Alþýðublaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 9
Föstudagur 31. desember 1993________
Júlí
Bónus í hús keppinautar
Alþýðublaðið greinir ffá því fyrst blaða í júlí að
Bónus hafi tekið á leigu húsnæði fyrrum keppinaut-
ar, Miklagarðs. Verslun þar, stærsta Bónusbúðin,
verði opnuð á árinu 1994. Mikligarður er hinsvegar
allur og gjaldþrot þess stórt.
Vísindamenn voru gabbaðir
Skemmtileg afhjúpun Alþýðublaðsins í gúrkutíð
sumarsins vakti mikla athygli. Vísindamenn, Mogg-
inn og fleiri fjölmiðlar létu gabbast af segulmögnuð-
um Rússa sem lét potta, pönnur og fleira hanga utan
á líkama sfnum. Pétur Finnbjömsson, strákur úr
Breiðholtinu, sýndi lesendum að þetta væri lítið mál.
Innan tíðar vom blaðamenn Alþýðublaðsins famir
að gera kúnstir hins magnaða Rússa, enda er rit-
stjómin fjölhæf í meira lagi.
Rannveig varaformaður Alþýðuflokksins
Jóhanna Sigurðardóttir sagði af sér embætti vara-
formanns Alþýðuflokksins og var það mál tíundað
vel í fjölmiðlum. Við embættinu tók Rannveig Guð-
mundsdóttir á flokksstjómarfundi sunnudaginn 18.
júlí. Rannveig varð einnig formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, fyrst kvenna í því embætti.
/
Agúst
Landbúnaðurinn kostar sitt
Alþýðublaðið segir í forsíðufrétt að heildarstuðn-
ingur við landbúnað sé hæstur á íslandi af öllum
Norðurlöndunum. Stuðningurinn við laridbúnað
miðað við útgjöld hverrar 4 manna fjölskyldu nemur
225 þúsund krónum. Þessar upplýsingar em úr
skýrslu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um
landbúnaðarstefnu á Norðurlöndum. Heildarstuðn-
ingurinn er 16,7 milljarðar. Mikil blaðaskiif komu í
kjölfarið.
Norðmenn ævareiðir íslendingum
Smugumálið svokallaða kom upp í ágúst. Norð-
menn vom okkur ævareiðir. Hingað kom utanríkis-
ráðherra Noregs, Jóhann Jörgen Holst, og ræddi við
Jón Baldvin Hannibalsson, starfsbróður sinn, um
ágreining þjóðanna. Astandið í fiskveiðum á úthöf-
unum sagði Jón Baldvin einfaldlega vera það að
engin þjóð gæti bannað annarri að veiða ftsk á úthaf-
inu utan lögsögu strandríkis. Holst lagði áherslu á að
stjómvöld yrðu að banna flotanum veiðar í Barents-
hafi. Ríkisstjómin taldi hinsvegar útilokað að banna
eitt eða neitt, til þess hefði hún enga heimild.
Fangar gera uppreisn
Nýjar og hertar öryggisreglur á Litla Hrauni fóm
fyrir brjóstið á föngum eystra. Þeir efndu til fanga-
uppreisnar í lok ágúst.
September
Bullandi loðna - skipin seld burtu
Frétt Alþýðublaðsins um sölu afkastamikilla
loðnuveiðiskipa til útlanda vakti mikla athygli. A
sama tíma var bullandi loðnuveiði hér við land og
skortur á hæfum skipum til að ná í aflann.
Karlar fá ódýr og vönduð fót
Alþýðublaðið gerði mikið úr afrekum innlendra
kaupmanna, sem bjóða lægra vömverð en vandaða
vöm. Þannig er sagt ffá byltingu f verðlagi á karl-
mannafatnaði hjá nýrri búð Jack & Jones í Kringl-
unni, - áframhald á Vera Moda búðunum, sem Al-
þýðublaðið greindi líka fyrst frá, og áttu eftir að
verða gífurlega vinsælar hjá kvenþjóðinni.
McDonald’s í rimmu við verkalýðinn
Ekki gekk þrautalaust að opna hinn nýja ham-
borgarastað McDonald’s á fslandi. Eigendur lentu í
deilum við verkalýðsfélögin. Ekki átti að gera samn-
inga við starfsfólk og það ekki að vera innan verka-
lýðshreyfmgarinnar. Þessu var kippt í liðinn og Dav-
íð Oddsson gat opnað hamborgarastaðinn með
pomp og pragt.
Debetkort í mótbyr
Debetkortum bankanna var tekið vægast sagt illa
þegar þau vom kynnt snemma í september. Kaup-
menn bjuggust til vamar og neytendur létu sér fátt
um finnast. Almennt töldu menn að kerft þetta væri
sett upp til hagræðingar fyrir bankana, og þeim bæri
að bera af því allan kostnað. Enn situr við það sama,
debetkortin em strönduð. í Alþýðublaðinu fór fram
nokkurt rifrildi Einars í VISA og Magnúsar í Kaup-
mannasamtökunum.
