Alþýðublaðið - 28.04.1990, Síða 3

Alþýðublaðið - 28.04.1990, Síða 3
Laugardagur 28. apríl 1990 3 Frambodslisti Nýs vettvangs kynntur í gœr: Eini raunverulegi valkosturinn — segir oddviti H-listans og boöar Hátíö í vor Nýr vettvangur er eini raun- verulegi valkosturinn á móti Sjálfstæðisflokknum. I vor verður aðeins kosið á milli H-Iistans og D-listans. „Og það verður Hátíð í vor.“ Þetta var boðskapur Ólínu Þorvarðar- dóttur oddvita lista Nýs vett- vangs til borgarstjórnarkosn- ingar, þegar hún opnaði blaða- mannafund sem efnt var til í gær til að kynna endanlega niðurröðun á iistanum. Ólína sagði jafnframt að hún ætti von á því að til sín væri leitað ef list- inn kæmist í þá stöðu að til- nefna borgarstjóra. Hún sagði þó að það þýddi ekki endilega að hún yrði borgarstjóri. Á fundinum tóku margir fulltrú- ar Nýs vettvangs til máls og kynntu helstu stefnumál listans sem eru fjölmörg. Frambjóðend- urnir gagnrýndu meirihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins og boðuðu aðrar áherslur. Vildu auka félags- lega þjónustu, nefndu t.d. að bæta þyrfti verulega hag aldraðra í borginr.i og þá fullyrtu talsmenn listans aö Nýr vettvangur myndi a.m.k., ef hann fengi umboð til, hreinsa upp biðlistann eftir dag- vistarrýmum á kjörtímabilinu. Á listanum eru um 1800 börn. Þegar spurt var um hugsanlegan sparn- að á móti þeim framkvæmdum sem listinn boðaði voru talsmenn hans hinsvegar eins og lokuð bók. Af öðrum málum sem talsmenn Nýs vettvangs kynntu að tekið yrði á má nefna hreinsun strand- lengjunnar við Reykjavík. Því verki vill listinn láta hraða en sam- kvæmt áætlun núverandi meiri- hluta á verkið að taka 10 ár. Nýr vettvangur vill láta gera átak í mengunarmálum, bæta almenn- ingssamgöngur svo koma megi í veg fyrir aukna bílaumferð og draga úr þeirri sem fyrir er. Listinn aftekur með öllu lagningu Foss- vogsbrautar, vill láta endurbæta það gatnakerfi sem fyrir er. Hinn 30 manna framboðslisti Nýs vettvangs mun mynda borgar- málaráð listans fyrir næstu fjögur árin. Það ráð mun síðan velja borgarstjóra komist listinn í að- stöðu til þess, eftir því sem næst varð komist á fundinum. Álafoss kynitir nýja værðarvoðalínu Nýjung frá Alafossi, — værðarvoöalína Guðrúnar Gunnarsdóttur. Slofna Styrktarfélag Jónasar frá Hriflu Alafoss hefur sent á markað- inn nýja værðarvoðalínu. Það er textillistamaðurinn Guðrún Gunnarsdóttir sem hefur unnið við hönnun og vöruþróun á nýju línunni. Línan, sem er úr 100% ull, er kölluð Art Line-Listalína. Álafoss mun kynna þessa nýju línu í húsnæði Epals, Faxafeni 7, dagana 26. apríl til 17. mai næst- komandi. Voðii nar eru sex talsins og notað- ir hafa verið sex mismunandi litir. Nýju voðirnar eru gjörólíkar þeim voðum sem Álafoss hefur áður haft á boðstólum. Þær eru þunnar, þétt ofnar og léttar. Hægt er að nota þær sem ábreiður og sjöl. Álafoss hefur látið hanna sérstakar gjafapakkn- ingar fyrir línuna, svartan sex- hyrndan kassa. Álafoss hefur fengið myndlistar- manninn Bergljótu Kjartansdóttur til að mála málverk af værðarvoð- unum, sem nota á til kynningar á línunni, og eru þau til sýnis í Epal. Unnið hefur verið við vöruþróun á listalínunni í eitt ár og er þetta að- eins ein af þeim línum í værðarvoð- um sem Álafoss hefur verið að þróa á undanförnum árium. Benda má á bómullarlínu og nýja íslenska ullar- línu úr tvinnuðu bandi. Stofnfundur Styrktarfélags Jónasar Jónssonar frá Hriflu verður haldinn 1. maí kl. 16.30 í Ársal Hótel Sögu á 2. hæð hótels- ins, gengið inn að norðanverðu. Fyrr um daginn er velunnurum boðið til kaffidrykkju í Hamra- görðum, fyrrum heimili Jónasar frá Hriflu. Markmiðið með styrktarfélaginu er m.a. að koma á fót Stofnun Jónas- ar Jónssonar, sjálfseignarstofnun, sem væntanlega mun taka til starfa í haust. Eru margar hugmyndir á lofti um starfsvettvang stofnunar- innar. I hugmynd að skipuriti fyrir Atlaga gegn menningunni Félag íslenskra leikara hefur sent frá sér ályktun sem samþykkt var samhljóða á aðalfundi félagsins. Eru þar hörmuð þau „mistök sem fjár- veitingarvaldinu hefur orðið á, með því að skerða fjárframlög til leiklist- ar í landinu. Má undrum sæta að slík atlaga að listum skuli gerð hjá þjóð sem er það kappsmál að skipa sér á bekk með menningarþjóðum. Er hér um óheillaskref að ræða fyrir þjóðina og henni engan veginn sæmandi, vilji hún halda reisn sinni", segir í álytkun leikara. For- maður félagsins er Guðrún Alfreðs- dóttir. Alvinnu- miðlun námsmanna i 13. sinn Þrettánda starfsár Atvinnumiðl- unar námsmanna hófst núna eftir páskana og eru fyrirtæki þegar far- in að láta skrá sig. Miðlunin stendur fram í júlí. í fyrra leituðu um 1000 námsmenn til miðlunarinnar og bú- ist við svipaðri aðsókn í ár. I fyrra voru hinsvegar blikur á lofti og lítið um vinnu, 550 störf í boði. Atvinnu- miðlunin er til húsa hjá Stúdenta- ráði Háskóla Islands og er Elsa B. Valsdóttir framkvæmdastjóri. Skrif- stofan hefur nú upp á að bjóða tölv- ur með sérhönnuðu leitarforriti. Það ætti því ekki að vefjast fyrir starfsfólki að finna rétta starfsmann- inn. stofnunina sem þegar liggur fyrir eru tilgreind þrjú svið, þróunarsvið, fræðastofnun og félagsheimili. Þann 1. maí næstkomandi eru lið- in 105 ár frá fæðingu Jónasar frá Hriflu. Eitt af viðfangsefnum Jónas- ar í árdaga þessarar aldar var stofn- un heildarsamtaka launafólks.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.