Tíminn - 28.06.1968, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 28. júní 1968.
TÍMINN
5
Daniel Cohn-Bendit, sem er
einn af aðalleiðtogum franskra
stúdenta í götuóeirðunum í
París sagði nýlega, í viðtali við
franaka blaðið Spiegel, að
fleirl hafi látizt í götuóeirð-
unnm í París heldur en látið
er trppi. Segir Cohn Bendit,
að hann geti lagt fram sann-
anir. Til dæmis hafi hann nafn
og heimilisfang konu, sem lát-
izt hafi. Læknarnir skrifuðu á
dánarvottorðið, að hún hafi
látizt af hjartaslagi. En Cohn-
Bendit, segist vita betur. Kon-
an hafi orðið fyrir gaseitrun,
þegar lögreglan greip til þess
að nota eiturgas, og þetta eit-
urgas, sem lögreglan hafi not-
að, s§ það sama og Bandaríkja
metai nota í Vietnam.
★
George Byron, sem betur er
þekktur undir nafninu Byron
lávarður, mun innan skamms
hlotnast sá heiður, að reistur
verður um hann minnisvarði í
Poet's Corner í Westminster
Abbey. Á þessu ári eru liðin
hundrað fjörutíu og þrjú ár síð
an hann lézt og hefur staðið
um það mikil deila, hvort hon-
um ætti að hlotnast sá heiður.
Byron var sagður hafa haft sið-
spillandi áhrif á samtíð sína og
vakti það talsverðar deilur, þeg
ar ritstjóri The Poetry Review
'sendi beiðni til erkibiskupsins
af Westminster, þess efnis að
Byron lávarður, eitt af jnestu
skáldiún Brétlands, fengi sinn
heiðurssess.
Það er ekkert grín að teikna
grinmyndir af de Gaulle um
þessar mundir, að minnsta kosti
ekki í Frakklandi. Hershöfð-
inginn er afskaplega viðkvæm-
ur maður og honum fellur það
ekki, að gcrt sé lítið úr hoinum
eða grin að honum, Jivorki í
riti né teikningum. Á síðustu
tíu árum hafa þrjú hundruð og
fimmtiu franskir blaðamenn og
teiknarar verið ákærðir fyrir
að hafa móðgað hersihöfðingj-
ann. Vemjulegasta refsingin er
sekt og hefur franska ríkið
aukið tekjur sínar um eina og
hálfa miUjióm franka á þessum
sektum. Það blað, sem flestar
kæruir hefur fengið fyrir að
særa tilfinningar forsetans, er
vikublaðið Minute, sem hefur
verið kært tuttugu og sex sinn-
um.
★
Caroline Kennedy, dóttir
Jacqueline Kennedy, sem nú
er tíu ára gömul, safnar frí-
merkjum, sem hafa verið gef-
in út víðs vegar um heiminn
til minningar um föður henn-
ar. Hún er þegar búin að eign-
ast um þrjú hundruð tegund-
ir.
★
Þrettán ára gömul stúlka frá
Nígeríu giftist fyrir nokkru síð-
an landa sínum, sem er .tuttugu
og sjö ára gamall. Þegar eftir
brúðkaupið fóru þau til Eng-
lands, þar sem eiginmaðurinn
ætlaði að leggja stund á læknis-
fræði við Lundúnarháskóla. Þeg
ar þangað kom upphófust mikil
vandræði, því að samkvæmt
enskum lögum er stúlkum ekki
leyft að gifta sig fyrr en þær
eru sextán ára. Henni var því
komið fyrir á barnaheimili og
eiginmaðurinn fékk að heim-
sækja hana öðru hverju, en aldr
ei að vera einn með henni.
Vesalings maðurinn gerði allt,
sem hann mögulega gat til þess
að fá eiginkonuna til baka og
yfirmaður dómsmála í Englandi
tók sjálfur málið í sínar hend-
ur. Hann úrskurðaði, að eigin-
maðurinn skyldi endurheimta
eiginkonu sína, þar sem hjóna-
band þeirra væri fullkomlega
löglegt í heimalandi þeirra.
★
Siganumd Freud, sálfræðing-
urinn frægi, sem gjörbylti öll-
um sálfræðikenningum á sín-
um tíma er sagður hafa liðið
af „siderodromofobíiu“ náin-
ar til tekið hræðslu við
járnbrautarlestir. Það er
Frakkinn Léon Michaux, sem
hefur gert þessa uppgötvun og
segir hann frá þessu í bók,
sem hann hefur gefið út og
fjallar um alls kyns fóbíur, og
er einnig að finna þar skýr-
ingar á þeim. Þær „fóbíur“
sem Michaux telur algengast-
ar eru hræðslan við að gera
eitthvað rangt án þess að vita
það, ótti við almenningsálitið,
ótti við að öskra, þegar verið
er að halda ræðu, gera eitt-
hvað illt og hræðslan við að
roðna.
