Alþýðublaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 12
12
Þriðjudagur 1. maí 1990
Juhan Aare er þeirrar skoðunar að eina leiðin fyrir Litháa nú sé að semja við Sovétmenn, að fresta gildistöku sjálfstæðisyfirlysingarinnar. Hann segir að lítil ríki veröi að gæta þess að bera
sig rétt að þegar þau eigi í deilum við risaveldi, það gangi ekki að setja aðeins fram úrslitakosti.
Eistlendingar geta
ekkibeðið lengi
eftir sjálfstæði
Kristján
Kristjánsson
Eistlendingar geta ekki beðið eftir sjálfstæði lengi enn.
Reyndar geta Sovétmenn ekki beðið stundinni lengur eftir
efnahagslegum umbótum. Þetta er skoðun Juhan Aare,
sem er einn 11 fulltrúa Eistlands í Æðsta ráði Sovétríkjanna.
Hann segir í einkaviðtali við Alþýðublaðið að ef ekki verði
gerðar róttækar breytingar á efnahagskerfinu í Sovétríkj-
unum á næstu árum, þá muni landið liðast sundur. Það
verði einfaldlega ekki hægt að una við óbreytt ástand. „Við
völdum vitlaust kerfi," bætir hann við — máli sínu til stuðn-
ings gerir hann samanburð á efnahag og þjóðfélagsástandi
í þýsku ríkjunum tveimur. „Þetta liggur í augum uppi," segir
hann og glottir. Hann er bjartsýnn á að Eistland verði sjálf-
stætt í framtíðinni og trúir enn á möguleikann til breytinga
í Sovétríkjunum.
„Ég er þeirrar skoðunar að Lit-
háar eigi aðeins að fresta gildis-
töku sjálfstæðisyfirlýsingar sinnar
— þeir eiga ekki að draga yfirlýs-
inguna til baka. Þeir verða að
hefja viðræður við Moskvu um
sjálfstæði landsins, það er engin
önnur leið út úr þeirri stöðu sem
skapast hefur en viðræður. Það er
reyndar mjög erfitt fyrir Gorbat-
sjov að hefja slíkar viðræður en
það er eini möguleikinn sem
býðst. Ég tel að efnahagsþvingan-
irnar sem Gorbatsjov hefur beitt
gegn Litháum séu mjög vanhugs-