Alþýðublaðið - 28.02.1990, Blaðsíða 8
MÞYÐUBUÐIB
Langlundar-
geð á þrotum
— segja námsmenn
„Langlundargeð átta
þúsund íslenskra náms-
manna er brostið,** segir í
frétt frá Samstarfsnefnd
námsmanna. Segir þar að
Alþýðubandaiagið í
stjórnarandstöðu hefði
haft hátt um brot á lögum
um námslán. Nú þegar
flokkurinn væri í aðstöðu
til að sýna vilja sinn í verki
ríkti þögn um málið í þeim
herbúðum.
„Samningur Svavars Gests-
sonar við námsmenn um
endurbót skerðingar í áföng-
um gegn hækkun tekjutillits
hefur verið að engu hafður.
Og það þrátt fyrir að nefnd
sem Svavar skipaði í haust
hafi einróma samþykkt rétt-
mæti lokaáfanga leiðrétting-
ar námslána og bent á leiðir
til að hrinda henni í fram-
kvæmd. Mánuðum saman
hefur verið reynt aö fara
samningaleiöina til að knýja
menntamálaráðherra til að
standa við loforð sín. Svörin
hafa verið öll á einn veg, einu
er lofað i dag og öðru á morg-
un en ekki er staðið við nokk-
urn hlut," segir í fréttatil-
kynningu námsmannanna.
Miðvikudagur 28. febr. 1990
Koma frá Hjaltlandseyjum til aö berjast gegn þeirri ógnun sem hafsvœðum
okkar stafar af kjarnorkuúrgangi
Geislavirkur úrgangur
við strendur íslands
— segja Chris Bunyan og Rose Young.
Rose Young og Chris Buyan — þau koma til íslands til að
berjast gegn ógnun kjarnorkuúrgangs við hafsvæðin á norð-
urhvelinu. A-mynd: E. Ól.
„Þegar hefur mælst
geislavirkur úrgangur
við strendur Islands og
Grænlands frá kjarn-
orkuendurvinnslustöðv-
um á Norður-Skotlandi.
Lífríki sjávar N-Atlants-
hafsins stafar ógnun af
úrgangi frá þessum
kjarnorkuendurvinnslu-
stöðvum,“ sögðu þau
Chris Bunyan og Rose
Young, félagar í NENIG, í
samtali við blaðið.
NENIG eru samtök á
Hjaltlandseyjum sem berj-
ast gegn kjarnorkuvá. Sam-
tökin hyggjast beita sér fyr-
ir að Norðurlandaráð sam-
þykki tillögu þar sem því er
mótmælt að kjarnorkuúr-
gangi sé komið fyrir í sjó og
að umsvif kjarnorkuvera a
þessum svæðum séu aukin.
Bresk stjórnvöld hafa
samþykkt að heimila til-
raunir með kjarnorkuend-
urvinnslu frá kjarnorkuver-
um í Evrópu til viðbótar við
þá endurvinnslu sem þegar
fer fram í Dounreay á Norð-
ur-Skotlandi. Umhverfis-
ráðherrar Norðurlandanna
hafa þegar samþykkt að
mótmæla þessari ákvörö-
un.
„Við getum ekki horft
upp á mengun hafsins, sem
eru sú náttúruauðlind sem
er undirstaða afkomu okk-
ar. Við deilum hafinu og
berum því sameiginlega
ábyrgð á því. Þetta á sér-
staklega viö um lönd eins
og ísland, Færeyjar, Hjalt-
landseyjar, Orkneyjar og
Noreg sem eiga afkomu
sína að miklu eða öllu leyti
undir gæftum hafs og land-
búnaði, sögðu þau Bunyan
og Rose.
Rúnar Þór Arnarson,
sýnir merki Rauöa
krossins sem skólabórn
selja í dag og næstu
daga. Rúnar Þór er
nemandi í 9. bekk
Grunnskóla Sauðár-
króks en hefur veriö í
starfskynningu á
Alþýöublaöinu og
Pressunni síöustu daga.
Arleg merkjasala Rauða krossins:
„Mannúð er málið"
„Mannúð er málið,“ er Rauða kross félaganna rækslu sjúkrabila, forvarnir í
kjörorð merkjasölu Rauða innanlands. fíkniefnamálum unglinga og
krossins í ár og hefst sala Rauöi krossinn hefur unnið stuðning við alnæmissjúk-
merkjanna í dag, öskudag. aö fjölda verkefna innan linga og aðstandendur
Tekjur verða að þessu lands sem utan og má sem þeirra.
sinni notaðar til verkefna dæmi nefna kaup og starf-
Andraútgerðin við Alaskastrendur
Tapið er
umtalsvert
— segir Haraldur Haraldsson í Andra hf.
