Alþýðublaðið - 31.05.1991, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 31. MAÍ
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík 100 ára
Nú er Stýrimannaskólinn til
húsa í Sjómannaskólanum
sem var vígður haustid 1945.
Gudjón Ármann Eyjólfsson,
höfundur þessarar greinar,
hefur ueriö skólastjóri Stýri-
mannaskólans frá árinu 1981.
Að reikna út stöðu
sjóúrsins og
gang þess
A þessu ari er mmnst 100 ara
afmælis Stýrimannaskólans í
Reykjavík. I eftirfarandi grein
eru raktir nokkrir meginþættir í
sögu skólans á þessu tímabili.
Við samningu þessarar greinar
hefur einkum verið stuðst við
frumdrög Einars S. Arnalds BA
að sögu skólans sem hann vinn-
ur við að skrifa.
Eftir stofnun Stýrimannaskólans
árið 1891 fundu landsmenn greini-
lega að skólinn var höfuðatvinnu-
vegi lslendinga mikill aflgjafi og
bakhjarl. Ég leyfi mér að álíta að svo
sé enn og verði um langa hríð og
hagur þjóðfélagsins, sem oft er erfitt
að meta í tölum eða beinhörðum
peningum, verði þeim mun meiri
sem betur er búið að Stýrimanna-
skólanum.
Fyrstu 10 árin_________________
Fyrsta skólaárið, 1891—92, voru
nemendur 14 í byrjun skólaárs. Þeir
voru á aldrinum 16 til 27 ára. Pétur
Inggjaldsson frá Lambastöðum á
Seltjarnarnesi var yngstur, en elstur
var Jón Sigurðsson frá Túni á Eyrar-
bakka.
í þessum hópi voru nokkrir síðar
landskunnir menn, t.d. Kristinn
Magnússon í Engey, sem þá var 18
ára gamall, og Ottó N. (Nóvember)
Þorláksson, einn af hvatamönnum
að stofnun Sjómannafélagsins Bár-
urinar í Reykjavík árið 1894 og fyrsti
forseti Alþýðusambands Islands.
Hinn 26. október bættist í hóp læri-
sveina, eins og nemendur voru þá
nefndir, Páll Halldórsson, tvítugur
að aldri, ættaður frá Hnífsdal við
ísafjarðardjúp. Hann átti síðar eftir
að taka við skólastjórn, þegar Mark-
ús F. Bjarnason, fyrsti skólastjóri
Stýrimannaskólans, andaðist fyrir
aldur fram árið 1900.
Námsgreinar voru í fyrstu þessar:
stýrimannafræði, stærðfræði, ís-
lenska, danska, enska og sjóréttur.
Auk Markúsar, sem kenndi 36
stundir á viku, kenndu fyrsta skóla-
árið, Geir T. Zoéga síðar rektor
Menntaskólans í Reykjavík, sem
kenndi ensku 2 st. á viku, Ludvig
Knudsen guðfræðingur og síðar
prestur, sem kenndi dönsku 4 st. á
viku, Lárus H. Bjarnason lögfræð-
ingur, síðar hæstaréttardómari, sem
kenndi íslensku 4 st. á viku og Páll
Einarsson lögfræðingur og síðar
hæstaréttardómari, sem kenndi sjó-
réjt 2 st. á viku.
I febrúar voru mælingar með sex-
töntum og voru mæld lárétt horn og
hæð sólar yfir tilbúinn sjóndeildar-
hring, fyrir utan hádegisbaug og í
hágöngu, og síðan reiknuð út breidd
Reykjavíkur. Tveir nemendur, Páll
Halldórsson og Pétur Ingjaldsson,
gerðu ,,klukkusláttarathugun“, at-
hugun á azimuth (þ.e. fundu rétta
miðun til sólar til þess að finna seg-
ulskekkju áttavitans) og viksathug-
un („þegar sólin gekk undir fór fram
amplitúðuathugun"); þeir hinir
sömu reiknuðu einnig út stöðu sjó-
úrsins og daglegan gang þess.
Þetta fyrsta skólaár voru nemend-
ur misjafnlega lengi fram eftir vetri
í skólanum; 1. mars hættu 10 nem-
endur og 30. apríl tveir hinir síðustu
og var skólanum þá sagl upp.
