Alþýðublaðið - 30.04.1991, Side 2
2
FRÉTTASK ÝRINC
Þriðjudagur 30. apríl 1991
Davíö Oddsson bragöar á
Ráöhúsi Reykjavíkur í köku-
líki eftir aö hafa lagt horn-
stein hússins. Sennilega er
þaö eitt seinasta embættis-
verk hans sem borgarstjóra,
nema hvað hann getur haft
úrslitavaldiö um hver verður
næsti borgarstjóri.
Baráttan um borgarstjórastólinn upp á yfirboröiö
Árni og Vilh|álmur Þ.
líklegustu arftakarnir
Allt bendir til þess að ffrá og með deginum i dag
verði Davið Oddsson borgarstjóri forsætisráðherra.
Hann heffur lýst því yffir að hann muni þá láta aff
störfum sem borgarstjóri, sem hlýtur að teljast affar
eðlilegt. Davið segist þó ætla að halda áfram sem
óbreyttur borgarfulltrúi. Nú eru hins vegar uppi
miklar getspár um hver verði næsti borgarst jóri höff-
uðborgarinnar, Reykjavikur.
TRYGGVI HARÐARSON SKRIFAR
Það hefur ýmsum nöfnum verið
fleygt á loft varðandi hver verði
næsti borgarstjóri Reykjavíkur.
Hæst ber þar nöfn Árna Sigfússon-
ar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.
Einnig þykir koma til greina að
Magnús L. Sveinsson eða Katrín
Fjeldsted setjist í embætti borgar-
stjöra. Eins hefur nafn Júlíusar
Hafstein heyrst nefnt en kunnugir
telja að hann hafi lítinn stuðning
nema sinn eigin.
Árni og Villi volgir__________
Líklegastir til að verða útnefndir
sem borgarstjóri eru þeir Árni og
Vilhjálmur. Takist hins vegar ekki
að ná samstöðu um annan hvorn
þeirra þykja þau Katrín eða Magn-
ús L. líklegri sem málamiðlun inn-
an borgarstjórnarflokksins og er
þá frekar veðjað á Magnús L.
Hann yrði þá frekar hugsaður sem
bráðabirgðaborgarstjóri, eða út
kjörtímabilið, til ársins 1994.
Þegar er hafið heilmikið kapp-
hlaup þeirra sem telja sig eygja
möguleika á því að verða borgar-
stjóri. Ekki sér fyrir endann á því
en búast má við hörðum slag sem
getur sett verulega mark sitt á
stjórn sjálfstæðismanna í borginni
á næstu árum.
Borgarstjóri án_______________
umboðs kjósenda_______________
Við borgarstjórnarkosningarnar
fyrir tæpu ári síðan héldu sjálf-
stæðismenn því á lofti að minni-
hlutafulltrúarnir hefðu engan
borgarstjórakandídat og því vissu
kjósendur ekkert hvað þeir væru
að kjósa yfir sig kysu þeir annað
en Sjálfstæðisflokkinn. Davíð væri
þeirra borgarstjóraefni. Væntan-
legur borgarstjóri verður því ekki
Árni Sigfússon borgarfulltrúi
þykir líklegur arftaki Davíðs
en skæöasti keppinautur
hans er talinn Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson. Árni var þess
hvetjandi aö prófkjör yröi
haldið hjá Sjálfstæöisflokkn-
um fyrir síðustu borgarstjórn-
arkosningar í von um aö hljóta
þar 2. sætiö og þar meö krón-
prinssessinn.
með beint umboð frá kjósendum
til þess embættis heldur hlýtur
það í arf frá Davíð.
Minnihlutaflokkarnir héldu því
hins vegar fram að Davíð Oddsson
væri á leið i landsmálin þannig að
hann yrði ekki borgarstjóri nema
í skamman tíma, hvað og virðist
vera komið á daginn. Þeir sem
kusu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu
borgarstjórnarkosningum höfðu
því ekki hugmynd um hvern þeir
voru að kjósa sem borgarstjóra
fyrir 3/4 hluta kjörtímabilsins.
Þegar Davíð Oddsson ákvað að
gefa kost á sér í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík sl.
haust hélt hann því enn fram að
hann hygðist vera borgarstjóri
áfram samhliða þingmennsku
fengi hann stuðning til þess. Hann
ætlaði sér á þing til að gæta hags-
muna Reykjavíkurborgar sem
væri slælega sinnt á Alþingi. Hann
hlaut síðan yfirgnæfandi stuðning
í 1. sæti listans. Enn var talað um
að hann myndi gegna þing-
mennsku samhliða borgarstjóra-
embættinu.
