Alþýðublaðið - 12.05.1990, Síða 5
Laugardagur 12. maí 1990
VIOHORF
5
*
Olína Þorvaröardóttir
Vorhreingerningar
í borgarsfjórn!
Um hvað verður kosið i Reykjavikurborg 26. mai
næstkomandi? spyr Ölina Þorvarðardóttir, efsti
maður á lista Nýs vettvangs, i eftirfarandi grein.
Ólina er þeirrar skoðunar, að meirihluti sjólfstæð*
ismanna i höfuðborginni styðji við brask og spillingu
og nefnir sem dæmi að almennir byggingaverktak-
ar séu sniðgengnir við byggingar i borginni en borg-
aryfirvöld hampi ákveðnum verktakagæðingum.
Ólina vikur ennfremur að félagsmálum og umhverf-
ismálum i grein sinni og telur að þar sé mikið verk
ógert. Ólina er ennfremur þeirrar skoðunar að mið-
bærinn sé að grotna niður i höndum Daviðs og meiri-
hluta sjálfstæðismanna.
Um hvað verður kosið í Reykja-
víkurborg þ. 26. maí nk.? Hvaða
valkostir felast í hinni nýju hreyf-
ingu sem við köllum Nýjan vett-
vang?
I áraraðir hefur þessari borg ver-
ið stjórnað af meirihluta sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík. A þeim tíma
hefur húsnæðisverð í höfuðborg-
inni rokið upp úr öllu valdi og sér-
staklega á síðustu árum. Allir sem
til þekkja vita, að búseturéttar-
íbúðir, kaupleiguíbúðir eða leigu-
íbúðir á vegum borgarinnar eru af
skornum skammti, enda hafa sjálf-
stæðismenn það ekki á sínum
óskalista að úthluta lóðum undir
fjölbýlishús. Og þá sjaldan sem
það er gert að úthluta slíkum lóð-
um hafa borgaryfirvöld sett það
sem skilyrði að ákveðnir verktak-
ar — ákveðnir gæðingar — annist
framkvæmdir. Þetta þýðir að al-
mennir byggingaverktakar eru
látnir sitja hjá við húsbyggingar i
borginni á meðan braskið og spill-
ingin fær að þrífast í skjóli borgar-
yfirvalda.
Er þetta eðlilegt ástandð? Nei.
Lítum síðan á það hvernig borg-
in sinnir sínu eigin leiguhúsnæði.
Hvernig er viðhaldið til dæmis?
Þeir sem búa í bæjaríbúðum borg-
arinnar geta sjálfir sagt til um það.
Hvernig eiga börnin að læra að
bera virðingu fyrir umhverfi sínu
þegar þeim er boðið upp á það að
alast upp í lélegum húsakynnum
sem yfirvöld hirða ekki um að við-
halda? Eg bara spyr,
En á meöan borgaryfirvöld sýna
slíkt skeytingarleysi í húsnæðis-
málum rýkur fasteignaverð upp úr
öllu valdi og leiguverð á frjálsum
markaði sömuleiðis.
Hvar eiga börnin______________
að vera?
- —.. ■■ ......
A sama tíma og fólki í Reykjavík
bjóðast mjög takmarkaðir kostir í
húsnæðismálum — e!ru velflestir
vinnandi Reykvíkingar á hrakhól-
um með börnin sín. Börn sem eiga
engan samastað fram að þriggja
ára aldri, og alls ekki eftir að
skólagangan hefst. Skóladagur
barna er um það bil fjórir klukku-
tímar á dag — hvar eiga börnin að
vera aðra tíma dagsins? Á biðlist-
um borgarinnar eða á götunni?
Það er ekki nóg með að Reykja-
vík sé full af litlum lyklabörnum
sem enginn getur hugsað um, hún
er líka full af umhirðulausum ungl-
ingum.
Á sama tíma er vímuefnanotk-
un unglinga orðin alvarlegt
áhyggjuefni, og ofbeldi þeirra á
meðal færist stöðugt í vöxt — aðal-
lega á höfuðborgarsvæðinu.
