Alþýðublaðið - 12.03.1991, Side 10

Alþýðublaðið - 12.03.1991, Side 10
10 Helgi Skúli Kjartansson Áratugirnir þrír 1942—71 eru tímabil hins fastmótaða fjögurra flokka kerfis sem varð til upp úr klofningi Al- þýðuflokksins 1938. Þá bjó Alþýðuflokkurinn við tak- markað fylgi, en nokkuð stöðugt, sem dugði honum til að eiga lengst af aðild að samsteypustjórnum af ýmsu tagi, síðast hinni langlífu viðreisnarstjórn 1959—71. Upp úr 1950 komu upp deilur um flokksforustu sem Ieiddu til klofnings Alþýðuflokksins öðru sinni. Eftir kosningarnar 1942 varð löng stjórnarkreppa. Var bilið brúað með utanþingsstjórn sem sat að völdum fram yfir stofnun lýðveldis 1944. En þreifingar voru með stjórn- málaflokkunum á ýmsa vegu. Með- al annars milli Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks, og leituðu þeir til Alþýðuflokksins um þátttöku í ríkis- stjórn með sér. Hann var ófús til samstarfs við keppinauta sína í Sósí- alistaflokknum, lét þó til leiðast að leggja fram skilyrði fyrir stjórnar- þátttöku, einkum um miklar um- bætur á almannatryggingum. Samningar náðust og úr því varð nýsköpunarstjórnin, svo nefnd af því að það kom í hennar hlut að annast þá uppbyggingu atvinnulífs sem nauðsynleg var að stríðinu loknu, m.a. kaupin á heilum flota nýrra togara sem síðan voru kennd- ir við nýsköpunina. Ráðherrar Al- þýðuflokksins voru að þessu sinni þeir Emil Jónsson og Finnur Jóns- son. Alþýðuflokkurinn virðist hafa styrkt stöðu sína í þessu stjórnar- samstarfi, því að í kosningunum 1946, þegar stjórnin hafði setið um hríð, bætti hann stöðu sína til muna. Eftir skipulagsbreytinguna hafði Al- þýðuflokknum sem sagt tekist að finna sér nýtt form og hasla sér völl að nýju, að vísu smærri en áður, minnsti flokkurinn af fjórum, en þó með töluvert fast fylgi. Og einnig með allmikil varanleg ítök í verka- lýðshreyfingunni, þótt Sósíalista- flokkurinn hefði þar enn sterkari stöðu. Kalt strið og__________________ klofningur flokksins___________ Næsta áratug, 1946—56, má kenna við kalda stríðið, ekki aðeins í heimsmálum heldur einnig í ís- lenskum stjórnmálum. Afstaðan til stórvelda og hernaðarbandalaga, varnir íslands og stríðshætta, þvíiík efni voru ofarlega á baugi. Sósíal- istaflokkurinn var einangraður sem mest frá samstarfi við hina flokkana og gefin að sök hollusta við Sovét- ríkin. Mestallan áratuginn voru Sjálf- stæðisflokkur og Framsóknarflokk- ur saman við völd, í þremur ríkis- stjórnum, og af þeim átti Alþýðu- flokkurinn einnig hiut að hinní fyrstu. Þar átti hann meira að segja forsætisráðherrann — í eina sinn sem hann hefur haft forsæti í sam- steypustjórn — því að Stefán Jóhann Stefánsson myndaði stjórnina. Meg- inverkefni hennar á innlendum vettvangi var að glíma við gjaldeyr- isskort og annað misvægi í efna- ilsins: Haraldur Guðmundsson leggur Hannibal og tekur við for- mennskunni, Guðmundur í. Guð- mundsson leggur Benedikt Grön- dal og Gylfi Þ. Gíslason leggur sjálfan sig. hagslífi, þannig að hún hafði naum- ast tækifæri til að láta mikið eftir sig l'ggja. Það var einnig þessi stjórn, „Stef- anía“, sem samdi um aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu 1949, þótt nokkur andstaða væri gegn henni í þingflokkum Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Hins vegar var Alþýðuflokkurinn farinn úr stjórn þegar samið var um komu varnar- liðsins 1951. Þó var hann hafður með í ráðum og stóð að þeirri ákvörðun með stjórnarflokkunum. I tíð ríkisstjórnar Stefáns Jóhanns tóku stuðningsmenn stjórnarflokk- anna í verkalýðshreyfingunni hönd- um saman um að útiloka sósíalista frá áhrifum í Alþýðusambandi ís- lands, þar sem þeir höfðu um skeið ráðið mestu. Stefán Jóhann Stefánsson og nán- ustu samstarfsmenn hans í Alþýðu- flokknum höfðu lengi sætt gagnrýni frá flokkssystkinum sínum, sem töldust til vinstri arms flokksins og kölluðu forustuna of hægrisinnaða, auk annarra gagnrýnisefna. Tveir ungir þingmenn, Gylfi Þ. Gíslason og Hannibal Valdimarsson, voru taldir til vinstri armsins. Svo bar við á flokksþingi 1952 að vinstri menn verða í meirihluta og kjósa Hanni- bal flokksformann. Margir trúnað- armenn flokksins neita þá að taka endurkjöri, svo að mannaskipti verða mjög víðtæk í flokksforust- iinni. Þessi átök komu að sjálfsögðu margvíslega niður á flokksstarfinu. Margar gerðir Hannibals voru umdeildar, ekki síður en Stefáns Jó- hanns áður. Meðal annars stefndi hann að því að rjúfa einangrun sósí- alista í verkalýðshreyfingunni