Alþýðublaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 12. apríl 1990 7 Kosningadeilur á Breiöabliksfundi: Harma ai húsið sé orðið ai kosningamáli — segir Logi Kristjánsson, formaöur Breiöabliks. Munu Sjálfstœðismenn rifta samningum um byggingu HM-hallar? Kynningarfundur Breiða- bliks um byggingu íþróttahúss og félagsaðstöðu í tengslum við Heimsmeistarakeppnina í handknattleik árið 1995 í Fé- lagsheimili Kópavogs á mánu- dagskvöldið var vel sóttur. Þar sem stutt er til kosninga snér- ist fundurinn brátt frá almenn- um kynningarfundi upp í kosn- ingafund og deildu þar for- ráðamenn meirihlutaflokka við sjálfstæðismenn um bygg- ingu þessa húss. Páll Gunnlaugsson, arkitekt, sýndi skyggnur af húsinu og út- skýrði fjölnotagildi byggingarinn- ar. Hann lagði áherslu á fjölbreyti- leika hússins og hvernig hægt væri að nýta það eftir Heimsmeist- arakeppnina. Logi Kristjánsson, formaður Breiðabliks, ræddi um þörf félags- ins á íþróttaaðstöðu og skýrði hvernig Breiðablik hygðist nýta sér þá aðstöðu sem þarna myndi skapast. Hann ræddi um rekstrar- kostnað hússins og taldi það full- víst að það gæti staðið undir sér með réttri markaðssetningu. Næstur tók til máls Guðmundur Oddsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs. Hann gagnrýndi sjálf- stæðismenn harkalega fyrir að gera bygginguna að kosninga- máli. Hann sagði að sem bæjar- stjórnarmaður hefði hann auðvit- að viljað að hlutur ríkisins í þess- um framkvæmdum yrði hærri. I samningaviðræðum yrði hins veg- ar alltaf að gefa eitthvað eftir en samt sem áður teldi hann þennan samning hagstæðan bænum. Gunnar Birgisson, oddviti sjálf- stæðismanna í næstu kosningum, kvaðst leggja ríka áherslu á að flokkurinn væri í sjálfu sér ekki á móti byggingu hússins. Það sem hann taldi hins vegar neikvætt væri hver óvissuþáttur samnings- ins væri stór. Þáttur ríkisins væri föst upphæð þannig að allt sem færi fram úr kostnaðaráætlun myndi leggjast á Kópavogsbæ. Af þessu leiddi að fulltrúar bæjarins hefðu samið af sér. Ekki svaraði Gunnar spurningu úr salnum um hvort sjálfstæðismenn myndu rifta samningi við ríkið ef þeir kæmust til áhrifa eftir kosningarnar í vor. Valþór Hlöðversson, bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins, gagn- rýndi sjálfstæðismenn fyrir að tefla í tvísýnu þessari byggingu enda hefðu þeir verið eina stjórn- málaaflið í Kópavogi sem ekki hefði tekið þátt í þessum samn- ingi. Guðni Stefánsson, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna, kvaðst hafa heyrt efasemdarraddir um þessa byggingu frá fólki í öllum stjórn- málaflokkum. Hann taldi þennan samning vera of dýru verði keypt- an fyrir Kópavogsbæ enda væru mörg önnur verkefni sem biðu úr- lausnar hjá bænum. Guðmundur Oddsson kom aftur í pontu og gagnrýndi Guðna fyrir að koma með rangar tölur um skuldastöðu bæjarins. Hann sagði einnig að það lægi fyrir að bærinn myndi ekkert greiða í þessa bygg- ingu næstu 5 árin og síðan færi um 6% af framkvæmdafénu í skólann og íþróttahúsið. Það væri því verið að ljúga að bæjarbúum að þessar framkvæmdir kæmu í veg fyrir að hægt væri að eyða peningum í t.d. gatnaframkvæmdir eða byggingu sundlaugar. í almennum umræðum tók m.a. Jón Júlíusson íþróttafulltrúi Kópa- vogsbæjar til máls og ræddi um þá möguleika sem þetta nýja íþrótta- hús veitti almenningi og starfs- hópum til heilsuræktar, sérstak- lega í þeim tímum sem skólinn og íþróttafélögin nýttu það ekki. Aðr- ir sem til máls tóku í þessum al- mennu umræðum voru Ólafur