Alþýðublaðið - 01.05.1990, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 01.05.1990, Qupperneq 9
Þriðjudagur 1. maí 1990 9 Húsnæöismál Alþingis: Borgarst jóri vændur um ai hafa sagt Alþingi ósatt Snarpar umræður um húsa- kaup Alþingis í nágrenni þess urðu í sameinuðu þingi í gær. Ol- afur Þ. Þórðarson sagði að borg- arstjórinn, Davíð Oddsson, og fulltrúar hans hefðu logið að fjárveitinganefnd í haust en í viðræðum við fulltrúa borgar- innar þá hefði komið skýrt fram að borgin hygðist ekki kaupa Hótel Borg eða leggja fram fjár- magn til að treysta reksturs hót- els þar áfram. Efnislega tók Sighvatur Björgvins- son, formaður fjárveitinganefndar, undir orð Ólafs Þ. og að borgin hefði ekki staðið við þau orð sem fulltrúar hennar hefðu látið frá sér fara við fjárveitinganefnd. Þá vék Sighvatur að þeirri stefnu borgarstjórans að byggja og kaupa veitingahús í Reykjavík á kostnað skattgreið- enda, leggja í fjárfestingar sem sýnt væri að aldrei gætu staðið undir sér. Fyrir þinginu lá breytingartillaga við tillögu um að heimila forsetum þingsins að kaupa Hótel Borg eða kaupa eða leigja hentugt húsnæði undir starfsemi þingsins í nágrenni þess. f breytingartillögunni sem var samþykkt er Hótel Borg felld út. Kom fram sú gagnrýni að það væri verið að færa fjárveitingarnefnd mikið vald með því að heimila henni að leggja blessun sína yfir húsakaup án þess að það kæmi fyrir þingið. Þá kom fram hörð gagnrýni á fjár- veitinganefnd og að hún hefði tekið allt of langan tíma til að afgreiða málið frá sér. Með því háttalagi hefði borginni gefist kostur á að kaupa Hótel Borg án þess að þinginu hefði gefist kostur til að láta í Ijós afstöðu sína til kaupanna. Fjárveitihga- nefndarmenn vísuðu þessari gagn- rýni á bug og vísuðu til þess / að borgin hefði verið búin að lýsa því yfir að hún hygðist ekki kaupa Hótel Borg. Því hefði ekki þótt ástæða að hraða málinu sérstaklega enda mik- ill ágreiningur um hvort rétt væri að kaupa Hótel Borg undir skrifstofur fyrir alþingismenn. Þinglausnir á laugardaginn? Forsœtisráöherra segir Steingrímur Hermansson for- sætisráðherra segir það undir þingmönnum komið hvort þingi lýkur í þessari viku eða ekki. Hann sagði að þingi yrði ekki stitið fyrr en að það hefði af- greitt kvótafrumvarpið. Nokkur óvissa ríkir umaf- greiðslu ýmissa mála á Alþingi og hvernær tekst að ljúka þing- inu. Ríkisstjórnin stefnir að þinglokum í vikulokin og að eld- húsdagsumræður verði á laug- ardaginn og þinginu síðan slitið í kjölfar þess. Þó er engan veg- inn víst að slíkt takist. Ekki hef- ur náðst formlegt samkomulag um afgreiðslu einstakra mála né hvenær þingi skuli Ijúka. Af málum ríkisstjórnarinnar eru það einkum tvö mál sem hafa alger- an forgang. Það er frumvarpið um fiskveiðistjórn og frumvarp um virkjanaframkvæmdir. Ljóst er að ýmis önnur mál eru á forgangslista aö þingi veröi ekki slitiö iö hafi veriö afgreitt fyrr en kvótafrumvarp- einstakra ráðherra og þingmanna og óljóst með afdrif þeirra. T.d. er ennþá ekki ljóst hver verða afdrif frumvarps um umhverfisráðuneyti. Þá vill