Goðsögn um stjórnvisku
Eitt dæmið um stjórnvisku
íhaldsins er Fæðingarheimilið í
Reykjavík. Nú hefur verið þrengt
þannig að starfsemi fæðingar-
heimilisins að hjúkrunarforstjóri
þess hefur lagt til, að heimilið
verði lagt niður — þar sem ekki sé
forsvaranlegt að viðhalda þar
lengur starfseminni. í fyrstu tóku
sjálfstæðismenn sig til og leigöu
aðra hæð Fæðingarheimilisins ell-
efu sérfræðingum undir rándýra
sérfræðiþjónustu með þeim afleið-
ingum að fæðingarþjónustunni
allri var þjappað saman á eina
hæð hússins. Síðan sá borgin sig
um hönd og leigði hluta húsnæðis-
ins aftur af sérfræðingunum til
þess að klóra yfir mistökin. Þar
með bættust við sjö rúm sem úti-
lokað er aö nota. Vegna þess að
þeim fylgir engin hreinlætisað-
staða, ekki einu sinni salernisað-
staða, þeim fylgir engin aðstaða til
þess að matast og alls ekki aðstaða
fyrir vaktfólk hvað þá ungbarna-
herbergi. Sængurkonurnar áttu
bara að liggja umhirðulausar, og
barnlausar á neðri hæð hússins,
án þess að komast á klósett eða
geta þvegið sér, hvað þá að þær
ættu aðgang að starfsfólki heimil-
isins.
Meðferð þessa máls frá upphafi
til enda er hreint hneyksli! Fæð-
ingarþjónusta við konur er sjálf-
sagt réttlætismál fyrir allar reyk-
vískar fjölskyldur, ekki síst í Ijósi
þess að Landspítalinn annar eng-
an veginn öllum þeim sængurkon-
um sem þangað leita og starfsfólk-
ið þar er orðið verulega uggandi
um öryggi og heilsu barna og
kvenna.
Við á Nýjum vettvangi krefjumst
þess fyrir hönd kvenna að hér rísi
nýtt Fæðingarheimili — búið nú-
tíma tækjabúnaði í rúmgóðu hús-
næði þar sem konur geta sjálfar
valið sér fæðingarmeðferð! Það er
grunnskylda sveitarfélagsins að
búa sómasamlega að ungviði sínu
strax við fæðingu og fylgja því síð-
an eftir út í lífið.
Moröið á midbænum
En það er ekki bara að Reykja-
víkurborg hafi algjörlega vanrækt
það hlutverk að sinna sjálfsagðri
þjónustu við borgarbúa. þjónustu
sem allt nútímafólk á eðlilega
kröfu til — heldur hefur markvisst
verið unnið að því að eyðileggja
og brjóta niður þær minjar sem
Reykvíkingar eiga um uppruna
þessa byggðarlags. Ég er að tala
um gamla miðbæinn í Reykjavík.
Davíð Oddsson er búinn að drepa
miðbæinn í Reykjavík. M.a. með
því að færa alla verslun og þjón-
Ólína Þorvardardóttir
ustu í nýja miðbæinn með þeim af-
leiðingum að miðbæjarkjarninn
er að veslast upp!
Ég er ekki að segja að það eigi
ekki að efla þjónustu og verslunar-
miðstöðvar annars staðar í borg-
inni — það er sjálfsagt að sinna
hverfum borgarinnar hvað það
varðar. En hamagangurinn hefur
verið slíkur að miðbærinn er
dæmdur til þess að grotna niður.
Meðal annars vegna þess, að þar
var byggt steinsteypuskrímsli ofan
í Reykjavíkurtjörn. Skrímsli sem
er í hrópandi andstöðu við allt
nánasta umhverfi, og þýðir þaö,
að borgin verður að eyða hundr-
uð milljónum króna í það að
kaupa upp aðrar húseignir í ná-
grenni ráðhússins til þess að
mölva þær niður! Er þetta stjórn-
viska — eru menn yfir höfuð að
hugsa?
Menn sem eiga atvinnu og versl-
unarhúsnæöi í miðborginni
standa frammi fyrir gjaldþroti,
vegna flumbrugangsins og óráðsí-
unnar í sambandi við skipulag
miðbæjarins. Þetta fólk situr uppi
með verðlausar eignir sem það
getur hvorki leigt né selt. Gangið
bara um Austurvöll og Austur-
stræti og lítið upp í tóma glugg-
ana, gangið niður Laugaveg. Hvað
blasir við? Tómar gluggatóftir á
öðru hverj horni.
