Alþýðublaðið - 28.04.1990, Síða 10
10
Laugardagur 28. apríl 1990
Akranes:
Þriqgjca flokka stjórn
eftir kosningarnar?
A-listi Alþýduflokkur
1. Gísli S. Einarsson
2. Ingvar Ingvarsson
3. Hervar Gunnarsson
4. Droplaug Róbertsdóttir
5. Ingibjörg J. Ingólfsdóttir
6. Hafsteinn Baldursson
B-listi Framsóknarflokkur
1. Ingibjörg Pálmadóttir
2. Steinunn Sigurðardóttir
3. Jón Hálfdánarson
4. Gissur Ágústsson
5. Oddný Valgeirsdóttir
6. Soffía Magnúsdóttir
D-listi Sjálfstæðisflokkur
1. Benedikt Jónmundsson
2. Sigurbjörg Ragnarsdóttir
3. Gunnar Valur Gíslason
4. Herdís Þórðardóttir
5. Guðmundur Guðjónsson
6. Ellert Ingvarsson
G-listi Alþýðubandalag
1. Guðbjartur Hannesson
2. Sveinn Kristinsson
3. Georg Janusson
4. Bryndís Tryggvadóttir
5. Guðný Ársælsdóttir
6. Ágústa Friðriksdóttir
Úrslit 1986
A-Alþýðuflokkur
595 atkv. 20,9% 2 fulltr.
B-Framsóknarflokkur
843 atkv. 29,6% 3 fulltr.
D-Sjálfstæðisflokkur
795 atkv 27,9% 2 fulltr.
G-Alþýðubandalag
570 atkv. 20,0% 2 fulltr.
M-FIokkur mannsins
42 atkv. 1,5% 0 fulltr.
Kjörnir
bæjarfulltrúar 1986
Af A-lista: Gísli S Einars-
son og Ingvar Ingvarsson.
Af B-lista: Ingibjörg
Pálmadóttir, Steinunn Sig-
urðardóttir og Andrés 01-
afsson.
Af D-lista: Guðjón Guð-
mundsson og Benedikt
Jónmundsson.
Af G-lista: Guðbjartur
Hannesson og Jóhann Ár-
sælsson.
í kosningunum 1986
urðu þær breytingar að
Sjálfstæðisflokkurinn tap-
aði tveim fulltrúum en Al-
þýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag bættu við sig
sínum manninum hvor
flokkur.
Meirihlutasamstarf er
milli Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags.
Á Akranesi hefur tals-
vert verið framkvæmt á
því kjörtímabili sem nú er
á enda. Nefna má dvalar-
heimili fyrir aldraða sem
er í byggingu og vel á veg
komið. Skólabyggingar
hafa einnig komist vel
áleiðis og umtalsvert hef-
ur bæst við af malbikuðum
götum ■ kaupstaðnum. Þá
hefur verið unnið verulegt
átak við höfnina. Nú
standa yfir framkvæmdir
við nýjan leikskóla og
ýmsir bæjarstjórnarmenn
gæla við hugmyndina um
nýja sundlaug á næsta
kjörtímabili.
Samkvæmt heimildum
okkar munu ekkistór ágrein-
ingsmál milli þeirra flokka
sem eiga aðild að bæjar-
stjórninni, en á Akranesi eru
það hinir hefðbundnu stjórn-
málaflokkar sem ráða ferð-
inni eins og raunar í flestum
stærri bæjarfélögum. Það
sem kannski vekur helst at-
hygli í þessu sambandi er að
víglínan í bæjarstjórn liggur
ekki milli hins formlega
meirihluta og minnihlutans,
heldur öllu fremur innan
minnihlutans.
Það eru hinir gömlu og
hefðbundnu fjórftokkar sem
eiga aðild að bæjarstjórninni
á Akranesi og meirihlutasam-
starf er milli þriggja bæjar-
fulltrúa Framsóknarflokks og
tveggja fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins. í minnihlutan-
um eru fuiltrúar Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks en
alþýðuflokksmennirnir virð-
ast á liðnu kjörtímabili í flest-
um málum fremur hafa átt
samleið með meirihlutanum
en sjálfstæðismönnunum.
Þetta er þeim mun athygli-
verðara fyrir þá sök að fram
til 1986 var meirihluti í bæjar-
stjórninni skipaður fulltrúum
Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks eftir svokölluðu Við-
reisnarmynstri. Afstaða AI-
þýðuflokksis á þessu kjör-
tímabili kynni að benda til
þess að ef hlutföll breyttust í
kosningunum í maí mundu
Alþýðuflokksmenn fremur
horfa til vinstri en hægri í
samstarfsviðræðum.
Bæjarstjórnmál eru vissu-
lega um margt ólík pólitík-
inni á landsvísu og úrslit bæj-
arstjórnarkosninga geta því
sem hægast verið ólík því
sem gerist þegar kosnir eru
þingmenn. Engu að síður
hafa landsmálin áhrif á fylgi
flokkanna í bæjarstjórnar-
kosningum og móta úrslit
þeirra að nokkru. Ef tekið er
mið af skoðanakönnunum á
landsvísu að undanförnu,
virðist mega gera ráð fyrir að
núverandi ríkisstjórnarflokk-
ar tapi einhverju fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn bæti
við sig að sama skapi.
