Alþýðublaðið - 05.05.1990, Síða 1
MWIHBUDH
66. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR
LAUGARDAGUR
5. MAÍ 1990
SAMEINING SJÓNVARPSSTÖÐVANNA: Ákveð-
ið hefur verið að sameina rekstur Stöðvar 2, Sýnar og ís-
lenska útvarpsfélagsins. f framtíðinni er fyrirhugað að
þessi nýi fjölmiðlarisi reki tvær sjónvarpsrásir og tvær út-
varpsstöðvar. Hlutafé í hinu nýja fyrirtæki á að verða 800
milljónir og verður það rekið sem almenningshlutafélag.
Áætlað er að starfsfólk sjónvarpsstöðvanna tveggja veröi
80—90 manns, en til samanburðar má geta þess að nú
starfa um 140 manns á Stöð 2.
JÓN BALDVIN ÁNÆGÐUR MEÐ SVÍA: Anita
Gradin viðskiptautanríkisráðherra Svía hefur fengið bréf
frá Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra þar sem
hann lýsir yfir fullu trausti á störf Svía í forystu EFTA. Af-
tenposten í Noregi sagði frá því í fyrradag að íslendingar
væru óánægðir með forystu Svía í viðræðum EFTA og EB.
Þetta bréf íslenska utanríkisráðherra ætti því að róa Svía.
HORNAFJÖRÐUR:
Enn er straumurinn í
Hornafjarðarósi að hrekkja
Hornfirðinga. Að undan-
förnu hefur verið dælt um
40—50 þúsund rúmmetr-
um af möl upp úr innsigl-
ingunni en nú á að hætta
dæluvinnu.
íbúar Hafnar hafa að
sjálfsögðu áhyggjur af
þessu máli og nú um helg-
ina ætla þingmenn kjör-
dæmisins og samgöngu-
málaráðherra aö líta á aðstæður í Hornafirði. Einnig eru
nú staddir á Hornafirði Vita og hafnamálastjóri og starfs-
menn hans til að líta á aðstæður.
EVRÓPUKRAFTUR Á ÍSLANDI: Evrópumeistara-
mót í kraftlyftingum hófst í Valsheimilinu í Reykjavík í gær.
Þar etja sterkustu menn álfunnar við lóðin og meðal ís-
lenskra keppenda eru Magnús Ver Magnússon, Hjalti
Árnason og Kári Elíson.
ÞINGILYKURIDAG: Að öllum líkindum tekst aö Ijúka
þingstörfum í dag því samkomulag náðist um að lög um
verkefni ráðuneytis umhverfismála. Þar með komast þing-
menn í sumarfrí á réttum tíma.
ÍSLENSK MENNING í ÞÝSKALANDI: íslensk
menningarsýning var opnuð í í Köln í V-Þýskalandi í fyrra-
dag. Þessi sýning mun síðan flakka á milli fleiri þýskra
borga á næstunni. í Köln eru sýnd verk eftir rúmlega 40
íslenska myndlistarmenn.
ZAGBREB: íslendingar ásamt fjórum hinum Norður-
löndunum sendu inn mótmæli til forráðamanna Evrópu-
söngvakeppninnar vegna þess að Lúxemborg og nokkur
önnur lönd notuðu segulbandsupptökur á æfingu en það
er bannað samkvæmt reglum keppninnar. Annars hlaut ís-
lenska lagið góðar viðtökur á lokaæfingu í gær og var m.a.
kosið besta lagið af fjölmiðlafólki. Sjá nánar um Söngva-
keppnina á bls. 3.
UFFE ELLEMAN JENSEN: utanríkisráðherra Dana
dró það mjög í efa í gær að samkomulag væri innan ráð-
herranefndar EB að hefja viðræður við EFTA í sumar.
ítalski starfsbróðir hans var hins vegar á öðru máli og
kvaðst ekkert sjá því til fyrirstöðu að hefja viðræður í júní-
mánuði.
LEIÐARBNN Í DAG
Er kalda stríðinu lokið? spyr Alþýðublaðið í leiðara
í dag. Alþýðublaðið spyr þessarar spurningar í
kjölfar ákvörðunar fundar utanríkisráðherra Atl-
antshafsbandalagsins í fyrradag. Alþýðublaðið er
þeirrar skoðunar að NATO hafi með þessari
ákvörðun tekið ákveðið forystuhlutverk í afvopn-
unarmálurn sem áður var í höndum Gorbatsjovs.
Samtímis varar Alþýðublaðið við of mikilli bjart-
sýni, einkum vegna versnandi stöðu Gorbatsjovs
heima fyrir.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4:
ER KALDA STRÍÐINU LOKIÐ?
2
Hjartaknúsari
til Reykjavíkur
Tom Jones, sá frægi popp-
ari kemur til Reykjavíkur eftir
helgi, — hann er með meiri
háttar hjartaknúsurum heims-
ins. Lesið FÓLK á næstu síðu.
Morðmálið Er eitthvað bogið
3 upplýst 4 við íslenska stálið?
Telja má víst að morðmálid í
Reykjavík sé upplýst. Einn
gæsluvarðhaldsfanganna,
annar þeirra sem kærði til
Hæstaréttar, játaði á sig sök í
gær.
ISvo virðist sem stálfram-
leiðsla á íslandi orki tvímælis
— Það er einfaldlega of lítið
framboð af brotamálmumhér
Hollustuuernd og Heilbrigdiseftirlitid deila
JARDVEGSSÝNI
EYÐILÖGÐUST
Eftir að upp komst um
PCB mengun í rafspennum
á athafnasvæði endur-
vinnslufyrirtækisins
Hringrásar við Kletta-
garða í Reykjavík á síðasta
ári, var ákveðið að veita
fyrirtækinu hvorki endan-
legt starfsleyfi né heldur
byggingarleyfi, en fyrir-
tækið hefur sótt um að fá
að byggja á svæðinu. Fyrst
þurfti að taka jarðvegs-
sýni áður en byggingar-
leyfi yrði veitt. Jarðvegs-
sýnin voru tekin á síðasta
ári, en þegar til kom voru
hvorki Hollustuvernd rík-
isins né heldur Heilbrigð-
iseftirlit Reykjavíkurborg-
ar tilbúin að borga fyrir
sýnatökuna né heldur
greininguna á henni. Sýn-
in eru orðin ónýt, fyrir-
tækið bíður eftir leyfi til
að hefjast handa, Hollustu-
verndin og Heilbrigðiseft-
irlitið karpa enn um fram-
kvæmd sýnatökunnar.
Katrín Fjeldsted, formaður
heilbrigðisráðs Reykjavíkur,
segir að Hollustuverndin hafi
tekið sýnin, komið svo til
borgarinnar og heimtað að
hún borgaði. Það hafi ekki
verið hægt að fallast á það.
Fiugieiðir
fá nýja
Boeing-vél
Flugleiðir tóku í gær á möti
annarri Boeing 757 vél sinni.
Það var Vigdís Finnbogadótt-
ir forseti sem gaf vélinni nafn-
ið Fanndis. Vigdisi var boðið
til Seattle að taka móti vélinni
en þar notaði forsetinn einnig
tækifærið að heilsa upp á fé-
laga í íslendingafélaginu þar í
borg.
a.m.k. ekki fyrr en skorið
væri úr því formlega í hvers
verkahring málið væri. Holl-
ustuverndin á ekki peninga
til að framkvæma verkið seg-
ir Birgir Þórðarson. Ef Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur á
að sjá um málið verður það
að vera án afskipta Hollustu-
verndar segir Katrín Fjeld-
sted. Hollustuvernd vill
meina að það sé eðlilegt að
fyrirtækið beri kostnaðinn að
hluta.
Stanslausar bréfaskriftir
hafa farið fram á milli þessara
aðila í allan vetur a.m.k., án
þess að lausn hafi fengist.
Enda er hér um dýrt verk að
ræða, rándýra sýnatöku og
enn dýrari greiningu, sum-
part hérlendis, sumpart er-
lendis. Á meðan bíður fyrir-
tækið eftir byggingarleyfi,
hefur enn ekkert formlegt
starfsleyfi, en starfar sam-
kvæmt óformlegu leyfi.
Starfsleyfið hefur tafist vegna
þessa máls með jarðvegssýn-
in segir Birgir Þórðarson. En
hann segir um leið að í raun
komi starfsleyfið jarðvegs-
sýnunum ekki beint við.
Glötuðu synirnir snúa heim
Mikill fögnuður virtist ríkja hjá þingflokki Sjáfstæðisflokksins þegar glötuðu synirnir, þeir Ingi
Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson, sneru heim til föðurhúsanna. Þeir gengu til liðs við
Borgarflokkinn eftir að faðir Inga Björns, Albert Guðmundsson, sagði skilið við Sjálfstæðisflokk-
inn vegna deilna við formanninn Þorstein Pálsson.
Þeir félagar sem á sinum tíma sögðu sig úr Borgarf lokknum og stof nuðu nýjan flokk, Frjálsly nda
hægrimenn, tilkynntu það siðdegis í gær að þeir væru gengnir i Sjálfstæðisflokkinn. Af myndinni
að dæma eru þeir hæst ánægðir með að vera komnir inn í þingflokk Sjálfstæöisflokksins.
A-mynd: E.ÓI.
Þessir hressu krakkar, voru meöal þeirra fjölmörgu grunnskólanemenda í Reykjavík,
sem tóku þátt í íþróttahátíð grunnskolanna í Reykjavík í gær. A-mynd: E.ÓI.