Alþýðublaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 1
MÐVBLMÐ
76. TOLUBLAÐ 71. ARGANGUR
MIÐVIKUDAGUR
23. MAÍ 1990
ÖRLYGUR FORSETI: A
þingi Slysavarnarfélags ís-
lands um síðustu helgi var
Örlygur Hálfdánarson
bókaútgefandi kjörinn for-
seti félagsins í stað Harald-
ar Henryssonar sem ekki
gaf kost á sér til endurkjörs.
Samkvæmt kvöldfréttum
Ríkisútvarpsins í gær eru
nú viðræður í gangi um
samruna Slysavarnarfé-
lagsins, Hjálparsveita skáta
og Flugbjörgunarsveit-
anna. Nýkjörinn forseti sagði að ef til sameiningar ætti að
koma þá yrði það í sambandi við lagasetningu.
HRINGROT: Kartöflusjúkdómurinn Hringrot hefur fund-
ist hjá tveimur kartöflubændum í Grýtubakkahreppi Suð-
ur-Þingeyjarsýslu og hjá einum bónda i Öngulstaðahreppi
í Eyjafirði. Svo virðist sem útbreiðsla hringrots hér á landi
tengist mjög hollenska kartöfluafbrigðinu Premiere sem
flutt var inn fyrst árið 1981 og flest ár síðan. Útsæðisnefnd
vinnur að því að kveða sjúkdóminn niður.
URRIÐI ! Verið er að ganga frá samningum við laxeldis-
stöðina Smára í Þoriákshöfn um kaup á urriða til að setja
í Hvaleyrarvatn, að því er Hafnfirska fréttablaðið greinir
frá. Hafnfirðingum verður leyft að veiða endurgjaldslaust
í vatninu í sumar og er verið að ganga frá aðstöðu fyrir þá
við vatnið.
HAFSKIPSMALIÐ: Málflutningi í Hafskipsmálinu lýkur
í dag. Samkvæmt kvöldfréttum Ríkisútvarps er dóms und-
irréttar í málinu að vænta í lok næsta mánaðar.
KORPULFSSTAÐIR: Samband íslenskra myndlistar-
manna lýsir yfir fullum stuðningi sínum við Myndhöggv-
arafélagið í Reykjavík í baráttu þess fyrir öruggu framtíðar-
húsnæði og væntir þess að Reykjavíkurborg tryggi félag-
inu áframhaldandi veru að Korpúlfsstöðum. Eftir tveggja
áratuga starfsemi að Korpúlfsstöðum er staða félagsins
mjög svo í óvissu vegna fyrirhugaðrar menningarmið-
stöðvar og Errósafns. Þetta var samþykkt á aðalfundi sam-
bandsins á dögunum. Þór Vigfússon var endurkjörinn for-
maður þess.
EGILSSTAÐIR Staða skólameistara við Menntaskólann
á Egilsstöðum hefur verið auglýst laus til umsóknar. Það er
hinn góðkunni garpur Vilhjálmur Einarsson sem hefur
gengt stöðu skólameistara þar eystra, en væntanlegur arf-
taki hefur frest til 1. júní að sækja um stöðuna.
HLAUPA Á KOSN-
INGADAGINN: Hundr-
uð 10—13 ára krakka munu
hlaupa sem mest þau mega
á kosningadaginn. Þá fer
fram árlegt Landsbanka-
hlaup, sem bankinn og
Frjálsíþróttasambandið
standa fyrir. Sautján þúsund börn á áðurnefndum aldri
hafa fengið boðsbréf. Ljóst er að nú stefnir í metþátttöku.
Þátttakendur fá heiðurspeninga, viöurkenningarskjal og
skyrtubol að launum — auk þess sem boðiö verður upp á
eina allsherjar grillveislu í Laugardalnum. Annars er
hlaupið á öllum þeim 27 stööum úti á landi þar sem Lands-
banka er að finna. Keppnin hefst kl. 11 í Laugardal.
LEIÐARINN Í DAG
Alþýðublaðið fjallar í leiðara í dag um foringja-
dýrkun sjálfstæðismanna á Davíð Oddssyni
borgarstjóra. Alþýðublaðið er þeirrar skoðunar
að sjálfstæðismenn hafi náð sterkum undirtök-
um í Reykjavík með aðstoð hinna sterku fjöl-
miðla hægrimanna sem taka þátt í foringja-
dýrkuninni í stað málefnalegrar umfjöllunar.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: FORINGJADÝRKUN
EÐA MÁLEFNI
Geir í nærmynd
Prófessorinn sem fór út í at-
vinnulífið er í Nærmynd blaðs-
ins i dag. Sá sem hér um ræðir
er Geir Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri Marels, en það
fyrirtæki hlaut Útflutnings-
verölaun forseta íslands á dög-
unum.
5
Fram, fram fylking
Er hvatningargrein frá Guð-
laugi Gauta Jónssyni. Hann
fagnar framboði Nýs vett-
vangs frumkvæði Alþýðu-
flokksins um að mynda sterkt
afl jafnaðarmanna i Reykjavík.
