Alþýðublaðið - 28.04.1990, Qupperneq 21
Laugardagur 28. apríl 1990
21
Góða helgi! Góða helgi! Góða helgi! Góða helgil Góða helgil
Myndlistar-
og aðrar
myndasyningar
í Safni Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, stendur yfir sýn-
ing á eldgosa- og flóttamyndum
eftir Ásgrím. A henni eru 28
verk, olíumálverk, teikningar og
vatnslitamyndir. Sýningin
stendur til 17, júní og er opin
þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl.
13.30—16.00.
Bragi Hannesson sýnir verk
sín í Gallerí Borg, Pósthússtræti
9. Bragi er fæddur í Reykjavík
1932, hann er lögfræðingur að
mennt og hefur starfað sem
Bankastjóri Iðnaðarbankans.
Hann hóf að mála á árunum
1966—'67 og hefur numið mál-
aralist hjá nokkrum af helstu list-
málurum landsins. Á sýningunni
eru nýjar olíumyndir. Landslags-
myndir í Ijóðrænum expressj-
ónískum stíl sem Bragi er fyrir
löngu orðinn þekktur fyrir. Sýn-
ingin er opin virka daga frá kl.
10.00—18.00 og um helgar frá kl.
14.00—18.00 en henni lýkur 1.
maí.
í listasalnum Nýhöfn, Hafnar-
stræti 18, sýnir Kjartan Ólason
verk sín. Á sýningunni eru
myndir unnar með gvassi og
blýanti á pappír á þessu ári.
Kjartan er fæddur í Reykjavik ár-
ið 1955. Hann útskrifaðist frá
MHI árið 1978 og stundaði síðan
nám við Empire State College í
New York í tvö ár. Þetta er
fimmta einkasýning Kjartans en
hann hefur einnig tekið þátt í
fjölda samsýninga. Sýningin er
opin virka daga frá kl.
10.00—18.00 og um helgar frá kl.
14.00—18.00. Henni lýkur 9. maí.
Næstu helgi lýkur vetrardag-
skrá Listasafns Sigurjóns Ólafs-
sonar. Á sýningunni eru málm-
verk Sigurjóns, þeim sem hann
vann á Reykjalundi 1960—'62, er
hann dvaldi þar sjúkur. Einnig
gefur að líta listaverk eftir Sigu-
jón sem safninu hafa verið færð
að gjöf undanfarin ár og eru
ómetanlegur fengur fyrir safnið.
I vetur hefur safnið verið opið á
laugardögum og sunnudögum
frá kl. 14.00—17.00 og á þriðju-
dagskvöldum frá kl.
20.00—22.00. Listasafn Sigur-
jóns Ólafssonar verður lokað frá
7. maí til sunnudagsins 3. júní, en
þá verður opnuð sýning með
andlitsmyndum eftir Sigurjón og
er það fyrsta sinn sem slík sýn-
ing er haldin, en hann var þekkt-
ur fyrir meistaraleg portett verk
sín og mótaði um það bil tvö
hundruð andlitsmyndir um æv-
ina. Sýningin verður liður í Lista-
hátið í Reykjavík 1990.
Á Kjarvalsstöðum eru tvær
sýningar í gangi. í vestursal sýnir
Sigurður Orlygsson. í austursal
og báðum forsölum er sýning á
verkum úr eigu Búnaðarbank-
ans. Kjarvalsstaðir eru opnir
daglega frá kl. 11.00—18.00 og er
veitingabúðin opin á sama tíma.
í dag kl. 13.30 verður opnuð
sýning í Gróttu undir yfirskrift-
inni MAÐUR OG UMHVERFI.
Að sýningunni standa Náttúru-
verndarráð og Myndlista- og
handíðaskóli íslands. Nemendur
í grafík og fjöltækni við MHÍ sýna
myndverk sem þeir hafa unnið í
tengslum við þemað. Nemendur
tóku þá ákvörðun að vinna út frá
þemanu maður og umhverfi á
opinn hátt, fremur en að leggja
áherslu á umhverfisverndarmál í
þröngum skilningi. Með verkum
sínum undirstrika þau mikilvægi
tengsla okkar við náttúruna og
vinna flest út frá eigin náttúru-
upplifun. Opnunartími ræðst af
sjávarföllum og er sýningin opin
sem hér segir: í dag frá kl.
