Alþýðublaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 9
MÞYÐUBU9IÐ Umsjón: Jón Danielsson Sveitarstjórnar- kosningarnar 26. maí í vor eru umfjöllunarefni þessa aukablaðs Alþýðublaðsins sem dreift er í hvert hús í þéttbýlis- stöðum í Vesturlandskjördæmi. I blaðinu er fjallað sérstaklega um þéttbýlisstaði kjördæmisins, fram- boðslistar kynntir, greint frá úrslitum sveitarstjórn- arkosninganna fyrir fjórum árum og sagt frá helstu kosningabaráttumálum. Akranes A Skaganum er nú meirihlutasamstarf Framsóknarflokks og Alþýðubandalags en Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur skipa minnihlutann. Þessir flokkar bjóða allir fram í kosningunum í vor en ekki verða neinir aðrir listar í boði. Talsverðar breytingar urðu á Akranesi í síðustu kosningum þegar Sjálfstæðisflokkurinn tapaði tveimur af fjórum full- trúum sínum. Borgarnes í Borgarnesi eru það A-flokkarnir og óháðir sem mynda meirihluta en hinir hefðbundnu stóru flokkar, Framsókn- arflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru í minnihluta eftir að hafa tapað hvor sínum manni í kosningunum fyrir fjórum árum. Borgnesingar telja sig nú vera á góðri leið með að vinna sig út úr vandamálum síðustu ára og fólki er nú tekið að fjölga þar aftur. Ólafsvík Það er fremur sjaldgæft að pólitíkin í einstökum sveitarfé- lögum á landsbyggðinni verði að umfjöllunarefni fjöl- miðla. Þetta gerist þó einstöku sinnum og stjórnarkreppa í Olafsvík varð einmitt tilefni slíkrar umfjöllunar. Stjórnar- kreppan leystist þó og samstarf tókst með fulltrúum allra aðila í bæjarstjórninni annarra en sjálfstæðismanna. Stykkishólniur Sjálfstæðismenn hafa nú farið með meirihlutavald í Stykk- ishólmi í fjögur kjörtímabil og höfðu á sínum tíma fimm af sjö fulltrúum í sveitarstjórn. A síðasta kjörtímabili hefur munurinn þó ekki verið alveg svona mikill. Nú hefur Sjálf- stæðisflokkur fjóra fulltrúa í bæjarstjórn en Alþýðubanda- lag, Alþýðuflokkur og Félagshyggjumenn einn fulltrúa hver. Nú hafa andstæðingar sjálfstæðismanna sameinast um einn lista og hyggjast fella meirihlutann. Hellissandur — Rif í Neshreppi utan Ennis hafa Almennir hreppsbúar haft fjóra af fimm fulltrúum í hreppsnefnd undanfarið kjörtíma- bil en Alþýðubandalagið einn. Alþýðubandalagið býður ekki fram að þessu sinni en í stað þess kemur nýr listi sem kallast Framboð fyrir betri byggð. Grundarfjörður Sjálfstæðismenn hafa hreinan meirihluta í Eyrarsveit eftir að þeir unnu fulltrúa af Alþýðubandalaginu í síðustu kosn- ingum. Þá voru fjórir listar í framboði en listi óháðra náði ekki manni inn. Nú eru listarnir aðeins þrír og því minni líkur til að atkvæði falli dauð. Þetta gæti orðið til að fella meirihluta Sjálfstæðisflokksins. Búðardalur I Laxárdalshreppi verða tveir listar í framboði að þessu sinni. Sjálfstæðismenn bjóða fram í eigin nafni og and- stæðingar þeirra bjóða fram annan lista. Fram að þessu hefur enginn formlegur meirihluti verið starfandi í Laxár- dalshreppi. Sveitahrepparnir I allmörgum fámennari sveitarfélögum þar sem ekki eru listakosningar verða sveitarstjórnarkosningarnar hálfum mánuði síðar en annars