Alþýðublaðið - 03.09.1993, Page 7
Föstudagur 3. september 1993
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
„VINSTRI HELMINGURINN"
SAMBAND UNGRA JAFNAÐARMANNA
SUJ er í stjómarandstöðu
- hvað varðar LIN
Jón Þór Sturluson, ritari Sambands ungra jafnaðarmanna, skrifar
Á síðustu árum hefur Samband ungra jafnaðarmanna (SUJ)
beitt sér kröftuglega í menntamálum og þá sérstaklega varðandi
málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þegar hugmyndir að
nýju frumvarpi um LÍN litu dagsins ljós fyrir rúmlega einu og
hálfu ári brugðust ungir jafnaðarmenn harkalega við og var
áherslan í gagnrýninni lögð á fjögur atriði: (1) Of háar endur-
greiðslur. (2) Takmarkanir á réttindum iðnnema til námslána.
(3) Eftirágreiðslur. (4) Skerðing á félagslegu hlutverki sjóðsins.
Samband ungra jafnaðarmanna fékk
samþykktar um breytingar á frumvarpinu
innan Alþýðuflokksins, fyrst í flokksstjóm
og síðar á flokksþingi, eftir að frumvarpið
varð að lögum. Samt sem áður hafa engar
breytingar náð fram að ganga í ríkisstjóm
og má því segja að SUJ sé í stjómarand-
stöðu hvað þetta mál varðar. I kjölfar mál-
flutnings SUJ, innan flokksins sem utan,
var stofnuð nefnd sem hefur nú starfað í
hartnær eitt ár. Nefhdin er skipuð undirrit-
uðum og Sigþóri Ara Sigþórssyni fyrir
hönd SUJ og fyrir hönd þingflokksins sitja í
henni þau Sigbjöm Gunnarsson og Sjöfn
Sigurbjömsdóttir. Vonast er til að fjóreyki
þetta skili af sér störfum nú í haust.
„BókhaldsblöfP‘
En hvað er það eiginlega sem við ungir
jafnaðarmenn sættum okkur ekki við í lög-
um Lánasjóðsins? í fyrsta lagi var tekin upp
sú nýbreytni fyrir ári að námsaðstoð var að-
eins greidd efrir á. Það er, aðeins eftir að
einkunnir höfðu verið birtar var hægt að fá
lán sín útborguð.
Afleiðingin af þessu varð sú að fjöldi
námsmanna þurfti í vetur að lifa á yfirdrátt-
arlánum bankanna með ómældum tilkostn-
aði, óþægindum og áhættu. Áður borgaði
Lánasjóðurinn út mánaðarlega, en gerði svo
upp við námsmanninn eftir á.
Kannski hefði þessi breyting verið rétt-
lætanleg ef hún hefði skilað umtalsverðum
spamaði fyrir ríkið, en því fer fjarri. I dag er
það almennt viðurkennt, sem við ungir
jafnaðarmenn höfðum áður bent á, þessar
aðgerðir vom einungis bókhaldsblöff.
Peningaútlátum var frestað ffam yfir ára-
mót svo að fjárlagahallinn árið 1992 yrði
ekki eins mikill. Aðgerðin var frekar út-
gjaldaauki fyrir sjóðinn ef eitthvað er, því
ofan á lán námsmanna bættist svokallað
vaxtaálag. Það borgast þó á endanum af
námsmönnunum sjálfum.
Syndir feðranna
Um leið og þetta var gert var reglum um
endurgreiðslur lánanna einnig breytt. Áður
fyrr var endurgreiðsla háð tekjum, þannig
að hver borgaði 3,75% af tekjuskattsstofni.
Nú er það hins vegar svo að greiða verður
5% af tekjum til baka fyrstu fimrn ár endur-
greiðslutímans, en svo 7%.
