Alþýðublaðið - 22.07.1994, Side 1
Smuga f'yrir launaíólk íkerfinu,PÓSTGÍRÓSTOFAN:
Hagkvæmur kostur
sama tíma og bankar
og sparisjóðir þjarma
að fólki sem notar
ávísanahefti með stóraukn-
um þjónustugjöldum, hug-
leiða menn innan Bandalags
háskólamanna, nýjar leiðir
til að ávaxta launareikninga á
hagkvæmari hátt en verið
hefur. Þeir tala um að beina
viðskiptum sínum til Póst-
gírósins, sem veitir, þegar
grannt er skoðað, úrvals
bankaþjónustu.
Bent er á í grein í BHMR-
tíðindum að flestum laun-
þegum þykir að bankamir
bjóði undra rýra ávöxtun á
launareikningunum, aðeins
1%. Aukin þjónustugjöld á
eigendur slíkra reikninga
orki tvímælis svo ekki sé
meira sagt.
Víða erlendis er póstgíró
mikið notað af launafólki.
BHMR sneri sér því til Póst-
gíróstofunnar og bað um
skilgreiningu á þjónustu
póstgírósins til samanburðar
við þjónustubankana.
Samanburðurinn leiddi í
ljós að umtalsverður spam-
aður gæti orðið af því að
skipta við Póstgíróstofuna.
Þannig greiðir sú stofnun 2%
vexti auk vaxtauppbótar
hálfsárslega á launareikn-
inga.Þá kom í ljós að þeir
sem hafa launareikning hjá
Póstgíró eiga möguleika á
samskonar lánafyrirgreiðslu í
Landsbanka íslands og þeir
sem hafa launareikninga sína
í þeim banka - á helmingi
lægri vöxtum.
Þeir sem hafa póstgíró-
reikning, senda gíróseðla
sína í sérstöku umslagi til
stofunnar til skuldfærslu,
kostnaðarlaust. Þá millifærir
Póstgíró inn á bankareikn-
inga reikningseiganda að
kostnaðarlausu allt að tvisvar
í viku. Hægt er að taka út
peninga af gíróreikningi á
öllum pósthúsum landsins, -
án þess að tekið sé gjald fyrir
það.
Þá má benda á að póstgíró
er alþjóðlegt fyrirbæri.
Ferðafólk héðan getur farið
með 10 áritaða pósttékka
sem nota má í flestum lönd-
um Vestur-Evrópu. Há-
marksupphæð hvers tékka er
15 þúsund íslenskar krónur.
Þama er smuga í banka-
kerfinu, sem launþegar munu
án efa kanna nánar.
KÓPAVOGSSUNDH) fer fram 4. september:
Nýstárleg sundkeppni
Þann 4. september fer
fram í Sundlaug
Kópavogs sundkeppni
fyrir almenning sem hefur
hlotið heitið Kópavogssund-
ið. Markmið keppninnar er
að gera þeim fjölmörgu sem
iðka sundið sér til hressingar
og heilsubótar markmið með
sundiðkunn sinni.
Fyrirkomulag keppninnar
er þannig að þátttakendur
skrá sig í Kópavogssundið
og fá í hendur talningakort.
Þeir ganga síðan til laugar,
afhenda talningarmanni kort-
ið og hefja sundið. Hver
þátttakandi ákveður sjálfur
hve langa vegalengd hann
syndir. Engar tímatakmark-
anir em settar keppendum
aðrar en tímamörk keppninn-
ar, en hún stendur frá klukk-
an sjö til 22. Keppendur fá
verðlaun í samræmi við þá
vegalengd sem þeir synda.
Fyrir 500 metra sund er
veittur verðlaunapeningur úr
bronsi. Fyrir 1.000 metra er
veittur verðlaunapeningur úr
silfri og gullpeningur fyrir
1.500 metra sund.
Allir þátttakendur fá skjal
til staðfestingar þátttöku í
keppninni þar sem fram
koma upplýsingar um þá
vegalengd sem viðkomandi
þátttakandi syndir. Einnig
verða veitt sérstök verðlaun
þeim sem synda lengstu
vegalengdina í hinum ýmsu
aldursflokkum.Forráðamenn
Kópavogssundsins 1994
hvetja almenning til þess að
vera með í þessari fyrstu
sundkeppni fyrir almenning
með ofangreindu sniði sem
haldin er hér á landi. Hver og
einn getur ákveðið hvaða
vegalengd hann syndir,
þannig að keppnin felst aðal-
lega í að keppa við sjálfan
sig. Þátttökugjald er 500
krónur fyrir fullorðna og 300
fyrir böm og fer skráning
fram í afgreiðslu Sundlaugar
Kópavogs.
