Alþýðublaðið - 01.05.1990, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 01.05.1990, Qupperneq 4
4 Þriðjudagur 1. maí 1990 Guömundur J. varar við uaxandi stéttaskiptingu: Verkalýðshreyfingin verður að laga sig að breyttum aðstæðum ,,Vid uerdum fyrir haröri gagnrýni, “ segir formaöur Dagsbrúnar „Verkalýðshreyfingin er á margan hátt orðin stirðnuð og þarf að taka sér tak til að aðlagast breyttum þjóðfélagsað- stæðum." Svo mælir Guömundur J. Guðmundsson for- maður Dagsbrúnar er hann var spurður um stöðu verka- lýðshreyfingarinnar árið 1990. „Hins vegar er hið uppruna- lega markmið 1. maí, barátta fyrir bættum kjörum hins al- menna launamanns, enn í fullu gildi og á ekki síður erindi til fólks í dag en áður." Guðmundur segir að stjórn, stjórnarmenn og starfsmenn verkalýðsfélaga hafi hin síðari ár oft fengið þunga gagnrýni á sig fyrir að hafa fjarlægst hinn al- menna félagsmann. „Stundum er þessi gagnrýni ósanngjörn en oft- ar en ekki á hún fullan rétt á sér. Þetta verðum við forystumenn launþegasambanda að taka til greina og reyna að sveigja verka- lýðshreyfinguna inn á nýjar braut- ir í baráttumálum." Dregið úr virkni félagsmanna jafnt og þétt í 20 ár Formaðurinn segir að þrátt fyrir þessa gagnrýni þá standi verka- lýðshreyfingin nokkuð styrkum fótum í dag. Þar nefnir hann sem dæmi hið víðtæka lífeyris-, sjúkra- og líftryggingakerfi, sem félags- menn verkalýðsfélaga búi við. „Hins vegar er það áhyggjuefni hve dregið hefur úr virkni hins al- menna félaga jafnt og þétt undan- farin 20 ár. Þar komum við inn á breyttar þjóðfélagsaðstæður og það þýðir ekkert fyrir verkalýðs- hreyfinguna að berja hausnum við steininn heldur verður hún að að- laga sig nýjum aðstæðum." Guðmundur vill að haldnir verði fleiri vinnustaðafundi á vinnutíma því erfitt sé að fá fólk til að mæta á fundi að kvöldlagi. Einnig þurfi að nýta fjölmiðla betur til að koma skoðunum launþegahreyfingar- innar á framfæri við almenning. Þegar minnst er á fjölmiðla lifn- ar yfir Guðmundi. „Það eru ekki síst fjölmiðlar sem eiga þátt í þess- um félagslega doða sem ríkir með- al fólks. Það er ekki bara verka- lýðshreyfingin sem verður fyrir barðinu á þessum doða, heldur öll félagastarfsemi, hvort sem það eru íþróttafélög, æskulýðsfélög eða starfsmannafélög. Með þessu er ég ekki að ásaka fjölmiðla því þeir eru bara hluti af þessu breytta lífsformi nútímans. Það sem mér finnst hins vegar verra að margt ungt fólk er ekki eins félagslega sinnað og það var. Þar held ég að fjölmiðlar, þá sérstaklega sjón- varp, eigi stóran þátt í þeirri deyfð. Nú vona ég að ég hljómi ekki eins og gamalmenni sem sér ekk- ert nema fortíðina í gullnum ljóma en finni nútímanum allt til foráttu. Ég hef nefnilega trú á unga fólkinu í dag; það er margt alveg harðdug- legt og hefur ferskar hugmyndir um framtíðina. Það má hins vegar ekki gleyma sér í lífsgæðakapp- hlaupinu því hin mannlegu gildi eru það sem standast tímans tönn en ekki nýtt parket á íbúðinni eða glæsikerra fyrir utan heimilið." Vaxandi launamunur í þjóðfé- laginu er formanni Dagsbrúnar mikið áhyggjuefni. „Ef verkalýðs- hreyfingunni tekst ekki að spyrna við fótum þá mun á næstu árum skapast hér á íslandi fátæk undir- stétt sem verður ekkert annað en 2. flokks