stjórnarandstaðan eflaust ná fram einhverjum málum og verða stjórnarflokkarnir að semja við hana um framgang mála ef takast á að ljúka þingi í þessari viku. Um afgreiðslu kvótafrumvarpsins er mikil óvissa en það fékkst þó af- greitt úr sjávarútvegsnefnd efri deildar i gær. Sjö eiga sæti í nefnd- inni og skilaði hún fimm nefndar- álitum. Endurspeglar það ólík sjón- armið og viðhorf þingmanna til málsins. Takist að afgreiða það frá efri deild á það eftir að fara til neðri deildar og því Ijóst að tíminn til að afgreiða það er mjög knappur eigi það að takast fyrir helgi. Nokkur óvissa er hvenær þingi lýkur, en stefnt er að því aö þingi Ijúki é laugardaginn. Skerðing á skoðana- og tjáningafrelsi — segir Kári Jónasson, fréttastjóri útvarps, um yfirlýsingu útvarpsráös „Það er skerðing á skoðana og tjáningafrelsi að fréttastofu út- varps skuli ekki heimilað að endurtaka það að hún standi við frétt sína,“ sagði Kári Jónasson, fréttastjóri útvarps í samtali við Alþýðublaðið í gær um þá ákvörðun útvarpsráðs að lýsa ómerka þá skoðun fréttastof- unnar að hún stæði við frétt um teikningar VT-teiknistofunnar á Akranesi. ,,Við stöndum við fréttina og telj- um okkur hafa fullt leyfi til þess að ítreka það þrátt fyrir álit útvarps- ráðs. Við drögum ekki í efa rétt þess til að segja álit sitt á öllu útvarpsefni, en með tilliti til almenns skoðana og tjáningafrelsis höfum við einnig heimild til þess að segja okkar álit í þessu máli," sagði Kári. Hann benti enn fremur á að stjórn Arkitektafélags íslands hefði undir- strikað réttmæti fréttarinnar á mjög eftirminnilegan hátt með því að lýsa yfir að það hafi sama skilning á mál- inu og fréttastofan og vísar því að svo búnu frá sér. Þessi umdeilda frétt fjallaði um teikningar af íþróttahöll sem VT-teiknistofan á Akranesi hafði að sögn fréttastofu Ijósritað úr sænsk- um bæklingi án þess að þess væri nokkurs staðar getið. Oddi kaupir tæki Blaðaprents Prentsmiðjan Oddi hefur isins. Prentsmiðjuna Odda um prentun keypt prenttæki Blaðaprents. Blaðaprentsblöðin, Alþýðublaðið, blaðanna. Samningurinn tekur gildi Blaðaprent mun þó starfa áfram Þjóðviljinn og Tíminn hafa gert 1. maí. um rekstur húseignar fyrirtæk- fimm ára samstarfssamning við Fréttir í stuttu máti Stjórnmálaflokkar í auglýsingabindindi Svo virðist sem óvenjulítið verði um auglýsingar stjórnmála- flokka a.m.k. verða þær ekki í Ijósvakafjölmiðlum. Viðræður milli stjórnmálaflokkanna og helstu framboðslista við sveitarstjómar- kosningarnar hafa leitt til samkomulags um þetta atriði. Aöeins fundir og samkomur munu verða auglýstar í þessum fjölmiðlum og þar aðeins auglýstur fundarstaður, tími, ræðumenn og svo fram- vegis. Reyklaust millilandaflug Krabbameinsfélag Reykjavíkur berst eindregið gegn tóbaksreyk- ingum og er brátt í fá hús að venda fyrir strompana. Nú nýlega sam- þykkti aðalfundur félagsins ályktun þar sem stuðningi er lýst við reyklaust millilandaf lug og reyklausar sjúkrastofnanir og hvatt til að öll hótel og veitingatsaðir gefi gestum sínum kost á dvöl í reyklausu umhverfi. Jón Þ. Hallgrímsson, læknir