Fyrstu prófin við skólann
Skólaárið 1892—93 var skólinn
settur 1. október kl. 12 á hádegi; en
kennslu lauk 4. mars 1893. Fyrstu
prófin við skólann voru haldin við
lok þessa skólaárs, og hófust prófin
hinn 5. mars. Niðurstaða þessara
prófa er skráð í fyrstu prófbók fyrir
Stýrimannaskólann í Reykjavík,
sem var löggilt af Stiptsyfirvöldum
Islands hinn 7. mars 1893.
Próf frá Stýrimannaskólanum
voru í fyrstu tvö; hið minna stýri-
mannspróf og hið meira stýri-
mannspróf. Hið fyrrnefnda var ætl-
að fiskimönnum, en hið síðara þeim
sem vildu læra meira eða stunda
siglingar á verslunarskipum í utan-
landsferðum. Bæði þessi próf voru
að mestu sniðin eftir samsvarandi
dönskum prófum til hliðstæðra at-
vinnuréttinda og voru skriflega
verkefni i stærðfræði og siglinga-
fræði send landshöfðingja frá „stýri-
mannakennsluforstjóranum" í
Kaupmannahöfn ,,og voru þau áður
en prófið byrjaði afhent prófnefnd-
inni í umslagi með innsigli lands-
höfðingjans", eins og segir í prófbók
árið 1897, þegar ítarlegar er greint
frá prófum en var fyrstu árin sem
prófað var; er svo ritað til ársins
1904, þegar nýstofnað stjórnarráð
fékk prófin í hendur frá Kaup-
mannahöfn og afhenti þau próf-
nefnd.
Sex nemendur gengu undir fyrsta
próf skólans, hið minna stýrimanna-
próf, í mars 1893. Hæstu einkunn í
hópi fyrstu prófsveina hlaut Jón
Guðmundur Þórðarson frá Mýrar-
húsum á Seltjarnarnesi, samtals 59
stig, en allar voru einkunnir svipað-
ar, aðaleinkunn á bilinu 45 til 59
stig. Eftir þetta voru haldin próf
hvert vor.
Skólaárið 1898—1899 fjölgaði
nemendum mikið, enda var skólinn
þá fluttur í nýreist skólahús, „gamla
stýrimannaskólann" við Öldugötu,
og þilskipaflotinn við Faxaflóa hafði
vaxið örum skrefum eftir að skólinn
var stofnaður. Vorið 1899 gengu 25
lærisveinar undir hið minna stýri-
mannapróf. I þeim hópi voru m.a.
Hjalti Jónsson (f. 15.04. 1869) síðar
þekktur sem Eldeyjar-Hjalti, Indriði
Gottsveinsson skipstjóri á fyrsta
gufutogara í eigu Islendinga, togar-
anum Coot, sem var keyptur til
landsins árið 1904; einnig útskrifað-
ist Sigurður Pétursson frá Hrólfs-
skála á Seltjarnarnesi, sem varð
skipstjóri á Gullfossi, fyrsta skipi
Eimskipafélags Islands, sem kom til
landsins árið 1915 og var Sigurður
hæstur á prófinu með samtals 60
stig.
Vorið 1899 var í fyrsta skipti hald-
ið „hið meira stýrimannspróf". Að-
eins einn nemandi, Jóhann Þórar-
insson, sem fæddur var í Hlíðarkoti
í Snæfellssýslu 28. maí 1868, hafði
afhent bónarbréf um að mega
ganga undir prófið. Verkefni í skrif-
legri íslensku var mjög skemmti-
legt: Skipstjóri lýsir í bréfi til út-
gjörðarmanns áfalli, sem skip
hans varð fyrir úti á hafi í
stormi, hvernig það atvikaðist
og á hvaða hátt hann gat bjargað
skipi og mönnum og komizt í
góða höfn á íslandi, svo og hverj-
ar lagalegar ráðstafanir hann
hafði gjört til þess að fá skaðann
bættan.
Vorið 1901, þegar skólinn hafði
starfað í 10 ár, höfðu 137 lokið hinu
minna stýrimannsprófi, en 3 hinu
meira prófi; eða samtals 143 nem-
endur.
Stöng með timqknetti
Vöxtur og viðgangur skólans
sprengdi fljótlega upphaflegt hús-
næði af sér, sem var viðbygging við
Doktorshúsið, heimili Markúsar
skólastjóra. Arið 1898 flutti skólinn
í veglegt skólahús á þeirra tíma
mælikvarða. Húsið hafði verið