gerist. Félagsmálaráðuneytið hef- ur ákveðið að kosningar í eftirtöldum hreppum á Vestur- landi verði 9. júní. í öðrum hreppum verður kosið 26. maí þótt kosning sé óhlutbundin. Skorradalshreppur Lundarreykjadalshreppur Norðurárdalshreppur Hvítársíðuhreppur Stafholtstungnahreppur Miklaholtshreppur Skógarstrandarhreppur Hörðudalshreppur Haukadalshreppur Hvammshreppur Fellsstrandarhreppur Skarðshreppur Saurbæjarhreppur Þjóðvegur á sjó Með tilkomu nýja Bald- urs er brotið blað í sam- göngum yfir Breiðafjörð og menn vonast til að nýja ferjan muni stórauka ferðamannastrauminn um þetta svæði. Ekið verður að og frá borði og mun siglingatíminn yfir í Breiðafjörð styttast veru- lega, eða úr 3 Vi tíma í 2 '/2 tíma. I sumar er áætlað að tvær ferðir verði á dag á milli Stykkishólms og Brjánslækjar, með við- komu í Flatey. Þetta auð- veldar Flateyjarferðir auð- vitað að stórum mun. Nýja ferjan er tæplega 500 tonn og mun leysa nafna sinn Baldur, sem siglt hefur á þess- ari leið síðastliðin 22 ár, af hólmi. Nýi Baldur mun geta flutt 200 farþega, allt að 25 fólksbíla og 3 vöruflutninga- bíla eða rútur í ferð. Smíði skipsins tók nokkru lengri tíma en áætlað var en upp- haflega átti að afhenda það í ágúst 1988. Stefán Skarphéð- insson sýslumaður í Barða- strandasýslu og stjórnarfor- maður Baldurs hf. sagði við afhendingu skipsins fyrr í mánuðinum, að þrátt fyrir þessa bið væri aðalatriðið að ferjan sé komin og væri þetta bylting í ferðamálum í lands- fjórðungnum. Eiður Guðnason þingmað- ur var viðstaddur afhending- una og sagði hann að ferjan sýndi það að íslenskur skipa- iðnaður væri fyililega sam- keppnisfær við þann erlenda. „Þetta er hinn nýi þjóðvegur yfir Breiðafjörð og er ég þess fullviss að ferjan á eftir að stórauka ferðamannastraum- inn á svæðinu yfir sumartím- ann.“ Á sínum tíma ákvað stjórn Baldurs hf að láta smíða nýja Baldur innan fjórðungsins og var samið við skipasmíða- stöðina Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi sem smíðaði skipið, sem gert verður út frá Stykk- ishólmi. Að sjálfsögðu var mikið um dýrðir við afhend- inguna og voru m.a. flestir þingmenn Vesturlands og Vestfjarða, samgönguráð- herra Steingrímur J. Sigfús- son og forráðamenn Baldurs hf. mættir til að taka á móti ferjunni. Jón Dalbú skipstjóri og Guðmundur Lárusson fram- kvæmdastjóri Baldurs hf. voru að sjálfsögðu ánægðir. „Þetta virðist vera gott sjó- skip og verður gaman stjórna því á Breiðafirðinum," sagði Jón. Vegirnir batna i sumar Talsverðar vegafram- kvæmdir verða á Veslur- landi í sumar og má væntanlega gera ráð fyr- ir að vegirnir verða all- víða orðnir nokkru betri þegar haustar á ný. M.a. verða ófrágengnu kafl- arinir við Hvalstöðina í Hvalfirði lagðir bundnu slitlagi. Vegaframkvæmdir verða víðar á Vesturlandsvegi og talsverðar umbætur eru fyrirhugaðar á þó nokkrum stöðum á Ólafsvíkurvegi, Vestfjarðavegi og Borgar- fjarðarbraut svo nokkuð sé nefnt. Eiður Guðnason alþingis- maður gerir grein fyrir þeim vegaframkvæmdum sem fyrirhugaðar eru í Vesturlandskjördæmi í sumar á bls. 14—15.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.