Alþýðublaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 24.02.1994, Blaðsíða 3
 Fimmtudagur 24. febrúar 1994 PROFK J ORSBL AÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 RÁÐUM VÉR SJÁLFIR.. Það ríkti stórhugur og bjartsýni meðal þeirra fjölmörgu íslendinga sem sóttu stofnfund Hf. Eimskipafjelags íslands, laugardaginn 17. janúar 1914. Þjóðin hafði sameinast um að stofna eigið skipa- félag og taka þannig skipaferðir til útlanda í eigin hendur. Mikið var í húfi, eins og lesa má í upphaflega hlutaútboðsbréfinu: „Þá ráðum vér sjálfir, hvert skip vor sigla. Þá látum vér þau sigla til þeirra landa, sem bjóða oss bezt kjör á hverri vörutegund oggefa oss beztfyrir afurðir vorar... “. En þó að hátt væri stefnt er óvíst að nokkurn fundarmanna hafi órað fyrir þeim stórstígu framförum sem framund- an voru í íslensku þjóðlífi á næstu áratugum og hið nýstofnaða skipa- félag átti eftir að taka þátt í að móta. Eimskip hefur enn, áttatíu árum síðar, mikilvægu hlutverki að gegna í vaxandi samskiptum þjóðarinnar við umheiminn - sem nútíma ílutningafyrirtæki að störfum fyrir íslenskt atvinnulíf. Verkefni okkar allra er enn sem fyrr að nýta af stórhug og bjartsýni þau margvíslegu tækifæri sem framtíðin býr yfir. 80 EIMSKIP 1914 - 1994 Fyrir íslenska þjóð HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.