Hjálmarsson, Heiðar Breiðfjörð, Páll Magnússon, Sigríður Einars- dóttir og Elisabet Sveinsdóttir. Hafnfirðingar vilja halda áfram að vera sjálfstæðir Gaflarar. Kópavogsbúar: Vilja i faðm Daviðs — Hafnfirdingar vilja hins vegar vera einir á báti Í skoðanakönnun Skáis fyrir bæjarbúa í Kópavogi og Hafnar- Pressuna var kannaður hugur firði til sameiningar sveitarfé- Skoðanakönnun Skáís í Hafnarfirdi: Tveggja flokka kerfí í skoðanakönnun Skáis fyrir Pressuna komu fram skýrar lín- ur í Hafnarfirði; Alþýðuflokkur- inn gegn Sjáifstæðisflokki. Aðr- ir flokkar eða framboð koma ekki að manni samkvæmt þess- um tölum. Alþýðuflokkurinn fær um 50% fylgi, 6 bæjarfull- trúa og hreinan meirihluta en Sjálfstæðisflokkurinn um 40% fylgi, 5 bæjarfulltrúa. Báðir flokkar bæta við sig töluverðu fylgi frá síðustu kosningum. Jóhann Bergþórsson, oddviti sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði, var ánægður með þessar tölur. ,,Við er- um með gott fólk á lista og höfum staðið málefnalega að allri gagnrýni á meirihlutann á þessu kjörtímabili. Þetta skilar sér nú í þessum kosning- um,“ sagði Jóhann. Hann vildi þó taka það fram að enn væri langt til kosninga og þessar tölur gætu auð- veldlega breyst sjálfstæðismönnum í hag. Fylgissveifla til Alþýðuflokksins og sjálfstæðismanna virðist ekki koma mönnum mjög á óvart í Hafn- arfirði. „Alþýðubandalagið líður fyrir að vera í stjórn með Alþýðuflokknum því þeirra maður hefur alveg fallið í skuggann af bæjarstjóranum," sagði Jóhann Bergþórsson. Alþýðublaðinu tókst ekki að ná tali af bæjarstjóranum í Hafnarfirði, Guðmundi Árna Stefánssyni, í gær- dag. Án efa hefur hann og hans menn verið ánægðir með útkom- una og þá vísbendingu sem skoð- anakönnunin gefur. laga á Stór-Rey kjavíkursvæðinu. Það vakti athygli að sex af hverj- um tíu Kópavogsbúum, sem af- stöðu tóku, voru hugmyndinni hlynntir. Hins vegar hlaut tillag- an einungis hljómgrunn hjá rúmlega þremur af hverjum tíu Hafnfirðingum. Spurt var hvort bæjarbúar væru fylgjandi eða andvígir sameiningu sveitarfélaga á Stór-Reykjavíkur- svæðinu. Svar Kópavogsbúa kom nokkuð á óvart. Af þeim 307 sem spurðir voru reyndust 136 vera hug- myndinni hlynntir en 96 andvígir. Óákveðnir voru 64 en 11 neituðu að svara. Ef aðeins er miðað við þá sem afstöðu tóku þá voru 58,6% Kópa- vogsbúa hugmyndinni fylgjandi en 41,4% prósent andvígir. Annað var upp á teningum í þriðja stærsta bæ landsins. Hafnfirð- ingar tóku sumir hverjir þessa spurningu óstinnt upp því þar í bæ er lenska að tala um Stór-Hafnar- fjarðarsvæðið en ekki Stór-Reykja- víkursvæðið! Af 540 aðspurðum voru 243 andvígir en 143 hlynntir sameiningu. Óákveðnir voru 129 en 25 neituðu að svara. Ef aðeins er miðað við hrein svör þá voru 63% á móti sameiningu en 37% hlynntir. Aðalfundur Rauða kross íslands Aðalfundur Rauða kross íslands verður hald- inn á Hvolsvelli 12.-13. maí nk. Fundurinn verður settur í félagsheimilinu Hvoli kl. 10.00 f.h. laugardagjnn 12. maí. Dagskrá samkvæmt 16. gr. laga RKÍ. Stjórn Rauða kross íslands. AÐALFIJNDLJR Aðalfundur Verslunarbanka íslands hf. verður haldinn í Súlnasal Hótels Sögu laugardaginn 28. apríl 1990 og hefst kl. 13.30. Dagskrá: lu 2„ 3. 4. Aðalfundarstörf samkvæmt 33. grein samþykkta félagsins. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Tillaga að nýjum samþykktum fyrir félagið. Önnur mál löglega fram borin. Reykjavík, 3- apríl 1990. Verslunarbanki íslands hf. VÉRSIUNARBANKINN

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.