Það er svolítið hjákátlegt að margir þeirra
sem samþykktu þessi lög em nú að greiða
af óverðtryggðum lánum með 3,75% af
tekjum sínum. Hvort það sé of lítið skal
ósagt látið, en að minnsta kosti finnst þessu
fólki, að okkur námsmönnum sé ekki of
gott að greiða helmingi hærri upphæð.
Hér er um gmndvallaratriði að ræða. Við
emm á næstu ámm látin borga fyrir ódýra
kerfið sem foreldrar okkar nutu góðs af.
Fælist ekki meiri sanngimi í því að þau
borguðu eigin sukk?
I áðumefndum lögum vom fleiri atriði
sem hafa angrað ungra jafnaðarmenn mjög.
Má þar helst nefna skerðingu á lánshæfni
iðnnáms og niðurfellingu ákvæðis um að
tillit sé tekið til félagslegrar stöðu lántaka.
Hvaða samræmi er það, að tala um aukið
vægi iðnmenntunar, en um leið gera hana
enn meira óaðlaðandi en nú? Sömuleiðis
vaknar sú spuming hvort bamsfæðing eða
aðrar félagslegar ástæður eigi að hafa áhrif
á framtíðarmöguleika einstaklingsins. Við
segjum nei.
Ungir jafnaðarmenn
segja ekkí pass!
En Samband ungra jafnaðarmanna gerir
meira en að mótmæla lélegum lögum, held-
ur höfum við líka sitthvað til málanna að
leggja. Til að mynda höfum við ákveðnar
skoðanir á því hvemig námsaðstoðarkerfi
skuli líta út. Hér á eftir em helstu atriðin
sem við myndum leggja áherslu á ef við
fengjum að stjóma kerfmu:
# Til að tryggja jafhrétti til náms er nauð-
synlegt að ríkisvaldið sjái fyrir traustu
námsaðstoðarkerfi sem tryggir fjárhagslegt
öryggi til ástundunar náms, að vali hvers og
eins. Taka verður tillit til margbreytilegra
félagslegra aðstæðna með ofangreind
markmið í huga. Líta verður á námsaðstoð-
arkerfið heildrænt, en ekki eingöngu á
námslánin sjálf. Húsnæðismál, dagvistun-
armál og samgöngur em þættir sem nðáms-
aðstoðarkerfið þarf að spanna. Ekki skal
mismunað eftir námsleiðum. Það er ekki
hlutverk slíks kerfis að stýra fólki í nám,
hvorki á fjárhagslegum forsendum né öðr-
um.
# Hvaða nám skal njóta námsaðstoðar?
Miðað við fyrrgreind markmið er nauðsyn-
legt að allir þeir sem ekki em fjárhagslega á
ábyrgð forráðamanna fái aðstoð, burtséð fr á
því hvaða nám þeir stunda. I mörgum til-
fellum er ekki nægjanlegt að miða aldurs-
takmark lántaka við 20 ár. Samband ungra
jafnaðarmanna hefur hingað til viljað skipa
iðnnám á bekk með öðm „lokanámi“.
# Fjármagna skal lánasjóð af almennu
skattfé og skal framlag hins opinbera að
jafnaði aldrei vera það lítið að eigið fé
sjóðsins skerðist. Ekki skal leita til annarra
aðila, svo sem aðila á vinnumarkaði og
einkaaðila, til slíkrar fjármögnunar - nema
í undantekningartilfellum. Sjálfstæði náms-
manna er ekki síður mikilvægt en sjálfstæði
kennslu- og rannsóknastofnanna.
# Námsaðstoð skal greidd út jafnóðum
og nám fer fram og þá á svipaðan hátt og al-
mennt gildir um vinnulaun, svo frerrú sem
námsmaður hafi skilað viðunandi námsár-
angri fram að þeim tíma. Nauðsynlegt er að
samræmd skilgreining á námsframvindu sé
notuð.
