Alþýðublaðið - 28.04.1990, Page 12

Alþýðublaðið - 28.04.1990, Page 12
12 Laugardagur 28. apríl 1990 Ólafsvík: Róstusamt kjör- timabil á enda Úrslit 1986 A-AIþýðuflokkur 164 atkv. 23,6% 2 fulltr. 'B-Framsóknarflokkur 158 atkv. 22,8% 1 fulltr. D-Sjálfstæðisflokkur 184 atkv. 26,5% 2 fulltr. G-Alþýðubandalag 98 atkv. 14,1% 1 fulltr. L-Lýðræðissinnar 90 atkv. 13,0% 1 fulltr. Kjörnir bæjarfulltrúar 1986 Af A-lista: Sveinn Þór El- ínbergsson og Trausti Magnússon. Af B-lista: Stefán Jóhann Sigurðsson. Af D-lista: Kristófer Þor- leifssón og Björn Arnalds- son. Af G-Iista: Herbert Hjelm. Af Dlista: Kristján Páls- son. í kosningunum 1986 urðu talsverðar breyting- ar. Aðeins þrír listar fengu menn kjörna 1982. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk þá tvo fulltrúa, Lýðræðis- sinnar tvo og Almennir borgarar fengu þrjá. 1986 var listi Almennra borg- ara ekki boðinn fram en Alþýðuflokkur, Fram- sóknarflokkur og Alþýðu- bandalag buðu ekki fram 1982 en fengu nú menn kjörna. Sjálfstæðisflokk- urinn hélt sínum fulltrú- um en Lýðræðissinnar töpuðu einum. Meirihlutasamstarf er milli fulltrúa A, B, G og L lista, sem samtals hafa 5 af 7 bæjarfulltrúum. Á yfirstandandi kjör- tímabili hefur Ólafsvík verið undantekning frá þeirri reglu að næsta frið- samlegt sé í bæjarmála- pólitík nema helst rétt fyr- ir kosningar. Samtals hafa fjórir meirihlutar verið stofnaðir, en raunar urðu tveir þeirra aldrei annað en nafnið tómt. Talsverð umskipti urðu í bæjarstjórninni í síðustu kosningum. 1982 voru ein- ungis tveir listar í kjöri og þá fengu vinstri menn 4 fulltrúa en sjálfstæðismenn 3. Fimm listar fengu menn kjörna í síð- ustu kosningum og strax að loknum kosningum mynd- uðu Alþýðuflokkur og Sjálf- stæðisflokkur meirihluta sem var bókaður í bæjarstjórn. Lengra náði samstarfið þó ekki og eftir nokkurt þóf varð til meirihluti A-flokkanna og Lýðræðissinna. Þetta sam- starf varði í rúmt ár eða fram í október 1987 þegar ágrein- ingur kom upp milli Alþýðu- bandalagsins annars vegar og Alþýðuflokks og Lýðræð- issinna hins vegar. Eftir þessi stjórnarslit tók við stjórnarkreppa fram yfir áramót. Um hríð virtist hún ætla að leysast með samstarfi Alþýðubandalags, Framsókn- arflokks og sjálfstæðismanna og slík stjórnarmyndun var tilkynnt í útvarpi en varð aldrei að raunveruleika og var t.d. ekki bókuð í bæjar- stjórn. Nokkru síðar var svo myndaður meirihluti allra fulltrúa í bæjarstjórninni ann- arra en sjálfstæðismanna og starfar sá meirihluti enn. I málefnum virðist þó hafa verið öllu friðvænlegra. Til dæmis að taka munu allir bæjarfulltrúar hafa verið sammála um aðgerðir til að sporna gegn erfiðri fjárhags- stöðu bæjarins þegar tillögur þar að lútandi voru til um- fjöllunar í haust. Samkvæmt gildandi fjárhagsáætlun hyggjast Ólafsvíkingar ekki verja fé til nema allra nauð- synlegustu framkvæmda á þessu ári en nota þess í stað rekstrarafgang bæjarsjóðs til að greiða niður skuldir. Sjálf- stæðismenn sem nú eru í minnihluta segjast leggja höf- uðáherslu á að ná niður skuldum. Meðal helstu framkvæmda í Ólafsvík á liðnu kjörtímabili má nefna að hafnarfram- kvæmdum er nánast fulllok- ið, sömu sögu er að segja um félagsheimili og heilsugæslu- stöð og á vegum bæjarins var gert upp gamalt pakkhús sem nú þjónar nýju hlutverki sem byggðasafn. A-listi Alþýduflokkur og óháðir 1. Sveinn Þór