Alþýðublaðið - 03.05.1994, Side 3
Þriðjudagur 3. maí 1994
TIÐINDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Góður hagnaður hjá Granda
og mestí afli frá upphafi
Eigið fé nemur einum og hálfnm milljarði króna. Heildaraflinn var 31.500 tonn sem er aukning um 27%
Hagnaður var af rekstri Granda hf. ífyrra að fjárhœð 177 milljónir króna en að teknu tilliti til hlutdeildar
félagsins í tapi dóttutfélaga að upphœð 68 milljónir var hagnaður samstœðunnar 108 milljónir króna. Ár-
ið áður var rekstrartapið 156 miUjónir. Heildaraflinn íjyrra var sá mesti í sögu félagsins og á stóran þátt í
að liagnaður varð af rekstrinum.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
HAGNAÐUR var af
rekstri Granda hf. í fyrra að
fjárhæð 177 milljónir króna
en að teknu tilliti til hiut-
deildar félagsins í tapi dótt-
urfélaga að upphæð 68
milljónir var hagnaður
samstæðunnar 108 milljón-
ir króna. Arið áður var
rekstrartapið 156 milljónir.
Heildaraflinn í fyrra var sá
mesti í sögu félagsins og á
stóran þátt í að hagnaður
varð af rekstrinum.
Rekstrartekjur Granda í
fyrra námu 2,9 milljörðum
króna sem er hækkun um
17% frá árinu áður. Eigið fé
fyrirtækisins nam 1,5 millj-
arði í árslok 1993.
Heildarafli Granda í fyrra
var hinn mesti í sögu félags-
ins, en alls veiddust 31.495
tonn á móti 24.719 tonnum
árið áður. Aukning í tonnum
milli ára varð því alls 6.776
eða 27,4%. Hana má rekja
fyrst og fremst til aukinna
veiða á úthafskarfa, sem
veiddur var utan kvóta. Auk
þess skipti Grandi á kvóta við
aðrar útgerðir, sem gerðu tog-
urum fyrirtækisins kleift að
veiða fisktegundir sem féllu
betur að veiðum og vinnslu.
Grandi lét þorskkvóta í skipt-
um fyrir karfa, en fyrirtækið
hefur sérhæft sig í karfa-
vinnslu með góðum árangri.
Fiskafurðir unnar úr karfa
skiluðu hagstæðu söluverði á
erlendum mörkuðum í fyrra.
Þorskveiði minnkaði úr
10,7% heildaraflans 1992 í
6,5% í fyrra.
Fjölgun úthaldsdaga
Grandi gerði út átta togara í
fyrra, tvo frystitogara og sex
ísfisktogara. Úthaldsdögum
togaranna Ijölgaði um 378
eða 20,8% á liðnu ári. Helsta
ástæða aukningarinnar er að
togaramir Örfirisey og Akur-
ey voru gerðir út allt árið í
fyrra en aðeins að hluta árið
áður. Aflamagn á hvem út-
haldsdag jókst um tæp 6% í
fyrra sem stafar aðallega af
auknum úthafsveiðum og
drjúgum karfaafla.
Örfirisey skilaði langmestu
aflaverðmæti ársins eða rúm-
lega 470 milljónum króna.
Næst kemur Snorri Sturluson
með 386 milljónir og síðan
Akurey með 268 milljónir
króna í aflaverðmæti. Ráð-
stöfun á eigin afla Grandatog-
aranna á síðasta ári var með
þeim hætti að landvinnsla
jókst úr 40,6% í 43,9% en sjó-
frysting úr 24,6% í 29,2%. Á
erlendan markað fóm 25,1%
og 1,8% á innlenda markaði.
Landvinnsla gekk vel
Á síðasta ári nam innvegið
hráefni til vinnslu í Norður-
garði samtals unt 15 þúsund
tonnum sem er 18% aukning
milli ára. Þetta var fyrsta heila
starfsárið sem landvinnslan
fór svo til öll fram í Norður-
garði, eftir að hefðbundin
vinnsla í Grandagarði hafði
verið lögð niður og starfsemin
flutt milli húsa. Aðeins vom
fryst 557 tonn af loðnuafurð-
um í Grandagarði á síðasta
starfsári.
I fyrra var mest unnið af
karfa eða 9.833 tonn á móti
6.041 tonni árið 1992. Þar á
eftir komu 3.199 tonn af ufsa
og 1.430 tonn af þorski. Hlut-
ur þorsksins fer síminnkandi
og er gert ráð fyrir að hann
verði aðeins 5% heildar-
vinnslunnar á yfirstandandi
ári. Afli til landvinnslu kom
að mestu leyti frá togurum
Granda eða 13.626 tonn, frá
fiskmörkuðum komu 620
tonn og 875 tonn vom keypt
af öðmm.
Vöruþróun og framfarir
Á síðasta ári vom teknar
upp ýmsar nýjungar til hag-
ræðingar í vinnslu. Hætt var
að flytja beinaúrgang með bfl-
um og tilheyrandi umstangi
yfir í bræðslu Faxamjöls. Þess
í stað hefur úrganginum verið
skotið sjálfvirkt eftir röri með
sérstökum tæknibúnaði yfir í
mjölverksmiðju Faxamjöls
og hefur þessi nýlunda gefist
vel.
