Alþýðublaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIHNING
Þriðjudagur 3. maí 1994
✓
Kveðja frá ríkisstjórn Islands:
Hans G. Andersen
Fæddur 12. maí 1919 - Dáinn 23. apríl 1994
Með Hans G. Andersen
þjóðréttarfræðingi er fallinn
í valinn einn af bestu sonum
íslands á þessari öld. Verk
hans munu halda minningu
hans á lofti meðal óborinna
kynslóða, svo lengi sem
þessi örfámenna þjóð við-
heldur í verki tilverurétti sín-
um sem þjóð meðal þjóða.
Þetta eru stór orð en sönn.
Þegar maður hugleiðir ævi
og starf Hans G. Andersens
rennur upp fyrir manni að
hann var þjóð sinni réttur
maður á réttum stað á ör-
lagastundu. Hann var mað-
urinn, sem í krafti vitsmuna
og yfirburðaþekkingar lagði
á ráðin um hina eiginlegu
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinn-
ar, en hún var háð á alþjóða-
vettvangi eftir að stofnun
lýðveldisins var með form-
legum hætti um garð gengin.
Hér er að sjálfsögðu átt
við útfærslu landhelginnar í
áföngum frá árinu 1952 til
J976. Og sigursæla baráttu
íslendinga fyrir þróun haf-
réttarins, frá 1949 til 1982,
sem færði strandríkjunum
smám saman forræði yfir og
ábyrgð á auðlindum hafsins
innan 200 mílna lögsögu.
Hvemig væri komið efna-
hagslegu sjálfstæði þessarar
þjóðar og lífskjörum, ef
þessi barátta hefði ekki verið
til lykta leidd með traustum
og farsælum hætti? Og
hvemig hefði þeirri baráttu
reitt af, ef forystumenn þjóð-
arinnar upp úr seinni heims-
styijöld og fram á áttunda
áratuginn hefðu ekki notið
ráða Hans G. Andersens?
Hið sögulega afreksverk
sem Hans G. Andersen vann
í þágu þjóðar sinnar á þess-
um aldarþriðjungi varreynd-
ar tvíþætt og innbyrðis tengt.
Hann var ekki einasta höf-
undur landgmnnslaganna frá
1948, en með þeim var lagð-
ur gmndvöllur að útfærslu á
næstu áratugum; hann var
einnig helsti höfundur vam-
arsamningsins við Bandarík-
in frá árinu 1951. Það var
fyrst og ffemst aðild okkar
að Atlantshafsbandalaginu
og hið farsæla varnarsam-
starf okkar við Bandaríkin á
tímum kalda stríðsins sem
gerði íslendingum kleift að
sigrast á andstæðingum sín-
um í landhelgisstríðinu með
styrk Bandaríkjanna. Banda-
rísk stjómvöld beittu áhrif-
um sínum í því máli á úr-
slitastundu á bak við tjöldin,
af því að þau sáu sér hag í
því.
Þegar maður hugleiðir
æviferil Hans G. Andersens
gæti maður freistast til að
halda að hulin hönd hefði
leiðbeint honum um nám og
starfsundirbúning til þess að
hann væri reiðubúinn að
hlýða kallinu þegar mest á
reyndi. Hann var fæddur í ís-
lendingabyggðum vestan-
hafs, í Winnipeg í Kanada,
hinn 12. maíárið 1919. Fæð-
ingarstaðurinn er eins og vís-
bending um það hlutverk
hans síðar meir í lífinú að
verða fulltrúi íslensks þjóð-
emis og þjóðartilveru nteðal
annarra þjóða. Eins og þeir
sem gerst þekkja til vita er
þjóðemiskennd Islendinga
óvíða jafn römm og heit og í
útlagabyggðunum vestan-
hafs.
Hans varð stúdent með
góðri fyrstu einkunn frá
Lærða skólanum í Reykja-
vík árið 1937 og lauk lög-
fræðiprófi frá Háskóla Is-
lands með hárri fyrstu ein-
kunn tjómm ámm síðar.
Næstu fjögur árin er hann
við framhaldsnám í þjóðar-
rétú og samanburðarstjóm-
lagafræðum, fyrst við há-
skólann í Toronto í Ontario,
Kanada, og síðar við hin víð-
frægu menntasetur lagaskól-
anna í Columbíu-háskóla í
New York og því næst „Har-
vard Law School", sem út-
skrifaði hann með láði árið
1945.
Eftir það var hann kvadd-
ur heim til þess að hefja ævi-
starfið. A ámnum 1946 úl
1949 starfaði hann sem
þjóðréttarráðunautur við
utanríkisráðuneytið. Það er á
þessum ámm sem hann
samdi landgmnnslögin og
lagði þannig gmndvöll að
baráttu íslendinga síðar meir
á alþjóðlegum vettvangi fyr-
ir vísindalegri verndun auð-
linda hafsins og réttindum
strandríkja.
