Alþýðublaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 23. maí 1990
7
NÆSTAFTASTA SIÐAN
AUGLÝSING
um bæjarstjórnarkosningar í
Hafnarfirði laugardaginn 26.
maí 1990.
Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur
kl. 23.00. Kosiö veröur í Lækjarskóla,
Víöistaöaskóla, á Hrafnistu og á
Sólvangi. Kjósendur skiptast á kjör-
staöi og í kjördeildir eftir lögheimili
1. desember 1989 sem hér segir:
LÆKJARSKOLI
1. kjördeild: Óstaðsett hús, Álfaberg til og með
Bæjarhraun.
2. kjördeild: Dalshraun til og með Hringbraut.
3. kjördeild: Hvaleyrarbraut til og með Mela-
braut.
4. kjördeild: Melholt til og með Suðurbraut
4—10.
5. kjördeild: Suðurbraut 12—28 til og með
Öldutún, svo og óstaðsett hús
(Berg, Brandsbær, Haukaberg,
Hraunberg, Jófríðarstaðir, Krýsu-
vík, Lindarberg, Lyngberg, Reyk-
holt, Setberg, Skálaberg, Stóra-
berg og Stórhöfði).
VÍÐISTAÐASKÓLI
6. kjördeild: Blómvangur til og með Hjalla-
braut 1—17.
7. kjördeild: Hjallabraut 19—96 til og með Mið-
vangur 1—107.
8. kjördeild: Miðvangur 108—167 til og með
Þrúðvangur, svo og óstaðsett hús
(Brúsastaðir 1, Brúsastaðir 2, Eyr-
arhraun, Fagrihvammur, Langeyri,
Ljósaklif og Sæból).
HRAFNISTA
9. kjördeild: Vistfólk með lögheimili á Hrafn-
istu.
SÓLVANGUR
10. kjördeild: Vistfólk með lögheimili á Sól-
vangi.
Vfirkjörstjórn hefur aðsetur í kennarastofu Lækjar-
skóla.
Talning fer fram í Iþróttahúsinu við Strandgötu og
hefst strax að loknum kjörfundi.
Undirkjörstjórnir mæti í Lækjarskóla kl. 9.00.
Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar.
21. maí 1990.
Gísli Jónsson oddviti.
Jón Ólafur Bjarnason.
Hlöðver Kjartansson.
Picasso undir
áhrifum frá
Rembrandt
Viö fyrstu sýn viröist
manni sem fáir málarar eit>i
jafn fátt sameiginlegt og þeir
Rembrandt og Picasso. Rem-
brandt var einn af hollensku
meisturunum og lifði á 17.öld
en Picasso 2().aldar maður og
einn af byltingarkenndustu
málurum aldarinnar.
En ekki er allt sem sýnist.
Rannsóknir Janie nokkurrar
Cohen, sem er bandarískur
sagnfræðingur, leiða annað í
Ijós. Hún heíur sýnt fram á aö
Picasso sótti mikið til hins
gamla meistara. Hún segir
Picasso hafa byrjað að kynna
sér Rembrandt árið 1965 en
þá var hann 84 ára. Æ síðan
uröu riddarar í 17. aldar bún-
ingum fyrirferðamikið mynd-
efni hjá hinum spænska
meistara.
Nú stendur yfir sýning í
Hollandi á þeim myndum
Picassos sem bera áhrifum
Rembrandts gott vitni. Pic-
asso var aldrei það undirgef-
inn aö hann leyföi sér ekki aö
leika sér aö formum og hug-
myndum gamla mannsins.
Picasso útfærir huggulega
sjálfsmynd af Rembrandt og
Saskiu eiginkonu hans þann-
ig aö Rembrandt heldur hinu
sérstaka yfirskeggi og hatti
en Saskia er nakin.
Ein mynda Picassos er inn-
blásin af hinni þekktu mynd
Rembrandts af næturvörðun-
um en hjá Picasso er einn
þeirra með hjólaskauta en
annar hefur hið sérstæöa
andlitsfall sem Picasso var
hvað frægastur fyrir.
Enn sannast því hið forn-
kveðna: ,,Hvaö ungur nemur,
gamall temur."
Er baktería
böivaidurinn ?