Fryst fiskflök í plastpokum
em nú mikið að ryðja sér til
rúms í smásöluverslunum
Evrópu og hefur sú fram-
leiðsla vaxið hjá Granda. Þeg-
ar er búið að koma fyrir sjálf-
virkum búnaði til vigtunar og
lokunar á pakkningunum.
Nú er í gangi samvinna við
Baader, sem er þekktur lfam-
leiðandi fiskvinnsluvéla um
að fullþróa nýja gerð tölvu-
stýrðrar karfaflökunarvélar
sem á að auka nýtingu og af-
köst. Samvinnuverkefnið
hófst hjá Granda í byijun ág-
úst í fyrra og er gert ráð fyrir
að því ljúki á næstunni.
Grandi er einnig þátttak-
andi, í samvinnu við íslensk
og evrópsk fyrirtæki, í hönn-
un og þróun vélmennis til
fiskvinnslu. Verkefnið nefnist
Robofish og er unnið sam-
kvæmt sérstakri rannsóknar-
áætlun. Gert er ráð fyrir að
þróunarvinnan skili einhverj-
um niðurstöðum á næsta ári.
Frystir ufsabitar
Verð á ufsablokk hefur
lækkað verulega vegna auk-
innar samkeppni við alaska-
ufsa. Af þeim ástæðum hefur
verið lagt kapp á að fullþróa
nýjar neysluvömr úr ufsa. Hér
er um að ræða ýmis konar sér-
pakkningar sem henta ýmist
verslunum eða veitingastöð-
um, en markmiðið er að draga
sem mest úr blokkarvinnsl-
unni. Síðast liðinn vetur tók
Grandi upp samstarf og sam-
vinnu við Hagkaup með úl-
raunasölu á frystum ufsabit-
um í plastpokum. Neytendur
tóku tilrauninni vel, enda var
hér um að ræða góðan og
ódýran fisk, sem hefur lítið
sést á borðum landsmanna.
Þessu verkefni verður haldið
áfram í ár og framboð aukið á
innlendum markaði.
Megináhersla í vinnslu og
markaðssemingu hefur verið
lögð á karfaafurðir og hefur
framleiðsluaukning í neyt-
endapakkningar með karfa
gengið eftir. Til þess að auka
enn frekar framboð á karfaaf-
urðum landaði togarinn Ottó
N. úthafskarfa til vinnslu í
fyrra. Ágætur árangur varð af
þeirri tilraun, enda reyndist
karfinn mjög góður. Á yfir-
standandi ári verður veruleg
aukning á löndunum úthaf-
skarfa til landvinnslu. Það má
því gera ráð fyrir að úthaf-
skarfi verði vaxandi þáttur í
starfseminni.
Loðnuvinnsla
Á yfirstandandi ári var nýtt
vinnslukerfi fyrir loðnufryst-
ingu tekið í gagnið með góð-
um árangri. Afkastagetan er
um 100 tonn á sólarhring. í
fyrra frysti Grandi um 500
tonn af loðnu en í ár rúm eitt
þúsund tonn, sem sýnir glöggt
bætta afkastagetu.
Nýja vinnslukerfið er sam-
ansett af tveimur flokkunar-
vélum af fullkomnustu gerð.
Miklar breytingar vom gerðar
til að bæta aðstöðuna til fryst-
ingar á loðnuhrognum og var
til dæmis gamla ketilhúsinu í
Faxamjöli breytt í fullkomna
hrognahreinsistöð.
Grandi réð rúmlega eitt
hundrað atvinnulausa höfuð-
borgarbúar til tímabundinna
starfa vegna loðnuvinnslunn-
ar og tókst það með ágætum.
Tap hjá Friosur
Grandi keypti í fyrra 7,7%
hlutaijár í félaginu Pesquera
Friosur í Chile. Fyrir átti fé-
lagið 11 % hlutaíjár þannig að
hlutaljáreign í árslok nam
18,7%. Jafnframt vom keypt
3,3% hlutaljár í félaginu Ent-
depes í Chile. Kaupverð þess-
ara eignarhluta nam samtals
135 milljónum króna.
Tap varð á rekstri Friosur í
fyrra sem nam 150 milljónum
króna. Það em mikil umskipti
frá 1992 þegar hagnaður varð
um 100 milljónir. Aðalástæð-
ur tapsins í fyrra voru miklar
tafir frá veiðum vegna tíðra
bilana í togaraflota félagsins,
ásamt lægra afurðaverði. Gert
er ráð fyrir að hagnaður verði
af rekstrinum á yfirstandandi
ári. Friosur er að færa út kví-
amar á ýmsum sviðum um
þessar mundir til að auka fjöl-
breytni í framleiðslu sjávaraf-
urða. Unnið er af fullurn krafti
að aukinni sölu- og markaðs-
starfsemi í gegnum alþjóðlegt
markaðsnet Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna.
