Alþýðublaðið - 28.02.1990, Side 7
Miðvikudagur 28. febr. 1990
7
UTLOND
Þrátt fyrir aö 34 ár séu lidin frá dauöa James
Dean er hann enn dýrkaöur af milljónum tán-
inga — og ,,grœdir“ milljónir dollara.
GOÐIÐ
Hefði James Dean lifað hefði hann orðið 59 ára 8. febrúar.
Þá hefðu táningarnir sagt „hvaða James"? í stað þess vita
þeir flestir hver James Dean var því hver táningakynslóð
áratuganna frá því hann lést
tákn óánægðra unglinga.
*
I milljónum svefn-
herbergja eru
myndir af James
Dean, sem í útliti
er ósköp hvers-
dagslegur
hefur tileinkað sér hann sem
Fjármálafyrirtæki sem kallast
Curtis Licensing of Indiana sér til
þess að hann gleymist ekki frekar
en Klvis Presley sem þetta fyrir-
tæki braskar einnig með eftir lát
hans.
Fyrirtækið hefur einkarétt á
James Dean kúrekahöttum, galla-
buxum, bolum og fleiru og rakar
inn um 100 millj. dollara.
Það virðist kaldhæðni örlag-
anna að braskarar skuli ráðskast
með minningu James Dean, sem
var þekktur fyrir að hata allt brask
og þá sem græddu á því. Hann var
einníg þekktur fyrir að aka brjál-
æðislega hratt í sportbílnum sín-
um og það var einmitt þessi hraða-
della sem varð honum að bana.
Hann ók á ofsahraða á Porche-
bílnum sínum inn í tré (í fyllstu
merkingu) og lést samstundis.
Eina sanna ástin í lífi hans var
ítalska leikkonan Pier Angeli og
þau höfðu ákveðið að ganga í
hjónaband en móðir Pier kom í
veg fyrir það og þvingaði Pier til
að giftast Vic Damone, minni hátt-
Kvikmyndatöku
myndarinnar „Giant",
lauk daginn fyrir and-
lát hans. Það er Eliza-
beth Taylor sem er
meö honum á mynd-
inni en hún var mót-
leikari hans.
ar söngvara af ítölskum ættum.
Það hjónaband endaði með skiln-
aði og hún varð þunglynd, fór að
nota pillur og áfengi sem gerði illt
verra.
Pann 10. september 1977 framdi
hún sjálfsmorö, tók inn stóran
skammt af pillum. Hún skildi eftir
sig bréf sem hljóðaði eitthvað á
þessa leið: ,,Það er mitt hlutskipti
að vera ein, ég hef alltaf veriö ein
nema með Jimmy . . . ég verð líka
ein á banastundinni. Eina sanna
ástin mín lést undir stýri á
Porche."
James Dean tók giftingu lJier
Angeli mjög nærri sér og haft er
eftir einum vina hans, að einhver
sorglegasta sjón sem hann hafi séö
var fyrir utan kirkjuna þegar Pier
var að giftast Vic Damone. ,,Hann
stóð undir kirkjuveggnum og grét
svo axlirnar skulfu af ekka, þegar
hann varð var við okkur þaut
hann upp í bílinn og ók burt á ofsa-
hraða."
SJÓNVARP
Sjónvarpiö kl. 18.45
HEIMSMEISTARA-
KEPPNIN í HANDBOLTA
ÍSLAND - KÚBA -
BEIN ÚTSENDING
Þá hefst það sem allir, eða a.m.k.
margir hafa beðið eftir. Heimsmeist-
arakeppnin í handbolta í Tékkóslóv-
akíu. Þegar hafa borist fregnir af því
að hótelið sem strákarnir okkar eru
á sé ekki nógu gott og svo rigndi á
þá þegar þeir fóru út að hlaupa. Allt
mun samt koma fyrir ekki, við vinn-
um Kúbverjana í þessum leik, við
hreinlega verðum aö vinna þá —
annað bara gengur ekki. Allir ís-
lensku leikmennirnir eru heilir og
ákveðnir og nú er að duga eða drep-
ast. Áfram ísland.
