Alþýðublaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 8
MMWBIIIIIB Miðvikudagur 23. maí 1990 RITSTJÓRN 681866 - 83320 FAX 82019 • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • JERUSALEM — Til blóðugra átaka kom milli israelskra herdeilda og Palestínumanna þriðja daginn í röö. Að minnsta kosti tuttugu Palestínumenn og einn ísraelsmaöur hafa fallið og hátt í 800 arabar særst í átðkunum. Mehdi Karrubi, talsmaður íranska þingsins hvatti í gær múslam- skar þjóðir til að hefja aðgeröir gegn hagsmunum ísraels- manna á alþjóðavettvangi. BRUSSEL — Tom King, varnarmálaráöherra Bretlands, sagði hættu á að ekki yrði af samningum risaveldanna um fækkun hefðbundins herafla í Kvrópu vegna tregöu Sovét- manna. Þetta kom fram á fundi varnarmálaráöherra NATO- ríkjanna í Brussel í gær. Sovétmenn eru sagðir hikandi vegna hræöslu viö hernaöarmátt sameinaös Þýskalands. BRUSSEL — Atlantshafsbandalagið lýsti því yfir í gær að Varsjárbandalagiö sé ekki lengur ógn við ríki Vest- ur-Evrópu. Þar meö hefur bandalagið fallið frá stefnu sinni til langs tíma. GENF — Utanríkisráð- herrar Sovétríkjanna og Vestur-Þýskalands koma til funda í Genf í dag til að ræða framtíö Þýskalands. Sameining þýsku ríkjanna veröur megin umræöuefni ráðherranna á fundinum sem stendur aðeins einn dag. SRINAGAR — Indland. Þúsundir manna söfnuðust sam- an í borginni Srinagar i Kasntírhéraði til aö mótmæla morðum 47 manna. Fjöldamorðin áttu sér stað þegar ör- yggissveitir skutu á hóp syrgjenda. Indversk yfirvöld eru sögð búa sig undir frekari átök. KOHTLA-JARVE — Sovétríkin. Kússneskir verkamenn frá iðnaöarhéruðum Eistlands slógust i hóp verkfalls- manna sem vilja þrýsta á Mikhail Gorbatsjov, forseta Sov- étríkjanna, um að hann hindri framgang sjálfstæðis eist- nesku ríkjanna. JÓHANNESARBORG — Suður-Afrísk stjórnvöld hótuðu aö beita valdi gegn vopnuðum öfgasamtökum hvítra. Meðlimir samtak- anna hafa sumir hverjir hótað að efna til kynþátta- stríðs eftir óeirðirnar í námabænum Welkom síö- ustu daga. VARSJA — Aukin harka hljóp í verkfall pólskra járn- brautaverkamanna þegar þeir lokuðu fyrir flutninga að helstu höfnum landsins, þrátt fyrir aðvaranir stjórnvalda og óskir verkalýðsfélagsins Samstööu um að gripa ekki til aögeröa. PARIS — Frakkland hefur oröið fyrir valinu sem fund- arstaður fyrir ráðstefnu 85 vestrænna ríkja um varnir og samstarf evrópskra þjóða, CEŒ. Ekki hefur verið hægt að tímasetja fundinn þar sem samkomu- lag um fækkun heföbund- ins herafla liggur ekki fyrir. Vonir standa þó til að fund- urinn geti farið fram fyrir lok þessa árs. M0NG0LIA — Fyrsti stjórnarandstöðuflokkurinn i Mongólíu var formlega skráður í gær. Tvær vikur eru liön- ar síðan lög sem kveða á um fjölflokkakerfi í landinu tóku gildi. B0G0TA — Virgilio Barcg, forseti Kólumbiu, hvatti þjóð- ina, sem telur 30 milljón manns til aö mynda ósigrandi her, til aö sporna fótum við þeirri bylgju ofbeldis sem riðið hef- ur yfir þjóðina að undanförnu. L0ND0N — Lýbíumenn og