Elínbergsson 2. Guðmundur Karl Snæbjörnsson 3. Gústaf Geir Egilsson 4. Ágúst Ingimar Sigurðsson 5. Kristín E. Guðmundsdóttir 6. Þorbjörg Gísladóttir B-listi Framsóknarflokkur 1. Atli Alexandersson 2. Stefán Jóhann Sigurðsson 3. Kristján Guðmundsson 4. Kristín Vigfúsdóttir 5. Sigtryggur S. Þráinsson 6. Maggy Hrönn Hermannsdóttir D-listi Sjálfstæðisflokkur 1. Björn Arnaldsson 2. Margrét Vigfúsdóttir 3. Páll Ingólfsson 4. Helgi Kristjánsson 5. Sjöfn Sölvadóttir 6. Jón Kristófersson G-listi Alþýðubandalag 1. Ámi E. Albertsson 2. Heiðar Friðriksson 3. Margrét Birgisdóttir 4. 5. 6. Lrlisti Lýðræðissinnar 1. Kristján Pálsson 2. Emanúel Ragnarsson 3. Sigurlaug Jónsdóttir 4. Ragnheiður Hdgadóttir 5. Kristján Helgason 6. Arndís Þórðardóttir Grundarfjöröur: Ekld nýjar framkvæmdir en betri skuldastaða ,s Úrslit 1986 B-Framsóknarflokkur 117 atkv. 23,3% 1 fulltr. D-Sjálfstæðisflokkur 205 atkv. 40,8% 3 fulltr. F-Óháðir 59 atkv. 11,9% 0 fulltr. G-AIþýðubandalag 122 atkv. 24,3% 1 fulltr. Kjörnir í sveitarstjórn 1986 Af B-lista: Gunnar Krist- jánsson. Af D-lista: Sigríður Þórð- ardóttir, Kristján Guð- mundsson og Árni Emils- son. Af G-lista: Ragnar El- bergsson. í kosningunum 1986 urðu þær breytingar að Sjálfstæðisflokkur vann mann af Alþýðubanda- lagi. Sjálfstæðismenn hafa hreinan meirihluta í Grundarfirði. Skuldastaða Eyrarsveit- ar, sem í daglegu tali landsmanna er nefnd Grundarfjörður eftir þétt- býliskjarnanum, hefur batnað verulega á þessu kjörtímabili. Sjálfstæðis- menn unnu hreinan meiri- hluta í síðustu kosningum, þótt að baki sigrinumlægi raunar minnihluti at- kvæða. Núverandi meirihluti er að vonum hreykinn af þeim ár- angri sem náðst hefur í pen- ingamálum enda voru skuld- ir sveitarfélagsins hátt í tvö- faldar árstekjur þess fyrir fjórum árum en eru nú komn- ar niður í ríflega 70% af tekj- um eins árs. Sjálfstæðismeiri- hlutinn setti sér í upphafi kjörtímabilsins að hefja ekki nýjar framkvæmdir en ljúka þess í stað þeim sem byrjað hefði verið á. Fram til 1982 fóru fram- sóknarmenn og Alþýðu- bandalagsmenn í sameiningu með stjórn sveitarfélagsins og þeir telja að skuldastaðan hafi í raun aldrei verið jafn geigvænleg og sjálfstæðis- menn vildu veria láta. Til við- bótar benda þeir á að á valda- tíma þeirra hafi geysimiklu fé verið varið til fram- kvæmda og í raun hafi ekki komið annað til greina en að draga saman framkvæmdir eftir það. Núverandi andstöðuflokk-. ar telja hins vegar að sam- drátturinn undir stjórn sjálf- stæðismanna hafi verið of harkalegur og segja að álög- ur séu háar í Eyrarsveit og al- menn þjónusta hafi verið drggin saman. 1 síðustu kosningum voru fjórir listar í framboði en eru aðeins þrír nú. Listi óháðra virðist einkum hafa tekið fylgi frá vinstri flokkunum 1986, þannig að e.t.v. er ekki fjarri lagi að álykta að meiri- hluti sjálfstæðismanna kynni að falla nú. B-listi Framsóknarflokkur 1. Friðgeir Hjaltalín 2. Guðni E. Hallgrímsson 3. Kristján Guðmundsson 4. Hafsteinn Garðarsson 5. Ingibjörg T. Pálsdóttir D-listi Sjálfstæðisflokkur 1. Kristján Guðmundsson 2. Ásgeir Valdimarsson 3. Árni Halldórsson 4. Sigríður Gísladóttir 5. Sigurður Þorkelsson G-listi Alþýðubandalag 1. Ólafur Guðmundsson 2. Ragnar Elbergsson 3. Jóhannes Þorvarðsson 4. Hrafnhildur Guðbjartsdóttir 5. Ingi Hans Jónsson

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.