Alþýðublaðið - 13.02.1991, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 13.02.1991, Blaðsíða 8
Uftrjr^ngar lll rrl 1 V.W I //7 ALÞJÓfíA Lf FTRYGGINGAJIFELAGIÐ HF. IAG.VULI 5 - RFYKJ AVtK súni 681644 GEVAUA I Þaft er kaffið 687510 • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • BANDAMENN META STÖÐUNA: Varnarmálaráðherrar Bret- lands og Frakklands hittust í gær til að meta árangur hernaðaraðgerða við Persaflóa ásamt bandarískum embættismönnum og George Bush, Bandaríkjaforseta. Á meðan halda flugvélar fjölþjóðahersins áfram að varpa sprengjum yfir íraska hermenn til að undirbúá f.yrirhugað stríð á landi. ' t' '*■/ ARAS A SV-KUVÆT: Bandarískar og saúdí-£U"abískar hersveitir létu sprengjum rigna yfir SV-Kúvæt úr lofti, Iandi og af sjó í þrjár klukkustundir samfleytt í gær og var þetta umfangsmesta árás sinnar tegundar frá byrjun stríðsins. JÓRDANIR HENGJA MEINTAN NJÓSNARA: Jórdanir létu í gær hengja ungan orrustuflugmann og vin hans fyrir að njósna fyrir Israel. Þetta er fyrsta aftakan fyrir landráð í landinu í 30 ár, samkvæmt heimildum í Jórdaníu. VARSJAR-HERNAÐARBANDALAGIÐ LAGT NIÐUR: vn,- völd í Sovétríkjunum hafa samþykkt að leggja niður hernaðarstofnun bandalagsins fyrir l.apríi á þessu ári. ATKVÆÐAGREIÐSLA í LETTLANDI: Þingið í Lettlandi hefur ákveðið að láta fara fram atkvæðagreiðslu í landinu til að kanna af- stöðu manna til sjálfstæðismálsins, þ.e. hvort menn telji það rétt að Lettland segi skilið við Sovétríkin og verði sjálfstætt og lýðræðislegt ríki. BLEKKIR BUSH? Varaforsætisráðherra íraks, Saadoun Hammadi, sagði að athugasemdir George Bush Bandaríkjaforseta, sem gáfu til kynna að árás bandamanna á landi gegn írökum væri ekki innan seil- ingar, gæti verið blekking. MANDELA HITTIR DE KLERK: Leiðtogi Afríska þjóðarráðsins í Suður-Afríku, Nelson Mandela, og forseti landsins, F.W. de Klerk, sögðu í gær að þeir hefðu leyst ágreiningsmál sem hafa verið þrándur í götu samninga um að Afríska þjóðarráðið beitti ekki vopnum í baráttu sinni gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda. OLIULEKINN DYR : Áætlað er að kostnaðurinn við að hreinsa upp olíu sem iekið hefur í Persaflóann af völdum stríðsins verði eitthvað um 1 milljarður dollara næstu sex mánuðina, að því er talsmenn yfirvalda í Saúdí-Arabíu segja. ATOK I LIBANON: ísraelskar orrustuvélar réðust á palestínska skæruliða í Suður-Líbanon í gær, að sögn öryggisstarfsmanna á svæð- inu. BRETAR FA FJARSTUÐNING: Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa samþykkt að leggja til 500 milljónir dollara til handa Bretum vegna kostnaðar við hernað við Persaflóa, að sögn talsmanns bresku ríkisstjórnarinnar. RÚBLUR AFSTÝRA FALLIGORBATSJOVS: Forsætisráðherra Sovétríkjanna, Valentín Pavlov, sagði að ákvörðunin um að taka úr um- ferð 50 og 100 rúblna seðla hafi komið í veg fyrir tilraun til að steypa Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleiðtoga, af stóli með efnahagslegri byltingu. Varsjár-hernaðarbandalagið leyst upp: Timamót i Evrópu Yfirvöld í Sovétríkjunum lýstu því yfir í gær aö þau væru sam- máia bandamönnum sínum í Varsjárbandalaginu um að leysa upp hernaðarþátt bandalagsins fyrir l.apríi á þessu ári. Þau ríki sem í