var endurkosinn formaður félagsins, en aðrir í stjórn eru Erla Einarsdóttir, gjaldkeri, Ólafur Haraldsson, aðstoðarsparisjóðsstjóri, Páll Gíslason, ýfirlæknir, Sigríður Lister, hjúkrunarforstjóri, Sveinn Magnússon, læknir og Þórarinn Sveinsson, yfirlæknir. Framkvæmdastjóri er Þorvaröur Örnólfsson. Feröaskrifstofur hjálpast aö Ferðaskrifstofumar hafa ákveðið að hjálpast að við að leysa vandamál sín, en þau eru einkum fólgin í því að minna hefur verið bókað í sólarlandaferðir á eina besta tíma ársins, júní og júlí. Munu ferðaskrifstofurnar sameinast um nokkur flug á þessu tímabili og létta þannig undir hvor með annarri í stað þess að fara í undirboð. Á myndinni er einn ferðaskrifstofurisanna, Andri Már Ingólfsson í Veröld-Pólaris, þegar leiguþota ferðaskrifstofu hans kom i fyrsta sinni á dögunum til landsins. 2100 tonn af lostætum humri Sjávarútvegsráðuneytið ákvað í gær að humarveiðar megi byrja 15. maí. Hafrannsóknastofnun hefur lagt til að veiddar verði 2100 lestir af óslitnum humri. Þetta er sama heildarmagn og úthlutað var á síðasta ári. Ráðuneytið hefur ákveðið að úthluta sama magni til skipanna nú. SH-verktakar meö lægsta tilboð í starfsmanna- hús Senn verður hafist handa um að reisa mikið starfsmannahús við Blönduvirkjun og verkið þegar verið boðið út. Alls buðu 8 verktakar í verkið — svokallað frávikstilboð 1 frá SH-verktökum i Hafnar- firði. Það tilboð hljóðar upp á 259 milljónir króna sem er 85,1% af áætlun Landsvirkjunar. Eftir er að vega og meta tilboð verktakanna. Starfsmannahúsið verður 2180 fermetrar að grunnfleti og þar verða vistarverur starfsfólks, mötuneyti og fleira. Fermetrinn í íbúðum kostar um 60 þús. krónur I fréttabréfi Fasteignamats ríkisins kemur í Ijós að söluverö hvers fermetra í íbúðum í Reykjavík er einhvers staðar í námunda við 60 þúsund krónur. Þannig var verðið reyndar á síðasta ársfjóröungi í fyrra, og verðið hefur haldist stöðugt síðan. Útborgunarhlutfall er sömuleiðis nokkuð stöðugt, þetta 76—77%. Samkvæmt frétt hér á undan er það talsvert dýrara að byggja nýtt, — alla vega þarf Landsvirkjun aö greiða rúmlega 100 þúsund fyrir fermetrann í nýja starfsmannahúsinu við Blönduvirkjun. Burstageröin 60 ára í dag Innlendur iðnaður af ýmsu tagi hefur átt erfitt uppdráttar með aukinni samkeppni við iðnvæddari þjóðir. Burstagerðin hf. er eitt þeirra fyrirtækja sem haldið hefur velli og fagna forráðamenn fyrir- tækisins í dag 60 ára afmæli fyrirtækisins. Hróbjartur Árnason, stofnaði fyrirtækið, en sonur hans, Friðrik Hróbjartsson, stýrirfyr- irtækinu í dag ásamt sonum sínum, Böðvari og Friðriki. í tilefni af- mælisins komu hingað til lands á þriðja tug erlendra gesta, meðal annars eigendur og stjórnendur nokkurra af stærslu burstagerðum heims. Trúfélögin vilja takmarkanir fóstureyðinga Á fjölmennri samkomu kristnu trúfélaganna á Reykjavíkursvæð- inu, sem haldin var í kirkju Fíladelfíu var lýst yfir stuðningi við frum- varp til laga um takmarkanir á fóstureyðingum, sem nýlega kom fram á Alþingi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.