Hans sýndi það fljótlega í
starfi að hann var afburða-
snjall lögfræðingur en jafn-
framt sannfærandi og
áheyrilegur málflytjandi
gagnvart efasemdarmönnum
annarra þjóða. En þetta hvort
tveggja, þótt mikils virði sé,
er ekki nóg. Það er ekki nóg
að vera vel að sér, ekki nóg
að vera sannfærandi mál-
flytjandi. Sá sem ætlar að
breyta heiminum þarf líka að
búa yfir sköpunarmætti og
hugmyndaauðgi. Eða eins
og Keynes lávarður, næst-
fremsti hagfræðingur aldar-
innar, sagði eitt sinn: „Það er
enginn vandi að læra það
sem sett hefur verið fyrir af
gengnum kynslóðum; vand-
inn er sá að aflæra kreddur
fortíðarinnar og verða þann-
ig fijáls að nýrri hugsun."
Það var í þessum punkti
sem yfirburðir Hans G. And-
ersens birtust. Þótt hann væri
lærður þjóðréttarfræðingur
og kannski einmitt vegna
þess, skildi hann vel að þjóð-
arrétturinn hafði mótast af
mætú vopnavalds stórvelda
fyrri tíðar. Þriggja mílna
reglan urn fiskveiðilögsögu
strandríkja markaðist af
þeirri vegalengd sem breskar
fallbyssur drógu á 19. öld.
Mannasetningar af þessu
tagi eru ekki frá Guði. Þær
hljóta að víkja fyrir vísinda-
legri þekkingu, sem beinist
að því að leysa vandamál
sem hljótast af rányrkju, of-
veiði og ábyrgðarleysi gagn-
vart auðlindum jarðar, við
skilyrði offjiilgunar og of-
neyslu.
Út frá þeirri nýstárlegu
sýn varð Hans G. Andersen
brautryðjandi nýrrar hugs-
unar um alþjóðalög og regl-
ur varðandi auðlindir hafsins
og nýtingu þeirra. Hann
skirrðist ekki við að ganga í
berhögg við hefðir og venju-
rétt; að aflæra vanahugsun.
Og þrátt fyrir að hann væri
skilgetið afkvæmi bresk-am-
erískrar réttarheimspeki aftr-
aði það honum ekki frá að
taka höndum saman við
skarpskyggna og framsýna
vísindamenn, lögfræðinga
aðra, frá þjóðum þriðja
heimsins. Og sameiginlega
ruddu þeir braut nýjum hug-
myndum í andstöðu við ríkj-
andi boð og bönn.
1 krafú þessara hugmynda
varð Hans G. Andersen
fremstur meðal jafningja í
þjóðarrétti hafsins, virtur og
viðurkenndur um allan
heim, af hinunt fáu útvöldu,
sem þar komu við sögu. Sem
slíkur hlýtur hann að teljast
mestur afreksmaður þeirra
sem verið hafa á vegum ís-
lensku utanríkisþjónustunn-
ar í fyrirsvari fyrir íslenskum
hagsmunum á alþjóðavett-
vangi til þess tíma.
Til viðbótar störfum sfn-
um sem ráðgjafi ríkisstjóma
í þjóðréttarmálum á ámnum
1946 til 1954 og síðan aftur
á ámnum 1969 til 1976 var
Hans um tæplega 30 ára
skeið forsvarsmaður ís-
lenskra sendinefnda á al-
þjóðaráðstefnum um hafrétt-
armálefni. Þar nutum við
þekkingar hans og rökfestu
til að sannfæra efasemdar-
menn annarra þjóða um rétt-
mæti þeirra róttæku breyt-
inga sem Islendingar vom í
fararbroddi fyrir.
Þannig var Hans fulltrúi
Islands á alþjóðaráðstefnu í
Washington um vemdun
fiskimiða á Norðvestur-Atl-
antshafi þegar árið 1949; og
á Lundúnaráðstefnunni um
vemdun fiskimiða í Norð-
austur-Atlantshafi á ámnum
1958 til 1959. Frá árinu
1949 og lengst af síðan, en
með nokkmm hléum þó, var
hann fulltrúi okkar á Alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna. Og hann var ævinlega
mættur þegar mest á reyndi
til að fylgja fram hugmynd-
um okkar og rökseindum um
þróun hafréttar. Arið 1950
var hann áheymarfulltrúi af
Islands hálfu vegna málefna
Breta og Norðmanna í Haag.
