Alþýðublaðið - 28.02.1990, Síða 4
4
Miðvikudagur 28. febr. 1990
MPÍÐUBLJSDIÐ
Á HM í
HANDKNATTLEIK
MSSO'tBSR
4 með 200
landsleiki
eða fleiri
Þorgils Óttar Mat- Kristján Arason, 225
hiesen, 244 lands- landsleikir.
leikir.
HM-lið íslands á 2374
landsleiki að baki
Eins og alkunna er þá er landslið íslands eitt reynslurík-
asta liðið, sem tekur þátt í HM í Tékkóslóvakíu, sem hefst
í dag. Hér á eftir birtum við helstu staðreyndir um leik-
mennina.
Einar Þorvarðarson Val, 32
ára, fæddur 12. ágúst 1957. Hann
er jafnframt aldursforseti liðsins.
Einar er 1,93 m á hæð og vegur 93
kg. Hann hefur leikið 234 lands-
leiki.
Guðmundur Hrafnkelsson
FH er 25 ára, fæddur 22. janúar
1965. hann er 1,91 m á hæð og
vegur 91 kg. Guðmundur hefur
leikið 98 landsleiki.
Leifur Dagfinnsson KR er 21
árs, fæddur 18. mars 1968. Leifur
er næstyngstur í landsliðinu, er
1,85 m á hæð og 78 kg. Hann hef-
ur leikið 14 landsleiki.
Þorgils Óttar Mathiesen FH,
27 ára fæddur 17. maí 1962. hann
er 1,88 m á hæð og vegur 84 kg.
Þorgils Óttar hefur leikið flesta
landsleiki með liðinu eða alls 244.
Jakob Sigurðsson Val er 25
ára, fæddur 28. mars 1964. Jakob
er 1,81 m á hæð og vegur 81 kg.
Hann hefur leikið 196 landsleiki.
Bjarki Sigurðsson Víking er
22 ára, fæddur 16. nóvember
1967. Hann er 1,86 m á hæð og
vegur 80 kg. Bjarki hefur leikið 79
landsleiki.
Valdimar Grímsson Val 24 ára,
fæddur 5. desember 1965. hann er
1,80 m á hæð og vegur 80 kg.
Valdimar hefur leikið 90 lands-
leiki.
Sigurður Gunnarsson ÍBV er
þrítugur, fæddur 11. september
1959. Sigurður er einn leikreynd-
asti leikmaður liðsins, er 1,88 m á
hæð og vegur 90 kg. Hann hefur
leikið 193 landsleiki.
Alfreð Gíslason Bidasoa, gr
jafnaldri Sigurðar eða 30 ára,
fæddur 7. september 1959. Alfreð
er 1,91 m á hæð og vegur 97 kg og
hefur leikð 179 landsleiki.
Óskar Ármannsson FH er 24
ára, fæddur 24. ágúst 1965. Hann
er 1,86 m á hæð og vegur 82 kg.
Óskar hefur leikið 26 landsleiki.
Guðmundur Guðmundsson
Víking er 29 ára, fæddur 23. des-
ember 1960. Guðmundur er 1,74
m á hæð og 74 kg á þyngd. Guð-
mundur er þrautreyndur lands-
liðsmaður með 233 landsleiki að
baki.
Kristján Arason Teka er 28
ára, fæddur 23. júlí 1961. Kristján
er 1,94 m á hæð og vegur 90 kg.
Hann er ein af kjölfestum lands-
liðsins og hefur leikið 225 lands-
leiki.
Geir Sveinsson Granollers er 26
ára, fæddur 27. janúar 1964. Geir
er 1,94 m á hæð og vegur 92 kg.
Hann er harðskeyttasti varnar-
maður landsliðsins og hefur leikið
182 landsleiki.
Sigurður Sveinsson Dort-
mund er þrítugur, fæddur 5. mars
1965. Hann er 1,93 m á hæð og 87
kg. Sigurður hefur leikið 171
landsleik og mjög líflegur leik-
maður.
Héðinn Gilsson FH er 21 árs:,
fæddur 27. september 1968. Héð-
inn er hæstur landsliðsmannanna
eða 2,02 m og 94 kg. Hann er einn
af framtíðarmönnum landsliðsins
en hefur þó leikið 67 landsleiki.