Tap á Faxamjöli
Grandi átti í árslok 77%
hlutafjár í Faxamjöli hf. í lok
ársins var hlutafé Faxamjöls
fært niður um 90% og jafn-
framt samþykkt að hækka
hlutafé þess um 80 milljónir
króna með áskriít nýrra hluta.
Félagið keypti alla aukning-
una og var hún greidd í árs-
bytjun 1994. Deilur hafa risið
um niðurfærslu hlutafjárins
og hlutafjáraukninguna og
hefur meðeigandi félagsins
stefnt því til greiðslu skaða-
bóta að fjárhæð 105 milljónir
króna.
Samkvæmt ársreikningi
Faxamjöls fýrir árið 1993
nam tap ársins 89 milljónum
króna. Bókfært eigið fé fé-
lagsins í árslok var neikvætt
um 8,6 milljónir króna.
Engu að síður hefur verk-
smiðjan í Örfirisey reynst eins
og vonir stóðu til. Framlegð
af rekstri hennar er viðunandi,
ekki síst ef tekið er tillit til
þess að verð fyrir fiskimjöl
unnið úr fiskúrgangi hefur
verið mjög lágt undanfarin
misseri. Alls tóku verksmiðj-
ur Faxamjöls á móti 17.300
tonnum af fiskúrgangi á ár-
inu, 26.800 tonnum af ioðnu
og 1.250 tonnum af síld.
Orkusparnaður
1 fyrra gerði Grandi mjög
hagstæðan tímamótasamning
við Rafmagnsveitu Reykja-
víkur, en þar er um ræða kaup
á svokölluðu rofnu rafmagni.
Gera má ráð fyrir að árlegur
spamaður vegna samningsins
fyrir allt rafmagn sem Grandi
notar í landi verði um fimm
milljónir króna á ári.
Til þess að þetta mætti tak-
ast varð fyrirtækið að ljárfesta
í nýrri rafmagnstöflu í Norð-
urgarði og sérstakri ljósavél,
sem fer sjálfkrafa í gang þeg-
ar Rafmagnsveitan rýfur raf-
strauminn á álagstímum.
Þessar framkvæmdir kostuðu
um fjórar milljónir króna, en
það er fjárfesting sem mun
skila sér margfalt á komandi
árum.
Nýr frystitogari
Grandi festi kaup á nýjum
og glæsilegum fiystitogara
frá Noregi, sem hlaut nafnið
Þemey RE 101. Skipið var
smíðað árið 1992 í skipa-
smíðastöðinni í Kristjáns-
sundi og er eitt 20 raðsmíða-
skipa sem öll vom ætluð rúss-
neskum útgerðum. Rússamir
sem pöntuðu togarann tóku
aldrei við honunt og keypti
Grandi hann af Den norske
Bank. Togarinn kom til lands-
ins í desember og hóf veiðar í
febrúar á þessu ári eftir endur-
bætur á vinnslulínu hans.
Kaupverð togarans að við-
bættum breytingum á honum
ásamt keyptum og yfirfærð-
um úreldingarrétti frá Snorra
Sturlusyni nam 787 milljónir
króna í árslok.
Kristján úr stjórn
Hlutafé félagsins nam í árs-
lok 995 milljónum króna og
skiptist það á 590 hluthafa
sem fjölgaði um 118 á árinu. I
árslok áttu þrír hluthafar yfir
10% eignarhluta í félaginu.
Vogun hf. álti 30,7%, Haf hf.
14,7% og Hampiðjan hf.
12,2%.
Á árinu störfuðu 396 starfs-
menn að meðaltali hjá félag-
inu miðað við heilsársstörf og
nárnu launagreiðslur liðlega
einum milljarði króna.
Á aðalftindi Granda var
samþykkt að greiða hluthöf-
um 8% arð og gefa út 10%
jöfnunarhlutabréf. Sú breyt-
ing varð á aðalstjóm Granda
að Grétar Br. Kristjánsson,
sem átti sæti í varastjóm, var
kjörinn í aðalstjóm í stað
Kristjáns Loftssonar. I stað
Grétars í varastjóm var kos-
inn Ingi U. Magnússon.
Aðalstjóm Granda skipa
Ámi Vilhjálmsson, formaður,
Jón Ingvarsson, Benedikt
Sveinsson, Grétar Br. Krist-
jánsson, Gunnar Svavarsson
og Ágúst Einarsson.
I varastjóm vom kosnir
Bragi Hannesson, Ólafur
Bjarki Ragnarsson, Halldór
Vilhjálmsson, Ingi Ú. Magn-
ússon og Bjami Bjömsson.
Framkvæmdastjóri Granda
er Brynjólfur Bjamason.
Afli og aflaverdmæti skipa 1993
Akurey RE 3
Ásbjörn RE 50
Engey RE 1
Jón Baldvinsson RE 208
Ottó N. Þorláksson RE 203
Snorri Sturluson RE 219
Viðey RE 6
Öríirisey RE 4
Samtals
Aflií Verðmæti
tonnum í þús. kr.
2.555 267.929
5.337 222.211
2.268 198.678
4.127 169.987
4.474 208.821
4.126 386.486
3.523 253.746
5.085 470.975
31.495 2.178.833