingrímur leikið upp
hægra kantinn framhjá tveimur
KR-ingum og gaf síðan fyrir
mark. Úr mjög erfiðri aðstöðu
fleygði Kári sér á eftir knettin-
um og náði að skalla í mark. Og
þriðja og síðasta markið skoraði
Kári á 15. mínútu eftir fyrirgjöf
Valsteins. Þá voru úrslit leiksins
endanlega ráðin. Sigur Akureyr-
inga hefði vissulega getað orðið
stærri, en víst er um það, að 3:0
er þó stór sigur í augum Akur-
cyringa.
Eftir tvo fyrstu leiki íslands-
mótsins hafa Akureyringr byr
undir báðum vængjum — með
4 stig í pokahorninu. Og nú þegar
eru menn byrjaðir að velta þvi
fyrir sér, hvort ,.Bikarinn“ hafni
nú loks fyrir norðan. En það er
of snemmt að spá nokkru. Að
mínu viti er Akureyrar-liðið ekk-
ert betra en í fyrra — o.g sigur-
inn,, sem liðið vann á sunnudag-
inn, stafar fyrst og fremst af því,
hversu lélegir mótherjar KR-ing-
ar voru. En samt sem áður voru
nokkrir Ijósir punktar við Akr-
liðið. Kári er auðvitað efstur á
blaði. Með hi-aða sínum og leikni
kom hann KR-vörninni úr jafn-
vægí. Tengiliðirnir, Guðni Jóns-
son og Magnús Jónatansson, voru
nokkuð góðir, Guðui í fyrri hálf-
leik og Magnús í þeim síðari. Þó
eiga þessir leikmenn áreiðanlega
eftir að sýna betri leiki síðar.
í vörninni voru Jón Stefánsson og
Pétur aðalburðarásar. Samúel í
markinu fékk ekkert mark á sig.
Samt má hann bæta sig mikið.
Út.hlaup hans eru oft hin furðu-
legustu.
Með réttu ætti ég að endur-
prenta flest af því, sem skrifað
var um KR eftir fyrsta leikinn í
Reykjavikurmótinu. Það var ekki
heil brú i leik liðsins, bvorki í
vörn né sókn. Sóknarmenn liðs-
ins \mru svo lélegir, að vart er
hægt að kalla þá meistaraflokks-
menn, nema Gunnar Felixsón.
Skotin á mark voru ekki mörg,
Pramhaid a ois 15
Hvert er
verksvíð
Framkvæmds
stjórans?
Hvert er verksvið fram-
kvæmdastjóra KSÍ? Ámi
Njálsson, hinn nýi fram-
kvæmdastjóri KSÍ, frestaði
leik Fram og Vestmanna-
jeyinga á sunnudaginn, þeg-
ar sýnt þótti, að Framarar
kæmust ekki til Eyja. Sendi
hann Vestmannaeyingum
skeyti þess efnis í nafni
mótanefndar. Urðu mikil
læti í Eyjum út af þessu,
þótt Ámi væri aðeins að
gera skyldu sína — og gera
það eina, sem hægt var að
gera, eins og málin stóðu.
Framarar áttu að fara til
Eyja skömmu eftir hádegi
á sunnudaginn. Þá tilkynnti
Flugfélagið, að ekM væ/i
fært til Eyja og bað leik-
mennina að athuga síðar
um daginn, eða nm 4-leytið
hvort þá væri hægt að
fljúga. Síðan skeður það,
eitthvað hálftíma síðar, að
skyndilega er fært til
Eyja. Reynt er að ná til
leikmannanna, en ekki náð
ist til þeirra allra strax.
Var Flugfélagið beðið nm
að hinkra aðeins eftir leik
mönnunum. Eftir smábið
fór flugvélin í loftið, án
Fram-leikmannanna, sem
flestir voru komnir. Átta
mínútum eftir að vélin fór
af stað, voru allir leikmenn
irnir mættir. Síðar um
kvöldið var önnur ferð, en
þá reyndist ekki vera pláss
fyrir Fram-hópinn.
Það var því ekki Sm
neitt annað að ræða en
fresta leiknum. Annað bætt
Framhald a ois 15 P
■ T, f
Handknattleiksmenn
slá ekki slöku við
Landsliðsæfingar eru
hafnar. Unnið eftir
áætlun langt fram
í tímann
Alf—Reykjavik. — Það verður
ekki sagt, að handknattleiksmenn
okkur siái slöku við, því að nú
eru landsliðsæfingar hafnar. Eru
þó margir mánuðir þar til næsti
laijidsleikur verður háður, ef und-
anskilinn er „landslcikur"
Færeyinga síðar í sumar.
Fyrsta landslið.sæfingin var s.l.
sunnudagsmorgun undir stjórn
landsliðsþjálfarans, Birgis Björns
sonar. Það merkilegasta er, að nú
er nnnið eftir æfingaprógrammi
langt fram í timann. Tækninefnd
Handknattleikssambandis Islands,
en Karl Benediktsson veitir henni
forstöðu, hefur gert áætlun langt
fram í tímann, en fyrst og fremst
er áætlunin þó miðuð við heims
meistarakeppnina á næsta ári.
Verður væntanlega hægt að skýra
nánar frá þessu í blaðinu síðar.
Eftir upplýsingum, sem fþrótta
síðan fékk í gær. hefur landáliðs
nefnd valið 20—22 leikmenn til
æfinga. Áuk þess er ráðgert að I þar sem enn stærri hóþur hand-
hafa „opið hús“ á hverjum degi, knattleiksmanna mun æfa.
Einn af iandsliðsmönnum okkar, Geir Hallsteinssess.