„Það eina sem gæti
bjargað okkur er að
Bandaríkjamenn standi
við gerða samninga,"
sagði Haraldur Haralds-
son, einn aðaleigandi
Andra hf.í samtali við
blaðið. Fyrirtækið tapar
að sögn Haralds veruleg-
um fjármunum daglega en
hann kvað þó engan upp-
gjafartón í mönnum.
Haraldur benti á að á sama
tíma og íslendingar stefndu
aö því að veita bandarísku
fyrirtæki leyfi til að stunda at-
vinnurekstur hér hygðust
Bandaríkjamenn komast hjá
aö veita íslendingum samn-
ingsbundin réttindi sín þar.
„Við reynum að þreyja
þorrann, en tapið daglega er
umtalsvert. Hversu mikiö
það er, er ekki hægt að segja
fyrr en ársuppgjör liggur fyr-
ir. Eins og stendur erum við
að taka á móti flatfiski til
frystingar, en þann afla fáum
við frá bandarískum bátum,"
sagði Haraldur.
Um fjármögnun hallarekst-
ursins vildi Haraldur ekkert
láta hafa eftir sér en tók þó
fram að ekki yrði leitaö til
Byggðastofnunar.
VEÐRIÐ
í DAG
Norðan og noröaustan átt,
víöa stinningskaldi. Él við
norður og norðaustur-
ströndina, en bjartviðri
um sunnanvtrt landiö.
Frost verður á bilinu 6 til
10 stig víðast hvar.
ÍSLAND
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
í gær
að islenskum
tíma.
Hitastig
i borgum
Evrópu
kl. 12
Fólk
Thor Vilhjálmsson. rit-
höfundur nýtur greini-
lega mikils álits utan síns
heimalands. Það staðfest-
ist enn á ný, þegar sendi-
herra Frakka hér á landi
kvaddi hann til mann-
fagnaðar þar sem Thor
var sæmdur æðstu orðu
sem franska lýðveldið
hefur i sínum fórum til
handa útlendum manni.
Þetta er viðurkenning
sem slægur er í og greini-
legt að franskir kunna vel
að meta það sem flýtur úr
penna skáldsins okkar.
★
G'uómundur Gíslason, 49
ára, landsfrægur iþrótta-
maður um árabil og besti
sundmaöur íslands, á að
baki heilladrjúgan feril
sem bankamaður í 30 ár.
Á fundi bankaráös Bún-
aðarbanka íslands í gær
var Guðmundur ráöinn
aöstoðarbankastjóri er-
lendra viðskipta við
bankann frá 1. mars. Guö-
mundur starfaði viö Út-
vegsbankann frá 1960
þar til í ársbyrjun í ár að
hann varö forstööumaður
erlendra samskipta hjá ls-
landsbanka hf. Fréttin um
vistaskipti Guömundar
vakti verulega athygli í
bankaheiminum í gær.
Eiginkona Guðmundar
Gíslasonar er Erla Sigur-
jánsdótlir og eiga þau
tvær dætur.
★
í samkvæmislífi borgar-
innar er þaö helst tíðinda
að á Hótel Borg eru fram-
undan menningarsam-
skipti viö Kúbu. Sama
kvöld og islenska lands-
liðiö sigrar (vonandi!)
kúbanska landsliðið í
handbolta í Tékkóslóvak-
íu, — verður heitur söng-
ur og hljómsveitarspil
Kúbufólks á Borginni.
Hljómsveitin heitir Lus
Novels, sem karlmenn,
en með henni syngur Leo-
nor Zayas. Borgin býður
að sjálfsögöu upp á kúb-
anskan matseðil í tilefni
heimsóknarinnar.
★
Dagný Björgvinsdóttir, pí-
anóleikari leikur sónötu i
D-moll eftir Sjostakovitsj
á háskólatónleikunum í
Norræna húsinu í hádeg-
inu í dag. Með henni leik-
ur Gunnar Kvaran, selló-
leikari. Bæði starfa þau
aö tónmennt, Gunnar
sem deildarstjóri
strengjadeildar Tónlistar-
skólans í Reykjavik, Dag-
ný sem kennari við Tón-
menntaskólann í Reykja-
vík.