Alþýðublaðið - 18.04.1991, Page 6
6
Fimmtudagur 18. apríl 1991
VERKIN TALA
LOFORP:
Jafnvægi og
stöðugleiki í
efnahagsmálum
EFNDIR:
• Lækkun verðbólgu úr 35—40% í
5%. Verðbólga er komin niður á
sama stig og í helstu
viðskiptalöndum — í fyrsta sinn
í sögu lýðveldisins.
• I stað skuldasöfnunar og
hallareksturs skila fyrirtækin nú
hagnaði.
• Hagnaður fyrirtækja — ávísun á
kjarabætur á næsta kjörtímabili.
• Hrakspárnar um fjölda-
atvinnuleysi rættust ekki.
• Skilyrði sköpuð fyrir þjóðarsátt
um bætt lífskjör, án verðbólgu
— á næsta kjörtímabili.
• Matvælakostnaður
vísitölufjölskyldu hefur lækkað
á sl. mánuðum.
• Verðbólga hefur aldrei verið lág
á Islandi nema þegar
Alþýðuflokkurinn hefur verið í
ríkisstjórn.
LOFORP:
Lækkun vaxta
EFNPIRs
• Nafnvextir lækkaðir úr yfir 40%
í um 15%.
• Raunvextir lækkaðir úr yfir 10%
í 6-8%.
• Lækkun greiðslubyrði
meðalskuldara samsvarar 2—3
mánaðarlaunum og höfuðstóll
skuldarinnar lækkar.
• Vísitölubinding
fjárskuldbindinga verður
afnumin í áföngum
fram að 1993.
• Jafnvægi ríkir á peninga-
markaði milli ávöxtunarkröfu
sparifjáreigenda og viðráðan-
legrar greiðslubyrði skuldara.
LOFORP:
Skattkerfinu beitt
til tekjujöfnunar
EFNPIR:
• Einfalt staðgreiðslukerfi tekju-
skatts og útsvars stórbætti hag
fjölskyldna með sveiflukenndar
tekjur.
• Lækkun tolla og afnám tolla á
innfluttum matvælum lækkaði
matvælaverð.
• Virðisaukaskattur leysti af hólmi
götótt söluskattskerfi.
• Virðisaukaskattur umfram 13%
er endurgreiddur vegna
innlendra landbúnaðarafurða, til
að lækka matvælaverð.
• Tekjujöfnunaráhrif skattkerfisins
voru aukin verulega með skatt-
kerfisbreytingunni 1987/88 með
hækkuðum bótagreiðslum
barnabóta, barnabótaauka og
með vaxtabótakerfinu, sem
léttir verulega greiðslubyrði
efnaminni fjölskyldna við öflun
húsnæðis.
• Skattkerfisbreytingin 1987/88
lokaði mörgum skattsvika-
smugum, bætti samkeppnis-
stöðu útflutnings- og
samkeppnisgreina og færði
tekjur til hinna efnaminni.
• Dómur OECD um
skattkerfisbreytinguna 1987/88
er þessi:
„Þær kerfisbreytingar, sem
þegar hefur verið gripið til, gera
það að verkum, að hagkerfið
verður nú betur í stakk búið til
að aðlagast nýjum aðstæðum og
meiri fjölbreytni. Jafnframt hafa
skapast aðstæður til að draga úr
þeim óeðlilegu sveiflum, sem
einkennt hafa ríkisfjármálin
síðasta áratug.“
LOFORP:
Húsnæöi án
harmkvæla
EFNPIR:
• Kaupleigu- og búseturéttaríbúðir
lögfestar.
• Ein af hverjum þremur
félagslegum íbúðum, sem
byggðar hafa verið frá upphafi,
reistar á sl. kjörtímabili (2500
íbúðir).
• Biðtími eftir húsnæðislánum
styttur úr 4—5 árum í gamla
kerfinu — í 4—5 vikur í
húsbréfakerfinu.
• Hátt lánshlutfall í húsbréfa-
kerfinu dregur úr þörf fyrir dýr
skammtímalán og stuðlar að
lækkun fasteignaverðs.
• Vextir eru fastir 6%, en við
endurgreiðslu skv. vaxtabóta-
kerfinu eru raunvextir í mörgum
tilvikum 2—3%.
• Útborgun kaupanda hefur
lækkað úr 76% í 54%.
• Afföll eru engin í kerfinu ef
seljandi ávaxtar sparifé sitt í
húsbréfum eða nýtir það til
nýrra fasteignakaupa.
• Húsbréfakerfið mun komast í
jafnvægi þegar lífeyrissjóðir
launþega eru lausir við skuld-
bindingar skv. gamla kerfinu nk.
haust.
• Vaxtabætur eru eigna- og
tekjutengdar og lækka raun-
verulega vaxtabyrði um allt að
40% fyrir láglaunafjölskyldur.
• Félagslega lánakerfið mun í
framtíðinni gefa lágtekjufólki á
Ieigumarkaðnum kost á
húsaleigubótum. Þær verða
tekju- og eignatengdar og geta
numið allt að fimmtungi af
greiddri húsaleigu.
• Ný fimm ára áætlun um
þjónustuíbúðir fyrir aldraða
þýðir að eftir fimm ár getur
helmingur 70 ára og eldri notið
öryggis þjónustuíbúða.
LOFORP:
Válddreif ing í verki
EFNDIR:
• Með nýjum lögum um
verkaskiptingu ríkis- og
sveitarfélaga og tekjustofna
sveitarfélaga er 20 ára
baráttumál í höfn.
• Þessi löggjöf þýðir aukið
sjálfstæði og traustari
tekjustofna fyrir sveitarfélög á
landsbyggðinni.
• Margföldun fjármuna til
jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
styrkir fjárhag minni sveitar-
félaga á landsbyggðinni og þar
með getu þeirra til að veita
íbúum sínum bætta félagslega
þjónustu.
• Sveitarfélögum hefur fækkað
um 24 við sameiningu.
• Ný lög um félagsþjónustu
sveitarfélaga — í stað úreltra
fátækralaga — þýða bætta
félagsþjónustu sveitarfélaga
(heimaþjónusta, umönnun barna
og unglinga, þjónusta við
aldraða og fatlaða).
LOFORP:
Átak í málefnum
fatlaðra
EFNPIR:
• 40% raunaukning fjárveitinga til
málefna fatlaðra.
• Framkvæmdasjóður fatlaðra
nýtur óskertra framlaga í fyrsta
sinn.