Alþýðublaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 23. maí 1990 INNLENDAR FRÉTTIR Fólk Framsýnn vinnuheslur og góður skipuleggjandi Útflutningsverðlaun Forseta Islands féllu i skaut iðnfyrirtækisins Marels, er þau voru veitt öðru sinni nú fyrir skemmstu. Þessi verðlaunaveiting var ekki að tilefnislausu, þvi ó sex ára timabili hefur útflutningur þessa fyrirtækis hundraðfaldast að raun- verðmæti. Fyrirtækið telst lika vera leiðandi á heimsmarkaði i framleiðslu á hugbúnaði og tækjum sem auka hagkvæmni i fiskvinnslu, hvort heldur sem er á sjó eða landi. Maðurinn sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd fyr- irtækisins er Geir A. Gunnlaugsson sem verið hefur framkvæmdastjóri þess frá árinu 1987. Geir Arnar Gunnlaugsson verður 47 ára í sumar. Hann er fæddur 30. júlí 1947 að Ási við Hafnarfjörð, sonur Gunn- laugs Guðmundssonar toll- varðar í Hafnarfirði og Sigur- rósar Oddgeirsdóttur póstaf- greiðslumanns. Geir lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá Háskóla Islands 1906 en hélt síðan til Danmerkur í fram- haldsnám. Þaðan lauk hann M.Sc-prófi í vélaverkfræði 1970. Geir lét þetta þó ekki nægja heldur fór nú til Bandaríkjanna þar sem hann lauk doktorsprófi í hagnýtri aflfræði 1973. Prófessorinn sem fór út i atvinnulifið_________ Að námi loknu hóf Geir kennslu við Háskóla íslands. Hann var skipaður dósent 1974 og prófessor árið eftir. Prófessorsstöðunni hélt Geir fram til ársloka 1986 en hafði þá raunar verið í leyfi frá Há- skólanum á þriðja ár meðan hann gegndi framkvæmda- stjórastöðu Kísilmálmverk- smiðjunnar á Reyðarfirði, sem reyndar var aldrei byggð. Síðustu þrjú árin hefur Geir verið framkvæmdastjóri Marels hf. Þetta er í sem stystu máli náms- og starfsferill Geirs A. Gunnlaugssonar, en hér með er þó alls ekki allt upp talið. Geir hefur nefnilega jafn- framt þessu gegnt marghátt- uðum trúnaðarstörfum. M.a. var hann gjaldkeri Alþýðu- flokksins í heil fimm ár. Það er ekki vinsælt starf og mun enginn annar hafa haldið það svo lengi út síöan Guðmund- ur I. Guðmundsson var gjald- keri fyrir allnokkrum áratug- um. Fjölmörg aukasförf Samhliöa framkvæmda- stjórastarfinu hjá Marel situr Geir í álviðræðunefnd og er auk þess stjórnarformaöur í þrem fyrirtækjum. Þetta eru Pólstækni á ísafirði sem að hluta er í eigu Marels, hug- búnaðarfyrirtækið Kögun sem mun taka að sér að sjá um viðhald hugbúnaðar í nýju ratsjárstöðvunum og loks Markaðsskrifstofa iðnað- arráðuneytisins og Lands- virkjunar. Geir var á sínum tíma stjórnarformaður Blaös hf., útgáfufyrirtækis Alþýöu- blaðsins. Hann átti einnig um tíma sæti í sáttanefnd í kjara- deilum á almennum vinnu- markaöi. Geir Gunnlaugsson er sagður vinnusamur og sam- viskusamur af þeim sem til þekkja. Störf hans fyrir álvið- ræðunefnd sem vissulega geta veriö tímafrek á köflum eru alls ekki sögð koma niður á störfum hans í Marel. Þvert á móti segja menn aö mörg kvöld sitji Geir á skrifstofu sinni viö vinnu lengi frameft- ir. Framsýnn skipuleggjandi Þórólfur Árnason verk- fræðingur er markaðs- og framleiöslustjóri hjá Marel. Hann telur skipulagshæfi- leika og framsýni sterkustu hliðar Geirs. ,,Það er stund- um sagt að sumir geri hlutina rétt en aðrir geri réttu hlut- ina. Geir gerir réttu hlutina og leggur mikla áherslu á að sjá nokkra leiki fram í tím- ann." Geir kom inn í fyrirtækiö nokkru fyrir mitt ár 1987 á talsverðum umrótstímum í sögu fyrirtækisins. Fram aö þessum tíma hafði Marel vax- ið gífurlega hratt og Þórólfur er þeirrar skoðunar að segja megi að fyrirtækið hafi veriö ofreist. Hann nefnir sem dæmi að væntingar manna til Noregsmarkaðar hafi ver- iö of miklar. Þórólfur segir að Geir hafi farist mjög skyn- samlega viö aö greiða úr þeim vandamálum sem var við aö glíma þegar hann kom inn í fyrirtækiö. Kynni Þórólfs af Geir hófust reyndar ekki innan veggja Marels, því Þórólfur var nem- andi Geirs í verkfræðideild Háskólans. Hann ber Geir vel söguna og segir að hann hafi reyndar verið litill ítroðslu- maður en hafi í staðinn leitaö eftir frumkvæði nemenda sjálfra. Drjúgur liðsmaður i álviðræðunetfnd Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri og formaöur ál- viöræðunefndarinnar segir um Geir að hann sé einn þeirra háskólamanna sem hafi tekist afar vel að beita akademískri þekkingu við raunverulegar aðstæður. „Geir hefur líka aflað sér mik- illar reynslu varðandi orku- frekan iðnað með starfi sínu hjá Kísilmálmfélaginu. Hann kom því með góða og nýlega reynslu inn i álviöræðunefnd- ina og hefur reynst drjúgur liðsmaður," segir Jóhannes Nordal. Á til að Itomq otf seintf Garðar lngvarsson á Mark- aðsskrifstofu iðnaðarráðu- neytisins og Landsvirkjunar kynntist Geir skömmu áöur en hann varð framkvæmda- stjóri Kísilmálmvinnslunnar. Á þessum tíma var Garðar ráðgjafi stóriðjunefndar. Síð- an hafa þeir átt töluvert sam- starf og sem stjórnarformaö- ur markaðsskrifstofunnar er Geir nánast yfirmaöur Garð- ars. Garðar segir að Geir sé sí- vinnandi og nefnir sem dæmi að þeir tali saman í sima nán- ast á öllum tímum sólar- hrings. „Vegna þess hve hann er önnum kafinn þá á hann það til að koma of seint," seg- ir Garðar. Hann segir Geir setja sig afar vel inn í þau mál sem liann þurfi að fást við. Garðar segir ennfremur að Geir sé býsna staðfastur í skoöunum og fylginn sér en hafi þó gott lag á sanininga- tækni og sé almennt afar dag- farsprúöur. Tók á hlutunum og náði árangri_____________ í sama streng tekur Jóhann Bergþórsson, framkvæmda- stjóri Hagvirkis, sem raunar hefur þekkt Geir lengst þeirra manna sem við höfð- um tal af. Þeir voru bekkjar- bræöur í skóla og voru á sama tíma í verkfræöideild og í framhaldsnámi í Dan- mörku. Nú er Jóhann stjórn- arformaöur Marels. Hann segir Geir hafa veriö afburða námsmann og telur hann nú hafa náð góðum árangri hjá Marel. „Hann er áhugasamur og samviskusamur og gerir allt vel sem hann gerir," segir Jóhann. Hann og Geir komu inn í fyrirtækið á svipuðum tíma og Jóhann segir að Geir hafi „tekið á hlutunum og náð árangri." Jóhann ber eins og aðrir lof á vinnusemi Geirs og segir hann iðulega vera í vinnunni á kvöldin og um helgar. „Þaö er engin dagvinna að vera framkvæmdastjóri í þessu fyrirtæki og það er t.d. al- gengt að við tölum saman í síma undir miðnættið." Matthías mættur í slaginn Malthías A. Malhiesen er mættur í kosningaslaginn í Firðinum, en þar er útlit dökkt hjá hans mönnum í pólitíkinni. Matthías skrapp ásamt Jóni Sce- nwndi Sit’urjónssyni á þingmannafund FF'TA í Vínarborg en meö þeim í för var Þórdur Bogason frá skrifstofu Alþingis. Á þingmannafundinum var Matthías kjörinn varafor- maður þingmannaráðs- ins, en dr. Peter Junko- uíiisch, fyrrum utanríkis- ráðherra Austurríkis for- maöur. Ákveðið var að næsti þingmannafundur KFTA-ríkjanna færi fram á Islandi aö ári. Hjálpar- samtökin Móðir og barn í Reykjavík hafa starfaö undanfarin 2 ár Hjálpar- samtökin Móðir og barn. Markmiðið er að bæta úr erfiðum húsnæöisað- stæðum einstæðra mæðra og barna þeirra. í stjórn sitja: Elinborí> Lúr- usdóttir, félagsráðgjafi, Jón Valur Jensson, cand. theol., sr. Þórsteinn Kac>n- arsson, deildarstjóri og Ragnhildur Pála Ófeiifs- dóttir, skáld. Átta konur leigja nú hjá samtökun- um og eru með sjö börn á framfæri sínu, en ein er barnshafandi. Móðir og barn er sjálfseignarstofn- un og leitar til einstak- linga, félaga, fyrirtækja“ og hins opinbera um fjár- stuðning. NÆRMYND Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Marels, sem á dögunum fékk útflutningsverðlaun Forseta íslands. Litla letrið fyrir sjóndapra? Gísli Sigurbjörnsson á Grund er þekktur bar- áttumaöur. í blaöi sínu Heimilispóstinunt, ræðir hann enn um smáletriö, t.d. í upplýsingadálkum dagblaðanna, í síma- skránni og víðar. Segir liann að áttræðir og eldri, 6397 manns á landinu öllu, hljóti að hafa ein- hvern atkvæöisrétt í þess- um efnum. Gísli segist hafa rætt við útgefendur símaskrárinnar, en þeir góðu herrar hafi misskiliö sig þegar hann lagði til stærra letur og að gefa símaskrána út á 2—3 ára fresti í sparnaöarskyni. Þeir á símanum sögöu bara: „Þetta kostar ekk- ert, auglýsingarnar borga brúsann".

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.