Júlíus Jónsson Ansineres er
25 ára, fæddur 22. ágúst 1964.
Júlíus er 1,96 m á hæð og 91 kg.
Hann er fjölhæfur leikmaður og
hefur leikið 142 landsleiki.
Einar Þorvaröarson, Guðmundur Guö-
234 landsleikir. mundsson, 233
landsleikir.
Alls hafa fjórir landsliðsmenn
leikid 200 leiki eda fleiri í íslensku
landslidinu, þ.e. Þorí>ils Óltar Mul-
hiesen fyrirlibir Einar Þoruardarson
rnarkuördur, Kristján Arason oí>
Gudmundur Gudmundsson. Þar ad
auki munu adrir fjórir ná þessu
marki mjög fljóllega, þeir Sigurdur
Gunnarsson, Geir Sveinsson, Alfreö
Gíslason og Sigurdur Sveinsson. —
Þessi mikla reynsla á áreiöanlega
eftir ad vega þungl á heimsmeisl-
uramótinu á næslu dögum.
7. sæti og þar fyr
ir ofan er frábært
segir Guöjón Gudmundsson
I dag hefst heimsmeistarakeppnin
í handknattleik í Tékkóslóvakíu. ís-
lenska landsliðið leikur í C-riðli
ásamt Kúbu, Spánverjum og Júgó-
slövum. Fyrsti leikur liðsins í dag er
gegn Kúbu, síðan verður leikið við
Spán á morgun og loks við Júgó-
slavíu 3. mars. Meginþorri íslensku
þjóðarinnar hefur gifurlegan áhuga
á þessari keppni og Ijóst er, axð fólk
verður límt við sjónvarp, hlustar á
útvarpslýsingar og les fréttir í blöð-
um þessa daga meðan keppnin fer
fram. Menn hafa sjálfsagt misjafn-
ar skoðanir á því, hvernig íslenska
landsliðinu muni vegna í HM, en
víst er að'gerðar verða miklar kröf-
ur. Við skulum samt vera raunsæ,
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓEG
hér eiga leikmennirnir okkar í
höggi viö þá bestu í heimi og enginn
ætlar sér minna en sigur.
Viö eigum marga sérfræðinga í
handbolta, en sá sem við ætlum að
spjalla lítillega viö er Guöjón Guö-
mundsson, sem manna best þekkir
til íslenska landsliðsþjálfara. Við
spurðum Guðjón hvernig undirbún-
ingurinn fyrir HM hefði gengið.
— Hann hefur gengið vel, í des-
ember var valinn allstór hópur leik-
manna eða 23, sem æfði sleitulaust
þar til í byrjun janúar. Síðan kom æf-
ingahlé þar til í byrjun febrúar, en þá
komu leikmennirnir sem leika með
erlendum liðum heim og síðan þá
hefur veriö æft daglega og háðir
landsleikir. Ég tel að liðið sé eins vel
undirbúið og hægt er að ætlast til.
Við færum taliö að leiknum viö
Kúbu í dag. Guöjón telur að Kúbverj-
um hafi farið mikið fram og þetta
verði erfiður leikur. Hann bætir við,
að reynsla íslenska liðsins geti ráöiö
úrslitum. En hvaö vill Guðjón segja
um væntanlegan árangur íslenska
liðsins í Tékkó?
— Lið okkar er mjög gott og
reynsluríkt eins og ég sagði, ég veit
að allir gera sitt besta og síðan verð-
ur það að ráðast hvort það dugir eða
ekki. Sjöunda sæti og allt þar fyrir
ofan er stórkostlegt og nægir til aö
vinna sér rétt til að leika á Olympíu-
leikunum í Barcelona 1992, segir
Guðjón að lokum.
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1982-1. fl. 01.03.90-01.03.91 kr. 1.161,82
1983-1. fl. 01.03.90-01.03.91 kr. 675,04
1984-2. fl. 10.03.90-10.09.90 kr. 472,04
1985-2. fl.A 10.03.90-10.09.90 kr. 311,23
‘Innlausnarverð er höfuðsl óll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, febrúar 1990
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Beinar lýsingar
íkvöldkl. 18.50
— í sjónvarpi og á rás 2