# Endurgreiðslur námslána skulu vera
tekjutengdar. Samband ungra jafnaðar-
manna telur stighækkandi endurgreiðslu-
hlutfall heppilegast, bæði til jöfnuðar og
eflingar á fjárhagsstöðu sjóðsins. Ungir
jafnaðarmenn geta engan veginn fellt sig
við vexti á námslán.
# Aðstoð til framhaldsskólanáms verður
að skoða sérstaklega. Eftir hefðbundið há-
skóla- eða starfsnám hafa margir nemendur
væntanlega safnað að sér dálaglegum
skuldum. Jafnframt ber að athuga að mikið
af þessu námi er stundað erlendis og hlýst
af því mun meiri kostnaður fyrir náms-
manninn en ella. Blása þarf lífi í rannsókna-
tengt styrkjakerfi til framhaldsnáms.
# Samband ungra jafnaðarmanna neitar
ekki að horfast í augu við kostnað af góðu
námsaðstoðarkerfi. SUJ lítur einfaldlega á
menntun sem góða fjárfestingu sem nauð-
synleg er fyrir þjóðfélagið. Fjármögnun
menntunar á ekki heim í einkageiranum.
Höfundur er nemi í hagfræði við Háskóla
islands og formaður RÖSKVU.
Fellum íhaldið með kosninga-
bandalagi vinstri flokkanna
Ingvar Sverrisson, formaður borgarmála-málstofu
Félags ungra jafnaðarmanna íReykjavík, skrifar
í nær sex tugi ára hefur Sjálfstæðisflokkurinn farið með völd í
höfuðborginni. Á þessum tíma hafa þeir náð að festa sig í sessi
svo um munar. Þar af leiðandi segir það sig sjálft að komist ann-
ar meirihluti en þeirra í borgarstjórn verður afar erfitt fyrir
nýja meirihlutann að fóta sig við stjómunina vegna þessa sterka
embættismannakerfís sem sjálfstæðismenn hafa lagt undir sig.
Borginni hefúr verið stjómað af (sjálf-
stæðisjmönnum sem láta sér ekkert fyrir
bijósti brenna, eru spilltir fram í fingur-
góma og hugsa fyrst og fremst um eigin
rass. Besta dæmið um þetta er bygging
Perlunnar þar sem stærsta og flottasta veit-
ingahús landsins er byggt af borgaryfir-
völdum og síðan afhent einum dyggum fé-
laga í flokknum til einkareksturs.
Það sætir fúrðu að flokkur, sem ávallt
hefúr haldið fram ágæti einkareksturs og
engra ríkisafskipta, byggi slíkt hús, afhendi
það einkaðila til reksturs og greiði svo 80
milljónir króna í viðhald eins og ákveðið
var að gera við síðustu fjárhagsáætlun. Svo
ekki sé talað um að veitingahúsamarkaður-
inn var löngu mettur og samkeppnin ein sú
harðasta sem þekkist á íslandi, afleiðingar
þessa sjá allir.
Pappírspeningar
sjaiistæðisnianna
Nú fer að koma að kosningum og sjálf-
stæðismenn eru svo sannarlega byrjaðir að
undirbúa sig með því að gera S VR að hluta-
fyrirtæki og búa þannig til pappírspeninga
svo staða borgarinnar líti betur út.
Vinstri flokkamir hafa löngum reynt að
fella meirihluta íhaldsins. Þá sjaldan sem
það hefur tekist helst það ekki lengur en
fjögur ár. Hvað er til ráða? Nú þegar em
hafnar viðræður um sameiginlegt framboð
vinstriflokkanna á ný en ég er mjög efins
um að það takist eins og staðan er í dag, nær
lagi væri að bindast einhverskonar kosn-
ingabandalagi þó svo boðið yrði fram undir
mismunandi merkjum.