Danska skinkan í Hagkaup
Halldór Blöndal kom í veg fyrir að tvö tonn af
danskri skinku á góðu verði kæmust til neytenda.
Málið var á borðum ríkisstjómarinnar. Davíð Odds-
son þurfti að skera úr ágreiningi milli Blöndals ann-
ars vegar og Jóns Baldvins og Friðriks Sophussonar
hinsvegar. Davíð ákvað að innflutningur á landbún-
aðarvömm væm undir náð og miskunn Halldórs
Blöndals.
Bónus flytur inn kalkúnalæri
Enn héldu áfram væringar út af innflutningi á er-
lendum landbúnaðarvömm þegar Jóhannes í Bónus
flutti inn slatta af kalkúnalæmm. Mikil blaðaskrif og
deilur. Niðurstaðan sú sama, enginn innflutningur
leyfður. Kalkúnamir vom tollafgreiddir á Keflavík-
urflugvelli þar sem utanríkisráðuneytið ræður, - en
teknir í Bónus af tollgæslunni í Reykjavík.
Flestir til í skattsvik
Sjö af hvetjum tíu Islendingum em til í skattsvik,
segir á forsíðu Alþýðublaðsins um miðjan septem-
ber. Skýrsla um skattsvik sem fjármálaráðherra
kynnti, boðaði varhugavert siðgæði landans.
Október
Mikilvægur áfangi í hvalamálum
Sigbjörn Gunnarsson, alþingismaður, náði þeim
stórkostlega árangri að fá samþykkta ályktun innan
sjávarútvegsnefndar Evrópuráðsþingsins, sem Sig-
bjöm veitir forystu. Tillagan gengur út á sjálfbærar
aðferðir til stjórnunar á fjölþættri nýtingu auðlinda
hafsins, þar á meðal sjávarspendýra, sem skuli
byggjast á nákvæmri þekkingu og skilningi á við-
komandi vistkerfúm. Hér náðist mikilvægur áfangi
varðandi hvalveiðar íslendinga.
Deilt um spilavítisrekstur
Þingmenn eyddu nær heilum starfsdegi í að þrátta
um rekstur spilavítis, leiktækjasala með spila-
kössum, sem Happdrætti Háskólans var að setja upp.
Ymis samtök önnur vildu fá sinn bita af kökunni.
Mikil gagnrýni kom fram á rekstur þennan. Efdr arg-
vítuga samningafundi með dómsmálaráðherra náð-
ist samkomulag um skiptingu á tekjum af kössum
þessum, og spilabúllur opnuðu vítt um landið með á
fjórða hundrað kassa. Forráðamenn Háskólahapp-
drættis fullyrða í Alþýðublaðinu að kassamir muni
ekki leiða af sér hörmungar af neinu tagi.
Nóvember
Raunvextir lækka
Ríkisstjómin tilkynnti í byrjun nóvember um
lækkun raunvaxta í 5%. Leitað yrði á erlendan lána-
markað, ef innlendir fjárfestar sættu sig ekki við þá
vexti af verðtryggðum ríkisskuldabréfúm. Sighvatur
Björgvinsson, viðskiptaráðherra, bar hitann og
þungann í þessum aðgerðum, sem mæltust þegar vel
fyrir í þjóðfélaginu öllu. Þá átti Jón Sigurðsson
seðlabankastjóri drjúgan þátt í aðgerðunum, sem
hann hafði raunar boðað raunhæfar fyrr á árinu.
SÍS siglir í gjaldþrot
Alþýðublaðið segir frá skuggalegri stöðu Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga. Fyrirtækið sem
lengi var stærsta og öflugasta fyrirtæki þjóðarinnar,
freistar þess að ná nauðasamningum við lánar-
drottna. Skuldir umfram eignir vom þá 129 milljón-
ir króna eftir mörg og stór áfoll í viðskiptalífinu.
Síðasta Iota Tímans
Hinn vinsæli dálkur Alþýðublaðsins, Rökstólar,
fjalla um „Síðustu lotu Tímans“ þriðjudaginn 16.
nóvember. Þar er greint frá ófullburða tilraun nýs rit-
stjóra til að skapa söluhæft dagblað. Rökstólar segja
Ijóst að hafin sé síðasta lota Tfmans. Það reyndist
rétt, nema hvað DV tók Tímann á herðamar í lok
ársins.
Jón Sigurðsson aðalbankastjóri NEB
Sú frétt kom eins og þmma úr heiðskím lofti, þeg-
ar nýráðinn bankastjóri Seðlabankans, Jón Sigurðs-
son, gerðist aðalbankastjóri Norræna Ijárfestingar-
bankans, einnar virtustu peningastofnunar Evrópu.
Setti ýmsa haturs- og áróðursmenn þá hljóða.
