Alþýðublaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 12. apríl 1990 11 UTIOND Salmon Rushdie sendir frá sér varnarskrif „I góöri trú" fjallar aö sjálfsögðu meöal annars um tján- ingarfrelsi, bókmenntir sem riðla landamærum og viröingu fyrir einstaklingnum. Hann skrifar: Rushdie hefur rofid þögnina, sem hefur verid í kringum persónu hans aö undan- förnu. Ritiö er 7000 orö og þar mótmælir hann gagnrýni á bók sem aö hans dómi er ekki til. ,,Eg vona innilega aö ,,The Sat- ans verse“, sé verk sem fær fólk til að hugsa og jafnvel efast um ýmis- legt. Bókin er alls ekki eins og margir hafa lýst henni. Hún er ekki bók sem er full af hæðni, grófum lýsingum og móðgunum. Þessi bók sem hefur komið mönn- um til að safnast saman á götum og strætum um víða veröld er hreint ekki til. Að vera hótað lífláti verið svívirtur af í rauninni þjóð sinni er mikið áfall og tilfinninga- sár upplifun fyrir hvaða rithöfund sem er. Ég viðurkenni það að sjálf- sagt hafa margir muslimar fundið til sársauka en gæti þetta ekki orð- ið til að þess að við mennirnir við- urkennum sársauka hvors annars. Eigum við ekki að reyna að trúa á hina góðu trú hvors annars. Ef frelsi til að hneyksla og eða særa er ekki fyrir hendi þá er haldur ekki tjáningarfrelsi fyrir hendi. Ef ekki er frjálst val rithöfunda við að skrifa jafnvel í hæðnislegum tón um t.d. trúarbrögð og önnur við- kvæm mál er ekki táningarfrelsi. Ef hlekkja á tungumál og ímynd- unarafl í hlekki verður skapandi list ekki lengur til og þar með verður það sem gerir okkur að mönnum ekki heldur." Rushdie segir að það sem hon- um finnist vera sterkar lýsingar á sálarkvölum eða ljótum kvalafull- um draumum sé túlkað sem af- skræming og útötun á Islamskri trú. Hann segist hafa verið að reyna að stilla hinu góða upp gagnvart hinu illa, hið hreina gagnvart hinu óhreina og hið sið- vanda gegn hinu grófa. „Stundum finnst mér hinn upp- runalegi tilgangur minn með bók- inni „Satansvers" hafa verið mis- skilin svo hrapallega að hann sé tapaður að eilífu." Lokaorð Rushdie í vörninni eru: „Ég er fullur sorgar yfir því að vera einangraður frá umhverfi mínu, frá Indlandi, frá daglega líf- inu og frá umheiminum. en það skuluð þið vita að ég kvarta ekki. Ég er rithöfundur og sætti mig ekki við óbreytt ástand. Ég mun vinna að því að breyta og bæta. Líf okkar kennir okkur að vita hver við erum." Rushdie með umdeildu bokina. Til varnar henni hefur hann ritað „í góðri trú". SJÓNVARP Sjónvarpiö kl. 20.40 SPUNI Heimildamynd um tónskáldið Atla Heimi Sveinsson en á föstudaginn langa er á dagskrá sjónvarpsópera við tónlist Atla, Vikivaki sem hann samdi við samnefnda bók Gunnars Gunnarssonar. Ohætt er að segja að Atli hafi staðið í framvarðasveit, jafnvel fremstur í flokki, íslenskra nútímatónskálda i meira en tuttugu ár. Atli stundaði nám í Köln um 1960 og hann var fyrstur íslendinga til að fá tónskáldaverðlaun Norðurlanda- ráðs, en það var 1976. í þættinum verða leikin fjölmörg tóndæmi úr verkum Atla og tónlist annarra kemur einnig við sögu. Umsjón hef- ur Guðmundur Emilsson, annar góðkunnur tónlistarmaður. Sjónvarpið kl. 22.20 ENGLARADDIR (Angel Voices) Bresk sjónuarpsmynd, leikstjóri Mi- chael Dartoiv, adalhlutverk Michael Wiltiams. Þetta er ný mynd, fjallar um ferða- lag