Alþýðublaðið - 01.05.1990, Síða 15

Alþýðublaðið - 01.05.1990, Síða 15
Þriðjudagur 1. maí 1990 15 fyrir réttindum sínum því þetta er sí- fellt strögl við vinnuveitendur." Sveinn er meðlimur í verkalýðsfé- laginu Hlíf en hefur þó ekki mætt á fund hjá félaginu. „Þetta þyrfti að vera eins og hjá verkamönnum í Reykjavík þar sem fundir eru haldn- ir í vinnutímanum. Það virðist ganga illa að fá fólk til að mæta á kvöldin á slíka fundi." Það er mikið um að vera hjá Eim- skip í Hafnarfirði því félagið hefur mikil umsvif þar í bæ. Það er því mikið að gera hjá Sveini og sagði hann að aukavinnan væri stór hluti af tekjum hans i hverjum mánuði. Fiskvínnslu- fólk ekki ánægt með siðustu kjarasamn- inga, — segir Ágústa Vigfús- dóttir fiskvinnslukona hjá Granda Ágústa Vigfúsdóttir fisk- vinnslukona er hvorki ánægð með kaupið, hinn almenna félaga í verkalýðsfélögum né forystu verkalýðshreyfingarinnar. „Það er ekki eðliiegt að maður hafi mun minna á milli handanna nú en fyrir 20 árum. Hinn almenni launamaður virðist taka öllu sem að honum er rétt án þess að æmta eða skræmta. Forysta verkalýðshreyfingarinnar á þar líka hlut að máli því hún hefur fjarlægst okkur í gegnum árin,“ segir Ágústa. Agústa segist hafa hér áður fyrr oftast mætt í kröfugönguna á 1. maí. Hin síðari ár hafi nú hins vegar dreg- ið úr kraftinum í henni að mæta enda virðist allur kraftur farinn úr þessari launabaráttu. „Ég veit ekki hver skýringin er á þessum félags- Iega doða. Ein skýringin gæti verið að fólk vinnur myrkranna á milli til þess að láta enda ná saman og hefur hreinlega ekki kraft eða vilja til að mæta á fundi að kvöldlagi." Fiskvinnslufólk er ekki ánægt / með síðustu kjarasamninga segir Ágústa. „Við fengum litla sem enga leiðréttingu á kjörum okkar og maður getur ekki verið ánægður með slíka samninga." Undrandi hve áhuginn er lítill, — segir Olafur Örn Jóns- son prentsmidur „Ég er alltaf jafn undrandi hve áhuginn er lítill hjá almennum félagsmönnum þegar haldnir eru fundir um kaup og kjör. Jafnvel á fundum þar sem er ver- ið að greiða atkvæði um samn- inga mætir oft ekki nema lítill hluti félagsmanna.“ Svo mælir Ólafur Örn Jónsson prentsmið- ur en hann hefur unnið við fagið í yfir 20 ár. í sambandi við 1. maí sagðist Ólaf- ur vera fylgjandi slíkum degi en það væri þó ljóst að eðli verkalýðsbar- áttu á íslandi hefði breyst mikið á undanförnum árum og áratugum. „Það er spurning hvort verkalýðs- hreyfingin þurfi ekki að endurmeta starfsvettvang sinn töluvert vegna breyttra þjóðfélagsaðstæðna,' sagði Ólafur. Dugurinn minnir mig á sumar- dekkin, — segir Arnar Skúlason starfsmaöur á dekkja- verkstœdi „Dagsetningin 1. maí minnir mig reyndar meira á sumar- dekkin en frídag verkalýðsins," sagði Arnar Skúlason starfs- maður á dekkjaverkstæðinu, Dekkið I Hafnarfirði, hlæjandi. „Hins vegar ætla ég ekki að gera lítið úr þessum degi því hann á fullkomlega rétt á sér,“ bætti hann við. Arnar kvaðst vera mjög sáttur við sín kjör. „Ég þarf ekki að kvarta yfir þeim tekjum sem ég hef. Þar munar að vísu um að ég er einhleypur en þó myndi ég treysta mér til að fram- fleyta fjölskyldu með þessu kaupi ef ég skuldaði ekki of mikið." Ekki hefur Arnar tekið þátt í kröfugöngu á 1. maí né mætt á fundi hjá verkslýðsféiagi sínu. Hins vegar