Bankastjómin hafði óskað eftir Jóni til starfa, þrátt
fyrir að hann var ekki í hópi umsækjenda um starfið.
Jón Baldvin og Halldór semja um GATT
GATT-tilboð ríkisstjómarinnar var loks sent til
Genfar eftir langvarandi þóf milli Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Halldórs Blöndals. Samkomulag
náðist loks um ágreiningsmálin. Gert er ráð fyrir að
nýr GATT-samningur taki gildi 1. janúar 1995 með
aðlögunartíma til 2001. Verði nýr GATT-samning-
ur staðfestur verður heimilt að flytja inn allar land-
búnaðarvömr nema hrátt kjöt, hrá egg og hráa mjólk.
Ólafur Ragnar brotlendir
Frá landsfundi Alþýðubandalagsins reið Ólafur
Ragnar ekki feitu hrossi. Ljóst var að Svavar og
Steingrímur Jóhann höfðu tögl og hagldir í flokkn-
um. Svokölluð Utflutningsleið var send í endur-
vinnsluna, - og Ólafur sem hafði gerst NATÓ-sinni
nokkm áður, varð að sjá tillögu um úrsögn úr Nató
______________________ALÞÝÐUBLAÐIÐ
samþykkta. Ólafur varð þó formaður, en rúinn völd-
um, einangraður og valdalftill.
Alþýðublaðið - stórblað!
Önnur sjónarmið Alþýðublaðsins fundu það út að
eiginlega er Alþýðublaðið stórblað, - ef miðað er við
Bandaríkin. Bandarískt blað með hlulfallslega jafn-
stórt upplag væri geftð út í 5 milljónum eintaka!
Hvað um það hagur Alþýðublaðsins á árinu var góð-
ur, og þótti efni í fréttir í öðmm blöðurn.
Desember
Óttast um enn meira atvinnuleysi
Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur óttaðist mjög um vax-
andi atvinnuleysi á svæðinu. Skrifstofa hans var orð-
in stærsti launagreiðandi Suðumesja í byrjun desem-
ber. Þar vom nærri 300 manns á atvinnuleysisbót-
um.
Sókn gegn skattsvikum
Frétt Alþýðublaðsins um sókn gegn skattsvikum í
Garðabæ vakti verðskuldaða athygli. Bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins, Gizur Gottskálksson, flutti tillögu
um könnun á umfangi skattsvika í bænum og var
henni vel tekið. Kanna á hlutfall eigna og tekna
skattgreiðenda í bænum.
Tvöfeldni verkalýðshreyfíngar
Sighvatur Björgvinsson sakaði aðila vinnumark-
aðarins um tvöfeldni þegar vaxtalækkun væri annars
vegar. Sagði hann ýmislegt benda til að lífeyrissjóð-
imir vildu ekki taka þátt í því að ná niður vöxtum
eins og þeir hefðu gefið vilyrði um. Benti ráðherrann
á vissa tvöfeldni, verkalýðsleiðtoga sem væm í for-
ystu á vinnumarkaði en sætu jafnframt í stjómum líf-
eyrissjóðanna. „Engu er líkara en að þessir menn
skipti um skoðun um leið og þeir skipta um hatt“,
sagði ráðherra.
Borgarfulltrúi í barnsburðarleyfí
Ólína Þorvarðardóttir lét það verða sitt síðasta
verk sem borgarfulltrúi að flytja tillögu sem gerir ráð
fyrir að veita borgarfulltrúum sama rétt og öðmm
launþegum, að njóta orlofs- veikinda- og lífeyris-
greiðslna. Þar með lauk Ólína ferli sínum sem borg-
arfulltrúi fyrir Nýjan vettvang og fór í bamsburðar-
leyfi. A vettvangi borgarmála sýndi hún mikinn
dugnað.
Gefa fátækum kjöt
Kári bóndi í Garði segir það „þjóðarskömm að
fólk skuli líða matarskort" í frétt í Alþýðublaðinu á
Þorláksmessu. Hann kallar það velmegunarfátækt að
fólk líði af matarskorti á sama tíma og matvælum er
hent í stómm stíl. Bændur nyrðra hafa ákveðið að
senda Mæðrastyrksnefnd nokkurt rnagn af kjöti til
að dreifa til fátækra.
Óléttublandan
í næstsíðasta blaði ársins segir Alþýðublaðið
skemmtilega frétt á forsíðu, hún er um óléttublönd-
una svokölluðu sem Ásta grasakona og böm hennar
framleiða. Fimmtán konur, sem áttu erfitt með að
verða óléttar, eiga nú von á sér, þriðjungur þeirra
ætlar að fjölga íbúum Húsavíkur. Grasaseyðinu
góða er þakkaður þessi frábæri og gleðilegi árangur.
Bestu óskir um gott gengi á nýju ári!
ENGIHJALLA
GLÆSIBÆ
k LAUGALÆK
betri búðir, betra verð