Alþýðublaðið - 03.09.1993, Blaðsíða 1
GEIRDAL HAFNAÐI
RANNVEIGU
- bœjarstjóri œtlaði að hummafram afsér hugmynd um að Rannveig Guðmundsdóttir, formaður
menningarmálanefndar Norðurlandaráðs, myndi ávarpa menningarmálaráðstefnu vinabœja Kópavogs
Furðuleg atkvæðagreiðsla fór fram í
vikunni í Vinabæjanefnd Kópavogs. Þar
voru greidd atkvæði um hvort heimila
bæri að Rannveig Guðmundsdóttir, for-
maður menningarmálanefndar Norður-
landaráðs, einnar veigamestu nefndar
þeirrar stofnunar, - skyldi flytja ávarp á
menningamálaráðstefnu vinabæja
Kópavogs, sem haldin verður í dag. Bæj-
arstjórinn, Sigurðiir Geirdal, sat hjá við
atkvæðagreiðsluna, aðrir nefndarmenn
samþykktu.
Nú skyldu menn halda að Kópavogur
vildi tjalda öllu sem til er þegar góða gesti
ber að garði. En það fannst bæjarstjóranum
greinilega ekki, hann vildi fyrir alla muni
ekki að formaður menningarmálanefndar
Norðurlandaráðs, Kópavogsbúi, þingmað-
ur og bæjarfulltrúi til margra ára, ávarpaði
hina norrænu gesti. Mál þetta hefur verið í
farvatninu vikum saman og mest á borði
bæjarstjórans, sem greinilega vildi svæfa
málið. Ekkert svar fékkst, þar til Kristján
Guðmundsson, fyrrum bæjarstjóri Kópa-
vogs, og formaður Norræna félagsins í
Kópavogi, krafðist atkvæðagreiðslu í Vina-
bæjanefndinni. Þá sýndi Geirdal hug sinn
og sat hjá eftir að hafa þumbast við að halda
Rannveigu frá ráðstefnunni.
„Þetta er furðuleg afstaða bæjarstjórans
og sýnir best hugsunarháttinn. Séu menn
ekki framsóknarmenn, þá em þeir baneitr-
aðir óvinir hans“, sagði einn heimildar-
manna Alþýðublaðsins í gær.
Þeir sem greiddu atkvæði með ávarpi
Rannveigar, voru Kristján Guðmundsson,
fulltrúi Norræna félagsins í Kópavogi, Am-
ór L. Pálsson, Sjálfstæðisflokki og Margrét
Eiríksdóttir, Alþýðuflokki. Fulltrúi Fram-
sóknarflokksins í nefndinni, Stefán Am-
grímsson, mætti ekki til fundar.
Alþýðublaðið náði ekki tali af bæjar-
stjóra Kópavogs vegna þessa máls í gær.
ÁSMUNDUR VILL HÆKKA VEXTI
„Ég er ekki hissa,“ segir Guðmundur J. Guðmundsson fonnaður Dagsbrúnar um
sinnaskipti Ásmundar Stefánssonar og segir vaxtahækkanir aðför að verkafólki. „Fiann
kom nú helvíti fínn kallinn í sjónvarpinu. Þeir hafa dressað hann upp, burstað hann, hellt
yfir hann lýsi, þvegið hann, snyrt á honum skeggið og hvað eina,“ bælti Guðntundur við.
Benedikt Davíðsson: Finnst ekkert athugavert við rök forvera síns. Horfir ekki á sjón-
varp og kannast því ekki við þetla.
BLADIÐ SENT TIL ÍSLENDINGA 18 OG 19 ÁRA
Alþýðublaðið í dag er borið til allra íslendinga, sem em 18 og 19 ára, fólk sem al-
mennt er að undirbúa vetursetu í skóla. Blaðið tjallar enda að meginhluta til unt fram-
haldsskólana, annað nánt sem er í boði og ýmislegt fieira er höfðar til þessa æskutölks
sem landið ntun crfa innan skamms. Hinu unga fólki sem nú fær Alþýðublaðið til lest-
urs, óskum við alls hins besta í námi og starfi á komandi vetri.
Tölvunefnd óskar að þess sé gehð hér að blaðið er sent þessum hópi samkvæmt skrá, sem er í vörslu Markaðsráðs hf.
i
. ®
O K K A R F R A M L A G
T I
S:K; Ö L: A F Ó L
ll 1* » » *
/\ / •,
/ V \
OKKAR
FRAMLAG
GAMLA SKÓLARITVÉLIIU
GILDIR SEM GREIÐSLA UPP f lUÝJAM HLUT
f VERSLUIU IUÝHERJA
Hvort sem það er ný tölva, tölvuprentari, ný skólaritvél eða bara hvað sem er...
Komdu með gömlu skólaritvélina og byrjaðu skólaárið í Nýherja!
Ef þú ætlar að kaupa t.d.
Star LC-100 litaprentara og
setur gömlu skólaritvélina
uppí, lítur dæmið svona út:
Star LC-100 19.900 kr.
Silver Reed
skólaritvél (1-2 ára) 8.900 kr.
Þú greiðir því aðeins 11.000 kr.
Komdu til okkar í NýheYja og þú færð
góða þjónustu og vandaðar vörur
sem gera námið enn skemmtilegra.
ss B
s i
LC24-100, 24 nála prentari
24.900 kr.
LC-100 litaprentari
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 • SlMI 69 77 77 & 69 77 88
19.900 kr.
Alltaf skrejt á undan