13.30— 18.00, á morgun frá kl.
12.30— 18.00, mánudaginn frá kl.
13.30— 18.00 og þriðjudaginn frá
kl. 14.30—18.00. Frá og með 2.
mai er bannaður aðgangur að
Gróttu vegna varpfugla.
M-hátíð á
Vesturlandi
Eins og fram hefur komið fjöl-
miðlum stendur nú yfir M-hátið
á Vesturlandi. Eitt af fjölmörg-
um atriðum á hátíðinni er ráð-
stefna, „MANNLÍF í FRAMTÍÐ",
sem verður haldin nú um helgina
Leikfélag
Kópavogs
í síðastliðnum febrúar frum-
sýndi Leikfélag Kópavogs leikrit-
ið VIRGILL LITLI eftir hinn vin-
sæla danska barnabókahöfund
Ole Lund Kirkegaard. Leikstjóri
varÁsdís Skúladóttir, Gerla gerði
leikmynd og Egill Örn Árnason
Nú stengur yfir sýning Gunn-
ars Ásgeirs Hjaltasonar í Hafn-
arborg í Hafnarfirði. Á sýninq-
unni eru verk unnin með pastel,
vatnslitum og acrýl, ásamt ýms-
um smíðisgripum.
Frumsýning á
„Syni skóarans og
dóttur bakarans"
á ísafirði
Þann 25. apríl s.l. eru tuttugu og
fimm ár liðin frá stofnun Litla
Leikklubbsins á ísafirði. Af
þessu tilefni frumsýnir Litli Leik-
klúbburinn „Sönginn frá my-
lai", öðru nafni „Son skóarans
og dóttir bakarans", eftir Jökul
Jakobsson í dag kl. 19.00 í Al-
þýðuhúsinu á ísafirði. Leikstjóri
erSigrún Ragnarsdóttir, en þetta
er hennar fyrsta uppfærsla eftir
nám í leikstjórn í Stokkhólms-
skóla. Yfir 30 manns standa að
þessari sýningu að meðtöldu
tæknifólki, en leikendur eru 20.
Önnur sýning verður í Alþýðu-
húsinu 2. maí kl. 21.00. Leikritið
gerist í óstaðsettu litlu sjávarp-
lássi einhversstaðar á landinu
eða á norðurhveli jarðar. Þar sem
allt er í niðurníðslu og verksmiðj-
an á staðnum hefur farið á haus-
í Samvinnuskólanum á Bifröst
og hefst í dag kl. 14.00. Markmið
ráðstefnunnar er að opna sýn inn
í 20. öldina á ýmsum sviðum
mannlífs, með Borgarfjarðarhér-
að í brennidepli. Ráðstefnunni er
fyrst og fremst ætlað að kveikja
hugmyndir og vekja umræður
um framtíðina og að hvaða
marki það er í mannlegu valdi að
móta hana. Á eftir verða pall-
borðsumræður og fyrirspurnir
áheyrenda. Ráðstefnan er öllum
opin.
Síðustu sýningar
á sýningum
Þjóðleikhússins
í kvöld er næstsíðasta sýning á
STEFNUMÓTI sem er byggt
upp á örstuttum leikritum eftir
nokkra merkishöfunda 20. aldar,
þeim Peter Barnes, Michel de
Ghelderode, Eugene loncsco og
David Mamet. Höfundur tónlist-
ar er Jóhann G. Jóhannsson.
Leikstjórar eru fjórir, allt ungt fólk
sem nýlega hefur lokið sérnámi í
leikstjórn og þreytir þarna frum-
raun sína í Þjóðleikhúsinu. Síð-
asta sýning verður siðan á föstu-
daginn 4. maí, en sýningarnar
eru í Iðnó.
Síðasta sýning á ENDUR-
BYGGINGU eftir Václav Havel
verður sunnudaginn 6. maí.
Orlof húsmæðra
í Reykjavík
í sumar verða farnar orlofsferðir
að Hvanneyri í Borgarfirði og til
Benidorm á Spáni. Á Hvanneyri
verður dvalið vikuna 9. til 16. júní.
Til Spánar 28. júni, 12.júlí, 6., 13.
og 20. september. Kynningar-
fundur verðu haldinn í Víkingasal
Hótels Loftleiða, mánudaginn
30. apríl kl. 20.30. Innritun hefst á
fundinum, þar ganga þær konur
fyrir sem ekki hafa áður farið í or-
lof húsmæðra í Reykjavík.
lýsti sýninguna. Aðalsteinn Á.
Sigurðsson þýddi verkið og
samdi auk þess fjörug lög og
skemmtilega söngva við verkið
þannig að segja má að Virgill sé
orðinn að nokkurs konar söng-
leik í þessari uppsetningu. Leik-
sýningin hefur hlotið mikið lof
gagnrýnenda og leikhúsgestir
virðast svo sannarlega vera
sama sinnis því allt frá frumsýn-
ingu hefur verið nauðsynlegt að
sýna bæði á sunnudögum og
laugardögum og það tvær sýn-
ingar báða dagana. Sýningum
fer nú að fækka vegna ýmissa
voranna leikaranna og því fer
hver að verða síðastur að sjá
þessa leiftrandi fjörugu barna-
sýningu sem hefur reynst vera
hin besta fjölskylduskemmtun
fyrir fólk á öllum aldri. Upplýs-
ingar um sýningar er að fá í síma
41985.
Hjartatrompet
Á morgun 29. apríl verður síð-
asta sýning íslenska leikhússins
á leikritinu HJARTATROMPET
eftir Kristínu Ómarsdóttur. Verk-
inu hefur verið afskaplega vel
tekið og hlaut sýningin mjög
góða leikdóma í fjölmiðlum.
Leikstjóri er Pétur Einarsson.
Leikarar eru: Guðlaug María
Bjarnadóttir, Halldór Björnsson,
Þórarinn Eyfjörð og Þórdís Arn-
Ijótsdóttir. Halla Helgadóttir og
Ingileif Thorlacius bjuggu leikrit-
inu umgjörð og búninga. Sýnt er
í leikhúsi Frú Emilíu Skeifunni 3c
og miðasölunúmerið er 679192.
Logskerinn í leikför
Fyrst íslenskra atvinnuleikhúsa
þetta árið ríður ÖRLEIKHÚSIÐ á
vaðið með leikför um landið með
inn, En bjartari tímar verðast
vera framundan, þar sem sonur
skóarans snýr heim eftir margra
ára veru i framandi löndum og
hefur með sér vin sinn sem er til-
búinn að starta verksmmiðjunni.
En fljótt skipast veður í lofti og
endirinn verður kannski ekki sá
sem ætla mætti. Önnur sýning
verður í Alþýðuhúsinu 2. maí kl.
21.00.
Afmælishóf LL verður haldið
að lokinni frumsýningu í Krús-
inni og hefst kl. 21.00.
leiksýninguna „LOGSKERANN"
eftir Svíann Magnús Dalström.
Fyrsta sýningin í þessum áfanga
var í Vertshúsinu á Hvamms-
tanga í hádeginu í gær og um
kvöldið á Hótel Blöndósi. Mánu-
daginn 30. maí einbeitir Örleik-
húsið sér að norðlenskri æsku í
framhaldsskólum. En þann 1.
maí verður LOGSKERINN þátt-
takandi í hátíðardagskrá verka-
lýðsins á Akureyri og um kvöldið
verður Logskerinn á Dalvík. Fyr-
irvari er hafður á tímasetningu
leiksýninganna vegna þess hve
veturinn ætlar að vera lengi að
kveðja í ár.
Leikritið gerist í búningsher-
bergi íjárnsmiðju. Persónunar
eru tvær Jonni og Úlli, sem báðir
hafa tekið sér frí á miðjum degi.
Ljóst verður í upphafi leikritsins
að vinskapur þeirra í milli er ekki
eins og best verður á kosið.
Spenna leikritsins byggist á þvi
að Jonni sakar Úlla um það að
hafa gleymt að skrúfa fyrir gasið
i logskeranum áður en hann fór,
en Ulli neitar því og sakar Jonna
um að hafa verið að nota log-
skerann seinastur manna.
Spennan magnast jafnt og þétt
ehir þvi sem á verkið líður og allt-
af vakir undir spurningin um það
hvort gasið leki eður ei. Leikstjóri
er Finnur M. Gunnlaugsson og
leikarar eru Hjálmar Hjálmarsson
og Steinn Á. Magnússon.
HALLA
BERGÞÓRA
BJÖRNSDÓTTIR