Arið 1955 sat hann Rómarr-
áðstefnu um vemdun auð-
æfa hafsins þar sem hann var
talsmaður hinna nýju hug-
mynda. Hans var að sjálf-
sögðu aðalfulltrúi Islands á
Genfarráðstefnunum árið
1958 og 1960 um þróun rétt-
arreglna á hafinu. Og á ámn-
um 1974 til 1982 var hann
formaður sendinefndar Is-
lands á ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna um hafréttarmál,
sem að lokum leiddi til und-
irritunar Hafréttarsáttmálans
í Montego Bay á Jamaica
þann 10. desember 1982.
Þann 16. nóvember á
þessu ári, þegar 60 ríki hafa
staðfest hafréttarsáttmálann
með undirskrifit sinni og hin-
ar iðnþróuðu þjóðir hafa
loks náð samkomulagi við
þróunarríkin um breytingar á
ákvæðum sáttmálans um
nýtingu auðlinda á hafs-
botni, munu utanríkisráð-
herrar heimsins aftur koma
saman, að þessu sinni í
Kingston á Jamaica, til þess
að innsigla lokaniðurstöð-
una: Að Hafréttarsáttmálinn,
sem erekki að litlu leyti verk
Hans G. Andersens og sam-
starfsmanna hans, er orðinn
virkur þáttur alþjóðalaga og
réttar.
Það hefði verið kórónan á
sköpunarverki Hans G. And-
ersens ef hann hefði mátt lifa
þann dag að vera fulltrúi Is-
lands á þeim fundi, í viður-
kenningarskyni fyrir hið
ómetanlega starf brautryðj-
andans í þágu eigin þjóðar
og reyndar hins alþjóðlega
samfélags.
Á tímabili þurfti Hans G.
Andersen að gegna ýmsum
öðmm störfum, eins og í hjá-
verkum með ævistarfinu,
svo sem eins og sendiherra-
störfum í Frakklandi, Sví-
þjóð og Noregi. Seinustu
þrettán ár starfsferilsins
gegndi hann sendiherrastarfi
í Bandaríkjunum, fyrst í
Washington og sfðan emb-
ætti fastafulltrúa hjá Sam-
einuðu þjóðunum í New
York, uns hann fékk lausn
frá embætti fyrir aldurs sakir
18. september 1989, eftir 43
ára þjónustu í þágu þjóðar
sinnar.
Hans G. Andersen er einn
af afreksmönnum aldarinnar
í íslenskri sögu. Mikið verk
bíður vandaðra sagnffæð-
inga að gera skil hinu merka
ævistarfi hans sem hafði
áhrif langt út fyrir landstein-
ana, reyndar um öll heimsins
höf. Það er vel við hæfi að
sonur þjóðar sem kallar haf-
ið „hálft sitt föðurland",
skuli hafa unnið þvílíkt af-
rek.
Fyrir hönd ríkisstjómar Is-
lands og utanríkisráðuneyt-
isins sérstaklega flytjum við
ekkju Hans G. Andersens,
frú Ástríði Andersen, böm-
um þeirra hjóna, vinum og
vandamönnum, dýpstu sam-
úðarkveðjur vegna fráfalls
eiginmanns og föður. Minn-
ing hans mun lifa í þakklát-
um huga ókominna kyn-
slóða Islendinga.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra.
Jón Baldvin
Hannibalsson
utanríkisráðherra.
47. flokksþing Alþýðuflokksins
- Jafnaðarmannaflokks Islands -
verður haldið 10. til 12. júní 1994
í íþróttahúsinu í Keflavík.
Með vísan til 29. og 30. greinar flokkslaga Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands - er hér með boðað til 47. flokksþings
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands sem samkvæmt ákvörðun flokksstjómar verður haldið dagana 10. til 12. júní 1994.
Með vísan til 16. til 19. greinar flokkslaga er því hér með beint til stjórna allra Alþýðuflokksfélaga að láta fara fram kosningu
aðal- og varafulltrúa á flokksþing, svo sem nánar er mælt fyrir í flokkslögum.
Með vísan til 18. greinar flokkslaga er því hér með beint til aðildarfélaga að kosningar fari fram á tímabilinu
5. maí til 5. júní næstkomandi.
Félagsstjómum er skylt að tilkynna kjör fulltrúa að kosningum loknum til skrifstofu Alþýðuflokksins
(Hverfisgötu 8-10 í Reykjavík, sími 91-29244), sem veitir allar nánari upplýsingar.
Með vísan til 21. greinar flokkslaga skulu kjördæmisráð Alþýðuflokksins í öllum kjördæmum
hafa lokið kosningu fulltrúa sinna í flokksstjórn fyrir reglulegt flokksþing.
Með vísan til 24. og 25. greinar flokkslaga skulu stjórnir allra félaga hafa sent flokksstjórn
skýrslu um starfsemi félagsins á kjörtímabilinu, félagaskrá miðað við áramót og greiðslu félagsgjalda samkvæmt þeirri skrá.
Dagskrá flokksþings Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands verður auglýst síðar.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður.