Alþýðublaðið - 22.07.1994, Qupperneq 3
Föstudagur 22. júlí 1994
KÓPAVOGUR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Einkaframtak GARÐARS JÓNSSONAR, 140-150 milljón króna Tennishöll, opnar formlega í Kópavogi á morgun:
Akvað að blanda því opinbera ekki í málið
GARÐAR JÓNSSON, - ákvað að blanda opinberum aðilum ekki
í málið og reisti TennishöUina á nákvœmlega einu ári, - og raun-
ar á aðeins skemmri tíma. Alþýðublaðsmyndir / Einar Ólason
Það er stór dagur í Kópa-
vogi á morgun. Þá verður
tekin í notkun fyrsta
tennishöll landsins, glæsilegt
mannvirki, sem risið hefur á
rétt tæpu ári. Það vekur athygli
að Tennishöllin er einkafram-
tak Garðars Jónssonar, fyrr-
um framkvæmdastjóra hjá Car-
golux í Lúxemborg. „Ég sá
fljótt að það var hægt að gera
þetta sjálfur og blanda opinber-
um aðilum ekkert inn í það“,
sagði Garðar í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Garðar er rúmlega sextugur
Vesturbæingur í Reykjavík,
ekki KR-ingur, hættur hjá Car-
golux, og fluttur heim. Hann
segist hafa kynnst tennisíþrótt-
inni, þá kominn fast að fimm-
tugu - og féll fyrir tenniskúlun-
um á augabragði. Hann segir að
allt frá byrjun hafí hann verið
haldinn þessari ánægjulegu
bakteríu.
„Ég er ekki í nokkrúm vafa
um að tennis á eftir að verða
eins vinsælt sport hér á landi og
annars staðar, það á eftir að
verða almenningseign, enda
leikurinn við allra hæfi, karla
sem kvenna, fullorðinna sem
barna og unglinga. Allir verða
gripnir af tennis, strax og þeir
hafa prófað“, sagði Garðar.
Garðar segir að um 1.500
manns séu félagsbundnir í
tennisdeildum félaganna á höf-
uðborgarsvæðinu, í Þrótti, Vík-
ingi og Tennisfélagi Kópavogs.
Síðan hafí komið í ljós að
áhugafólkið er til muna fleira,
fólk sem leikið hefur tennis er-
lendis, en ekki tekið til við þá
iðju eftir að heim var komið, -
og hefur borið fyrir sig að-
stöðuleysi. Tennis krefst al-
gjörs logns, og vonlítið að leika
í rigningu. Tækifærin til að
leika tennis utanhúss á suðvest-
urhominu em því ekki mörg.
Fyrr en núna að yfirbyggð að-
staða býðst fólki.
- En hvers vegna að leggja
upp aleinn og byggja 4.800
fermetra stórhýsiyfir nokkra
tennisvelli fyrir 140-150 millj-
ónir króna?
„Ég var búinn að hugsa þetta
lengi. Ég hafði kynnst svipuð-
um mannvirkjum í Evrópu og í
Ameríku, yfirbyggðum tennis-
völlum. Ég reyndi í samráði við
Víkingana að fá borgaryfirvöld
til liðs við að byggja slíkt hús.
Borgin hafði vægast sagt tak-
markaðan áhuga á málinu og
Vtkingar réðu ekki við það ein-
ir og sér að byggja. En ég sá að
það var möguleiki að byggja
með almennu átaki tennis-
áhugamanna. Og það varð úr
að ég réðst sjálfur ásamt nokkr-
urn áhugamönnum í að reisa
húsið í Kópavogsdalnum", seg-
ir Garðar Jónsson.
Garðar segir að gluggalaust,
staðlað stálgrindarhús sé hag-
kvæmasta lausnin fyrir tennis-
höll. Þannig er byggt í Kópa-
vogi. Garðar segir það ekki ná
nokkurri átt að byggja eins og
stjómvöld ævinlega gera, 50
sentimetra þykka veggi með
pallisander eða öðmm góðvið-
um í hólf og gólf. Það sé pen-
ingabruðl sem geri mannvirkið
ekki að neinu leyti betra fyrir
íþróttafólkið, bara rándýrt fyrir
skattborgarana. Gluggar á
íþróttahúsum geri heldur ekki
annað en að skemina fyrir, þeir
veita óæskilegri birtu inn í hús-
ið, sem getur tmflað einbeiting-
una. Þetta þekkja íþróttamenn
úr Laugardalshöll.
Búið er að leika tennis í
Tennishöllinni frá því í maí síð-
astliðnum. Bozo landsliðsþjálf-
ari í tennis, sá sem „bjó til“
Moniku Seles og Ivanovich,
hinar frægu stjömur íþróttar-
innar, hefur sagt að Tennishöll-
in sé besta tennishöll í Evrópu!
Aðrir sem reynt hafa eiga ekki
orð til að lýsa hrifningu sinni.
Sérstakur klúbbur, H-tennis-
klúbburinn, mun nota Tennis-
höllina og reka hana. Margar
nýjungar em settar ffam í
rekstrinum.
Þannig geta félagar í klúbbn-
um komið hvenær sem er til að
leika tennis. Þeir hafa sérstök
kort, sem opna húsið, kveikja á
rafkerfinu og gera fólki kleift
að svitna í ánægjulegum leik
hvenær sem er sólarhringsins.
Byrjað var að grafa fyrir
Tennishöllinni þann 24. júlí í
fyrra. Á morgun, 23. júlí, á
sama laugardegi ári seinna, er
Tennishöllin opnuð formlega.
Garðar segir að í raun hafi jarð-
vegsframkvæmdir ekki hafist
fyrr en í september og byijað
var að reisa grindina í jólamán-
uðinum, í kolvitlausu veðri,
sem þá geysaði í Kópavogi og
nágrenni.
„Auðvitað þarf alvitlausa
menn til að fara út í svona
vinnu í veðri eins og þá var, en
þetta gerðu þeir með prýði
strákamir í Garðasmiðjunni og
höfðu sérfræðinga frá Texas sér
til trausts og halds. Allt tókst
þetta alveg prýðilega og verkið
allt gengið að óskum“, sagði
Garðar Jónsson að lokum.
Það má bæta því við að mikil
bókun er í tíma í Tennishöll-
inni.
Ljóst er að í Kópavogi mun
vagga tennisíþróttar á Islandi
standa í framtíðinni. Þar er að
finna rétta veðráttu fyrir þessa
heimsíþrótt, - algjört stillilogn
og hlýja.
RANNVEIG GUÐMUNDSDÓ'IT'IR og PETRÍNA BALDURSDÓTTIR hafa lagt fram frumvarp til laga
sem skyldar ATVR til að áminna verðandi mæður og ökumenn um skaðsemi áfengisdrykkju:
Fóstrið getur ekki sagt nei! segir Rannveig
Það má alveg gera ráð fyr-
ir því að 200 til 400 fóst-
ur verði fyrir áhrifunt af
áfengi um næstu helgi, eða þar-
næstu, verslunarmannahelgina.
Ef til vill munu eitt til tvö
þeirra verða fyrir varanlegum
skaða. Þetta segja erlendar
tíðnitölur okkur. Þær segja að
af 750 fæddum bömum sé
meira en eitt bam alvarlega
skemmt af áfengisneyslu móð-
urinnar á meðgöngutíma, og að
eitt af hverjum 350 bömum
hafi orðið fyrir þroska- og vaxt-
artmflunum.
Áfengisneysla bamshafandi
kvenna er því áhætta sem vert
er að benda á og vinna gegn af
alefli“, sagði Rannveig Guð-
mundsdóttir, formaður þing-
flokks jafnaðarmanna, þegar
Alþýðublaðið ræddi við hana í
gær.
Rannveig er eini þingmaður-
inn úr næststærsta byggðarlagi
landsins, Kópavogi. Hún er
þekkt fyrir mikla starfsorku
innan þingsins, og vinnur verk
sín afar vandlega. Á síðasta
þingi kom fram fmmvarp til
laga um breytingu á áfengislög-
um, sem Rannveig flutti ásamt
Petrínu Baldursdóttur, al-
þingismanni Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi. Við hitt-
um Rannveigu að máli og
spurðum nánar út í þetta fmm-
varp og afdrif þess.
„Frumvarpið náði ekki fram
að ganga í vor, dagaði uppi í
Allsherjamefnd, sem hafði
mörg verkefni til meðferðar, en
það mun án efa verða að lögum
á næsta þingi“, sagði Rannveig.
Framvarpið gengur út á
breytingu sem miðar að því að
Áfengis- og tóbaksverslun rík-
isins skuli að höfðu samráði við
landlæknisembættið og Um-
ferðarráð merkja allar umbúðir
undir áfengi, sem selt er í útsöl-
um hennar, með viðvömn þar
sem fram kemur að áfengis-
neysla bamshafandi kvenna
geti valdið fósturskaða og að
neysla áfengis og akstur öku-
tækja fari ekki saman.
Það er vert að geta þess að
jafnskjótt og framvarpið kom
fram brá íslenskur áfengisfram-
leiðandi, Víking Bmgg, skjótt
við og tók að setja aðvömnar-
orð á framleiðsluvörur sínar.
Fyrirtækið sendi þeim Rann-
veigu og Petrínu hjartans þakk-
ir fyrir fmmkvæði þeirra og
ámaði þeim allra heilla í fyrir-
byggjandi starfi sínu á þessu
sviði.
„Það kom í ljós í könnun
Hildigunnar Olafsdóttur að
tíundi hluti kvenþjóðarinnar
drekkur 57-67% alls þess
áfengis sem allar konur
drekka", sagði Rannveig. Hún
segir þetta sýna að tiltölulega
fámennur hópur kvenna drekk-
ur einum um of. Jafnframt
kemur í ljós að hér er um að
ræða konur frá kynþroskaaldri
fram á miðjan aldur, konur sem
em á frjóvgunaraldri kvenna.
„Það er alveg ljóst að áfeng-
isnotkun bamshafandi kvenna
er stór áhættuþáttur á með-
göngunni, það sýna rannsóknir
á fólki og dýrum.
Allar kannanir sýna óyggj-
andi þann skaða sem fóstrin
geta orðið fyrir. Hinsvegar
verður að taka fram að sam-
kvæmt tíðnitölum ættum við á
íslandi að búa við minni áhættu
í þessum efnum en konur í öðr-
um löndum. Það út af fyrir sig
er jákvætt, en betur má gera.
Ástæðuna fyrir þessu veit raun-
ar enginn fyrir víst“, sagði
Rannveig Guðmundsdóttir.
En hvers vegna sér þetta
fmmvarp dagsins ljós einmitt
nú? „Margir telja að neyslu-
venjur fólks séu að breytast.
Fleiri nota áfengi í dag en áður,
bjór og vín þykja eðlilegur
hlutur á heimilum og er haft
um hönd oftar en áður. Konur á
mínum aldri dmkku sjaldan
sterkt vín á sínum yngri ámm,
aðallega léttvín og það bara til
hátíðabrigða. Þetta er greini-
lega að breytast til hins verra.
Neyslumunstrið leiðir til þess
að áhættan vex hjá konurn sem
em þungaðar. Fóstrið er í beinu
blóðsambandi við móðurina.
Drekki móðirin vín kemur í
ljós sama áfengismagn hjá
fóstrinu. Það er oft gagnrýnt að
konur með böm á
bijósti skuli smakka
áfengi, eitrið hljóti að
koma fram í móður-
mjólkinni. Það er vissu-
lega rétt, en engu að
síður er hættan fyrir
ungabamið hundraðfalt
minni en þegar fóstrið
fær þennan skammt af
alkóhóli“, segir Rann-
veig. „Fóstrið getur
ekki sagt NEI. Hættan
er sú að heili og mið-
taugakerfi skerðist.
Börnin geta fæðst með
minni greind, jafnvel
vanþroskuð og með
varanlegan skaða, hafi
móðirin neytt víns á
meðgöngutímanum“,
segir Rannveig.
Rannveig segir enn-
fremur að það þurft
ákveðna rökhyggju til
að fara út í fyrirbyggj-
andi aðgerðir eins og
þær sem fmmvarp hennar og
Petrínu gerir ráð fyrir. Hún seg-
ir að benda megi á tvenn rök. I
fyrsta lagi að afleiðing sjúk-
dóms sé viðurkennt fyrirbæri,
og í öðm lagi að tíðnin sé kunn
stærð. Hér á landi sé hún talin 1
á móti 1.000, minna en víða er-
lendis, enn sem komið er. Engu
að síður geti ástandið leitt til
þess að einstaklingurinn verði
þroskaheftur, eða að vöxtur
hans og þroska. „Besta fyrir-
byggjandi aðgerðin er auðvitað
einföld. Hún er sú að verðandi
mæður neiti sér um áfengi á
meðgöngutímanum. Það er
besta tryggingin fyrir móður og
fóstur. Það er auk þess mikil-
vægt að kona sem gengur með
bami temji sér heilbrigt lífemi
á öllum sviðum, hollan mat og
góða hreyfingu og hvfld“, sagði
Rannveig Guðmundsdóttir.
Merking áfengisumbúða eins
og gert er ráð fyrir að verði í
framtíðinni á íslandi er ekki
óþekkt fyrirbæri meðal annarra
þjóða. 1 Bandaríkjunum em
slíkar merkingar nú þegar á öll-
um áfengum drykkjum og hef-
ur verið svo í fimm ár og þykir
sjálfsagt mál þar vestra. Aðvör-
unarorð þeirra í Bandaríkjunum
em tvennskonar: Bamshafandi
konum er bent á hættuna af
fósturskaða, - og ökumönnum
er bent á skerta ökuhæfrú. ís-
lendingar selja áfengi í Banda-
ríkjunum og þar er okkar fram-
leiðsla merkt með þessum við-
vörunarorðum. Hvers vegna
skyldi ekki vera svo hjá okkur
sjálfum?
Minna má á að íslendingar
vom meðal fyrstu þjóða til að
lögleiða vamaðarorð um skað-
semi tóbaks á allar tóbaksum-
búðir. Vakti það framtak at-
hygli víða um lönd. Rannveig
segir að slíkar viðvaranir hafi
ömgglega bæði bein og óbein
áhrif.
Rannveig segir að hroðalegar
afleiðingar áfengis megi sjá
víða í þjóðfélagi okkar og raun-
hæft að ráðast gegn vandanum.
Læknar telja sig sjá merki um
böm hér á landi sem skaðast
hafa af áfengisneyslu móður-
innar. Árlega verða um 2.500
ökumenn að sjá af ökuskírteini
sínu vegna ölvunar við akstur.
Áminningar, ekki síst á umbúð-
unt áfengra drykkja, komi til
með að hafa sín áhrif.
FERÐA-
Við bjóðum
ykkur
velkomna til
Hvammstanga
I verslun okkar fáið þið flestar þær vörur sem
ykkur kann að vanhaga um á ferðalaginu.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga