Alþýðublaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 18

Alþýðublaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 18
18 Laugardagur 28. apríl 1990 Leiklist Yndisferdir, sýning Hugleiks á Galdraloftinu Makkað á börum og klósettum Yndisferdir, leiksýning Hugleiks á Galdralofíinu, Hafnarstrœti 9. Höfundur texta og tónlistar: Árni Hjartarson. Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir. Leikmynd: Hanna Hallgríms- dóttir, Árni Balduinsson, Vilborg Valgardsdótti'. Búningahönnun: Alda Siguröar- dóttir Ljósahönnun: Arni Baldvinsson. Andlitsgervi og förðun: Vilborg Valgardsdóttir. Starfsmenn ferðaskrifstofunnar Yndisferða leika forstjóra sinn grátt í sýningu leikhópsins Hug- leiks á Galdraloftinu um þessar mundir. Það er makkað á klósett- um og í skúmaskotum á árshátíð fyrirtækisins í Rúgbrauðsgerðinni og engin stund látin ónotuð til ráðabruggs meðan teygað er vín. á kostnaðarverði. En skjótt skipast veður í lofti og í Ijós kemur að slungnir bissnessmenn kunna fleira en að feta krókótta stigu við- skiptalifsins og verður ekki skota- skuld úr að snúa á starfsliðið sitt. Boðskapur Árna Hjartarsonar, höfundar Yndisferða virðist öðr- um þræði beinast að vafasömu EFTIR: LAUFEYJU ELÍSABETU LÖVE braski forstjóra sem alltaf virðast komast undan áður en spilaborgin hrynur á þá sem ekki kunna fótum sínum forráð. Þá gerir höfundur óspart grín að auglýsingaþjóðfé- laginu. Brugðið er upp sýnishorn- um af hinum hjákátlegustu auglýs- ingabrellum og starfsfólk Yndis- ferða er látið kyrja slagorð fyrir- tækisins í tíma og ótima sýning- una á enda. Bráðsmellnir textar við auglýsingastefin krydda sýn- inguna og er við hæfi að láta einn slíkan fylgja hér: Sértu ordinn leiöurá suddanum og ruddanum, sílemjandi rigningu og islensku tuddunum. Sértu orðinn þreyttur á soranum og gorinu, sé ég adeins eitt sem getur tyfl þér upp ár slorinu. Yndisferðir, Yndisferðir, Yndisferdir á gjafveröi. Söguþráðurinn er gripandi og persónur skemmtilega lifandi og ættu flestir að kannast við sig í þessum hópi. Sigrúnu Valbergs- dóttur, leikstjóra hefur tekist prýðilega upp og virðist hópurinn ná vel saman undir hennar hand- leiðslu. Þetta er í þriðja sinn sem Sigrún vinnur með hópnum sem einvörðungu er skipaður áhuga- leikurum. Hópurinn hefur starfað saman síðan veturinn 1984 og eru Yndisferðir sjöunda sýning hans. Búningar eru sérstaklega líflegir og setja sterkan svip á persónurn- ar og ekki er laust við að manni finnist sem verið sé að fletta síðum teiknimyndablaðs, svo ýktir sem þeir eru. Plássieysi setti vissulega sinn svip á sýninguna en var leyst þannig að sýningargestum var skipað í hring kringum sviðið. Veggir voru klæddir með álpappír sem þjónaði fagurfræðilegum sjónarmiðum en þegar líða tók á sýninguna var ekki einungis farið að hitna í kolunum á sviðinu held- ur var líka orðið ansi heitt á áhorf- endabekkjum. Leikarar stóðu sig allir þokka- lega og komust nokkuð vel frá sínu, þó vissulega megi greina að hér eru áhugamenn á ferð. Á móti kom hins vegar að leikgleði leikar- anna náði svo vel til áhorfenda að það má vera dauður maður sem ekki hrífst með Hugleikurum á Galdraloftinu. Dóra Diego og Rúnar Lund, leikendur i Yndisferðum. L maí kaffi í Naustinu Ræðu llyftur: Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins. Einnig fiytja ávörp 4 efstu menn á lista Nýs vettvangs í borgarstjórnarkosningunum. Haukur Morthens og félagar rifja upp gömlu og góðu dægurlögin. Magnús Jónsson, veðurfræðingur, form. Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur. Allir velkomitir Alþýðuffokksfélag Reykjavikur

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.