Sýrlendingar eru að semja við Kínverja um kaup á langdrægum flaugum og þeir fyrr- nefndu munu fást við hönnun áþekkra vopna, er haft eftir israelskum leyniþjónustumanni í viðtali við breskt tímarit. ERLENDAR FRÉTT1R Umsjón: Laufey E. Löve Sjálfstæðisyfírlýsing ekki dregin tíl baka (MOSKVA, Reuter) Lithá- íska þingið hefur hafnað hugmyndum um að fresta gildistöku sjálfstæðisyfir- lýsingar landsins frá 11 mars síðastliðnum til að friða stjórnvöld ■ Kreml. Þetta var haft eftir tals- manni ríkisstjórnarinnar í Vilnius í gær. Hann lýsti því þó jafnframt yfir að þingið myndi koma saman til að ræða leiðir til að leysa þann hnút sem kom- inn er á samskipti Sovét- manna og Litháa. Fjeimildir Reuters segja mikla andstööu innan þings- ins viö kröfum Sovétmanna um að sjálfstæðisyfirlýsingin veröi dregin til baka og einn- ig viö hugmyndir um að fresta gildistöku hennar. ,,Þó mætti ef til vill finna ein- hverja þingmenn sem væru hlynntir því að fresta gildis- töku sjálfstæöisyfirlýsingar- innar þar til samið hefur ver- ið viö Sovétmenn," að sögn heimildarmanns Reuters. Sovéska fréttastofan Tass skýröi frá þvi á mánudags- nótt aö drög lægju fyrir samþykki litháíska þingsins um að það hygðist falla frá sjálfstæöisyfirlýsingunni. Komið hefur á daginn að heimildir Tass fréttastofunnar voru ekki ekki á rökum reist- ar. Búist var við formlegri yfir- lýsingu Vytautas Landsberg- is, forseta Litháen í gær um hvernig stjórnvöld hygðust taka á málum. Stjórnvöld í Litháen leita nú allra leiöa til að fá Sovétmenn til aö setjast Mid-Austurlönd: Stríð i uppsiglingu? (KAÍRÓ, Reuter) Hosni Mu- barak, forseti Egypta- lands, sagði í gær að ef ekki myndi draga úr að- streymi sovéskra gyðinga til ísrael gæti það bundið enda á allar friðarumleit- anir og orðið kveikjan að nýju stríði í Mið-Austur- iöndum. Mubarak lét þessi orð falla á fundi með öllum helstu leiðtogum sósíal- iskra ríkja í Kaíró. Mubarak, leiðtogi Þjóðern- islega Lýöræöisflokksins sem nú situr viö völd i Egypta- landi hvatti til aðgerða gegn þeirri ógn sem stafaði af að- streymi sovéskra gyðinga á herteknu svæðin. Yfirlýsing forsetans kemur í kjölfar blóöugra uppreisna á Vesturbakkanum og Gasá- svæðinu síðustu daga. Talið er að að minnsta kosti tutt- ugu manns hafi falliö í átök- unurn síöan á sunnudag. Hafa hersveitir ísraelsmanna þegar myrt 11 Palestínu- menn. Atökin hófust á sunnudag þegar Israelsmaður varð sjö Palestínumönnum að bana. Gífurleg reiði hefur ríkt með- al araba vegna fjöldamorð- anna ekki aöeins meðal íbúa herteknu svæðanna heldur einnig i ísrael og Jórdaníu. Mjög er tekiö aö þrengja aö Litháum og hafa stjórnvöld nú tilkynnt að skammta veröi vatn til heimilisnota. að samningaborði, en ástand ana Sovétmanna. Litháísk vegna eldsneytisskorts. Lit- í Litháen er víða orðið mjög stjórnvöld neyddust í gær til háum hefur engin aðstöð slæmt vegna efnahagsþving- að tilkynna skömmtun vatns borist frá Vesturlöndum. Sameining Noröur og Suöur Yemen Nýtt öflugt arabaríki (ADEN, Reuter) Ríki Suður- og Norður-Yemen samein- uðust formlega í gær. Það var Ali Abdallah Saleh ný- kjörinn forseti lýðveldis- ins Yemen sem lýsti yfir stofnun ríkisins við hátíð- iega athöfn í gær og dró að því búnu fána sameinaðs Yemen að húni eftir 300 ára aðskiinað ríkjanna. Sameining Suöur- og Norð- ur-Yemen getur af sér öflugt arabaríki á stærð við Frakk- land og verða íbúar þess hátt í 13 milljónir. Ríkin tvö voru fyrir samein- inguna afskaplega ólík í efna- hagslegu og pólitísku tilliti. Norður Yemen var hollt undir Vesturlönd meðan Suður Ye- men var sósíalískt riki stutt af stjórnvöldum í Sovétrikjun- um. Auk þessa höfðu ríkin tvö lengi eldað saman grátt silfur og áttu i stuttu striði ár- ið 1972. Sameining ríkjanna hefur haft stuttan aödraganda og það var ekki fyrr en í nóv- ember á síðasta ári að ríkin tvöstaðfestu sameiningu ríkj- anna. Aðdragandi að samein- ingunni er að miklu leyti ra- kinn til þess að sósíalísk stjórnvöld í Suður Yemen, hófu sina eigin útgáfu af pere- stroiku Sovétmanna á síðasta ári. Afleiðingin var aukin þíða í samskiptum ríkjanna sem leiddi til sameiningar- innar nú. Fyrsta embættisverk ný kjörins forseta landsins var að draga nýjan rauðan, hvit- an og svartan fána að húni. Akveðiö hefur verið að Aden, fyrrum höfuðborg Suður Ye- men verði höfuðborg við- skiptalífs hins sameinaða Ye- men en Sanaa í norðurhluta landsins veröi höfuðborg Frönsk stjórnvöld hafa fagnaö sameiningu Noröur og Suður Yemen. stjórnsýslunnar. Frönsk stjórnvöld hafa fagnað sameiningu ríkjanna og segjast vona að þau góðu samskipti sem Frakkar hafa átt við rikin tvö muni haldast einnig eftir að þau sameinist. Sovétríkin: Markaðskerfí litur brátt dagsins Ijós (MOSKVA, Reuter) Rád- gjafanefnd Mikhail Gor- batsjovs, forseta Sovétríkj- anna, samþykkti í gær til- lögur að breytingum í átt til markaðskerfis, var haft eftir talsmanni sovéska ut- anríkisráðuneytisins. Þá hefur Forjsetaráð Sovét- ríkjanna einnig fallist á þessar tillögur. Lokaskrefið verður síðan aö fá endanlegt samþykki sovéska þingsins fyrir þess- um róttæku breytingum en sem kunnugt er hefur mið- stýrt efnahagskerfi verið við lýöi í Sovétríkjunum síðan kommúnistar komust til valda. Til greina kemur aö sögn útvarpsins í Moskvu að tvö- falda verð á matvælum með- an á aðlögun að hinu nýja efnahagskerfi stendur. Til- gangurinn með því er að tryggja að verö á vörum standi undir kostnaði við framleiöslu. Stjórnvöld hafa hins vegar lýst því yfir að þau muni leita leiða til að koma í veg fyrir að breytingarnar komi illa niður á sovéskum þegnum. í þessu skyni ráðgera stjórnvöld að taka upp aðgerðir til að tryggja félagslega velferö þegna og lífsafkomu þeirra. Sovéskir þegnar hafa veriö Sovésk stjórnvöld ráðgera aö tvófalda verö á matvælum, en almenningur er sagður ugg- andi um lífskjör sín. mjög uggandi að undanförnu um að breytingar til markaðs- kerfis muni leiða til versnandi lífskjara almennings.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.