Kosningabandalag í
Reykjavík nauðsyn
Alþýðuflokkurinn er þvf miður ekki í
vænlegri stöðu fyrir þessar kosningar mið-
að við þær vinsældatölur sem birtast í skoð-
anakönnunum. Hins vegar látum við jafn-
aðarmenn okkur ekkert fyrir bijósti brenna
og hefja verður baráttuna sem fyrst.
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík hafa
mikið rætt þessi mál og lagt mikla áherslu á
að þau komist af stað sem fyrst. Því miður
virðist biðin ætla að verða lengri.
Nýr vettvangur hefúr nú þegar boðað Al-
þýðuflokkinn til viðræðna um hvort enn sé
fótur fyrir sameiginlegu framboði og verða
flokksmenn nú að fara að ákveða sig í þess-
um máium svo hægt sé að koma undirbún-
ingsvinnu í gang.
Ungliðahreyfingar félagshyggjuflokk-
anna ræddu þessi mál örlítið sín á milli á
fundum í vor. Þar virtist vera nokkuð góð
málefnaleg samstaða um flest veigamikil
málefni eins og almennt er með vinstri
helminginn í íslenskum stjómmálum. það
er því nauðsynlegt að bindast einhverskon-
ar kosningabandalagi og fella núverandi
meirihluta.
Sameiginleeur kraftur
vinstri flokkanna
Mér hefur þótt það fremur undarlegt
miðað við ffamgöngu sjálfstæðismanna að
þeir skuli ávallt verða kosnir aftur til valda í
borginni. Það eru þó til ýmsar skýringar og
tel ég helst að ónógur undirbúningur vinstri
flokkanna og eilíft ósamkomulag þeirra sé
ástæðan.
Sameiginlegur kraftur þessara flokka er
nauðsynlegur til að vinna slag sem þennan.
Einnig er nokkuð ljóst að menn hafa oft
verið teknir ffarn yfir málefnin og þeir
þannig verið ástæða þess við hvað er merkt
á kjörseðlinum eins og best þekkist með
Davíð Oddsson.
Þess vegna tel ég að kominn sé U'mi til að
skipta út þeim gömlu, sem setið hafa í
fjölda ára í borgarstjóm og em augljóslega
orðnir þreyttir á þessu öllu saman.
Ungt fólk með ferskar
hugmyndir taki við
Já, það er kominn tími til að skipta út og
Játa yngra fólkið taka við með nýjar og fer-
skar hugmyndir. Borgarmálefnin hafa al-
mennt löngum verið talin mjög þreytandi
og leiðinleg og er það oftast nær rétt. Þess
vegna hafa þau fengið Ktinn sess í fjölmiðl-
um og áhuginn er enginn.
Þannig vilja einmitt sjálfstæðismenn
hafa hlutina, geta garfað alveg óáreittir í
sínum málum með okkar peninga og logið
okkur svo full með aðstoð embættismanna
sinna til þess að eins að komast á spenann
aftur.
Þetta er einmitt það sem þarf að brey ta og
með ungu og sterku fólki með nýjar og fer-
skar áherslur er vel hægt að vekja almenn-
ing til vitundar um það sem er að gerast í
borginni leiða það svo inn á betri veg —
veg jafnaðarstefnunnar.
Höfundur er ritari Sambands ungra
jafnaðarmanna og nemi í stjórnmálafræði
við Háskóia islands.
J&Cli
Vlnnmgstöi
m
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
if 1 6 af 6 2 (0 á ísl.) 78.240.000
ETH 5 af 6 Lfi+bónus 2 677.836
pcH 5 af 6 10 106.517
F1 4 af 6 1.091 1.553
3afg CJU+bónus 3.310 219
Aðaltölur:
BÓNUSTÖLUR
Heildarupphaeó þessa viku:
161.320.055
á ísl.:
4.840.055
UPPLYSINQAn. SÍMSVARI 51-68 15 11
LUKKULÍNA 9910 00 - TEXTAVARP 451
»I«T #8« fYAIIIVAAA U» PRIINrvltLUB