bresks drengjakórs til sumarleyf- isbæjar í Englandi sumarið 1963. Þeirra erindi er að syngja drottni til dýrðar í kirkju staðarins en það er tími breytinga, Bítlarnir eru komnir fram á sjónarsviðið og sálmarnir falla þegar í skuggann. Stúlkurnar heilla og kórdrengina og lengi vel lítur út fyrir að tónleikahaldið verði að engu. En öll él birtir upp um síðir. Stöö 2 kl. 23.55 GATSBY HINN MIKLI*** (The Great Gatsby) Bandarísk bíómynd, gerö 1974, leik- stjóri Jack Clayton, adalhlutuerk Robert Redford, Mia Farrow, Bruce Dern. Myndin er gerð eftir frægri bók F. , Scotts Fitzgeralds og er henni ákaf- lega trú. Francis Ford Coppola skrif- aði handritið og búningahönnuður- inn hlaut óskarsverðlaunin fyrir sitt framlag. En það er eitt og annað sem skortir, þá einkanlega dýpt og kraft, svo myndin megi njóta sín til fullnustu. Gatsby hinn mikli segir af ungum manni sem kemst í kynni við hinn dularfulla Gatsby, sem er milljónamæringur, heldur stans- lausar veislur og á vingott við konur ýmsar. En líkt og á uppgangstimum í samfélaginu, sem og hjá nýríkum, þá er oftast nær ekkert að baki glæsilegri framhliðinni. Þannig er þessu farið með Gatsby að mörgu leyti. Athygliverð saga sem gerist á fyrri helmingi aldarinnar. Stöö 2 kl. 02.15 MANHATTAN***,/2 Bandarísk bíómynd, gerd 1979, leik- stjóri Woody Allen, aöalhlutuerk Woody Allen, Diane Keaton, Micha- el Murphy Mariel Hemingway, Mer- yl Streep. Ein af perlum 8da áratugarins í kvikmyndalistinni. Woody fer á kostum sem gamanþáttahöfundur í þessari mynd sem segir af honum og vinum hans sem ræða allskyns hluti, jafnt háalvarlega sem grát- broslega eða þá hreinlega kómíska. Myndin lýsir lífi þess tíma Banda- ríkjamanns af slíku innsæi og mark- vissu að annað eins hefur vart sést, hún er verðugt framahald af Annie Hall og þurfti þó töluvert til að fylgja þeirri mynd eftir. Absólútt topp- mynd. 0 fjhS7ÓB2 W 15.00 Heimsmeistara- mót i samkvæmis- dönsum 15.50 Vatn lífsins 17.25 Páskar i Seppabæ 17.50 Stundin okkar 09.00 Tao Tao 09.25 Geimálfarnir 09.55 Barbie Teikni- mynd i tveimur hlutum 10.25 Brakúla greifi 10.50 Hlauptu Rebekka, hlauptu! (Run Rebecca Run!) Þessi mynd var út- nefnd sem besta barnakvikmyndin áriö 1981 12.10 Dagbók Önnu Frank 14.55 Bílatröllin (Bigfoot) Þáttur fyrir áhugamenn um bíla- ferlíki 15.35 Með Afa 17.05 Santa Barbara 17.50 Draumalandið 1800 1&20 Sögur uxans 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Yngismær (87) Brasilískur framhalds- myndaflokkur 1900 19.20 Benny Hill (1) Ný þáttaröd 19.50 Bleiki pardusinn 20.00 Fréttir og veður 20.30 Fuglar landsins (24) Straumöndin Umsjón Magnús Magnússon 20.40 Spuni Heimilda- mynd um tónskáldið Atla Heimi Sveinsson 21.10 Matlock 22.00 Skuggsjá 22.20 Englaraddir (Angel Voices) Bresk sjónvarpsmynd í léttum dúr um ferð drengjakórs til sumar- leyfisbæjar 19.1919.19 20.30 Á grænni grein — Þá var bjartsýnis- maöurinn of svart- sýnn Þáttur um ævi og störf Héöins Valdi- marssonar 20.50 Það kemur i Ijós Umsjón Helgi Pétursson 21.40 Akureldar (2) Áströlsk spennumynd 2300 23.35 Lystigarðar (1) Paradís á jörð Þáttaröð um helstu lystigarða heims 23.40 Gatsby hinn mikli (The Great Gatsby) Sjá umfjöllun 02.00 Myndrokk 03.00 Dagskrárlok

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.