Tvö flugfélög eða
bara eitt
IMikið hefur verið rætt og ritað
um erfiðleika Arnarflugs að
undanförnu. En hvað segir
rödd almennings þegar spurt
er hvort hér eigi að vera tvö
millilandaflugfélög eða hvort
okkur nægi að hafa eitt?
Þingeyingar huga ad nýjum búgreinum:
Krókódílaeldi
i Mývatnssveif?
Mývetningar íhuga að
koma upp krókódílabúi í
sveitinni og hafa viðað
að sér upplýsingum um
sitt hvað er viðkemur
eldi krókódíla. Slíkt bú
með um 20 dýrum gæti
orðið aðdráttaraf! fyrir
innlenda og erlenda
ferðamenn auk þess sem
kjöt af kródílum þykir
afbragðsgott til matar og
verðmæti fást úr skinn-
inu.
Ásgeir Leifsson iðnráð-
gjafi lðnþróunarfélags
Þingeyinga á Húsavík sagði
í samtali við Alþýðublaðið
aö upphaf krókódílamáls-
ins mætti rekja til Breta
sem hefði starfað á Haf-
rannsóknarstofnuninni fyr-
ir einu ári eða svo. Sá breski
hafði aflað sér ýmissa upp-
lýsinga um krókódílabú i
Tælandi og víöar. Meöal
annars aö þetta væru mjög
nýtin dýr sem mætti fóðra á
fiski og fiskúrgangi. Kjötið
af þeim þætti mjög Ijúf-
fengt og ekki ósvipað kjúk-
lingakjöti. Úr skinninu
væru framleiddar töskur og
veski ásamt skóm og þetta
selt dýrum dómum.
Mývetningar eru menn
athugulir og fróðleiksfúsir.
Einn þeirra fékk áhuga á að
fá nánari vitneskjuummálið
og bað Asgeir að afla henn-
ar hjá Bretanum sem fyrr
var nefndur. Gerði Ásgeir
það og sá breski samdi rit-
gerö um krókódíla og
krókódílabú sem Ásgeir lét
síðan Mývetninginn hafa.
Aö sögn Ásgeirs hefur
ekki verið leitað eftir frek-
ari milligöngu Iðnþróunar-
félagsins vegna þessa máls
enn sem komið er.
Krókódílar þrífast í hlýju
umhverfi og ætti að vera
auðvelt að koma því við í
Mývatnssveit því nægur er
jarðhitinn þar. Næsta skref-
ið er væntanlega að kanna
hvort hægt er að fá krókó-
dílaegg frá Tælandi eða til
dæmis Florida, en þar er
talsverð ræktun stunduð á
krókódílum. Vaxtarhraði
dýranna mun ekki vera
hraður og því líður all lang-
ur tími þar til hægt verður
að nýta kjöt og skinn af full-
vöxnum dýrum. Sem fyrr
segir má hins vegar búast
við að marga fýsi að skoða
þessar skepnur. Má þá hafa
upp í kostnað með sölu að-
gangs meðan beðið er eftir
að kródílarnir nái slátur-
stærð.
Gangi dæmið upp hjá
Mývetningum kann svo að
fara að þess verði ekki
mjög langt að bíða að hægt
verði að snæða kródílakjöt
á veitingahúsum í Mývatns-
sveit og kaupa svo skó úr
skinni máltíðarinnar en
reikna má með að skórnir
kosti tugi þúsunda króna.
Fulltruar ibúa i Mosfellsbæ mótmæla þvi að sorp af höfuöborgarsvæðinu verði urðað í Alfsneslandi. Skora þeir á Jóhönnu Siguröar
dottur félagsmálaráðherra að samþykkja ekki aðalskipulagið. Myndin var tekin í gær, þegar undirskriftalistar íbúanna voru
afhentir ráðherra.
Oegn sorpi i Áiisnesiandi
íbúar í Mosfellsbæ hafa haf-
ið undirskriftasöfnun þar sem
þeir hvetja Jóhönnu Sigurð-
ardóttur félagsmálaráðherra
til að samþykkja ekki aðal-
skipulag það sem Skipulags-
stjórn ríkisins hefur nýlega
samþykkt. Þeir telja að í
þessu aðalskipulagi sé endan-
lega staðfest að Álfsnesland í
Kjalarneshreppi verði notað
til sorpurðunar og það vilja
þeir sem standa fyrir undir-
skriftasöfnuninni ekki sjá.
Þeir telja óverjandi að Kjalar-
neshreppur geti úthlutað
landi til sorpurðunar við bæj-
ardyr þeirra í Mosfellsbæ.
Þessir sömu aðilar átelja bæj-
aryfirvöld í Mosfellsbæ fyrir
að hafa ekki haldið vöku
sinni í þessu máli og því hafi
verið gripið til þess ráðs að
safna undirskriftum-