* *
Þessi mynd er tekin i Þar hélt Hubert Humphrey, um við hann ásamt sænsk
Minneapolis á hátíð, sem þar varaforseti Bandaríkjanna ættuðu lcikkonunni Ann-
var haldin til heiðurs Svíum. ræðu og hér á myndinni sjá- Margaret.
n
Jenny Boyd, mágkona bítils-
ins George Harrison, kom fyrir
rétt í Lundúnum fyrir nokkru
sökuð um eiturlyfjaneyzlu og
fyrir að hafa haft eiturlyf und-
ir höndum, en talsvert magn af
eiturlyfjum hafði fundizt á
heimili hennar. ®
/,Gæti þetta gerzt
hér"
Dagur á Akureyri segir svo
fyrir skömmu:
„Morgunblaðið veltir fyrir sér
þeirri spurningu, hvort hér á
landi gætu gerzt svipaðir at-
burðir og í Bretlandi, að ráð-
herrar viki úr sæti vegna mái-
efnalegs ágrelnings. Gísli
Magnússon ræðir þetta nánar í
Einherja og segir m.a.:
„Nei, það hefur ekki gerzt
síðan í árslok 1958 að ráðherr
ar hafi látið „jnálefnin ráða,
en ekki persónulegar vegsemd
ir“. Þá baðst Hermann Jónas
son lausnar vegna þess að hann
fékk ekki isamstöðu í ríkisstjórn
inni um nauðsynlegar ráðstaf
anir til að stöðva verðbólguna.
Hann lét „málefnin ráða.“
„Þá tók við íhaldsstjórn. Al-
þýðuflokkurinn skreið þá und
ir klæðafald íhaldsins og hef
ur kúrt þar síðan. Sú stjórn
hét því hátíðlega að stöðva alla
verðbólgu. Það heit hefur ver
ið efnt með þeim hætti, að svsk
um hefur sífellt verið bætt á
svik ofan, allt til þessa dags.
Þannig er afstaða stjórnarinnar
til „málefnanna“ annars veg-
ar og „persónulegra vegsemda
hins vegar.“
Fleiri fyrirheit
„Sitthvað var það fleira, sem
ríkisstjórnin letraði stórum stöf
um á stefnuskrá sína. Allar nið
urgreiðslur og uppbætur skyldu
af teknar og atvinnuvegunum
komið á svo traustan grunn, að
eigi þyrfti til að koma bcinn
fjárstuðningur af opinbeni
hálfu. En um það fyrirheit hef
ur farið svo, að niðurgreiðslur
og uppbætur í einhverri mynd
nema nú á annað þúsund millj
ónum króna. Svo miklu þýðing
armeiri eru ráðherrastólarnir
— hinar „persónulegu vegsemd
ir“ — en stefnuskrármálin. Ann
ars er það svo um niðurgreiðsl
urnar, að þær eru hreyfanlegar
nokkuð eftir því, hvernig á al-
þingiskosningum stendur: Fyrir
kosningar eru niðurgreiðslur
hækkaðar, eftir kosningar lækk
aðar. Enn er það stóla-pólitíkin
sem ræður.
★
Claudia Cardinale, sem und-
anfarin ár hefur verið aðal-
keppinautur Brigitte Bardot í
kvikmyndaheiminum, hefur
löngum þótt koma á óvart.
Til dæmis var allur kvikmynda
heimurinn furðu lostinn, þeg-
ar það kom í ljós, að Claudia
átti son, sem var kominn á
skólaaldur. Nú hefur hún án
þess að nokkur hafi vitað um
leikið í langri kvikmynd í
Rúisslandi undir stjórn rúss-
nesks leikstjóra. Fjallar kvik-
myndin um leiðangur til norð-
urpólsins.
★
Franzki tízkukóngurinn
Louis Feraud hefur opnað
tízkuhús í Briissel, en Briissel
er sú borg, sem hýsir flesta
diplómata per fermetra. Louis
Féraud segir, að Brussel sé
framtíðarstaðurinn, hún sé orð
in alþjóðleg borg, þar ríki
glaðværð og fegurð, og að það
sé tími til þess kominn að
le gai París og the swinging
London hætti að vera vinsæl-
ustu borgir Evrópu.
Þá og nú
Árið 1960 taldi ríkisstjórnin
það eitt hið mesta bjargráð, að
banna með Iögum vísitölutrygg
ingu launa. 1964 var það orðið
„bjargráð“ að hverfa frá hinu
fyrra „bjargráði“ og taka verð
tryggingu kaupgjalds upp að
nýju. Síðla árs 1967 er verð
tryggingin enn felld niður. Á
öndverðu ári 1968 er hún aft
ur tekin upp. Allt eru þetta
bjargráð. Allt er þetta viðreisn“
Hemlaviftgerðir
Rennum bremsuskálar. —
slipum bremsudælur.
Umum 9 Dremsuborða og
aðrar almennar viðserðir
HEMLASTILLING H.F.
Súðarvogi 14 Sími 30135
URA- OG
SKARTGRIPAVERZL
KORNELÍUS
J0NSS0N
SKOLAVÖRDUSTÍG 6 - SÍMI: 1B588
i