Alþýðublaðið - 03.02.1990, Page 8
8
Laugardagur 3. febr. 1990
Hneyksli á hneyksli ofanl!
Ljósmyndir:
Auöunn J. Kúld
yngri
FÆÐINGARHEIMILI TIL EINKALÆKNA: Borgarstjórnarmeirihluti
Sjálfstæöisflokksins hefur ákveðið að afhenda einkalæknum Fæð-
ingarheimilið til afnota. Hér sjást tveir einkalæknar útskýra fyrir
þungaðri konu í anddyri Fæðingarheimilisins að hún hafi farið húsa-
villt og verði að fæða annað hvort á Akureyri eða í Færeyjum. Tekið
skal fram að læknarnir buðu konunni brjóstalyftingu og táréttingar
fyrir vægan pening.
ÆSIFREGNASÍÐAN
GESTAGANGUR: Þættir Ólínu Þorvarðardóttur Gestagangur þykja hafa tekist óvenju-
vel að því leyti að sjónvarpsáhorfendur hafa fengið að sjá nýja hlið á þekktum mönnum.
Hér sýnir Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins á sér nýja hlið sem fiðluleik-
ari.
KOSNINGASKJÁLFTI: Talsverður skjálfti er kominn í minnihlutaflokkana vegna kom-
andi borgarstjórnarkosninga. Erfiðlega hefur gengið að fá sameiginlegt framboð gegn
Sjálfstæðisflokknum og sérstaklega hefur Kvennalistinn neitað að ræða við fulltrúa
hinna flokkanna. Hér sést einn fulltrúi minnihlutaflokkanna reyna að sannfæra Kvenna-
listakonu um að áframhaldandi þreifingar um samvinnu sé af hinu góða.
SAMNINGARNIR í HÖFN: Kjarasamningarnir hafa verið undirritaðir. Talsverðrar
spennu og þreytu gætti í lokin. Hér sjást viðbrögð eins fulltrúa atvinnurekenda er blaða-
kona spurði hann um gang samningaviðræðnanna nóttina áður en ritað var undir.
BLAÐAPRENT GJALDÞROTA?: Talsverðar kviksögur hafa verið í gangi að Blaðaprent,
prentsmiöja Alþýðublaðsins, Þjóðviljans og Tmans rambi á barmi gjaldþrots. Þessi
mynd var tekin á síðasta hluthafafundi Blaðaprents þegar gjaldkeri félagsins útskýrði
fjárhagsstöðu fyrirtækisins fyrir fundarmönnum.