viðurkennir hann að félögin vinni þarft starf og að virkni félaga mætti vera meiri. „Það má hins vegar ekki horfa fram hjá því að e.t.v. eru verkalýðsfélögin ekki nægjanlega virk í að koma sínum skoðunum á framfæri við hinn almenna félags- mann og ekki nógu opin að leyfa fólki að koma sinni skoðun á fram- færi,“ sagði Arnar Skúlason. Óþarfi að hafa sér- stakan verkalýðs- dag, — segir Guömundur Jóns- son smiöur „Mín vegna mætti leggja niður þennan verkalýðsdag,“ sagði Guðmundur Jónsson smiður er hann var inntur eftir því hvort hann teldi þörf á sérstökum frí- degi verkafólks. „Aðstæður hafa breyst það mikið að ég tel enga þörf á sérstökum frídögum verkafólks eða verslunarfólks,“ sagði Guðmundur. Þó sagði hann að það væri sér að meinalausu ef einhverjir vildu halda slíkan frídag. í sambandi við vinn- una sagði Guðmundur að það væri enn nóg að gera hjá smiðum hvað svo sem framtíðin bæri í skauti sér. „Það virðist vera bjartara framund- an í atvinnumálum og það kemur okkur iðnaðarmönnunum vel," sagði Guðmundur Jónsson smiður. Tiðarandinn hefur breyst í islensku þjóðfélagi, — segir Magnús Baldurs- son gröfustjóri Magnús Baldursson gröfu- stjóri segir að frídagur verka- lýðsins hafi breyst í takt við tíð- arandann í ísiensku þjóðfélagi. „Frídagar, eins og t.d. Föstudag- urinn langi, eru ekki orðnir eins heilagir og þeir voru. Það sama hefur gerst með 1. maí og er dag- urinn því ekki eins mikilvægur og fyrrum,“ sagði Magnús. Gröfustjórinn er hins vegar á þeirri skoðun að baráttudagur fyrir bættum kjörum verkafólks eigi full- an rétt á sér. „Þó ég sé sjálfur sjálf- stæður atvinnurekandi og þurfi ekki að kvarta yfir mínum launa- kjörum þá veit maður að fjöldi manns er með mjög lágt kaup. Þess- ar stéttir þurfa enn í dag að berjast fyrir sínum réttindum og 1. maí er gott sameiningartákn fyrir þá bar- áttu,' sagði Magnús. Ekki sáttur við efna- hagsstefnu stjórnvalda Rœtt viö Sigurjón Einars- son prentnema Sigurjón Einarsson prentnemi segir það sjálfsagt að halda upp á baráttudag verkalýðsins. Hann hafi nú sjálfur ekki verið virkur að mæta á fundi eða í kröfugöng- ur en það breyti þó ekki þeirri skoðun hans að efla þurfi verka- lýðsandann með slíkum degi. Sigurjón kveðst vera sáttur við það sem hann beri úr býtum.: „Fé- lag bókagerðarmanna hefur staðið vel að málum félaga sinna og sú bar- átta hefur leitt til þess að við getum unað nokkuð vel við okkar kjör." Hins vegar er Sigurjón ekki sáttur við stjórnvöld og segir efnahags- stefnu þeirra ekki vera til fyrir- myndar. Aðrar stéttir eiga að taka þátt í baráttu verkafólks, — segir Ásgeir Helgason múrari frá Hverageröi Ásgeir Helgason múrari frá Hveragerði segist alltaf taka þátt í kröfugöngu á 1. maí og að þessi dagur megi ekki glata merkingu sinni sem baráttudagur verka- lýðsins. „Það eru margar stéttir í þjóðfélaginu í dag, t.d. fisk- vinnslufóik, sem eru langt á eftir öðrum í kjörum. Aðrir launþeg- ar eiga að taka þátt í baráttu þeirra til að koma á réttlátara þjóðfélagi," sagði múrarinn. Ásgeir segir að þátttaka sé yfir- leitt góð í hátíðarhöldunum á 1. maí í Hveragerði. „Þó mættu fleiri mæta en það er eins og fólk gefi sér ekki tíma til að slíta sig frá amstri hvers- dagsins," sagði Ásgeir.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.