Borgarbúar fjáwwagna
finheitin_______________
Fagrar skrauthallir og
glitrandi íburður eru mál sem
mega bíða. Borg sem ekki sér
sóma sinn í því að búa þokkalega
að þegnum sínum, ekki einu sinni
þeim sem helst eru hjálpar þurfi,
stendur ékki undir nafni sem höf-
uðborg. Borg sem ekki þykist hafa
efni á því að borga starfsmönnum
sínum laun tii jafns við önnur
sveitarfélög hefur ekki efni á að
kasta þremur milljörðum í mont-
verkefni.
Hér hefur auk þess verið kastað
hundruðum milljóna í að kaupa
eignir í borginni til þess aö bjarga
gæðingunum, eitt dæmið er
Glymur í Breiðholti — hús sem
engan veginn nýtist sem skyldi.
Annað dæmi er Oskjuhlíðin — fal-
legt hús — en átti borgin að byggja
það? Hvar eru nú hróp og köll
sjálfstæðismanna um einkavæð-
ingu og einkarekstur? Þessir menn
hika ekki við að tala um frelsi,
samkeppni og einkavæðingu en
þegar til á að taka er hlaupið í
sameiginlega sjóði borgarbúa til
þess að fjármagna fínheitin.
Reykvilcingar kosta
kosningabaráttu Daviðs
Sama gildir um kosningabaráttu
sjálfstæðismanna fyrir þessar
kosningar. Nú streyma út úr prent-
vélum áróðursbæklingar íhaldsins
kostaðir af borgarsjóði. Blár bækl-
ingur frá félagsmálastofnun með
kærri kveðju frá borgarstjóra var
sendur í hvert einasta hús um dag-
inn — og nú er verið að dreifa öðr-
um eins um miðbæinn i Reykjavík.
Eiga Reykvíkingar að kosta kosn-
ingabaráttu sjálfstæðismanna?
Gerir Davíð Oddsson engan grein-
armun á sjálfum sér sem embætt-
ismanni og frambjóðanda?
Nei, hann gerir ekki greinarmun
á því. Hann notar sitt embætti, og
fréttatíma fjölmiölanna til þess að
ausa út úr sér óhróðrinum um höf-
uöandstæðing sjálfstæðismanna,
Nýjan vettvang, þegar hann er
spuröur sem embættismaöur um
álit á ummælum eins af ráðherr-
um í ríkisstjórn. Það er tími til
kominn sð borgarstjórinn í Reykja-
vík geri sér grein fyrir því að hann
hefur skyldum að gegna viö alla
borgarbúa en ekki bara sjálfstæð-
ismenn. Önnur eins vinnubrögð
munu aldrei líðast í Nýjum vett-
vangi.
Opnum gluggana!
Þaö er ekki að ástæðulausu sem
sjálfstæðismönnum er órótt þegar
skapast hefur Nýr vettvangur fyrir
hugsandi fólk sem er orðið þreytt
á að fylgjast með einræðistilburð-
um núverandi borgarstjóra. Sjálf-
stæðismenn eru skelkaðir við
þetta nýja afl sem krefst nýrrar
áherslu í málum borgarinnar —
við ætlum að opna gluggana á
stjórnarkerfinu og lofta út. Við
ætlum að gera vorhreingerningu í
borgarstjórn. Draga frá gluggum
og taka til í skúmaskotum.
Skoðanakannanir hafa leitt í
Ijós, að Nýr vettvangur er eina
raunhæfa mótvægið við ofurveldi'
Sjálfstæðisflokksins — enda eina
lýðræðislega hreyfingin í Reykja-i
vík. Við vorum eina stjórnmálaafl-
ið sem hélt opið prófkjör og gaf
Reykvíkingum öllum kost á því að
raða upp sínum eiginn lista. H-list-
inn er valinn af fólki úr öllum
flokkum, hann er listi fólksins og
Hitt framboðið í vor!
ÞAÐ ER EKKI UM NEMA
TVENNT AÐ VEUA: BIÐLISTA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS EÐA
H-LISTA NÝS VETTVANGS! H-
LISTINN ER OKKAR KOSTUR. -
ÞAÐ VERÐUR HALDIN HÁTÍÐ í
REYKJAVÍK í VOR!
„Davið Oddsson er búinn aö drepa miðbæinn í Reykjavik ... Menn sem
eiga atvinnu- og verslunarhúsnæði í miðborginni standa frammi fyrir
gjaldþroti vegna óráðsíu i skipulagsmálum. Þetta fólk situr uppi með verð-
lausar eignir sem þaö getur hvorki leigt né selt," segir Ólína Þorvarðardótt-
ir m.a. í grein sinni.