Vísindamenn við háskól-
ann í Davis í Kaliforníu telja
aö baktería sem finnst i jarð-
vegi geti hugsanlega verið
valdur að Parkinson-veikinni
illræmdu. Mýs og rottur sem
þeir sýktu með bakteríunni
Nocardia asteroides fóru að
bera hin ýmsu einkenni veik-
innar. Lyf sem notuö eru
gegn sjúkdómnum í mönnum
DAGFINNUR
Davíð fjölgar Reykvíkingum
Davíö er minn maður.
Veikur eða heilbrigður,
Davíð er minn maður.
Eins og skoðanakannanir
Itafa sýnt, er Davíð svo vin-
sæll í borginni að það er
nánast óþarfi að kjósa
hann. Aö vísu voru þeir
ekki nógu ánægðir á Morg-
unblaðinu meö niðurstöður
Félagsvisindastofnunar að
þeir leiðréttu niðurstöðurn-
ar eftir aö Félagsvísinda-
stofnun var búin að leiö-
rétta sínar niðurstöður.
Endanleg niðurstaða Morg-
unblaðsins var því að fylgi
sjálfstæðismanna heföi ver-
iö miklu meira en könnun
Félagsvísindastofunar
hefði sýnt eftir aö stofnunin
hafði leiðrétt niðurstöðurn-
ar.
Þá veit maður þaö.
Það er reyndar gamalt
trikk aö leiörétta niðurstöð-
ur. Þannig leiðréttu komm-
únistar i Sovétríkjunum
alltaf niðurstöður kosning-
anna í landinu, þannig að
Flokkurinn fékk alltaf 99.9
%. Að vísu hefur alltaf vaf-
ist fyrir mér hvert þetta
0.1% fór, þar sem enginn
annar flokkur var í fram-
boöi, en sennilega hefur
einhverjum asnanum dott-
iö i hug aö skila auðu.
Það má einnig vera aö
Flokkurinn hafi alltaf feng-
iö 100% áöur en ílokks-
menn leiðréttu niöurstöð-
urnar og málgagn Flokks-
ins og stærsta dagblaöið.
Pravda, leiðrétti síðan niö-
urstöður úrslitanna, alveg
eins og Mogginn.
Morgunblaöið hefur verið
í því að leiðrétta ýmsar vill-
ur í borgarmálum að und-
anförnu. Skemmtilegasta
leiðréttingin var síðastliö-
inn sunnudag í Kim II Sung
viötali Elínar Pálmadóttur
við Foringjann. Greinin
hófst á eftirfarandi orðum:
,,Davið er maður sem leysir
málin. Á þeim átta árum
sem hann hefur veriö borg-
arstjóri hefur Reykvíking-
um fjölgað um 14.000, en
aðeins um 160 tvö kjör-
tímabil á undan.”
Þar meö hefur veriö leiö-
réttur allur misskilningur á
því, hvers vegna Reykvík-
ingum hafi fjölgað á undan-
förnum árum. Nema að
það komi ný leiörétting á
leiðréttingunni.
Ég skil aö vísu ekki eitt:
Fyrst Davíð er búinn að
fjölga Reykvikingum svona
mikið — af hverju eru sjálf-
stæöismenn þá aö leggja
niður Fæðingarheimiliö?
Þar sem ég er einlægur
aödáandi Davíös, las ég
viðtalið af áhuga. Það voru
myndir af Davíð meö við-
talinu. Davíð meö öldruð-
um. Davíð með börnunum.
Davíð með biskupi. Davíö á
leið út i Viðey. Davíð fyrir
aftan skrifborðiö sitt en
konan og hundarnir fyrir
framan.
í greininni kemur líka
skýrt fram aö það er Davíð
sem framkvæmir allt í
Reykjavík (stundum án
þess að spyrja neinn, enda
alveg óþarfi) og það er Dav-
íð sem fær allar hugmyndir
og það er Davíö sem fyllist
framkvæmdaþrá þegar
verkin bíða.
Þetta er eins og ég hef
alltaf sagt: Davíö er handa
Reykjavík og Reykjavík er
handa Davíð. Þessir borg-
arbúar þvælasta eiginlega
bara fyrir. Sniðugast væri
eiginlega að þeir flyttust
bara út á land.