Sjónvarpiö kl. 20.55
GESTAGANGUR
Ólína Þorvarðardóttir tekur á móti
valinkunnum gesti í sjónvarpssal,
að þessu sinni er það djassarinn,
tónskáldið og útvarpsmaðurinn Jón
Múli Árnason. Áhorfendur veröa
viðstaddir í sjónvarpssal og taka
væntanlega hressilega undir þegar
Jón Múli sest við flygilinn og spilar
einhver sinna ákaflega fallegu laga.
En svo er það auðvitað önnur
spurning. Veröur Stalín þar?
Hálfrar klukkustundar þáttur fyrir
áhugamenn um bílaferlíki sem hafa
verið útbúin sérstaklega fyrir tor-
færuakstur. Sýndir verða hinir ótrú-
legu eiginleikar sem slíkir bílar, ef
bíla má kalla, búa yfir. Þar má nefna
veltur, hraðakstur, stökk og margt
fleira sem sagt er koma verulega á
óvart. Þetta er sem fyrr segir þáttur
fyrir áhugamenn og á öllum and-
skotanum hafa menn jú áhuga.
Sjónvarpiö kl. 21.40
SJÁLFSVÍG í
FRÚARKIRKJU
(Antonieta)
Frönsk bíómynd, gerd I9HS, leik-
stjúri Carlos Suura, adallilutuerk
Hanna Schygulla, Isabella Adjuni,
Carlas Bracho.
Kona nokkur er aö semja bók um
sjálfsvíg kvenna á 20. öld. Hún
kynnir sér sérstaklega sögu Antoni-
etu nokkurrar frá Mexíkó, sem
svipti sig lífi í Frúarkirkjunni í París
árið 1931. Þetta er bráðforvitnileg
mynd, í fyrsta lagi bregst Spánverj-
inn Carlos Saura sjaldnast og í öðru
lagi hefur hann þarna undir sinni
stjórn tvær af bestu leikkonum Evr-
ópu, þær stöllur Schygulla og Adj-
ani. Ef þessi mynd bregst þá gildir
gamla orðtakið um krosstrén.
Stöö 2 kl. 21.00
BIGF00T -
BÍLATRÖLLIN
(Bigfoot in Action)
MM j&m fM STOD2
17,50 Öskustundin 15,30 Skikkjan (The Robe) 17,05 Santa Barbara 17,50 Fimm félagar
1800 18,20 Brauðkollurnar hans Olsons Sænsk barnamynd 18,40 Táknmálsfréttir 18,45 Heimsmeistara- keppnin í handknatt- leik — Bein út- sending frá Tékkó- slóvakíu. ísland — Kúba 18,15 Klementina 18,40 í sviðsljósinu
1900 20,20 Gestagangur Aö þessu sinni spjallar Ólina viö hinn landsfræga útvarps- mann og djass- geggjara Jón Múla Arnason 21,40 Sjálfsvíg í Frúarkirkju (Antonieta) Frónsk biómynd frá árinu 1985. Kona nokkur er aö semja bók um sjálfsvíg kvenna á 20. öld. Hún kynnir sér sérstaklega sögu Antonietu frá Mexikó sem svipti sig lífi i Frúarkirkjunni i Paris árid 1931 19,1919.19 20.30 Af bæ í borg Gamanmyndaflokkur 21,00 Bigfoot-bila- tröllin Þáttur fyrir áhugamenn um bila- ferlíki sem útbúin hafa veriö sérstaklega til torfæruaksturs 21.30 Snuddarar Framhaldsmynda- flokkur 22,20 Michael Aspel Þessi frábæri breski sjónvarpsmaður tekur á móti frægu fólki og spjallar um líöandi stundu
2300 23.00 Ellefufréttir 23,10 Sjálfsvig. Frh. 23,45 Dagskrárlok 23,00 Reiði guðanna I (Rage of Angels I) Framhaldsmynd í tveimur hlutum. Seinni hluti 00,35 Dagskrárlok