Alþýðublaðið - 12.04.1990, Síða 6

Alþýðublaðið - 12.04.1990, Síða 6
6 Fimmtudagur 12. apríl 1990 EINDAGINN ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreg- inni staðgreiðslu af launum og reikn- uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin skulu gerð eigi síðaren 15. hvers mán- aðar. Með skilunum skal fylgja greinar- gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila- greinum", blátt eyðublað fyrir greidd laun og rautt fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó svo að engin staðgreiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heil- um krónum. Gerið skil tímaniega RSK RfKISSKATTSTJÓRI 55,2% aðspurðra eru mótfallnir frjálsum innflutningi kjúklinga og eggja samkvæmt skoöanakönnun Skáís — neytendur treysta islenskum bænd- um e.t.v. betur en margir hugöu, og vilja þá borga fyrir þjónustu þeirra hærra verði en hún kostaði innflutt. Skoöanakönnun Skáís um innflutning á eggjum og kjúklingum: Meirihluti ámóti Meiri hluti íbúa höfuðborg- arinnar eru mótfallnir því að tekinn verði upp frjáls inn- flutningur á kjúklingum og eggjum, en aðeins þriðjungur er því hlynntur. Þetta eru nið- urstöður skoðanakönnunar Skáís frá 9. apríl síðastliðnum. Þrátt fyrir mikla umræðu að undanförnu um hvort leyfa skuli frjálsan innflutning á kjúklingum og eggjum virðast niðurstöður þessarar könnunnar vera svipaðar niðurstöðum eldri kannana. Mótfallnir voru 55,2% að- spurðra en 33,0% hlynntir. Oákveðnir voru 11,6% en 0,2% kusu að svara ekki þessari spurn- ingu. Úrtakið voru 534 íbúar höf- uðborgarinnar og afstöðu tóku 471 eða 88,2%. „Það er gott að heyra að neyt- endur taka undir stefnu okkar í þessum málurn," sagði Gísli Karls- son, framkvaemdastjóri Fram- leiðsluráðs landbúnaðarinns í samtali við Alþýðublaðið. Hann sagði stefnu bænda vera þá að ekki skyldi flytja inn aðra matvöru en þá sem ekki væri hægt að fram- leiða innanlands. Könnunin var gerð samkvæmt heildarúrtaki sem byggði á heild- arskrá Landsímans. Hringt var í símanúmer í Reykjavík. Spurning- um var beint til þeirra sem svör- uðu í síma og voru 18 ára eða eldri. Hringt var í 700 númer, 534 svöruðu í síma eða 76,3% úrtaks- Fátækt fólk á Akureyri I gaer var frumsýnt nýtt leikrit, FÁTÆKT FÓLK, hjá leikfélagi Akureyrar. Fátaekt fólk er leikgerð Böðvars Guðmundssonar af endurminningabókum Tryggva Emilssonar. Sýningin er mjög viðamikil. Yfir 40 leikendur taka þátt í sýningunni, auk hljóðfæraleikara, en í verkinu er mikið sungið af kröftugum báráttusöngvum. í leikritinu fá áhorfendur að kynnast æsku- árum Tryggva í Öxnadal; baráttu hans og fjölskyldu hans fyrir lífsviðurværi á tímum atvinnuleysis og þrenginga. Þar er barist upp á lif og dauða við fátækt, hungur, óblið náttúruöfl, misrétti, mannskæða sjúkdóma og jafnvel drauga. Við kynnumst þvi hvernig bláfátækur sveitadrengurinn , sem aldrei missir trúna á hið besta og fegursta i lifinu, gerir sér smátt og smátt grein fyrir því að hann býr ekki að eins við harðræði almættis og höfuðskepna, heldur einnig við óréttlæti mannanna. Hann f innur til heilagrar skyldu til að leggja lið bar- áttu um betra mannlíf, og vopn hans er bjargföst trú á sannleika og sanngirni. Fyrr en varir er hann orðinn verkamaður á Akur- eyri, en þar er vinna litil og misréttið nær takmarkalaust, miskunnarleysi kreppunnar algjört. Verkamennirnir bindast samtökum og skipulögð verkalýðsstarfsemi, með til- heyrandi verkföllum og pólitiskum stórat- burðum ryður brautina til réttlátari skiptingu auðsins. Þetta er saga af hugsjónamanninum Tryggva Emilssyni, sem sætti sig ekki við að lög guðs væru brotin á bjargarlausu alþýðu- fólki á íslandi. Leikstjóri er Þráinn Karlsson, leikmynd og búninga gerði Sigurjón Jó- hannsson, lýsingu hannar Ingvar Björnsson og tónlist og áhrifsljóð samdi Þorgrimur Páll Þorgrimsson. Með aðalhlutverk fara Árni Tryggvason, Sigurþór Alþert Heimisson, Ingvar Már Gislason og Arnar Tryggvason. Næsta sýning verður í dag kl. 17.00.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.