Alla vega þeir sem fjölg-
aö hefur eftir aö Davíð varð
borgarstjóri. Þá er hægt að
jafna Fæðingarheimilið við
jörðu með góðri samvisku.
virkuðu einnig á tilraunadýr-
in. Dr. Blaine Beaman, sem er
yfirmaður rannsóknanna,
segir alla þá vitneskju sem
aflað er um orsakir sjúkdóms-
ins koma til góða við að þróa
aðferöir til forvarna og lækn-
inga.
Helstu einkenni sjúkdóms-
ins eru óstöðugt höfuö, stíf-
leiki í útlimum og sjúkling-
arnir verða lotnir í herðum.
Bakterían finnst í jarövegi
um víöa veröld en aöeins
vissir ættleggir hennar valda
Parkinson-veiki.
Áfengisvandi
andfæilinga
Margir af háttsettum for-
stjórum og stjórnmálamönn-
um Ástrala þjást af heila-
skemmdum vegna áfengis-
neyslu. Áætlað er að hlutfalls-
lega átta sinnum fleiri Ástral-
ir þjáist af þessari meinsemd
heldur en Vesturlandabúar.
Dr. Jean Lennane, sem er sér-
fræðingur í þessum málum
við sjúkrahús í Sidney, segir
ástæðuna ekki vera þá að
Ástralir drekki meira en aðr-
ar þjóðir. Mjög alvarleg teg-
und heilaskaða sern nefnist
Korsakoff-veikin er ekki ein-
ungis afleiöing alkóhólneyslu
heldur einnig skorts á þýam-
íni sem þekktara er sem
Bl-vítamín.
Dr. Stephen Bowden, sér-
fræðingur við háskólann í
Melbourne, segir marga Ástr-
ali frekar kjósa að fá sér einn
gráan en almennilega máltíð.
Þegar saman fari þýamin-
skortur og áfengisneysla auk-
ist likurnar á heilaskemmd-
um til muna. Hann bendir á
að í Bretlandi og Bandaríkj-
unum sé þýamíni bætt út í
hveiti enda sé tíðni heila-
skaöa af völdum áfengis
miklu lægri i þessum löndum
þrátt fyrir hlutfallslega meiri
áfengisneyslu.
Áströlsk heilbrigðisyfir-
völd vinna nú að því að fá þý-
amíni bætt út í bjór og aðra
matvöru.
Einn með kaffínu
Sölumaður í dýrabúð:
— Þessi páfagaukur er
mjög kristinn. Ef þú tog-
ar í vinstri löppina á hon-
um fer hann með Dav-
íðssálmana. Ef þú togar
í þá hægri, fer hann með
trúarjátninguna.
Viðskiptavinurinn: —
En ef ég dreg i báðar
lappirnar í einu?
Páfagaukurinn: — Þá
dett ég á stélið!
KROSSGÁTAN
DAGSKRÁIN
Sjónvarp
17.30 Þvottabirnirnir 18.00
Táknmálsfréttir 18.05 Evr-
ópukeppni meistaraliða í
knattspyrnu. Bein útsending
20.00 Fréttir og veður 20.30
Grænir fingur (5). Hvar á að
byrja 20.45 Tískuþáttur 21.15
Sæt eru sjávarkríli 22.00 Við-
sjár á vinnustað. Bresk bió-
mynd frá 1960 23.00 Ellefu-
fréttir 23.10 Viðsjár á vinnu-
staður frh. 23.50 Dagskrár-
lok.
Stöð 2
16.45 Santa Barbara 17.30
Fimm félagar 17.55 Albert
feiti 18.15 Fríða og dýrið
19.19 19.19 20.30 Tíska 21.00
Kosningaumræður. Efstu
menn lista til borgarstjórnar í
Reykjavík leiða saman hesta
sína 22.45 Einum of mikið
00.20 Hugrekki 01.55 Dag-
skrárlok.
