Alþýðublaðið - 13.02.1991, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 13.02.1991, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagur 13. febrúar 1991 Persaflóastrídið: Stórfelld árás á Kúveit Bandamenn gerðu mikla árás af sjó, landi og úr lofti á iraska hermenn og skriðdreka i Kúvæt i gær og er þetta mesta stórskotaárás bandamanna frá byrjun striðsins. Sprengjum rigndi inn yffir Kúvæt i þrjár klukkustundir samfellt. Aðgerðin kom i kjölfar yfirlýs- ingar George Bush Bandarikjaforseta sem gaf til kynna að f jölþjóðaherinn æ gegn írökum enn um sinn. Aðstoðarforsætisráðherra íraks sagði í gær að þessi yfirlýsing Bush gæti verið blekking til þess að koma Irökum í opna skjöldu. Hann sagði að hefjist stríð á landi í dag eða á morgun muni írakar fagna því og taka hressilega á móti hermönnum fjölþjóðahersins. Það voru bandarískar og saúdí-ar- abískar stórskotaliðssveitir sem gerðu árásina á íraka í gær. Tals- menn herjanna sögðu að árásin hefði verið gerð í því skyni að kanna hæfni hersveita frá ólíkum löndum til að starfa saman í hernaði gegn ír- ak. Bandaríski herinn hafði engar upplýsingar í gær um tjón íraka af völdum árásarinnar, en þar til nú landhernaði hafa þeir nær eingöngu orðið fyrir árásum úr lofti. Fréttamenn í Riyadh, höfuðborg Saúdí-Arabíu, segja að loftárásir bandamanna séu þegar farnar að hafa áhrif á viðnámsþrótt her- manna íraka, sem nú hafa þurft að þola látlausar sprengjuárásir í fjórar vikur. Nærri þrjú þúsund loftárásir voru gerðar á íraka á undanförnum sólarhring og engin merki sjást þess að látunum sé að linna. Einn af helstu aðstoðarmönnum Saddams Hussein íraksforseta hvatti í gær alla þá sem vinveittir eru írökum í þessu stríði að hefja hryðjuverk gegn hagsmunum ríkja fjölþjóðahersins hvar sem er í heim- íraskir hermenn búast við landárás bandamanna á hverri stundu. inum. Sovéska sendinefndin undir for- ystu Jevgenýs Prímakovs, sem send var til Baghdad af Gorbatsjov til þess að freista þess að fá íraka til að hörfa á brott frá Kúvæt, skoðaði í gær mannvirki í borginni sem orðið hafa fvrir loftárásum fjölþjóðahers- ins. Fyrirhugað var að Prímakov ætti fund með Hussein síðla dags í gær. L LANDSVIRKJUN Landsvirkjun Stækkun Búrfellsvirkjunar Útboð Lartdsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í að grafa fyrir stöðvarhúsi og pípustæði vegna stækkunar Búrfellsvirkjunar, ásamt vegagerð o.fl. Helstu magntölur: Gröftur lausra jarðlaga um 200.000 rúmm. Sprengigröftur um 90.000 rúmm. Vegagerð um 25.000 rúmm. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkj- unarfrá þriðjudeginum 12. febrúar nk. gegn óaftur- kræfu gjaldi að upphæð kr. 5.000,-fyrirfyrsta eintak, en kr. 2.000,- fyrir hvert viðbótareintak. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir kl. 12.00, 8. mars 1991. Tilboðin verða opnuð þar sama dag kl. 14.00. Vesturland Kjördæmisráð Alþýðuflokksins heldur fund í Fé- lagsbæ í Borgarnesi föstudaginn 15. febrúar kl 17.30. Fundarefni: I.Skipan framboðslista Alþýðuflokksins í Vestui landskjördæmi í alþingiskosningunum 20. apríl 1991. 2. Kosningaundirbúningur. 3. Önnur mál. Flokksfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. Stjórn Kjördæmisráðs. Flokksstarf Norðurlandskjördæmi eystra Kjördæmisráð Alþýðuflokksins boðar til fundar að Strandgötu 9, Akureyri, sunnudaginn 17. febrúar kl. 14.00. Fundarefni: 1. Skipan framboðslista Alþýðuflokksins í Norður- landskjördæmi eystra í alþingiskosningunum 20. apríl 1991. 2. Önnur mál. Stjórn kjördæmisráðs. Alþýðuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaðahrepps auglýsir almennan félagsfund í Garðatúni 2 í kvöld miðvikudag kl. 20.30. Gestur fundarins: Guðmundur Árni Stefánsson. Mætum vel og stundvíslega. Stjórnin. Þorrablót jaf naðarmanna í Kópavogi verður haldið laugardag- inn 16. febrúar nk. í Hamraborg 14a. Húsið verður opnað kl. 18.30. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 44700 mánu- dagskvöldið ll.febrúareða fimmtudagskvöldið 14. febrúar. Allir velkomnir. Alþýðuflokkurinn. Kratakaff i í kvöld kl. 20.30. Gestur verður Össur Skarphéðinsson. Allir velkomnir. Kvenfélag Alþýðuf lokksi ns í Hafnarfirði Fundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Strand- götu í kvöld kl. 20.30 stundvíslega. Dagskrá: Félagsmál. 2. Gestur fundarins verður Gissur Guðmundsson rannsóknarlögreglumaður. 3. Kaffiveitingar. Mætum allar og tökum með okkur gesti. Stjórnin. Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar Afmælisfagnaður vegna 60 ára afmælis félagsins verður haldinn í Álfafelli (íþróttahúsinu við Strand- götu) laugardaginn 16. febrúar nk. kl. 14.00. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Stjórnin. Alþýðuflokksfólk Reykjaneskjördæmi Kjördæmisráð Alþýðuflokksins í Reykjaneskjör- dæmi heldur fund í Félagsheimili Kópavogs, Fann- borg 2, næstkomandi laugardag hinn 16. febrúar 1991. Fundur hefst kl. 10.00 árdegis og lýkur eigi síðar en kl. 13.00. Fundarefni: Komandi alþingiskosningar, undirbúningur og skipulagning kosningabaráttu. Frummælendur verða Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Sigfús Jónsson, kosninga- stjóri A-listans í Reykjaneskjördæmi. Kjördæmisráðsmenn eru hvattir til að koma á fund- inn sem einnig er opinn öllu áhugafólki um sem bestan árangur í kjördæminu. Velkomin til baráttu fyrir framgangi jafnaðarstefn- unnar. Stjórn kjördæmisráðsins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.