Alþýðublaðið - 03.09.1993, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 03.09.1993, Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Föstudagur 3. september 1993 SKILABOÐ & SKÓLAMÁL ÞAÐ ER BJART YFIR... Venjuleg þriggja þrepa sjálfskipting Nissan síbreytiskipting (N.CVT) Háþróuö sjálfskipting N.CVT Háþróuö Nissan sjálfskipting meö tölvustýrðri kúplingu, sem gefur mjúkt þrepalaust viöbragö. Býöur uppá einstaka sparneytni og fyrirhafnarlausan akstur. NYJA BILNUM FRA NISSAN ■B ÞETTA ER AUÐVITAÐ BÍLL ÁRSIIMS 1993, GLÆNÝR OG SPRÆKUR ARGERÐ BEINT ÚR KASSANUM m H E l -17 Li llli. Ingvar Helgason hf. Sævarhöföi 2,112 Reykjavík Sími674000 UERÐ AÐEINS 855.000.- KR. STGR Fólk meö viti les smáa letrið og notar öryggisbeltin alltaf Þaö er leikur að læra - á hvaða aldri sem er! Bréfaskólinn Bréfaskólinn hefur starfað í meira en hálfa öld og er öllum opinn allt árið. Þar er boðið upp á margs konar fjarnám þar sem notuð eru kennslubréf, hljóðsnældur, myndbönd, mynd- sendir og einnig nærkennsla í einstaka námskeiðum. Megin- flokkar námskeiðanna eru: Almenn fræðsla og tómstundaiðja Nám á grunnskólastigi Nám á framhaldsskólastigi Starfstengd námskeið Félagsstörf og bókmenntir Sérstaklega hannað námsefni til sjálfsnáms í erlendum tungumálum Námsráðgjöf í síma Nemendur sem ljúka námskeiðum á framhaldsskólastigi geta tekið stöðupróf í framhaldsskólum og þannig hlotið námseiningar á framhaldsskólastigi. Að loknu bóklegu námi í Bréfaskólanum í siglingaffæði geta nemendur tekið próf í stýrimannaskólum og víðar. Nemendur Bréfaskólans í véla- varðanámi geta að loknu bóklegu námi tekið verklegt nám í framhaldsskólum og lokið prófi þar. Ymis konar afsláttur er í boði svo sem fjölskylduafsláttur og hópafsláttur. Bréfaskólinn hefur samstarf við marga aðra fræðsluaðila og stofnanir um hönnun og rekstur námskeiða með fjar- kennslusniði. Alliance Francaise Boðið er upp á frönskukennslu á þremur stigum hjá.Alli- ance Francaise í Reykjavík. Hverju stigi er skipt í tvo áfanga, en hver áfangi samsvarar einu námsmisseri hjá Alliance Francaise. Kennt er tvisvar í viku, tvo tíma í senn. Ný nám- skeið hefjast í september, í janúar og í maí. Einnig er í boði samtalshópur fyrir þá sem hafa öðlast góða þekkingu á franskri tungu. Einnig er að finna bamahóp þar sem kennt er einu sinni í viku tvo tíma í senn. Hjá Alliance Francaise fer fram undirbúningur fyrir próf Alliance Francaise í París „Diplomes de l'Alliance Francaise de Paris". Það er ætlað þeim sem vilja bæta skriflega kunn- áttu sína, málfræðiþekkingu og læra meira um franskar bók- menntir og menningu. Þýskunámskeið Germaníu Boðið er upp á þýskunámskeið fyrir byijendur og lengra komna á öllum stigum hjá Germaníu í Reykjavík. Mest áhersla er lögð á talþjálfun, málfræði (sem að verulegu leyti er æfð með talæfingum og tekur mið af hversdagslegri notk- un málsins), hlustunar- og lesskilning, aukningu orðaforðans og framburð. Um er að ræða tvö námskeiðsstímabil á hverjutn vetri; annars vegar frá septemberbyrjun ffarn í desember og hins vegar frá janúarlokum fram í apríl. Bæði tímabilin spanna 11 vikur og fer kennsla í flestum flokkum fram einu sinni í viku (byijendur á haustin mæta tvisvar í viku). Kennt er í 90 mín- útur í hvert skipti. Unnt er að ganga inn í hvaða flokk sem er bæði í september og í janúar og er síðan ávallt boðið upp á beint framhald á næsta námskeiðstímabili þar á eftir. Kennsla fer ffam f Lögbergi, Háskóla íslands. Kennt er á kvöldin frá mánudegi til fimmtudags. Leyfilegt er að sækja kennslu í tveimur eða fleiri flokkum samtímis án jress að á móti komi hækkun á námskeiðsgjaldi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.