ðvænff uppheffð_______________
En þá skeði hið „óvænta," í byrj-
un mars sl., að borgarstjórinn var
kjörinn formaður Sjálfstæðis-
flokksins með þeim sögulega
hætti að fella sitjandi formann. Nú
gat Davíð Oddsson, nýkjörinn for-
maður stærsta flokks landsins,
ekki lengur sagt að metnaður
hans stæði til að vera borgarstjóri
Reykjavíkur áfram. Hann var orð-
inn fyrsta ráðherraefni Sjálfstæðis-
flokksins og væntanlega forsætis-
ráðherraefni.
Ýmsir halda því fram að þetta
hafi alla tíð verið á prjónunum hjá
Davíð og þrælhugsuð leikflétta
sem hafi gengið upp. Hafi svo ver-
ið er lítið hægt að gera en að óska
honum til hamingju. En eftir
stendur að eftirmaður hans á
borgarstjórastóli er ófundinn.
Það má líka segja að Davíð hafi
ásamt fleirum komið í veg fyrir að
væntanlegur eftirmaður hans yrði
valinn fyrir síðustu borgarstjórn-
arkosningar. Ákveðið var að við-
hafa ekki prófkjör þar sem sá sem
hefði náð öðru sætinu, á eftir Dav-
íð, hefði verið orðinn krónprins,
eða krónprinsessa, í borgarmála-
flokknum. Árni Sigfússon var þá
þess mjög hvetjandi þá að haldið
,yrði prófkjör og hefur þá væntan-
íega gert sér góðar vonir um nið-
urstöður þess. Vegna þess að próf-
kjöri var sleppt getur enginn gert
sérstakt tilkall til borgarstjóraemb-
ættisins með tilvisan til vilja sjálf-
stæðismanna í Reykjavík. Ekki er
„Viö, borgarfulltrúar Sjálf-
stæöisflokksins, urðum sam-
mála um að ræöa ekki opin-
berlega um borgarstjóramáliö
aö sinni. Ég vil standa viö þaö
samkomulag. Það eru allir
borgarfulltrúar flokksins í
kjöri til embættis borgar-
stjóra en sumir aðeins meira
en aörir." Þetta sagöi Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson borgarfull-
trúi í samtali við Alþýðublaö-
ið.
ósennilegt að Davíð hafi viljað að
svo væri.
Hljóð barátffa,________________
enn sem komið er_______________
Það er borgarmálaflokkur sjálf-
stæðisflokksins sem ákveður hver
verður næsti borgarstjóri. Þarsitja
10 aðalborgarfulltrúar og 10 vara-
borgarfulltrúar. Flestir sem frá sér
hafa látið heyra í þeim hópi eru
sammála um að borgarstjóraefnið
beri að finna innan hóps borgar-
fulltrúa. Samkomulag virðist hins
vegar hafa tekist um að ræða þessi
mál ekki á opinberum vettvangi,
eins og fram kemur hjá Vilhjálmi
Þ. hér á síðunni. Það hefur eflaust
ekki þótt við hæfi að borgarfull-
trúar færu á fullt opinberlega í
keppni um borgarstjórastólinn
meðan Davíð væri ekki orðinn
forsætisráðherra.
Hins vegar er alveg Ijóst að það
kann að vega þungt hver vilji Dav-
íðs Oddssonar er til þess hver eftir-
maður hans verði. Árni Sigfússon
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
munu eflaust berjast hart og gefa
hvergi eftir. Hafa sumir látið sér
detta í hug að verði tvísýnt um
hvor þeirra tveggja verði ofan á,
að þá verði gerð sú málamiðlun að
gera í staðinn Magnús L. Sveins-
son að borgarstjóra út kjörtímabil-
ið og síðan ráði prófkjör því hver
leiði Sjálfstæðisflokkinn í Reykja-
vík fyrir næstu kosningar.
Engu skal spáð um hversu iengi
forsætisráðherra nennir að sitja
borgarstjórnarfundi, eins og hann
hefur lýst yfir að hann hyggist
gera. Það yrði hálf pínleg staða
fyrir þá sem eítir sitja í borgar-
stjórn að hafa Davíð áfram svíf-
andi um sali borgarstjórnar á
sama tíma og hann er hættur.