til þess að Alþýðuflokkurinn væri ekki bundinn við að starfa þar méð stjórnarflokkunum, en margir flokksmenn voru fráhverfir öllu Nýsköpunarstjórnin 1944 — 47. Frá vinstri: Emil Jónsson samgöngumálaráðherra, Brynjólfur Bjarnason menntamálaráðherra, Ólafur Thors forsætis- ráðherra, Pétur Magnús- son fjármálaráðherra, Finnur Jónsson félags- og dómsmáiaráðherra og Áki Jakobsson atvinnu- málaráðherra. Minnihlutastjórn Alþýðuflokksins 1958 - 59: Dr. Gylfi Þ. Gíslason, mennta- iðnaðar- og viðskiptamálaráðherra, Emil Jónsson forsætis- samgöngu- og sjávarút- vegsmálaráðherra, Birgir Thorlacius forsetaritari, Ásgeir Ásgeirsson forseti íslands, Guðmundur í. Guðmundsson utanríkis- og fjármálaráðherra og Friðjón Skarphéðinsson dóms- iandbúnaðar, og félagsmálaráðherra. Ráðuneyti Stefáns Jóh. Stefáns- sonar, „Stefanía," 1947 — 1949. Frá vinstri: Bjarni Ásgeirsson landbúnðarráðherra, Eysteinn Jónsson menntamála- kirkju- og flugmálaráðherra, Stefán Jóhann Stefánsson forsætisráðherra, Sveinn Björnsson forseti íslands, Bjarni Benediktsson utanríkis- og dómsmálaráðherra, Emil Jónsson viðskipta- iðnaðar- og samgöngu- málaráðherra, Jóhann Þ. Jósefs- son fjármála- og sjávarútvegs- málaráðherra. Vinstri stjórnin 1956 — 58 í túlkun Spegilsins. Frá vinstri: Lúðvík Jós- efsson sjávarútvegs- og viðskipta- ráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason mennta- og iðnaðarmálaráðherra, Hermann Jónasson forsætisráð- herra, Guðmundur í. Guðmunds- son utanríkisráðherra, Hannibal Valdimarsson félagsmálaráðherra og Eysteinn Jónsson utanríkisráð- herra (í forföllum Guðmundar í. 3. ágúst — 17. okt. 1956). samstarfi við sósíalista. Fleira kom til sem sneri ýmsum samstarfs- mönnum Hannibals til andstöðu við hann, svo að hann var ekki formað- ur nema tvö ár. Á næsta flokksþingi var Haraldur Guðmundsson, fyrr- ym ráðherra, kjörinn formaður. Hannibal hrökklaðist út úr flokks- starfinu, og með honum nokkur fjöldi samstarfsmanna. Hann var áfram virkur í verkalýðshreyfing- unni, átti þar samstarf við sósíalista og var lcjörinn forseti Alþýðusam- bands íslands, en þeirri stöðu gegndi hann hátt á annan áratug þótt á ýmsu gengi í stjórnmálastarfi hans. Alþýðuflokkurinn hafði nú klofn- að í annað sinn — eða í þriðja sinn ef stofnun Kommúnistaflokksins er með talin, og í öll skiptin kvistaðist einkum úr vinstra armi flokksins. Að þessu sinni risti klofningurinn ekki eins djúpt og skildi ekki heldur eftir sig eins sárar minningar og uppgjörið við Héðin Valdimarsson hafði gert. Þó fór því fjarri að flokk- urinn stæði jafnréttur eftir. Vinstri stjórn__________________ Upp úr samstarfinu á sviði ASÍ spratt kosningabandalag milli Sósí- alistaflokksins annars vegar og hins vegar þess hóps sem fylgt hafði Hannibal úr Alþýðuflokknum. Kosningabandalagið fékk nafnið Alþýðubandalag og bauð fram í fyrsta sinn 1956. Því var síðar breytt í eiginlegan stjórnmálaflokk, raunar ekki fyrr en í þann mund sem Hannibal varð viðskila við þau sam- tök. í sömu kosningum, 1956, kom fram kosningabandalag Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks. Um- bótabandalagið hét það í eigin munni, af öðrum uppnefnt „hræðslubandalag". Með því að bjóða hvergi fram hvor gegn öðrum höfðu flokkarnir von um hreinan þingmeirihluta — til þess dygði inn- an við 40% atkvæða — og ætluðu þá að endurvekja stjórnarsamstarf- ið frá 1934, „stjórn hinna vinnandi stétta“. Stjórnarmynduninni átti að fylgja stefnubreyting í varnarmál- um, þannig að varnarliðið hyrfi af landi brott. Þingmeirihlutinn vannst ekki, enda hafði myndun Alþýðubanda- lagsins að sjálfsögðu dregið úr sigur- líkum „hræðslubandalagsins". Stjórnin var mynduð engu að síður, Alþýðubandalaginu boðin aðild að henni, svo að hún varð þriggja flokka stjórn, vinstri stjórnin fyrsta. Ráðherrar Alþýðuflokksins voru Gylfi Þ. Gíslason og Guðmund- ur I. Guðmundsson. Formaður flokksins, Haraldur Guðmundsson, kaus að taka ekki þátt í samvinnu við sósíalista og hætti stjórnmálaaf- skiptum. Vinstri stjórnin hvarf frá því að láta varnarliðið fara. Hins vegar stóð hún fyrir útfærslu landhelginn- ar í tólf sjómílur sem Bretar svöruðu með herskipavernd fyrir landhelgis- brjóta, svonefndu þorskastríði. Stjórnarsamstarfið entist ekki nema rúm tvö ár, og voru það efnahags- málin sem stjórnarslitum ollu. Vlðreisn________________________ Tók nú við til bráðabirgða minni- hlutastjórn Alþýðuflokksins undir

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.