Rás 1
06.45 Veðurfregnir 07.00
Fréttir 07.03 í morgunsárið
09.00 Fréttir 09.03 Litli barna-
timinn 09.20 Morgunleikfimi
með Halldóru Björnsdóttur
09.30 Landpósturinn 10.00
Fréttir 10.03 Neytendapunkt-
ar 10.10 Veðurfregnir 10.30
Úr bókaskápnum 11.00 Frétt-
ir 11.03 Samhljómur 11.53 Á
dagskrá 12.00 Fréttayfirlit
12.15 Daglegt mál 12.20 Há-
degisfréttir 12.45 Veður-
fregnir 13.00 í dagsins önn
13.30 Miðdegissagan: Punkt-
ur, punktur, komma, strik
14.00 Fréttir 14.03 Harmon-
ikkuþáttur 15.00 Fréttir 15.03
Samantekt um skógrækt
15.45 Lesið úr forystugrein-
um bæjar- og héraðsfrétta-
blaða 16.00 Fréttir 16.03 Að
utan 16.10 Dagbókin 16.15
Veðurfregnir 16.20 Barnaút-
varpið 17.00 Fréttir 17.03
Tónlist á siðdegi 18.00 Fréttir
18.03 Sumaraftann 18.30
Tónlist 18.45 Veðurfregnir
19.00 Kvöldfréttir 19.30 Aug-
lýsingar 19.32 Kviksjá 20.00
Litli barnatiminn 20.15 Sam-
tímatónlist 21.00 Kvenfélög-
in 21.30 íslenskir einsöngvar-
ar 22.00 Fréttir 22.07 Að utan
22.15 Veðurfregnir 22.30
Skáldskapur, sannleikur, sið-
fræði 23.10 Sjónaukinn 24.00
Fréttir 00.10 Samhljómur
01.00 Veðurfregnir.
Rós 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00
Morgunfréttir 09.03 Morgun-
syrpa 11.03 Gagn og gaman
með Jóhönnu Harðardóttur
og Ástu Ragnheiði Jóhann-
esdóttur 12.00 Fréttayfirlit
12.20 Hádegisfréttir 14.03
Brot úr degi 16.03 Dagskrá
18.03 Þjóðarsálin 19.00
Kvöldfréttir 19.32 Zikk Zakk
20.00 Kosningafundir í Út-
varpinu — Framboðsfundur
vegna bæjarstjórnarkosning-
anna i Mosfellsbæ 21.00
Kosningafundur i Útvarpinu.
Framboðsfundur vegna bæj-
arstjórnarkosninganna í
Grindavik 22.07 Kosninga-
fundir í Útvarpinu — Fram-
boðsfundur vegna bæjar-
stjórnarkosninganna i Njarð-
vík 23.10 Fyrirmyndarfólk
00.10 i háttinn 01.00 Nætur-
útvarp á báöum rásum til
morguns.
Bylgjan
07.00 Hallgrímur Thorsteins-
son 09.00 Fréttir 09.10 Ólafur
Mar Björnsson með dagbók-
ina 12.00 Hádegisfréttir 12.10
Valdis Gunnarsdóttir 15.00
Ágúst Héðinsson 17.00
Kvöldfréttir 17.15 Reykjavík
síðdegis 18.30 Hafþór Freyr
Sigmundsson 22.00 Þor-
steinn Ásgeirsson 02.00
Freymóður T. Sigurðsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 10.00
Snorri Sturluson 13.00
Kristófer Helgason 17.00 Á
bakinu með Bjarna 19.00
Darri Ólason. Rokklistinn
22.00 Ólöf Marin Úlfarsdóttir
24.00 Björn Sigurðsson og
næturvaktin
Aðalstöðin
07.00 Á nýjum degi. Bjarni
Dagur Jónsson 10.00 Kom-
inn tími til. Steingrímur Ól-
afsson og Eiríkur Hjálmars-
son 13.00 Með bros á vör.
Margrét Hrafnsdóttir 16.00 í
dag i kvöld. Ásgeir Tómas-
son 20.00 Með suðrænum
blæ. Halldór Backmann 22.00
Nýöldin. Þórdis Backman
24.00 Á nótum vináttunnar.
Jóna Rúna Kvaran.
□ 1 2 3 □ 4
5 □
6 n 7
8 u
7Ö □ u
□ 12
T3 L □
36.
Lárétt: 1 Evrópuland, 5 ílát,
6 draup, 7 samstæðir, 8
blaðið, 10 umdæmisstafir,
11 fólk, 12 hnoðaði, 13 kaka.
Lóðrétt: 1 drabb, 2 hyski, 3
spil, 4 brúkaði, 5 skýrt, 7 hor,
9 slæmt, 12 sem.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 smátt, 5 glit, 6 lón,
7 óp, 8 orkaði, 10 MA, 11
mas, 12 bert, 13 apana.
Lóðrétt: 1 slóra, 2 mink, 3
át, 4 tapist, 5 glompa, 7 óð-
ara, 9 amen, 12 BA.