bandalaginu eru hafa komist að þeirri niðurstöðu að tími sé til kominn að leggja niður hernaðarþáttinn sagði talsmaður Sovétforsetans, Vítaly ígnatenko. Þrjú aðildarríkin, Tékkóslóvakía, Ungverjaland og Pólland, hafa um skeið þrýst á yfirvöld í Moskvu um að haldinn yrði fundur bandalags- rikjanna til að ákveða rétta tímann til að leysa bandalagið upp. ígna- tenko sagði að með þessu væru Sov- étmenn að framfylgja því sam- komulagi sem náðist í París í nóv- ember milli 34 ríkja og gerði út um kalda stríðið. Með því að leggja nið- ur Varsjár-hernaðarbandalagið minnkar hættan á átökum í Evrópu, sagði ígnatenko. Hann gaf til kynna að yfirvöld í Moskvu vonuðust eftir svipuðum aðgerðum af hálfu hinna 16 ríkja Atlantshafsbandalagsins undir forystu Bandaríkjanna en þessi hernaðarbandalög hafa staðið andspænis hvort öðru, grá fyrir járnum, undanfarin 40 ár. Þrátt fyrir að hernaðarbandalagið verði lagt niður er ráðgert að Varsjárbanda- lagið muni starfa áfram sem stjórn- málabandalag samtök. Forsætisráðherra Ungverjalands, Jósef Antall, sagði að fundur banda- lagsríkjanna yrði haldinn í þessum mánuði til að leysa hernaðarstofnun þess upp fyrir 1. apríl. Varsjárbandalagið var sett á lagg- irnar 14. maí 1955 og í því voru upp- haflega Albanía, Búlgaría, Tékkó- slóvakía, Austur-Þýskaland, Ung- verjaland, Pólland og Rúmenía ásamt Sovétríkjunum. Albanía hætti þó fljótt þátttöku. Bandalagið hefur nánast verið óstarfhæft sem hernaðarsamtök frá því að komm- únistar misstu völdin í fjórum að- ildaríkjum og með sameiningu þýsku ríkjanna. Nú standa yfir her- flutningar frá Tékkóslóvakíu, Ung- verjalandi og austurhluta Þýska- lands. Vaclav Havel, leiðtogi Tékkóslóv- akíu hefur lýst sig hlynntan aukinni samvinnu við NATO, sem hann telur að gegna lykilhlutverki í öryggis- kerfi sameinaðrar Evrópu í fram- tíðinni. Meðlimir Atlantshafsbandalags- ins hafa tekið fréttum um upplausn hernaðarbandalags hinna gömlu fjenda sinna í austri fálega. Talsmað- ur NATO sagði að það væri alfarið í höndum aðildarríkja Varsjárbanda- lagsins að ákveða sína eigin framtíð um öryggismál. NATO var stofnað árið 1949 til þess að mæta þeirri hernaðarógn sem Evrópu stafaði af Sovétríkjunum. Upplausn í banda- lagi ríkja Austur-Evrópu hefur sett NATO í tilvistarkreppu. Aðildarríki þess freista þess nú að skilgreina hlutverk sitt upp á nýtt með aukinni hlýju í samskiptum austurs og vest- urs. TRYGGINGAGJALD Eindagi tryggingagjalds er 15. hvers ménaðar Tryggingagjaldi af launagreiðslum og reiknuðu endurgjaldi er unnt að skila til banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má gera skil hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn í Reykjavík, bæjar- fógetar og sýslumenn og lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli. Bent skal á að bankar, sparisjóðir og pósthús taka aðeins við gíróseðlum sem eru fyrir- fram áritaðir af skattyfirvöldum. Ef aðili árit- ar seðilinn sjálfur eða breytir áritun verður að gera skil hjá innheimtumanni ríkissjóðs. Til þess að komast hjá dráttarvöxtum þarf greiðsla að hafa borist á eindaga. Athygli skal vakin á því að ekki er nægilegt að póst- leggja greiðslu á eindaga. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.