borgarar. Þetta er nokk- Guðmundur J. Guðmundsson. uð sem atvinnurekendur og laun- þegar verða að gera sér grein fyrir. Ef ekkert verður að gert mun þetta leiða til mikillar stéttaskipt- ingar og í kjölfarið fylgja harðvít- ug stéttaátök." Þegar formaðurinn er spurður hvort stéttaátök séu nokkuð nýtt þá lygnir Guðmundur aftur augun- um, eins og honum er einum lagið, og segir með þunga: „Nei, það er rétt að oft hefur verið deilt í ís- lensku þjóðfélagi. Atökin voru harðvítug hér á landi t.d. á fjórða áratug aldarinnar. Það sem er hins vegar öðruvísi núna er hve fjöldi eignamanna er orðinn meiri. Það eitt er í sjálfur sér ekki slæmt en þegar misskipting landsins gæða er sífellt meiri þá er ekki von á góðu. Ef heldur áfram sem horfir þá er mikil hætta á því að þjóðin skiptist upp í tvær fylkingar; þá sem eiga mikið og síðan þá sem eiga lítið sem ekki neitt." Launin verða að hækka Guðmundur segir að núverandi samningar hafi verið samþykktir til að ná niður verðbólgunni, þeirri vofu sem læðst hafi inn á heimili fátæks verkafólks um ára- bii. „Þessir samningar eru hins vegar engin framtíðarlausn á vanda verkafólks. Launþegar landsins hafa tekið á sig þessar byrðar til að ná árangri í barátt- unni gegn verðbólgunni. Laun hins almenna launþega verða síð- an að hækka þegar samningarnir renna út til að koma í veg fyrir harðvítug verkfallsátök." En hvar verður Guðmundur J. Guðmundsson á þessum frídegi verkalýðsins að þessu sinni. „Ja, eins og staðan er í dag þá bendir allt til þess að ég verði á Höfn í Hornafirði. Verkalýðsfélögin þar á staðnum hafa farið þess á leit við mig að halda 1. maí ræðu þar í bæ og hef ég tekið vel í þá málaleitan. Hins vegar verður hugurinn að sjálfsögðu einnig með félögum mínum í Dagsbrún í Reykjavík þann dag," segir Guðmundur. BaráHan fyrir betra og réttlátari þjóðfé- lagi er aldrei úrelt Rœtt við Karl Steinar Guðnason betra þannig að starfsemin eigi eftir að vaxa og dafna. „Verkalýðshreyf- ingin þarf að gera átak í fræðslumál- um í framtíðinni til að m.a. gera launþegum betur grein fyrir hug- sjónum og markmiðum hreyfingar- innar." Nú hefur stundum heyrst að sér- stakur frídagur verkalýðsins sé úr- eltur. Hvað segir Karl um það mál? „Það er langt því frá að dagur eins og 1. maí sé tímaskekkja," svarar Suðurnesjaformaðurinn. „Þetta er dagur er menn líta yfir farinn veg og íhuga hvernig megi styrkja og bæta starfsemi verkalýðshreyfing- arinnar. Barátta hreyfingarinnar fyrir betra og réttlátari þjóðfélagi á ekki síður við í dag en fyrir nokkr- um áratugum," sagði Karl Steinar Guðnason. Karl Steinar Guðnason, for- maður verkalýðs og sjómanna- félag Keflavíkur, segir að verka- lýðshreyfingin sé sterkari nú en fyrr vegna síðustu kjarasamn- inga. „Sú ábyrga afstaða sem hreyfingin tók hefur skapað henni virðingu í þjóðfélaginu,“ segir formaðurinn. Karl segir að félagslega þurfi verkalýðshreyfingin hins vegar að taka sig duglega á. Félagsleg deyfð einkenni starf margra félaga og erf- itt sé að fá menn til forystustarfa. Hann segist þó vona að síðustu kjarasamningar hafi áhrif til hins Karl Steinar Guönason. Oft hafa laun þegar þurft að gripa til verkfalis til að leggja áherslu á kröfur sínar.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.