Kvennalistinn sem átt hef-
ur fylgi að fagna í skoðana-
könnunum býður ekki fram
og ómögulegt er að segja til
um hvernig það fylgi kemur
til með að skiptast sem kosið
hefði Kvennalistann. Þó
verður að teljast ólíklegt að
Sjálfstæðisflokkurinn fái
hreinan meirihluta, þannig
að e.t.v. fáum við að sjá sam-
stjórn A-flokkanna og Fram-
sóknarflokks á Akranesi eftir
kosningar.
Úrslit 1986
A-Alþýðuflokkur
229 atkv. 24,2% 2 fulltr.
B-Framsóknarflokkur
237 atkv. 25,0% 2 fulltr.
D-Sjálfstæðisflokkur
196 atkv. 20,7% 1 fulitr.
G-Alþýðubandalag
123 atkv. 13,0% 1 fulltr.
H-Oháðir kjósendur
162 atkv. 17,1% 1 fulltr.
Kjörnir
bæjarfulltrúar 1986
Af A-lista: Eyjólfur Torfi
Geirsson og Eva Eðvarðs-
dóttir.
Af B-lista: Indriði Al-
bertsson og Ragnheiður
Jóhannsdóttir.
Af D-lista: Gísli Kjartans-
son.
Af G-lista: Margrét
Tryggvadóttir.
Af H-lista: Jakob Þór
Skúlason.
f kosningunum 1986
urðu þær breytingar að
Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur töpuðu
hvor sínum fulltrúa, AI-
þýðuflokkur bætti við sig
einum og Óháðir kjósend-
ur fengu mann körinn.
Meirihlutasamastarf er
Al-
og
milli Alþýðuflokks,
þýðubandalags
Oháðra.
Aftur á uppleið
eftir fólksfækkun
Borgarnesbúum fjölgar
nú á nýjan leik eftir
nokkra fólksfækkun á
tímabili. í Borgarnesi hafa
A-flokkarnir starfað sam-
an í meirihluta ásamt full-
trúum H-lista óháðra kjós-
enda á þessu kjörtímabili.
í andstöðu eru á hinn bóg-
inn framsóknarmenn og
sjálfstæðismenn. Svo sem
víðast hvar gerist á minni
stöðum, fer minna fyrir
ósamkomulagi og mál-
efnaþrætum, þegar kosn-
ingarnar eru að baki. I
Borgarnesi mun heldur
ekki hafa komið til veru-
legs ágreinings innan bæj-
arstjórnarinnar.
Á því kjörtímabili sem nú
er að ljúka hafa Borgnesingar
m.a. hafið framkvæmdir við
íþróttavöll og keypt safnahús
sem nú er verið að greiða nið-
ur. Landsmót umgmennnafé-
laganna verður haldið í Borg-
arnesi árið 1996 og íþrótta-
svæðið mun því fyrirsjáan-
lega kosta talsvert fé á kom-
andi árum. Nú er unnið að
hönnun þjónustuíbúða fyrir
aldraða í Borgamesi. í síð-
ustu úthlutun fengu Borgnes-
ingar í sinn hlut fjármagn til
byggingar 10 félagslegra
íbúða af 20 sem úthlutað var
á Vesturland.
Dagheimili fyrir um 20
börn verður tekið í notkun í
Borgarnesi á næstunni.
Byggingin er þegar til staðar
og átti upphafle^a að verða
viðbót við leikskólann en eft-
irspurn eftir leikskólapláss-
um jókst minna en gert var
ráð fyrir. Nýja dagheimilið er
talið munu anna eftirspurn
nokkurn veginn.
Eins og svo margir aðrir
staðir á landsbyggðinni varð
samdrátturinn í landbúnaði
nokkurt áfall fyrir Borgarnes
auk þess lögðu gróin atvinnu-
fyrirtæki upp laupana fyrir
nokkrum árum. Nú telja
menn sig vera á allgóðri leið
með að vinna sig út úr vand-
anym.
Á árunum 1985—86 fækk-
aði fólki talsvert í Borgarnesi
en síðustu árin hefur fólki
fjölgað hægt og sígandi aftur.
Borgnesingar telja sig raunar
þurfa að greiða niður skuldir
á næstu árum og um það
virðist ríkja full samstaða í
bæjarstjórninni. Sem dæmi
um friðsamlega sambúð
hinna ólíku flokka í bæjar-
stjórninni má nefna að fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir
þetta ár var samþykkt sam-
hljóða.
A-listi Alþýduflokkur
1. Eyjólfur Torfi Geirsson
2. Sigurður Már Einarsson
3. Valgeir Ingólfsson
4. Jóhanna Lára Óttarsdóttir
5. Bjarni Steinarsson
6. Sæunn Jónsdóttir
B-listi Framsóknarflokkur
1. Guðmundur Guðmarsson
2. Kristín Halldórsdóttir
3. Sigrún Ólafsdóttir
4. Ingimundur Ingimundarson
5. Guðrún Samúelsdóttir
6. Sædís Guðlaugsdóttir
D-listi Sjálfstæðisflokkur
1. Sigrún Símonardóttir
2. Skúli Bjarnason
3. Quðlaugur Þór Þórðarson
4. Ósk Bergþórsdóttir
5. Guðmundur Ingi Waage
6. íris Grönfeldt
G-listi Alþýðubandalag
1. Margrét Tryggvadóttir
2. Þorvaldur Heiðarsson
3. María Jóna Einarsdóttir
4. Bergþóra Gísladóttir
5. Egill Pálsson
6. Vigdís Kristjánsdóttir
H-listi
1. Jakob Skúlason
2. Helgi Helgason
3. Dóra Axelsdóttir
4. Bergþóra Gísladóttir
5. Egill Pálsson
6. Sigurgeir Erlendsson