Alþýðublaðið - 11.12.1992, Side 11

Alþýðublaðið - 11.12.1992, Side 11
Föstudagur 11. desember 1992 11 Verkalýðsfélagið Skjöldur á Flateyri SMÁNA ÁHÖFN TOGARASÍNS - með ótrúlegum hroka og lítilsvirðingu, segir í ályktun Skjaldar vegna sölu Hjálms á Gylli Verkalýðsfélagið Skjöldur á Flat- evri sendi í gær frá sér svohl jöðandi ályktun: „Verkalýðsfélagið Skjöldur á Flat- eyri átelur harðlega vinnubrögð út- gerðamianna bv. Gyllis ÍS 261, þar sem þeir með ótrúlegum hroka og lít- ilsvirðingu smána áhöfn togara síns með því að láta þessa farsælu áhöfn sína frétta fyrst af sölu togarans í út- varpsfréttum þann 8. des. sl. og ekki bætir um fyrir útgerðaraðli þessum að vera enn ekki farinn að færa söluna og framtíðarhorfumar í tal við áhöfnina. Áfall það sem áhöfn Gyilis, starfs- fólk Hjálms og byggðarlagið í heild verður fyrir er nægt þó framkvæmda- stjóri fyrirtækisins ali ekki á því með slíkri lítilsvirðingu gagnvart starfsfólki sínu, sem auðvitað gerir ekkert' annað en að skapa úlfúð og leiðindi sem lítið sjávarþorp má ekki við nú þegar fyrsta áfallið af fleirum í atvinnulífi staðarins ríður yfir. I’að er með ólíkindum að menn sem ekki kunna betur skil á því að ná ár- angri með starfsfólki sínu skuli vera þess umkomnir að segja alþjóð hvemig á að haga sér og hvað skal gera næst. Verkalýðsfélagið Skjöldur, Flateyri“ „Bjargvætturinn" fær föst skot frá heimamönnum á Flateyri: „Meö ólíkind- um að mcnn sem ekki kunna bctur skil á því að ná árangri með starfsfólki sínu skuli vera þess umkomnir að segja alþjóð hvernig á að haga sér og hvað skal gera næst.“ íslenskur fiskur inn á veitingahúsamarkaðinn í Evrópu störf í húfi - efEES dregst á langinn. Svissneskt fyrirtœki úr myndinni eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna þar. Nauðsynlegt fyrir Islendinga að samþykkja EE Euromat er nafn á verk- efni nokkurra aðila sem vinna að stofnun fyrir- tækjanets sem stefnir að markaðssetningu ís- lenskra matvæla á hinn nýja Evrópumarkað sem opnast nú eftir áramót þegar og ef EES tekur gildi. Verkefnið lofar góðu, en Ijóst er að ekkert verður af því ef Alþingi dregur EES- saminginn á langinn cða liafnar honum. Eins og málin standa eru nokkur íslensk fyrirtæki í fiskvinnslu og mjólkuriðn- aði tilbúin að taka þátt í verkefninu. Um er að ræða frantleiðslu og útflutning á sjávarafurðum, súpum og sósum fyrir veitingahúsa- keðjur í Evrópu. Hér þarf því að konta til ný nteðhöndlun á fiskinum og ný- stárlegar pakkningar, sem henta stórum veitingahúsum og mötuneytum. Þá eru einnig miklir möguleikar á út- flutningi vannýttra fisktegunda á þenn- an markað. I tengslum við þennan út- flutning þarf því að hanna og vinna nýjar umbúðir og hefur eitt íslenskt umbúðafyrirtæki sýnt áhuga á að koma inn í verkefnið. Þá eru líkur á að hanna þuifi sérstakan vinnslubúnað fyrir þau fiskvinnslufyrirtæki sem taka þátt í verkefninu og því skapast tækifæri fyr- ir innlendan rafeinda- og hátækniiðn- að. Fyrir utan vinnslu og útflutning á fiski eru uppi hugmyndir unt fram- leiðslu á súpum og sósum úr ýmsum sjávarafurðum. I þá framleiðslu þarf töluvert af mjólkurdufti og hafa fyrir- tæki í mjólkuriðnaði verið fengin inn í fyrirtækjanetið til þess að sjá um þá framleiðslu, ef af verður. Það er því ljóst að íslenskur landbúnaður getur notið góðs af þessum útflutningi. Eitt af meginatriðunum íþessu verk- efni eru samningar við erlend markaðs- og dreifingarfyrirtæki. Samkvæmt heimildum blaðsins eru samningar nú þegar langt komnir við tvö frönsk og tvö bresk fyrirtæki. Þama er um að ræða ntjög stóra og öfl- uga aðila sem hafa góðan aðgang að veitingahús- um um alla Evrópu. Eitt svissneskt matvæla- dreififyrirtæki í Genf var með í fyrirtækjanetinu, en eftir að EES-samn- ingnum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í Sviss settu Frakkamir því stólinn fyrir dymar. Að auki mun ílalskt fyr- irtæki hafa verið inn í myndinni, en stjómendur þess hafa efasemdur um að EES samningurinn verði samþykktur á fs- landi og hafa því dregið sig íhlé íbili. 4k % ...alltafþegar við erum vandlát h MERKISMENN HF

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.