Sæsímastrengurinn CANTAT 3 tengdur Vestmannaeyjum:
Lokatengíng fer fram 24. águst
dag hefst lagning á grein
frá sæsímastrengnum
CANTAT3ú\ Vest-
mannaeyja. Kapalskip leggur
strenginn suður af Vest-
mannaeyjum að aðalstrengn-
um og síðar áfram hluta af
aðalstrengnum til Kanada.
Tvö önnur kapalskip vinna
einnig að lagningu aðal-
strengsins og er gert ráð fyrir
að lokatenging geti farið
fram 24. ágúst næst kom-
andi. Með CANTAT 3 opn-
ast ný fullkomin ljarskipta-
leið milli íslands og annarra
landa með meiri flumings-
getu og gæðum en núverandi
ljarskiptaleiðir. Að undan-
fömu hafa útgerðarmenn í
Vestmannaeyjum mótmælt
því harðlega að strengurinn
verði lagður til Vestmanna-
eyja á þeim stað sem ákveð-
ið var. Þeir segja hann liggja
um fengsæl fískimið og
hamli veiðum á miðunum.
Strengurinn verður lagður
eins og til stóð en Póstur &
sími mun á næstu vikum
ræða við fulltrúa frá öðmm
landtökulöndum CANTAT 3
og kanna möguleika á því
hvort unnt sé að breyta legu
á hluta strengsins síðar, og
hvað slíkar breytingar
myndu kosta.Við ákvörðun á
legu strengsins var reynt að
taka tillit til fiskimiða en
ekki er hægt að tengja sæ-
streng til landsins án þess að
hann liggi um einhveijar
veiðislóðir, að sögn Pósts &
síma. Með því að fara með
strenginn beint suður af
Vestmannaeyjum er hægt að
grafa eða plægja hann niður í
botninn á stómm hluta grein-
arinnar til Vestmannaeyja.
Við undirbúning lagningar
sæstrengsins hafði Póstur og
sími meðal annars samband
við sjávarútvegs-, umhverf-
is- og samgönguráðuneyti
og óskaði eftir áliti ráðuneyt-
anna. Öll ráðuneytin lýstu
því formlega að þau hefðu
ekkert við lagninguna að at-
huga nema sjávarútvegsráðu-
neytið sem sýndi engin við-
brögð þar til það bar ffam
mótmæli síðast liðinn þriðju-
dag.
- Alþýðublaðið í dag er helgað
Kópavogi og er af því tilefhi
dreift á hvert heimili í bænum
„Ferðumst um eigið land“ Leiðari
Alþýðublaðsins fjallar um auglýsingar
og ferðaiðnaðinn.
- Blaðsíða 2
„Uppstokkun á flokkakerfinu“ Birgir
Hermannsson stjómmálafræðingur skrifar.
- Blaðsíða 2
„Ákvað að blanda því opinbera ekki í
málið“ Viðtal við Garðar Jónsson
tennisfrömuð.
- Blaðsíða 3
„Fóstrið getur ekki sagt nei!“ Viðtal við
Rannveigu Guðmundsdóttur
alþingismann.
- Blaðsíða 3
„Hvar á ég að hjóla“ Þóra Amórsdóttir
nemi skrifar um samgöngur í Kópavogi.
- Blaðsíða 4
„Átaksverkefni“ Baldvin Björgvinsson
skrifar um misheppnuð átaksverkefni.
- Blaðsíða 4
„Jón Baldvin tekur af skarið varðandi
Evrópusambandið“ Guðmundur
Oddsson skrifar.
- Blaðsíða 5
„Miðsumarsvangaveltur um pólitrk og
bæinn minn“ Rannveig
Guðmundsdóttir skrifar.
-Blaðsíða 7
„Kópavogur er ekki reynslusveitarfélag“
Hreiim Hreinsson sálfræðingur skrifar.
- Blaðsíða 9
„Frá kátum víkingum til
körfuboltakynslóðar“ Rökstólar ganga af
göflunum yfir þjóðinni.
- Blaðsíða 11
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Rúsínur Vi Kg.
Ðökkar
Umboðsmenn um land allt: A.G. Guðmundsson sf., Húsavlk • Asbyrgi hf. Akureyri • Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„
Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, Isafirði • Reynir sf„ Blönduósi • Sigbjöm Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest-
mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði •