Alþýðublaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 01.05.1990, Blaðsíða 6
6 Þriðjudagur 1. maí 1990 BÚKAREST fyrir 22 árum — hrollkaldur 1. maimorgunn þegar 3—4 tíma skrúðfylking hóf göngu sína fyrir framan stúku Ceausescus forseta og gesta hans. 7. maí i Búkarest fyrir 22 árum: Harðstjórinn hylltur — forsetinn sem heimurinn trúöi á í þá daga átti eftir ad bregöast vonum allra BÚKAREST, — kuldalegur 1. maí 1968 heilsar. Klukkan er rétt liðlega 8 að morgni, þegar gestir hins „vinsæla og ást- ríka forseta landsins", sem menn víða um heim, meira að segja á Mogganum, töldu að Ceausescu væri þá, héldu af stað frá hótel Athena-Palas, til aðalgötu borgarinnar þar sem 1. maí hátíðarhöldin fóru fram. það var nístandi norðan bálviðri, sem smaug gegnum þunnan íslenskan rykfrakka frá Belgjagerðinni og þaðan um merg og bein. Þemað var friðsamlegt Vaskur hópur íþróttablaða- manna víða að úr heiminum hélt af stað stutta leið frá hótelinu til mikillar breiðgötu í nágrenni við höfuðstöðvar rúmenska kommún- istaflokksins. Þarna við breiðgöt- una hafði verið sett upp mikil heiðursstúka, líklega fyrir 500 til Erlendir „hernaðarfulltrúar" frá erlendum sendiráðum voru talsvert margir í hópi gestanna, hér eru nokkrir þeirra á útibarnum góða þar sem menn gátu ornað sér í kuldanum snemma morguns. 1000 manns, þar sem höfuðpaur- inn sjálfur, Nicolai Ceausescu ásamt fjölskyldu sinni og nánustu samstarfsmönnum sat í miðri stúkunni í blómahafi á rauðum og dýrum teppum. Allt út frá þessum tignarmenn- um, sem í raun voru gestgjafar okkar, íþróttafréttaritaranna, sátu ýmsir gesta forsetans, — gestir eins og við, fólk frá erlendum sendiráðum og margir fleiri. Hvorki fyrr né síðar hef ég orðið vitni að 1. maí hátíðarhöldum lík- um þessum. Ekki man ég hvernig alþjóðapólitíkin leit út nákvæm- lega þetta ár — en Rúmenar voru — eins og þeir voru þá álitnir um allan heim, friðelskandi og fram- farasinnaðir. Þetta kom fram í þeirri feyknarlegu skrautsýningu, sem hófst fljótlega eftir að forset- inn og hans lið hafði komið sér fyr- ir í stúkunni miklu. Þetta var ein- staklega friðsamlegt þema — og á sinn hátt falleg sýning. Já, gangan var mikil. Tugþús- undum saman liðuðust þátttak- endur framhjá stúkunni. Hver hópur var með sínar uppákomur af ýmsu tagi, mikið bar á borðum, fánum, blöðrum fallegum slagorð- um, hróp og vel æfð slagorð, söng- ur, dans, íþróttir. Allt þetta mátti sjá í göngunni, sem þokaðist hjá næstu 3—4 tímana að mig minnir. Vantrúaður bandariskur herforingi Satt best að segja var ég búinn að fá meira en nóg af þessari skemmtan í kalsanum eftir 15—20 mínútur, og greinilegt var að ég var ekki einn um það. Eg var svo Ijónheppinn að í næsta sæti fyrir framan mig sat maður, fínn og strokinn, í hermannabúningi sem mér fannst ég kannast við, fannst helst að þetta væri einn af „winun- um af beisnum" enda þótt ég sé sannarlega ekki vel að mér í bún- ingum stríðsmanna. En viti menn! Þessi maður reyndist vera her- málafulltrúi við bandaríska sendi- ráðið í Búkarest og klæddur blá- leitum búningi flughersforingja. Hann kunni á öllu skil í þessari borg og bauð mér kærkomna hvíld við glápið út á breiðgötuna þar sem fólkið streymdi hjá með sjóin sín, veifandi hinum ástsæla forseta sínum í stúkunni og send- andi honum einhvern vinsamleg- an tón. Bandaríski diplómatinn, án efa CIA-maður, vissi hvert hann stefndi, þegar hann bauð mér nið- ur af pallinum, úr kuldaþræsingn- um, og niður í skjólgott rými undir stúkunni. Þar var þröng á þingi, því þar var barinn og menn af mörgum þjóðum í óðaönn að ná úr sér hrollinum þótt dagurinn væri ekki gamall. Þessi ágæti maður sagði mér að um þessar mundir væru Rúmenar vinsælir víða um heim fyrir vissa óþægð við sovétmenn, en allt væri þetta svik og lygar. Hann sagðist ekki

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.